Morgunblaðið - 19.08.2016, Side 24
24 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 2016
✝ Aage Petersenfæddist í
Reykjavík 2. mars
1934. Hann lést á
heimili sínu 9. ágúst
2016.
Foreldrar hans
voru Lauritz Christ-
ian Petersen, f. 7.8.
1906, d. 26.9. 1972,
og Guðný Guðjóns-
dóttir Petersen, f.
15.11. 1907, d. 27.9.
1971. Systkini Aage eru: Gunnar,
f. 1930, d. 2013, Guðjón, f. 1938,
Hulda Sóley, f. 1941 og Margrét,
f. 1947, uppeldissystir hans er
Anna Kristín Ólafsdóttir, f. 1953.
Aage kvæntist 16. júlí 1960
eftirlifandi eiginkonu sinni, El-
ínu Sigurjónsdóttur, f. 19. mars
1936. Foreldrar hennar voru
Sigurjón Jónsson, f. 1.6. 1894, d.
28.9. 1982, og Soffía Ingimund-
ardóttir, f. 18.9. 1900, d. 6.6.
1964. Elín ólst upp í Sandlækjar-
koti í Gnúpverjahreppi og fóstur-
foreldrar hennar voru Eiríkur
Jónsson, f. 2.2. 1880, d. 14.5.
1966, og Kristín Ingimundar-
f. 10.11. 1996, b) Viktor, f. 6.5.
2003. Sonur Margrétar er Ing-
ólfur, f. 23.12. 1990.
Foreldrar Aage bjuggu lengst
af á Laugarnesvegi 38 og þar átti
hann sitt bernskuheimili allt þar
til hann stofnaði sitt eigið. Aage
lauk landsprófi frá Gagnfræða-
skóla Austurbæjar 1950, vél-
virkjun frá Vélsmiðjunni Hamri
1956 og vélstjóraprófi frá Vél-
skóla Íslands 1959. Aage starfaði
við vélgæslu til sjós með námi og
sem vélstjóri hjá Eimskipafélagi
Íslands frá 1959-60. Aage var
stöðvarstjóri við Grímsárvirkjun
í Skriðdal til 1967, vélvirki hjá
Hamri til 1971 og hjá H. Bene-
diktssyni (dísilvélaumboði) til
1982 er hann stofnaði ásamt
Gunnari bróður sínum fyrir-
tækið Afltækni. Eftir að Gunnar
lét af störfum hélt Aage áfram
rekstri fyrirtækisins með Styrmi
syni sínum og unnu þeir feðgar
saman allt þar til er hann lést.
Aage var til margra ára virkur
félagi í Kiwanisklúbbnum Set-
bergi í Garðabæ og gegndi hann
þar hinum ýmsu trúnaðar-
störfum.
Útför Aage verður gerð frá
Garðakirkju í dag, 19. ágúst
2016, klukkan 13.
dóttir, f. 5.8. 1896,
d. 24.12. 1970.
Aage og Elín
eignuðust þrjú
börn: 1) Guðnýju
Láru Petersen, f.
20.11. 1957, börn
hennar eru: a) Kári
Eyvindur, f. 23.10.
1986, b) Erla, f.
23.6. 1988, sam-
býlismaður hennar
er Þórir Bjarnason,
f. 7.9. 1984, dóttir þeirra er Þor-
björg Lára, f. 19.10. 2015. 2)
Selmu Björk Petersen, f. 8.12.
1960, maki Ellert Gissurarson, f.
7.8. 1959. Börn þeirra eru: a) El-
ín Arna, f. 27.9. 1983, sambýlis-
maður hennar er Óskar Vatnsdal
Guðjónsson, f. 2.6. 1982, sonur
hans er Benjamín Úlfur, f. 24.3.
2003, b) Marteinn Áki, f. 31.12.
1987, sambýliskona hans er
Steinunn Birgisdóttir, f. 24.4.
1988, sonur þeirra er Vilhjálmur
Ellert, f. 4.1. 2014. 3) Styrmi Pet-
ersen, f. 28.9. 1965, maki Mar-
grét Gilsdóttir, f. 23.11. 1967.
Börn þeirra eru: a) Birta Karen,
Tengdafaðir minn, Aage Peter-
sen, lést 9. ágúst síðastliðinn.
