Morgunblaðið - 19.08.2016, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 2016
Atvinnuauglýsingar
www.rumfatalagerinn.is
ATVINNA
STARFSKRAFTUR ÓSKAST Í
VERSLUNOKKAR Á KORPUTORGI
Leitum að jákvæðum og þjónustulunduðum
einstaklingi til að sjá um smávörudeildina okkar.
Skemmtilegt starf í lifandi umhverfi.
Áhugasamir hafið samband við
Ívar 820-8011
Vilma 842-8064
korputorg.verslun@rfl.is
Umsóknarfrestur er til 31. Ágúst 201
Spennandi og krefjandi starf þar semmiklir möguleikar eru á að vaxa í starfi
Góð árangurstengd laun í boði fyrir réttan aðila.
Ath. umsækjandi þarf að vera yfir tvítugt.
Starfslýsing:
• Sjá um pantanir
• Verðbreytingar og fara yfir bækling
• Fylla á og sjá um að deild sé í lagi
Raðauglýsingar
Félagsstarf eldri borgara
Árskógar 4 Innipútt og úti opið kl. 11-12.
Félagsheimili Gullsmára Tiffanýgler kl. 9, ganga kl. 10. Hárgreiðslu-
stofa og fótaaðgerðastofa á staðnum. Allir velkomnir!
Garðabær Innritun í línudans, Qi gong og í 12 vikna námskeið í
málun, trésmíði, glermótun og saumi kl. 10 í Jónshúsi.
Gjábakki Lokað í dag vegna þess að það þarf að bóna gólfin, opnum
aftur mánudaginn 22. ágúst kl. 8.
Gjábakki Handavinna kl. 9, félagsvist kl. 20.
Hraunbær 105 Kaffiklúbburinn, allir velkomnir í kaffi kl. 9. Opin
handavinna, leiðbeinandi kl. 9-12. Morgunleikfimi kl. 9.45. Hádegis-
matur kl. 11.30. Bingó kl. 13.15. Kaffi kl. 14.30.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8-16 morgunkaffi og
spjall til kl. 10.30, dagblöðin og púsl liggja frammi, matur kl. 11.30.
Eftirmiðdagskaffi kl. 14.30. Fótaaðgerðir og hársnyrting.
Hæðargarður 31 Við hringborðið kl. 8.50, púttvöllurinn er opinn,
listasmiðjan er opin, síðdegiskaffi kl. 14.30. Ferð á Reykjanesið
miðvikudaginn 31. ágúst. Allir velkomnir með, óháð aldri og búsetu,
nánar í s. 411-2790.
Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, trésmiðja kl. 9-12, listasmiðja
með leiðbeinanda kl. 9-12, morgunleikfimi í borðsal kl. 9.45, upplestur
kl. 11, föstudagsspjall kl. 14, ganga með starfsmanni kl. 14. Uppl. í
síma 4112760.
Selið, Sléttuvegi 11-13 Allir velkomnir á Sléttuveg óháð aldri og
búsetu. Opið er kl. 10-14. Matur er afgreiddur kl. 11.30-12.30. Nánari
upplýsingar og matarpantanir á opnunartíma í síma 568-2586.
Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Spilað í króknum kl.
13.30. Árlegt vöfflukaffi og kynningarfundur á vetrdagskrá félags og
tómstundastarfi eldri bæjarbúa verður fimmtudaginn 25. ágúst kl. 14 í
Félagsheimili Seltjarnarness.
Stangarhylur 4 Dansað sunnudagskvöld kl. 20 - Hljómsveit hússins
leikur fyrir dansi. Zumba Gold námskeið kl. 10.30 hefst nk. mánudag
22. ágúst. LeiðbeinandiTanya. Nú verðum við í salnum í Félags-
miðstöðinni Árskógum 4. Qigong-námskeið hefst 30. ágúst. Leiðbein-
andi Inga Björk. Skráning hafin á námskeiðin.
