Morgunblaðið - 21.07.2016, Page 32

Morgunblaðið - 21.07.2016, Page 32
32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 2016 ✝ Guðrún BirnaWendel Ólafs- dóttir, sagnfræð- ingur og kennari, fæddist í Reykjavík 24. júlí 1966. Hún lést á krabbameins- deild Landspítalans við Hringbraut 28. júní 2016. Hún var dóttir hjónanna Guðríðar Björnsdóttur, fyrr- verandi fulltrúa hjá Skattstjór- anum í Reykjavík og húsmóður, f. 10. september 1930, d. 22. febrúar 1982, og Ólafs Her- manns Jónssonar flugumferð- arstjóra, f. 20. október 1932, d. c) Anna Margrét Ólafsdóttir, f. 15. janúar 1963. Börn Steinunnar og Sigurðar Geirssonar, f. 10.1. 1955 eru a) Ásta Jenný Sigurðardóttir, f. 9. júní 1980, maki: Óskar Örn Ágústsson, f. 12. apríl 1973. Börn þeirra eru Ágúst Páll Ósk- arsson, f. 12. ágúst 2006, Sig- urður Orri Óskarsson, f. 11. júlí 2009, og Stefán Örn Óskarsson, f. 21. október 2011. b) Guðríður Lilla Sigurðardóttir, f. 29. sept- ember 1986, sambýlismaður Lárus Jóhannesson, f. 10. októ- ber 1978. Sonur þeirra er: Vikt- or Snær Lárusson, f. 20. júlí 2015. Börn Önnu Margrétar og Sturlu Orra Arinbjarnarsonar, f. 3. maí 1961, eru a) Ólafur Orri Sturluson, f. 24. desember 1995, b) Andri Elvar Sturluson, f. 4. ágúst 1998, og c) Íris Margrét Sturludóttir, f. 16. ágúst 2004. Útför Guðrúnar fór fram í kyrrþey. 2. október 1995. Eftirlifandi eig- inmaður Guðrúnar er Þór Jes Þór- isson, for- stöðumaður hjá Símanum, f. 30. júlí 1961. Börn þeirra eru: a) Daníella Jó- hanna Þórsdóttir, f. 25. apríl 1994, b) Michael Jes Þórs- son, f. 31. ágúst 1998, c) Theodór Wendel Þórs- son, f. 9. júní 2010. Systur Guðrúnar eru: a) Steinunn Þórunn Ólafsdóttir, f. 29. apríl 1955, b) Hertha Lind Ólafsdóttir, f. 5. ágúst 1960, og Elsku Guðrún mín. Nú á ég ekki eftir að sjá þig aftur, alla- vega í þessari jarðvist. Ég á ekki eftir að horfa í ljósbláu augun þín og heyra létta hláturinn þinn, fallega stelpan mín. Ég á þó margar yndislegar minningar um þig á liðnum árum. Hér heima í Langagerði, þar sem okkur leið svo vel með börnunum okkar þrem og á ferðalögum okkar, sérstaklega í Bandaríkj- unum. Þú varst minn besti vinur og mín stærsta ást. Ást þín og stuðningur þinn í gegnum árin var mér ómetanlegur. Dugnaður og bjartsýni var alltaf við völd hjá þér. Börnin voru þér afar kær enda mikill metnaður lagður í að gera þeim tilveruna sem besta og hvetja þau til dáða. Hvernig þú mættir and- streymi lífsins var aðdáunarvert. Hvort sem það var móðurmissir á unga aldri, eða ólæknandi krabbamein á síðustu mánuðun- um. Æðruleysi og bjartsýni þín var alltaf til staðar og aldrei féll þér verk úr hendi eða var að finna nokkurn uppgjafatón. Að þú sért alveg farin er erfitt að skila, svo óaðskiljanlegur hluti af lífi mínu hefur þú verið þessi síðustu 25 ár. Ég veit ekki hvað tekur við á næstu misser- um og árum, en mun áfram leit- ast við að gera þig stolta af mér og krökkunum. Í þeim lifir þú áfram. Í útliti, töktum, gáfum og skapgerð. Betra veganesti geta þau vart fengið. Elsku stelpan mín. Ég vona innilega að okkar leiðir liggi aft- ur saman í óendanleika alheims- ins. Þinn að eilífu, Þór Jes. Það er erfitt að sjá á eftir yngstu systur sinni, rétt tæplega 50 ára, að aldri kveðja okkur svona snögglega. Við sem eftir stöndum erum agndofa yfir því reiðarslagi sem dundi yfir okkur er hún var hrifsuð af okkur með nánast