Þrátt fyrir að vitað væri að hverju
stefndi kom andlát hans okkur að
óvörum. Aðeins fjórum dögum
fyrr hafði ég sagað fyrir hann
plötu í skrifborð sem hann var að
smíða og tekið til timbur í verk-
færahús sem hann var nýbyrjaður
að reisa við sumarbústaðinn í
Grímsnesinu.
Fyrir tæpum 40 árum bar fund-
um okkar Aage saman í fyrsta
skipti. Það verður að segjast eins
og er að móttökurnar voru allt
annað en blíðlegar, honum leist
ekkert á þennan gutta sem var að
draga sig eftir 17 ára dóttur hans.
Smám saman varð hann þó að
taka mig í sátt því ég var kominn
til að vera.
Aage var einstaklega iðjusam-
ur og ósérhlífinn. Ef hann var ekki
í vinnunni þá var það sumarbú-
staðurinn, bílaviðgerðir eða að
hjálpa afkomendunum að koma
sér upp þaki yfir höfuðið. Það var
einmitt í byggingastússi sem ég
kynntist Aage best og við lærðum
að meta hvor annan. Þegar við
Selma keyptum okkar fyrstu íbúð
þá var Aage fyrstur á staðinn til að
hjálpa til við standsetningu og síð-
ar þegar við réðumst í húsbygg-
ingu, rétt skriðin yfir tvítugt, þá
var ómetanleg öll aðstoðin sem við
fengum hjá Aage. Hann var alltaf
tilbúinn að hjálpa til, lána verk-
færi og vélar eða að miðla af
reynslu sinni og þekkingu og
reyna þannig að koma tengdasyn-
inum til manns og kann ég honum
eilíflega þökk fyrir.
Minnisstæðar eru einnig allar
ferðirnar í Grímsnesið, fyrst við
byggingaframkvæmdir og síðar
að njóta samvista í sumarhúsinu
sem að vísu var aldrei alveg
fullbúið því Aage kom stöðugt
með nýjar hugmyndir að viðbót-
um eða endurnýjunum. Mörg
kvöld sátum við í bústaðnum yfir
bjór og skeggræddum næstu að-
gerðir, viðbótarverönd, geymslu-
skúra eða viðbyggingar í allar átt-
ir.
Í seinni tíð höfum við farið sam-
an í margar ógleymanlegar ferðir
til útlanda. Aage og Elín voru allt-
af til í að koma með okkur Selmu
hvað svo sem okkur datt í hug að
framkvæma, jól í Prag, nýárstón-
leikar í Vínarborg, bátsferðir í
Bretlandi, sveitasæla í Frakklandi
eða bara að sitja með tengdasyn-
inum á bar í Kingston á meðan
Selma og Elín sóttu sauma-
námskeið.
Aage var mjög minnugur á
menn og málefni, hann fylgdist
jafnt með heimsmálum og þjóð-
málum og var á heimavelli hvar
sem borið var niður. Við gátum
rætt saman um allt milli himins og
jarðar en vorum sjaldan sammála,
báðir með sterkar skoðanir og
hvorugur vildi gefa neitt eftir. En
þrátt fyrir að stundum hvini í, þá
var Aage ekki langrækinn og
ágreiningur að kvöldi var gleymd-
ur næsta morgun.
Aage ætlaði hvorki að láta elli
kerlingu né veikindi stöðva sig. Til
marks um það þá var hann á leið
til vinnu í fyrirtækinu sínu daginn
sem hann lést. Hann var nýbyrj-
aður á byggingu verkfærahúss við
sumarbústaðinn, var á leiðinni
austur á Hérað í lok ágúst að rifja
upp góða daga frá árunum sem
stöðvarstjóri í Grímsárvirkjun og
átti flugmiða til London í nóvem-
ber í okkar árlegu jólaferð saman.
Þar sem við ætluðum að fá okkur
whiskey og toblerone. Þín verður
sárt saknað. Kæri Aage, bestu
þakkir fyrir samfylgdina.
Ellert Gissurarson.
Þá er komið að kveðjustund.
Afi minn, Aage Petersen, er fall-
inn frá.
Að söknuðinum frátöldum er
mér þakklæti efst í huga á þessari
stundu, þakklæti fyrir að hafa
fengið fylgd og stuðning frá þér
alla tíð og að eiga digran sjóð
góðra minninga til að ylja mér við.
Ég man eftir hvað mér fannst
gaman að heimsækja þig í vinnuna
sem barn; þar sem ég fékk að
skoða skipamódelin og leika mér í
frauðplastinu með systur minni.
