Morgunblaðið - 21.07.2016, Page 38
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 2016
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Reykholtshátíð fagnar 20 ára afmæli
sínu dagana 22.-24. júlí en tónskáldið
Gunnar Andreas Kristinsson var
fenginn til að semja verk fyrir hátíð-
ina í ár.
„Mér finnst það mikill heiður að
hafa verið beðinn að semja verk fyrir
hátíðina og skemmtileg áskorun,“
segir Gunnar en hann sótti innblástur
í Eddukvæði Snorra Sturlusonar.
„Hugmyndin er að tengja tón-
verkið við staðinn og Snorra Sturlu-
son en það er hefð fyrir því að ný verk
sem samin eru fyrir Reykholsthátíð
tengist Snorra. Ég sótti mér því inn-
blástur í Grímnismál en þau eru birt í
Konungsbók Eddukvæða og inni-
halda 54 erindi og heitir verkið mitt
því hreinlega Úr Grímnismálum.“
Erindin sem Gunnar valdi sér að
tónsetja eru nr. 40 og 41 en þau fjalla
um sköpun heimsins og eru eftirfar-
andi:
40.
Ór Ymis holdi
var jörð of sköpuð,
en ór sveita sær,
björg ór beinum,
baðmr ór hári,
en ór hausi himinn.
41.
En ór hans brám
gerðu blíð regin
Miðgarð manna sonum,
en ór hans heila
váru þau in harðmóðgu
ský öll of sköpuð.
„Þessum erindum svipar efnislega
til byrjunarinnar á Völuspá en frá-
sögnin í hinum lítt þekktari Grímn-
ismálum er gjörólík. Snorri Sturluson
vitnar í þessi erindi í Eddu sinni, nán-
ar tiltekið í Gylfaginningu og ég not-
ast við þennan texta um sköpun
heimsins, þ.e. hvernig heimurinn var
búinn til úr líkama jötunsins Ýmis en
hann var rifinn í sundur og þannig er
t.d. jörðin sköpuð úr holdi hans og
sjór úr blóði.“
Unnið innan ramma
Það getur verið ólíku saman að
jafna að vinna verk upp á sitt ein-
dæmi eða semja fyrir tiltekna hátíð.
Reykholtshátíðin takmarkar tón-
skáldið örlítið en Gunnar segir að
þrátt fyrir allar takmarkanir eða öllu
heldur leiðbeiningar sé af nægu að
taka fyrir tónskáldið.
„Sigurgeir Agnarsson, listrænn
stjórnandi hátíðarinnar, hafði sam-
band við mig og sagði mér hvaða
hljóðfæri ég gæti notað og hvaða
söngvari væri á staðnum,“ segir
Gunnar, og spurður hvort honum
finnist það takmarka tónsmíðina seg-
ir hann það ekki þurfa að vera.
„Stundum er það bara þægilegra
að fá upplýsingar um það hvaða hljóð-
færi eru í boði og hvaða söngvarar
eru til taks. Þá veit ég hvar mörkin
liggja og hvað ég get gert en síðan er
nóg af ákvörðunum eftir fyrir mig
sjálfan að taka.“
Tónlistarheimurinn lítill
Sigurgeir Agnarsson, listrænn
stjórnandi hátíðarinnar, er lærður
sellóleikari og spilar m.a. með Sinfón-
íuhljómsveit Íslands en það vill svo
skemmtilega til að hann og Gunnar
voru báðir í námi í Köln fyrir að verða
17 árum.
„Ég lærði einn vetur í Köln og Sig-
urgeir var þá í sellónámi þar á sama
tíma. Síðan fór ég í meistaranám til
Haag og bjó þar svo í nokkur ár en
kynntist Sigurgeir ágætlega meðan
við vorum báðir í Þýskalandi en tón-
listarheimurinn á Íslandi er ekki svo
stór að hér þekkja nærri því allir alla
hvort sem er,“ segir Gunnar sposkur
á svip.
Sjálfur stundaði Gunnar nám í tón-
smíðum en hann hefur samið verk af
ýsmum toga allt frá einleiksverkum
til hljómsveitarverka, sem ratað hafa
inn á tónlistarhátíðir víðs vegar um
heim og verið flutt af ýmsum nafn-
kunnum tónlistarmönnum og hópum.