engum fyrirvara. Síðasta haust greindist Guðrún með ill- vígan sjúkdóm, sem hún barðist hetjulega við og voru menn orðn- ir bjartsýnir um að hægt væri að tefja fyrir framgangi sjúkdóms- ins, en þá tók við atburðarás sem engan gat órað fyrir og tímaglas- ið tæmdist fljótt. Guðrún Birna ólst upp í Háa- leitishverfinu og var yngst í hópi fjögurra systra. Guðrún var í alla staði mjög skemmtileg og frá- bær systir, hávaxin og brún yf- irlitum. Hún var einstaklega greiðvikin og hjartastór í öllu því sem hún tók sér fyrir hendur. Mér eru minnisstæð háskólaárin okkar er við lékum saman bad- minton í KR-heimilinu og vorum við kallaðar badmintonsysturnar af kollegum okkar. Við héldum badmintonæfingunum áfram eft- ir háskólanámið og einnig lékum við tennis saman. Það var ein- ungis í júlímánuði á síðasta ári sem við lékum okkar síðasta tennisleik saman ásamt krökk- unum okkar og auðvitað hafði Guðrún frumkvæði að því að panta völl fyrir allan mannskap- inn. Þannig var Guðrún tilbúin að gera hluti fyrir aðra með nán- ast engum fyrirvara. Við Guðrún áttum margt sam- eiginlegt, við giftum okkur báðar sumarið 1995 og einnig voru eig- inmenn okkar gamlir skólafélag- ar. Við eignuðumst báðar syni árið 1998 og völdum við sama ágústmánuðinn til þess. Fjöl- skyldan var í fyrirrúmi hjá Guð- rúnu og gekk hún fyrir öllu í hennar lífi. Hún eignaðist þrjú yndisleg börn með eiginmanni sínum sem sjá nú á eftir frá- bærri móður og eiginkonu langt fyrir aldur fram. Guðrún veitti börnum sínum góða leiðsögn og gaf þeim alla sína ástúð sem ein móðir getur gefið börnum sínum. Um síðustu páska hittumst við yngri systurnar ásamt fjölskyld- um okkar í Orlando í Flórída og áttum við yndislega stund sam- an. Það var ekki í fyrsta sinn sem við hittumst þar en reyndist vera okkar síðasta sameiginlega heimsókn þangað. Guð einn veit hversu langur tími okkar er hér á jörðinni og því nauðsynlegt að nýta hann vel og það gerði Guð- rún. Að hafa átt Guðrúnu sem systur var eins og að eiga traust- an klett í Atlantshafinu, alltaf var hún tilbúin að hjálpa til og traustari einstakling var ekki hægt að finna. Blessuð sé minn- ing hennar. Ég sendi mági mínum Þór Jes og börnunum Daníellu, Michael og Theodór mínar innilegustu samúðarkveðjur. Megi minning hennar vera ljós í tilveru ykkar allra. Þín systir, Anna Margrét og fjölskylda. Elsku systir – þú komst í heiminn á yndisfögrum sumar- degi í lok júlí, nokkrum dögum fyrir 6 ára afmælið mitt en þú kvaddir, því miður allt of fljótt, á björtum degi í júnílok. Það var stolt stóra systir sem leit þig augum í fyrsta skipti, svo langa en fíngerða og granna. Þú varst eftirlæti allra í fjölskyldunni og augasteinninn hennar mömmu. Fjölskyldan flutti í Háaleitis- hverfið á 7. áratug síðustu aldar og þar ólumst við systurnar upp í stórum samheldnum systra- hópi. Barnæskan leið áhyggju- lítil við leik og mikið var brallað. Hverfið var nýbyggt og stórar og barnmiklar fjölskyldur í hverju húsi og því auðvelt að finna leikfélaga og vettvang til þess að leika okkur og fara í æv- intýra- og könnunarleiðangra. Þú varst aðeins 15 ára þegar við misstum móður okkar langt fyrir aldur fram. Móðurmissirinn var okkur systrunum mikill en þó sérstaklega fyrir þig, yngstu systurina og augastein móður sinnar. Átta árum áður hafði annar stór missir orðið í fjöl- skyldunni þegar móðir okkar