Ég man eftir hlýjunni sem ég fann
á heimili ykkar ömmu í Melásnum
og gleði minni þegar ég frétti að
þið ætluðuð að flytja í næsta ná-
grenni við mig á Álftanesinu.
Ég man eftir öllum stuðningn-
um sem þú veittir mér þegar ég
var táningur, t.a.m. þegar þú tókst
mig í æfingaakstur í Heiðmörk og
komst mér í opna skjöldu með því
að segja hátt „Gefðu í strákur! Þú
verður að kunna rallí!“, stuttu eft-
ir að þú hafðir látið mig bakka upp
bröttustu brekku sem ég veit um á
höfuðborgarsvæðinu.
Ég man svo vel eftir þeirri ein-
tómu gleði sem þú sýndir okkur
Steinunni þegar við sögðum þér
að við ættum von á barni og hvað
mér þótti vænt um þau viðbrögð.
Ég man eftir öllum utanlands-
ferðunum sem við fórum í saman.
Ég er svo glaður yfir því að hafa
fengið að upplifa það að ferðast
með þér. Það voru forréttindi fyrir
mig að fá að kynnast þér ekki bara
sem barn heldur einnig sem full-
orðinn einstaklingur. Ég mun
gera allt sem í mínu valdi stendur
til að sjá til þess að mín börn muni
einnig fá að upplifa slíkar minn-
ingar.
Ég gerði mér aldrei grein fyrir
því að þú værir þjáður. Þú varst
nagli. Síðasta samverustund okk-
ar var í sumarbústaðnum fyrir
austan. Þú varst að smíða annan
kofa því þú hafðir keypt grill fyrir
bústaðinn. Ég spurði hvort það
væri ekki einfaldara að gera kassa
utan um grillið. Nei, það átti að
gera kofa. Ekkert metnaðarleysi.
Svo gerðum við saman eldivið fyr-
ir kamínuna. Þú með handsögina
og ég með öxina. Þegar við Stein-
unn vorum að fara og við vorum að
bera dótið út í bíl hélst þú á Vil-
hjálmi upp á loft í bústaðnum þar
sem hann hélt á leikfangaborvél-
inni sinni.
Síðan lá leið niður í kjallarann á
bústaðnum. Svo út í garð. Hann
benti og þú labbaðir. Allt þurfti að
„laga“ og þú barst hann á milli. Þú
kvaddir okkur svo á bílastæðinu,
labbaðir niður að hliði til að opna
fyrir okkur og vinkaðir okkur
bless, eins og þú gerðir alltaf.
Tæpri viku seinna varstu farinn.
Dugnaður, harka og hlýja eru
orð sem eru mér ofarlega í huga
þegar ég hugsa til þín. Í dag kveð
ég þig, afi. Ég er stoltur af því að
vera skírður í höfuðið á þér og ég
vona að ég hafi erft eitthvað af þín-
um dugnaði. Ég hlakka til þegar
við hittumst aftur og fáum okkur
Toblerone-súkkulaði saman.
Marteinn Áki Ellertsson.
Elsku besti afi minn.
Fyrr á árinu varð ég þess heið-
urs aðnjótandi að halda ræðu í
veislu þar sem við fögnuðum átt-
ræðisafmæli ömmu. Ræðuna hóf
ég á þeim orðum að sem barni
hefði mér þótt fjarstæðukennt að
það væri hægt að vaxa úr grasi án
þess að eiga ömmu. Samsvarandi
staðreynd er auðvitað að mér þótti
alveg jafn ómögulegt að vera án
þess að eiga afa, en ég fékk aldrei
tækifæri til að halda viðlíka ræðu
fyrir þig – enda vildir þú aldrei
neitt tilstand þér til heiðurs. Ég
vona, engu að síður, að þú hafir
vitað hversu mikils ég mat þig og
að þú fyrirgefir okkur viðhöfnina í
dag þegar við fylgjum þér til
hinstu hvílu.
Þegar ég lít til baka yfir tímann
sem ég fékk að fylgja þér er þakk-
læti mér efst í huga. Þú kenndir
mér svo margt, allt frá því þegar
þið amma kennduð mér að syngja
Litlu fluguna á leiðinni í sumarbú-
staðinn þar sem ég sat á milli ykk-
ar á púða á handbremsunni í Hi-
luxinum til þess þegar við
hittumst síðast og rökræddum
okkar á milli um menn og málefni.