Vitatorg Við spilum Bingó í dag, allir velkomnir. Erum farin að skrá á
vetrarnámskeiðin okkar: Postulínsmálun, bútasaum, bókband, gler-
bræðslu og leirlist. Uppl. í síma 411 9450 og 822 3028.
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Rotþrær-vatnsgeymar-
lindarbrunnar.
Rotþrær og siturlagnir.
Heildar lausnir - réttar lausnir.
Heitir Pottar.
Lífrænar skolphreinsistöðvar.
Borgarplast.is,
Mosfellsbæ, sími 561 2211
Iðnaðarmenn
Byggingavörur
TIL SÖLU
Mótabitar / dokabitar:
1400m lítið notaðir 20x4,90 dokabitar
Guðmundur sími 893-0003
Ýmislegt
Gönguferð með Áslaugu Örnu
á sunnudaginn, 21. ágúst, langar mig
að hitta fólk og spjalla um stjórn-
málin í gönguferð um Elliðaárdal.
Við hittumst kl. 16.00 hjá gömlu
rafstöðinni. Allir velkomnir.
Hjólbarðar
Matador heilsársdekk - útsala
215/70 R 16 kr. 19.500
235/60 R 18 kr. 28.500
255/55 R 18 kr. 29.900
255/50 R 19 kr. 34.500
275/40 R 20 kr. 44.500
175/75 R 16 C kr. 17.500
205/75 R 16 C kr 19.500
215/75 R 16 C kr. 23.500
225/65 R 16 C kr. 27.200
235/65 R 16 C kr. 29.900
Framleidd af Continental í Slóvakíu
Kaldasel ehf., dekkjaverkstæði
Dalvegur 16 b, 201 Kópavogur
s. 5444333
Þjónustuauglýsingar
Fáðu Tilboð hjá söluráðgjafa
í síma 569 1390
eða á augl@mbl.is
✝ Ari Hafliðasonfæddist á
Húsavík 1. apríl
1959. Hann lést á
Heilbrigðisstofnun
Norðurlands á
Húsavík 9. ágúst
2016.
Foreldrar hans
voru Hafliði Jóns-
son málarameist-
ari, fæddur í Set-
bergi, Húsavík, 9.
desember 1938, d. 14. mars
2015, og Guðbjörg Tryggva-
dóttir, fædd á Hafranesi við
Reyðarfjörð 8. febrúar 1934, d.
25. janúar 1977. Systkini Ara
eru Dóra, f. 1. október 1961,
elstur í röð sex systkina. Hann
sótti Barnaskóla Húsavíkur og
Gagnfræðaskóla Húsavíkur á
sínum uppvaxtarárum og stund-
aði um tíma nám við Iðnskóla
Húsavíkur. Ari hóf starfsferil
sinn sem handlangari við bygg-
ingu dvalarheimilisins Hvamms
á Húsavík árið 1976, en auk þess
starfaði hann um nokkurra
mánaða skeið við málningar-
vinnu hjá föður sínum. Ari tók
stöðu húsvarðar á Hvammi,
heimili aldraðra á Húsavík, eftir
að byggingu hússins lauk í maí
árið 1981. Þar starfaði hann allt
fram á mitt ár 2016.
Ari bjó alla sína tíð á Húsa-
vík, lengst af á Höfðavegi 11,
Barði.
Ari verður jarðsunginn frá
Húsavíkurkirkju í dag, 19. ágúst
2016, og hefst athöfnin kl. 14.
Rut, f. 20. nóv-
ember 1969 og
Huld, f. 5. sept-
ember 1981. Stjúp-
systur Ara eru
Anna Margrét
Gunnarsdóttir, f.
21. september
1970, og Dagbjört
Erla Gunnars-
dóttir, f. 13. ágúst
1972.
Ari var ókvænt-
ur og barnlaus.