fæddi andvana systur okkar. Al- vara lífsins blasti því snemma við þér en þú tókst á við erfiðleikana af þínu einskæra æðruleysi og stóísku ró sem alltaf fylgdi þér og það var þín auðna. Þú giftist yndislegum manni og hjónaband ykkar var ákaflega farsælt og einkenndist af gagnkvæmri virð- ingu og ást. Þið stofnuðuð stór- glæsilegt heimili og varð þriggja myndarlegra og yndislegra barna auðið. Þér var mjög annt um fjölskyldu þína og þú helg- aðir þig alfarið að uppeldi og vel- ferð barna ykkar Þórs og missir þeirra nú er ólýsanlegur. Þú varst mikið fyrir sund og vissir fátt eitt betra og ánægjulegra en að fara í sund og heita potta. Margar góðar stundir átti ég með þér og börnum þínum í sundi og heita pottinum heima hjá þér. Þú varst listakokkur og höfðingi heim að sækja. Fjöl- margar jóla- og áramótaveisl- urnar hef ég setið hjá ykkur hjónum og börnum ykkar og á yndislegar minningar frá þeim. Á síðasta ári fór ég ásamt þér og fjölskyldu þinni til Bandaríkj- anna til þess að vera við útskrift dóttur ykkar frá University of Vermont. Sú ferð var ógleym- anleg og minningarnar mun ég ávallt geyma í hjarta mínu. Þú varst hávaxin og stórglæsileg kona og heillaðir alla með þínu fallega brosi og framkomu sem einkenndist af hlýju og nær- gætni enda varstu hvers manns hugljúfi. Þú varst lífið og þú elskaðir lífið. Þess vegna var það reiðarslag þegar þú greindist með banvænt krabbamein s.l. haust. sem þú barðist við með æðruleysi þínu og dugnaði en annað áfall kom í kjölfarið og þú áttir ekki afturkvæmt úr veik- indum þínum og mættir skapara þínum langt fyrir aldur fram. Þú ert og verður alltaf ljósið í lífi mínu. Lífið er fátækara án þín en minningin um glæsilega, hrífandi og yndislega systur með hjarta úr gulli mun ávallt lifa með mér um ókomin ár. Elsku Þór, Dallý, Mikki og Teddi, ég votta ykkur öllum mína dýpstu samúð, engin orð geta lýst harmi mínum vegna fráfalls Guðrúnar. Þín systir, Hertha Lind. Þín verður sárt saknað, elsku Guðrún Birna, ég kveð þig með sorg í hjarta. Guðrún Birna tókst á við veik- indi sín með aðdáunarverðum hætti. Ég dáist að hugarfari hennar, hún hélt áfram að vera jákvæð og alltaf jafn brosmild þrátt fyrir allt. Við tengdaforeldrar hennar nutum þess að vera með henni og fjölskyldu hennar í ferðalög- um og var þá farið til Bandaríkj- anna. Hún var einstakur skipu- leggjari, búin að panta og sjá fyrir öllu. Þau Þór Jes voru yndisleg heim að sækja, t.d. jólaboðin sem voru hátíðleg og lásu börn þeirra úr jólaguðspjallinu og að því lok- un voru bornar fram dýrðlegar krásir, þar sem Guðrún var sér- staklega góður kokkur. Elsku sonur minn, Þór Jes og barnabörn mín, Daníella Jó- hanna, Michael Jes og Theodór Wendel, ég votta ykkur mína dýpstu samúð og bið Guð að gefa ykkur styrk á þessum erfiðu tím- um. Missir ykkar er mikill en minningin um góða og yndislega konu lifir í hjarta mínu. Guð geymi elskulega tengda- dóttur og verndi og hvíli hún í friði. Lifðu ljóss í heimi, Guði falin. Við andlátsfregn þína, allt stöðvast í tímans ranni. Og sorgin mig grípur, en segja ég vil með sanni, að ósk mín um bata þinn, tjáð var í bænunum mínum, en Guð vildi fá þig, og hafa með englunum sínum. Við getum ei breytt því sem frelsarinn hefur að segja. Um hver fær að lifa, og hver á svo næstur að deyja. Þau örlög sem við höfum hlotið, það verður að skilja. Svo auðmjúk