Morgunblaðið - 19.08.2016, Síða 13
Listaháskóla Íslands og útskrifaðist
2009,“ segir Borghildur, sem síðan
var hálft ár í starfsnámi í London.
Fyrst hjá danska hönnuðinum Peter
Jensen og síðan Kanadamanninum
Erdem Moralioglu, en þeir eru báðir
nokkuð þekktir.
„Mjög góð reynsla, ég lærði
margt og kynntist því hvernig hlut-
irnir ganga fyrir sig í þessum
bransa. Eftir starfsnámið dvaldi ég
svolítið lengur í borginni og gældi
jafnvel við að byrja með merkið mitt
þar ytra. En heimþráin gerði vart við
sig, ég þurfti á því að halda að vera í
nálægð við náttúruna,“ segir Borg-
hildur.
Heimkomin hófst hún handa við
að hanna undir merkinu Milla
Snorrason, sem hún selur í Kiosk, en
verslunina rekur hún í félagi við sjö
fatahönnuði. „Markaðurinn er lítill,
en ég er að gera það sem mér finnst
skemmtilegt og er hæstánæð. Ég er
enn að prufa mig áfram á Íslandi en
stefni á að fara með merkið mitt á er-
lendan markað.“
Spurð hvort landinn fylgist vel
með ef miðað er við götutískuna,
kveðst hún raunar aðallega sjá fólk í
Gori-tex klæðnaði á Laugaveginum.
„Mig grunar að þar séu túristar á
ferð. Almennt eru Íslendingar
smart, fylgjast vel með og kaupa sér
falleg föt. Það er partur af að hafa
gaman af lífinu.“
Náttúran Ljósmynd sem Borghild-
ur tók á Fjallabaksleiðinni.
Snjóalög Bómullar- og jersey-kjóll með mynstri í anda fjallanna.
Ullarblanda Buxur og peysa með fjallamynstri.
Morgunblaðið/Þórður
Mynstrin í nátt-
úrunni speglast
með sérstökum
hætti í flíkunum.
Konan á bak við merkið Borghildur Gunnarsdóttir fatahönnuður, konan á bak við tískumerkið Milla Snorrason.
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 2016
Sú mikla menningarveisla sem verð-
ur á morgun á sjálfa Menningarnótt í
Reykjavík, er heldur betur fjölbreytt
og ótal skemmtilegir viðburðir verða
í boði fyrir gesti og gangandi. Allir
ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.
Fyrir þá sem kunna vel að meta
ískaldan húmor og skemmtilegheit,
þar sem mögulega verður stungið á
einhverjum kýlum, er um að gera að
líta við á Gauknum við Tryggvagötu
klukkan 21 annað kvöld, laugar-
dagskvöld, því þar verður uppistand
þríeykis sem kallar sig „The Devil’s
Threesome“.
Þessi djöfullegi þríhyrningur er
skipaður þeim Hugleiki Dagssyni,
Jonathan Duffy og Bylgju Babýlons.
Hugleik þekkja allir af teiknimynda-
sögum hans sem hafa slegið í gegn,
en hann hefur einnig sannað sig sem
uppistandari. Bylgja er leikkona og
uppistandari sem margir kannast líka
við úr myndböndunum í Baði með
Bylgju. Jonathan Duffy er ástralskur
leikari og uppistandari sem býr í
Reykjavík. Óhætt er að búast við
góðu kvöldi með þessum þremur
ólíkindatólum og vert er að taka fram
að ókeypis er inn. Að loknu uppi-
standi þríeykisins kl. 23 stíga á svið
ein af annarri hljómsveitirnar Skoff-
ín, Krakk & Spaghettí, Lucy in Blue,
Vára og Rythmatik. Garanterað fjör.
Uppistand á Gauknum á Menningarnótt með þremur svaðalegum
Uppistandarar Hugleikur Dagsson, Jonathan Duffy og Bylgja Babýlons.
Djöfullegur
þríhyrningur
fer hamförum
Þegar þetta er skrifað er égstaddur úti í Noregi. Til-efnið er ekki af verri end-anum, en þessa helgina
heldur árgangurinn minn úr gagn-
fræðiskóla reunion með pompi og
prakt. Svo miklu pompi og prakt að
reunion-ið er haldið á lúxusveit-
ingastað eins og aðeins olíu-
maríneruðum Norðmönnum myndi
detta í hug að gera.