Við vorum reyndar sjaldan sam-
mála um hið síðarnefnda, en mik-
ilvægast var að þú kenndir mér að
bera virðingu fyrir ólíkum skoð-
unum og sjónarmiðum. Þess á
milli var ýmislegt áþreifanlegra;
þið hélduð skyndipróf í landafræði
þegar ég fékk að fylgja ykkur
ömmu á ferðalögum, þú æfðir með
mér fallbeygingar danskra per-
sónufornafna þegar ég fékk sex í
dönskuprófi og þú kenndir mér að
keyra, fyrir utan allt sem þú
kenndir mér um bíla og vélar.
Engar áhyggjur, ég mun aldrei
gleyma „hægri til að herða“ og á
vafalaust eftir að endurtaka það
þegar kemur að því að ég kenni á
bíl, rétt eins og ég hef haldið mín
eigin skyndipróf í landafræði á
ferðalögum með fjölskyldu minni.
Allt þetta bliknar þó í saman-
burði við það sem ef til vill skiptir
mestu máli, hversu áþreifanlega
og oft þú leyfðir mér að verða vör
við það að þér þótti mikið til mín
koma. Þú varst kröfuharður en
aldrei ósanngjarn og þú hrósaðir
mér oft fyrir hluti sem mér hefði
aldrei dottið í hug að væru hróss
verðir. Þú kenndir mér ekki ein-
ungis að meta aðra að verðleikum
heldur einnig sjálfa mig; að
treysta á getu mína og kunnáttu
en líka að vera auðmjúk gagnvart
því sem ég hvorki þekki né veit.
Elsku afi, við kveðjum þig í dag
en sannleikurinn er sá að þú verð-
ur áfram með okkur. Alltaf þegar
ég útskýri torkennileg hljóð í bíln-
um mínum fyrir bifvélavirkjum,
alltaf þegar ég spyr strákana mína
út í landafræði, alltaf þegar ég tala
dönsku eða drekk volgan bjór
mun mér verða hugsað til þín.
Ég veit að ég er heppin því ég
fékk öll þessi ár með þér, allar
helgarnar í bústaðnum, öll ferða-
lögin til útlanda, allan æfingaakst-
urinn þegar þú lést mig keyra
sjálfa mig í skólann og allt sem ég
hef verið svo lánsöm að fá að læra
af þér.
Ég hefði sjálf viljað fleiri ár,
fleiri helgar og fleiri ferðalög, en
það er enginn efi í huga mér að þú
fórst nákvæmlega eins og þú hefð-
ir sjálfur helst kosið.
Elsku afi, ég lofa að passa upp á
ömmu. Við munum sakna þín.
Elín Arna, Óskar og Úlfur.
Aage Petersen HINSTA KVEÐJA
Legg ég nú bæði líf og önd,
ljúfi Jesús, í þína hönd,
síðast þegar ég sofna fer
sitji Guðs englar yfir mér.
(Hallgrímur Pétursson.)
Langafabörnin,
Vilhjálmur Ellert og
Þorbjörg Lára.
Elsku afi, takk fyrir allt.
Bjartur og fagur röðull rís
þótt rökkvi í sálu minni
þá kemur fregnin köld sem ís,
þú kvaddir í hinsta sinni.
Það er svo margt sem þakka ber
þegar leiðir skilja.
Aldrei þú taldir eftir þér
annarra að gjöra vilja.
Nú átt þú á himnum eilíf jól,
ei mun þar skuggi leynast.
Minningin björt sem morgunsól
í mínum huga skal geymast.
(Höf.ók.)
Viktor, Birta Karen,
Ingólfur.
✝ Kristinn Buchfæddist á
Skagaströnd 15.
desember 1944.
Hann varð bráð-
kvaddur á heimili
sínu í Helsingør,
Danmörku, 15. júní
2016.
Foreldrar Krist-
ins voru Lúðvík
Kristjánsson, fædd-
ur 30. júní 1910, d.
10. febrúar 2001, og Pálína Sig-
ríður Frímannsdóttir, fædd 27.
nóvember 1916, dáin 5. júlí
1962. Systkini Kristins eru Frí-
mann Lúðvíksson, f. 28.4. 1941,
Kristín Lúðvíksdóttir, f. 7.9.
1946, og Karl Lúðvíksson, f.
22.6. 1951. Kristinn giftist El-
isabeth Bjarnarson Buch frá
Færeyjum, f. 7.9. 1944, d. 10.1.
2009. Börn Kristins eru: 1)
Sigurður Ragnar Kristinsson, f.