og hljóð, við lútum að frelsarans vilja. Þó sorgin sé sár, og erfitt við hana að una. Við verðum að skilja, og alltaf við verðum að muna, að Guð hann er góður, og veit hvað er best fyrir sína. Því treysti ég nú, að hann geymi vel sálina þína. Þótt farin þú sért, og horfin er burt þessum heimi. Ég minningu þína, þá ávallt í hjarta mér geymi. Ástvini þína, ég bið síðan Guð minn að styðja, og þerra burt tárin, ég ætíð skal fyrir þeim biðja. (Bryndís Halldóra Jónsdóttir) Þín einlæg tengdamamma, Jóhanna Jónsdóttir (Hanna). Guðrún Birna Wendel Ólafsdóttir ✝ Þór SteinbergPálsson fæddist á Ljósstöðum í þorpinu á Akureyri 30. ágúst 1933. Hann lést á Sjúkra- húsinu á Akureyri 29. júní 2016. Foreldrar hans voru Páll Friðfinns- son, f. 9.9. 1906, d. 22.8. 2000, og Anna Ólafsdóttir, f. 25.10. 1912, d. 21.6. 2003. Systkini Steinbergs voru fimm; Björgvin, Ólöf, Tryggvi, Bragi, og Frið- finnur. Árið 1955 giftist Steinberg Hrefnu Sigursteinsdóttur og eiga þau saman börnin Sig- urstein, Ástu og Björgvin. Barna- börnin urðu átta og barna- barnabörnin eru orðin sautján. Steinberg fór ungur að vinna við smíðar hjá föður sínum. Hann fór í gamla Iðnskólann á Akureyri og útskrif- aðist þaðan sem byggingameistari. Hann vann alla sína tíð í bygging- arvinnu og stofnaði og rak m.a. bygg- ingafélagið Smár- ann hf. með nokkr- um félögum sínum. Eitt af verkum Steinbergs var bygging á Kringlumýri 21 þar sem hann bjó með fjölskyldu sinni frá árinu 1960 til dauða- dags. Á eldri árum sinnti Stein- berg áhugamálum sínum af miklu kappi. Ber þar helst að nefna störf hans fyrir Harm- onikkufélag Eyjafjarðar. Útför Steinbergs hefur farið fram. Það er sárt að hugsa til þess að geta ekki spjallað við afa framar þegar ég kem við í Kringlumýr- inni. Afi var málglaður maður og hafði gaman af því að segja frá því sem hann hafði upplifað um æv- ina. Hann var afskaplega stoltur af því að vera uppalinn þorpari og var því mjög ánægður í Kringlu- mýrinni, þaðan sem hann sá yfir bæði fæðingarstað sinn, Ljósstaði og Sólvelli, þar sem hann ólst upp. Afi var líka stoltur af því að vera Þórsari þrátt fyrir að hafa ekki mikið mætt á völlinn, en hann var skírður í höfuðið á Íþróttafélaginu Þór og hafði gam- an af að segja frá því. Honum þótti því ánægjulegt þegar börnin mín fóru að spila fótbolta með Þór. Fræddi þau um að hann hefði einnig spilað með Þór og að völl- urinn hefði þá verið þar sem súkkulaðiverksmiðjan Linda var seinna byggð. Afi var alltaf mjög ánægður með sitt og sína og sýndi afkomendum sínum mikinn áhuga. Hann vildi upplýsingar um ganginn í boltanum, tónlistar- námið og allt sem hver og einn var að bralla þá stundina. Áhugamálin hans afa voru mörg og var eitt þeirra að ferðast um landið á húsbílnum sínum sem hann útbjó sjálfur. Ég á margar góðar minningar úr slíkum ferða- lögum með afa, en hann var mjög duglegur að ferðast með okkur, barnabörn sín. Hann var mjög fróður um landið og fór yfir hvern krók og kima með okkur við und- irspil harmonikkutónlistar af kassettu. Hugsanlega er ástæða þess að ég man svona vel eftir þessum ferðum sú að afi nýtti hvert tækifæri til þess að draga fram myndavélina, en hann var líka mikill ljósmyndaáhugamað- ur. Það er því til mikill mynda- fjársjóður í Kringlumýrinni sem er gaman að fletta í gegnum og eru ófáar myndirnar úr þessum eftirminnilegu ferðalögum. Afi var