18 ár eru liðin frá því að ég flutti til
Noregs. Altalandi á íslensku og ótal-
andi á norsku mætti ég í snævi þak-
inn skólann og reyndi að aðlagast
norska samfélaginu. Þrautirnar voru
margar en lausnirnar einfaldar og
strategískar. Fyrst lærði maður
mikilvægasta orð norskrar tungu fyr-
ir átta ára pjakka. Var það hið ein-
falda orð „hit“. Orðið gerði það að
verkum að þeir sem voru með mér í
liði í fótbolta gáfu boltann á mig og þá
gat ég látið hreyfingarnar á boltanum
tala fyrir sig. Knattspyrna er al-
þjóðlegt tungumál.
Önnur þrautin sem lögð var fyrir
mig reyndist vera hinn árlegi skíða-
dagur skólans. Sá dagur var nálægt
því að fara verulega úrskeiðis. Ég
hafði prófað að stíga á skíði áður
og örlítil tilhlökkun gerði vart við
sig þegar dagurinn nálgaðist.
Daginn áður en skíðadagurinn
rann upp ákvað ég að spyrja
kennarann af forvitni í
hvaða skíðabrekku við
værum að fara. „Brekku?
Við erum að fara á
gönguskíði,“ svaraði
kennarinn. „Auðvitað,
ég vissi það nú,“ svar-
aði ég ósannfærandi áð-
ur en ég stökk heim og
fjölskyldan rótaði í bíl-
skúrnum þar til við fundum
eitthvað sem einu sinni hafði
verið ný gönguskíði. Þau voru gömul.
Enn þann dag í dag velti ég fyrir
mér tilhugsuninni ef ég hefði mætt í
rútuna í risavöxnum skíðaklossum
með svigskíðin á öxlinni innan um
gönguskíðaklædda vini mína, á leið í
gönguskíðaspor lengst inni í skóg-
inum langt frá öllum skíðalyftum.
Skíðadagurinn var þó frábær
skemmtun fyrir ungan strák sem var
að stíga sín fyrstu skref á gönguskíð-
um. Ráðlegging til norsku útlend-
ingastofnunarinnar: Ekkert lagar þig
betur að norsku samfélagi en að
stingast á bólakaf í snjóskafl á göngu-
skíðum. Ég fann hvernig sósíal-
demókratinn innra með mér fór að
vaxa og það eina sem ég gat stunið
upp úr mér var hrópið: Heia
Norge!
En nóg af minningum.
Nostalgían var betri hér áður
fyrr. Nú er kominn tími til að
búa til nýjar minningar hér í
Noregi. Útskýra fyrir ár-
ganginum aftur að Ís-
lendingar búa ekki í
snjóhúsum, Grænland
er hvítt og Ísland er
grænt. Kannski endar
kvöldið svo á víkinga-
klappi? Ekki útiloka
það. HÚH!
»Ég fann hvernig sósíal-demókratinn innra
með mér fór að vaxa og það
eina sem ég gat stunið upp
úr mér var hrópið: Heia
Norge!
Heimur Björns Más
Björn Már Ólafsson
bmo@mbl.is
Varahlutir í flestar tegundir dráttarvéla
New Holland, Fiat, Ford, Case, Steyr, Zetor og Fendt
Eigum fyrirliggjandi síur í flestar gerðir þessara véla
og mikið úrval varahluta. Einnig sérpantanir.
Eigum einnig mikið úrval varahluta í gömlu dráttarvélarnar
Austurvegur 69 - 800 Selfoss Lónsbakki - 601 Akureyri Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir Sími 480 0400 jotunn@jotunn.is www.jotunn.is
Saltkaup ehf | Cuxhavengata 1 | 220 Hafnarfjörður
Sími: 560 4300 | www.saltkaup.is
Fjölbreytt vöruúrval
Strekki-
filmur
glærar
Bóluplast
1,5 m br.
100 m á rúllu
Kíktu á heimasíðunawww.saltkaup.is
Bóluplast 1,2 m br.
100 m á rúllu
Bylgjupappír
Ruslapokar
svartir
Ruslapokar glærir
Umbúða-
pappír
Límbönd
Mini strekki-
filmur
Strekkifilmur
svartar