26.12. 1966, giftur Kristínu Óla-
dóttur, f. 28.12. 1966. Synir
þeirra eru Þorsteinn Vilberg
Buch, f. 9.8. 1968, sambýlis-
maður Jóhannes Sæmundsson,
f. 17.8. 1962, búsett í Kópavogi.
Börn Pálínu og Rúnars: Rúnar
Kristinn Rúnarsson, f. 6.8. 1987,
og Birgitta Ósk Rúnarsdóttir, f.
26.8. 1988, sambýlismaður
Svanur Rafn Steinsson, f. 16.10.
1986. 4) María Karen Buch, f.
24.11. 1972, gift Kenneth
Christian Karlsen, f. 25.2. 1972,
búsett í Helsinge, Danmörku.
Synir þeirra eru Nicklas Buch-
Karlsen, f . 21.1. 2002, og Mar-
cus Buch-Karlsen, f. 12.8. 2004.
Kristinn og Elísabeth kynnt-
ust á vertíð í Vestmannaeyjum
og settust þar að. Árið 1985
fluttust þau til Danmerkur og
rúmu ári síðar skildu þau.
Kristinn starfaði lengi í
Vinnslustöðinni, hann lærði
húsasmíði og starfaði í nokkur
ár við smíðar ásamt sjó-
mennsku. Seinni ár starfaði
Kristinn í Coloplast í Dan-
mörku.
Bálför fór fram í Helsingør
22. júní 2016, en minning-
arathöfn fer fram í Fossvogs-
kapellu í dag, 19. ágúst 2016,
klukkan 13.
Þórisson, f. 2.3.
1985, Birgir Már
Sigurðarson, f.
11.9. 1994, Þor-
bergur Ægir Sig-
urðarson, f. 6.10.
1997, og Dagur
Eyberg Sigurð-
arson, f. 13.2. 2001.
Móðir Sigurðar er
Þorbjörg Bech
Guðmundsdóttir, f.
23.12. 1946. 2)
Poula Kristín Buch, f. 5.6. 1967,
gift Sigurði Þór Þórhallssyni, f.
3.1. 1969. Búsett á Hvolsvelli.
Dætur þeirra eru: a) Elísabeth
Lind Ingólfsdóttir, f. 30.4. 1987,
sambýlismaður Ástvaldur Helgi
Gylfason, f. 12.5. 1984. Sonur
þeirra er Eyþór Ingi Ástvalds-
son, f. 29.7. 2014. b) Margrét
Sigurðardóttir, f. 28.9. 1993,
sambýlismaður Hjalti Logason,
f. 29.1. 1987. c) Andrea Sigurð-
ardóttir, f. 10.8. 2001, og d)
Sylvía Sigurðardóttir, f. 5.5.
2003. 3) Pálína Sigurbjörg
Elsku besti pabbi minn.
Ég trúi ekki að þú sért farinn
og það sé komið að kveðjustund.
Það eru tveir mánuðir síðan ég
kvaddi þig hérna í eldhúsdyrun-
um mínum, eftir eina af mörgum
heimsóknum þínum til okkur
hérna í Helsinge. Samband okkar
var mjög sérstakt. Ég var alltaf
pabbastelpa. Þú, ég og mamma
fluttum til Danmörku 1985 þegar
ég var nýorðin 12 ára. Ári seinna
skilduð þið og ákveðið var að ég
byggi hjá þér eftir skilnaðinn. Við
erum bæði bogmenn og eigum
auðvelt með að færa okkur á milli
staða. Og urðum við sérfræðing-
ar í að pakka niður til millilanda-
flutninga og svo var búslóðin
send til Íslands – og aftur til Dan-
merkur – og tilbaka til Íslands.
Ég fór líka til Kanada sem skipti-
nemi, á meðan fórst þú til Dan-
merkur. Seinna fór ég til Banda-
ríkjanna sem au-pair og þá
stundaðir þú sjóinn við Ný-
fundnaland. Fluttum við á nokk-
urra ára fresti þar til ég ákvað að
festa rætur í Danmörku sem þú
gerðir líka. Ég keypti mér íbúð í
Helsingør og þú leigðir íbúð í
grenndinni. Oft var hóað í þig
þegar það átti að breyta í íbúðinni
eða það átti að fara í búðarleið-
angur í Ikea eða til Svíþjóðar.
Ég kynntist Kenneth árið 1998
og urðuð þið strax góðir mátar.