yndislegur maður sem gaf mikið af sér og hugsaði vel um sitt fólk. Hann var maðurinn sem var alltaf tilbúinn til þess að redda málunum og aðstoða. Þrátt fyrir að hafa þurft að glíma við veikindi í mörg ár var hann alltaf ákveð- inn, orkumikill og tók þetta á já- kvæðninni. Ég var því nánast far- in að trúa því að hann yrði eilífur. Mér finnst þessi jákvæðni og bar- áttuvilji virðingarverður og tek þetta með mér út í lífið ásamt mörgu öðru góðu frá honum afa mínum. Takk fyrir allt, afi minn, við sjáumst síðar. Anna María Ingþórsdóttir. Þór Steinberg Pálssson Nú er skarð fyr- ir skildi. Barátt- unni er lokið. Góð- ur drengur er fallinn, fallinn fyrir illvígum sjúkdómi sem hann barðist við í 18 mánuði alveg galvaskur og viss um að hafa betur. En þinn lífsins vegur náði ekki lengra en til 30. júní sl. Margar góðar minningar á ég og mín fjölskylda um þig, en einhverra hluta vegna kem ég þeim ekki niður á blað. Mér og fjölskyldu minni varst þú afar góður og sannur vinur. Við Maggi vorum að tala um það um daginn að þú varst alltaf fyrstur til að láta pening af hendi rakna ef einhver átti bágt. Þá sagði Maggi: „Mér dettur í hug lagið úr myndinni „Með allt á hreinu“ sem er svona: „Hann var vænn við menn og málleysingja, létt er æ hans pyngja, ávallt hefur borg- að meðlagið“ (það á nú samt ekki við).“ Út frá öllum samtölum okkar Árni Kjartan Þórður Jónasson ✝ Árni KjartanÞórður Jón- asson fæddist 9. mars 1947. Hann lést 30. júní 2016. Útför Árna fór fram 8. júlí 2016. og vangaveltum yf- ir misskiptingu heimsins og hvern- ig fólk er misjafn- lega úr garði gert, þá finnst mér þetta ljóð lýsa okkar samtölum og „spekúlasjónum“ best og ég veit að þú átt inneign. Tilvera okkar er undarlegt ferðalag. Við erum gestir og hótel okkar er jörðin. Einir fara og aðrir koma í dag, því alltaf bætast nýir hópar í skörðin. En það er margt um manninn á svona stað, og meðal gestanna er sífelldur þys og læti. Allt lendir í stöðugri keppni’ um að koma sér að og krækja sér í nógu þægilegt sæti. En þó eru sumir, sem láta sér lynda það að lifa úti’ í horni, óáreittir og spakir, því það er svo misjafnt, sem menn- irnir leita að, og misjafn tilgangurinn, sem fyrir þeim vakir. En mörgum finnst finnst hún dýr þessi hóteldvöl, þó deilt sé um hvort hótelið sjálft muni græða. En við, sem ferðumst, eigum ei annars völ. Það er ekki um fleiri gististaði að ræða. Þá streymir sú hugsun um oss sem ískaldur foss, að allt verði loks upp í dvölina tekið frá oss, er dauðinn, sá mikli rukkari, réttir oss reikninginn yfir það sem var skrifað hjá oss. Þá verður oss ljóst, að framar ei frestur gefst né færi á að ráðstafa nokkru betur. Því alls, sem lífið lánaði, dauðinn krefst í líku hlutfalli og Metúsalem og Pétur. (Tómas Guðmundsson) Nú er komið að ferðalokum. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Þú varst hraustur, þjáning alla þoldir þú og barst þig vel, vildir aldrei, aldrei falla: Uppréttan þig nísti hel. Þú varst sterkur, hreinn í hjarta, hirtir ei um skrum og prjál; aldrei náði illskan svarta ata þína sterku sál. (Matthías Jochumsson) Okkar dýpstu samúðarkveðj- ur sendum við Birnu, Jónasi, Ellu, Adda, Björgu og fjölskyld- um þeirra, svo og öðrum að- standendum. Helga Ingibjörg, Magnús og Bjarki, Sigurður og fjölskylda og Pálmi og fjölskylda.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.