Gunnar hlaut Kraumsverðlaunin
2013 fyrir geisladiskinn Patterns og
auk þess tilnefningar í flokkunum
Tónverk ársins og Tónhöfundur árs-
ins á Íslensku tónlistarverðlaununum
sama ár.
Á lokatónleikum hátíðarinnar
Frumflutningur á verki Gunnars
fer fram á sunnudaginn á loka-
tónleikum hátíðarinnar.
„Lokatónleikar hátíðarinnar sem
hefjast eftir hátíðarguðsþjónustuna
bera heitið Himneskur og hefjast
klukkan fjögur.“
Ásamt verki Gunnars verða tvö af
meistaraverkum klassíska tímabils-
ins einnig í sviðsljósinu, þ.e. Strengja-
tríó Beethovens sem er gullmoli sem
vert er að heyra og drottning kamm-
erverka Schuberts slær svo botninn í
Reykholtshátíð.
Lýsir upphafi heimsins í tónum
Tónsmíði Gunnar Andreas Kristinsson tónsmiður frumflytur nýtt verk í Reykholti á sunnudag.
Nýtt íslenskt verk eftir tónskáldið Gunnar Andreas Kristinsson verður frumflutt á sunnudaginn
á lokatónleikum Reykholtshátíðar Í ár fagnar Reykholtshátíð 20 ára afmæli sínu
Mikið verður um dýrðir á
Reykholtshátíðinni sem fagn-
ar 20 ára afmæli sínu.
Á opnunartónleikunum 22.
júlí verða fluttar Árstíðirnar
eftir Vivaldi þar sem fiðluleik-
arinn Ari Þór Vilhjálmsson
tekur að sér einleikarahlut-
verkið. Reykholtskórinn syng-
ur undir stjórn Viðars Guð-
mundssonar og Elmar
Gilbertsson syngur einsöng
með kórnum.
Laugardaginn 23. júlí verð-
ur fyrirlestur sem Margrét
Eggertsdóttir flytur í sam-
starfi við fyrirlestraröð
Snorrastofu. Fyrirlesturinn
ber heitið Það mikið elskaða
skáld Hallgrímur Pétursson.
Þá verða kammertónleikar
sama dag sem bera heitið
Mozart-Bach-Boccherini og
um kvöldið stígur stórten-
órinn Elmar Gilbertsson á svið
ásamt píanóleikaranum Helgu
Bryndísi Magnúsdóttur.
Tónlist og
fræðastörf
FJÖLBREYTT DAGSKRÁ
Fjórða helgi tónlistarhátíðinnar
Sumartónleikar í Skálholti hefst í
kvöld kl. 20:00 með tónleikum sem
kallast Barokkbandið Brák og
Blóðheitu Ítalarnir, en þar verður
skellt í eina ítalska stuðtónleika
með verkum eftir Vivaldi, Caldara,
Locatelli o.fl. þar sem hóflegir
hljóðfærakonsertar verða í for-
grunni. Barokkbandið Brák er hóp-
ur ungs tónlistarfólks sem á það
sameiginlegt að hafa brennandi
áhuga á barokktónlist, hefur sér-
hæft sig að hluta í þeirri tónlist er-
lendis og vill koma upprunaflutn-
ingi á framfæri á Íslandi. Leiðari
hópsins er Elfa Rún Kristinsdóttir
fiðluleikari.
Fjórðu tónleikahelginni í Skál-
holti verður fram haldið á laug-
ardagskvöldinu 23. júlí, en þar
koma fram tveir meðlimir Brákar,
þau Steinunn Arnbjörg Stef-
ánsdóttir sellóleikari og franski
semballeikarinn Brice Sailly. Efnis-
skrá þeirra samanstendur af Són-
ötum eftir J.S. Bach fyrir gömbu og
sembal, en Steinunn mun í þetta
sinn leika þær á pikkolóselló. Tón-
leikar Steinunnar og Brice hefjast
svo síðar um kvöldið.
Að lokum, sunnudaginn 24. júlí
kl. 11:00, verður messa í Skálholts-
dómkirkju þar sem flytjendur Sum-
artónleikanna koma fram, en hún
er hluti af Skálholtshátíð sem
stendur yfir samtímis á staðnum
þessa helgi.
Tónleikar Barokkbandið Brák spilar í Skálholti um helgina.
Sumartónleikar í Skálholti
bestalambid.isBeztu uppskriftirnar okkar
Enn einn dagur
í Paradís
Bez
t á k
júklinginn