Oft voru haldin matarboð hjá þér,
íslenskt læri og ís í eftirrétt, og
auðvitað með íssósu frá Íslandi.
Eða með íslenskri eplaköku „a la
mamma“, sem var ein af þeim
kökum sem þú bakaðir svo oft.
Kenneth og ég eignuðumst fyrsta
drenginn okkar í janúar 2002. Þá
fluttir þú aftur til Danmerkur og
ekki leið langur tími áður en þú
varst orðinn hin besta barnapía.
Nicklas var ekki margra mánaða
þegar hann byrjaði að heimsækja
þig, á meðan við foreldrarnir fór-
um út að borða eða eyddum tím-
anum í að útrétta.
Marcus fæddist 2004 og þegar
hann var orðinn nógu gamall til
þess að fara í pössun, fóru þeir
bræður oft til Helsingør til afa
síns. Þú varst alltaf tilbúinn að fá
þá í heimsókn, helst sem oftast.
Þegar strákarnir gátu ekki farið í
leikskólann eða skólann vegna
veikinda, var hringt í afa og hann
tók á móti þeim með opnum örm-
um
Þú hættir að vinna fyrir nokkr-
um árum og dagarnir urðu lengri.
Við komum oft í heimsókn, þá
sérstaklega strákarnir en ein-
manaleikinn kom og fór. Þú varst
Íslendingur af lífi og sál og það
var augljóst að þér leið oft eins og
fiski á þurru landi hér í Dan-
mörku – föðurlandið togaði í þig.
Ég nefndi það við þig, hvort það
væri ekki betra að þú flyttir aftur
heim, en þú sagðir mér að þú
gætir ekki hugsað þér að fara frá
strákunum og okkur. Ég skildi
þig, en samt ekki. Þó okkur fynd-
ist gott að hafa þig nálægt, var ég
viss um að þér mynda líða betur á
Íslandi. Hér fannst þér þú hafa
tilgang, passaðir vel upp á litlu
stelpuna þína. Ég sé það líka í
strákunum, þú hefur kennt þeim
svo margt, eitthvað sem þeir
munu aldrei gleyma. Þú sást líka
til þess að þeir lærðu íslensku,
eitthvað sem ég átti erfitt með
eftir öll árin hérna í Danmörku.
Núna skil ég, pabbi.
Takk fyrir allt, elsku pabbi
minn, þú munt alltaf lifa í huga
mínum og hjarta.
Þín dóttir,
María.
Elsku afi.
Ég sakna þín svo mikið og
hugsa oft tilbaka til allra góðu
stundanna sem við áttum saman.
Ég hef þekkt þig alla mína ævi og
ég veit að ég átti stað í hjarta
þínu frá því ég var lítill.
Þú sagðir alltaf við mig að ég
ætti að vera duglegur í skólanum.
Það er svo skrítið að hugsa til
þess að næst þegar ég fer til Sví-
þjóðar, þá mun ég sitja einn á
bekknum sem við sátum alltaf
saman á – og borða Prince Polo
einn, á meðan ég nýt útsýnisins
yfir Eyrarsund. Við sátum alltaf
þarna og töluðum um daginn og
veginn þegar við vorum í Svíþjóð.
Þú vaktir áhuga minn á ís-
lenskum frímerkjum og við sát-
um oft og skoðuðum frímerki
saman. Safnið mitt er orðið stórt
og ég á núna frímerki frá 1934 og
alveg til 2016.
Ég man greinilega þegar við
tveir fórum einir til Íslands þegar
ég var sex ára, við flugum með
Iceland Express. Við fórum fyrst
til yndislegu Vestmannaeyja í
heimsókn til Línu frænku í
nokkra daga og svo fórum við í
sveitina til Poulu. Þetta var æðis-
leg ferð. Við fórum aftur
nokkrum árum seinna þar sem
litli bróðir minn Marcus var með.
Þú heimsóttir okkur oft og ég
fór oft í heimsókn til þín, stund-
um fór ég einn og stundum kom
litli bróðir minn með. Þú komst
alltaf og náðir í okkur á grænu
Toyotunni þinni og við hlustuðum
á country-tónlist á leiðinni heim
til þín. Ég gæti skrifað endalaust
um svo margar góðar minningar.
Ég er stoltur af að vera barna-
barnið þitt. Þú munt ávallt lifa í
hjarta mínu og ég mun sakna þín
svo mikið.
Nicklas Buch-Karlsen.
Kristinn Buch