Ari fæddist í Setbergi, Húsa-
vík, og bjó þar fyrstu mánuðina
með foreldrum sínum hjá föður-
afa sínum og ömmu. Hann var
fyrsta barn foreldra sinna og
Á afmælisdaginn minn þann
8. ágúst fékk ég símhringingu
frá Pétri Helga, sameiginlegum
vini okkar Ara, þar sem hann
skilaði kveðju frá Ara til
stráksins í tilefni dagsins. Þessi
kveðja yljaði.
Daginn eftir hringdi Pétur
aftur í mig til að tilkynna mér
að Ari væri dáinn.
Þegar ég rifja upp skóla-
göngu okkar man ég bara eftir
einhverju jákvæðu. Þessi ró-
legi, jákvæði og skemmtilegi
strákur gerði aldrei neitt sem
gat sært aðra.
Strax eftir skólagöngu
hleypti ég heimdraganum. Ég
var ekki eins duglegur fyrstu
árin að heimsækja æskustöðv-
arnar eins og síðustu ár. Ég
skil ekkert í mér, eins og það
er nú gaman að koma heim.
Eitt af því fyrsta sem ég gerði
alltaf var að fara á Fundinn.
Fundurinn var þegar ég, fyrr-
greindur Pétur og Ari hittumst
uppi á Hvammi, á Esso yfir
beikonborgara eða heima hjá
Ara. Þarna var farið yfir málin,
bæði alvarleg en meira alls
konar vitleysu. Þar naut Ari
sín.
Hann hafði frábæran húmor
og gat gert góðlátlegt grín að
sjálfum sér, okkur Pétri og öll-
um öðrum.
Ari gat verið yndislega
þversum og þrár. Þegar sá gáll-
inn var á honum sagði ég
stundum: „Þú ert laglega
þversum núna.“ Þá svaraði
hann með glotti og sínum frá-
bæra húmor: „Heldurðu að það
sé nokkuð Móbergsættin í kall-
inum núna.“
Ari var höfðingi heim að
sækja. Hann sýndi með stolti
handverk sitt og hann gat svo
sannarlega verið stoltur af því.
Hann leysti mig gjarnan út
með sinni frábæru rabarbara-
sultu og sendi mér sultu til
Cuxhaven ef hann vissi um
bæjarferð. Þegar sultan kom
var alltaf lambakjötsveisla hjá
mér. Við vorum búnir að plana
sviðaveislu, með sviðum sem
hann verkaði sjálfur, en þeirri
veislu varð hann að fresta
vegna veikinda. Við tökum
hana seinna.
Í síðustu heimsókn minni á
æskustöðvarnar hitti ég Ara
tvisvar. Fyrst á sjúkrahúsinu á
Akureyri, þangað sem hann
hafði verið fluttur til að athuga
hvort ekki væri hægt að hægja
á meininu sem var að hrjá
hann. Þegar við höfðum heils-
ast og gantast aðeins spurði ég
hann hvernig hann hefði það.
Ég þóttist samt sjá að hann
væri sárþjáður. Hann svaraði
að hann gæti ekki kvartað,
fólkið á sjúkrahúsinu væri svo
gott við hann.
Ég hitti hann næst á sjúkra-
húsinu á Húsavík. Þangað hafði
hann verið fluttur frá Akureyri
án þess að nokkuð væri gert.
Við vissum báðir hvað það
þýddi. Hann var kominn heim
til að taka síðustu andartökin.
Þarna var greinilegt að honum
hafði hrakað. Aftur spurði ég
hann hvernig honum liði. Aftur
svaraði hann að hann gæti ekki
kvartað af því að starfsfólkið
væri svo gott við sig. Svona
svara bara hetjur.
Við skólasystkini Ara höfum
verið að rifja upp gamlar minn-
ingar eftir að hann féll frá. Það
er alltaf þessi væntumþykja og
gleði í öllum upprifjunum.
Hann var þögla týpan sem
laumaði inn gullkornum í um-
ræðuna.
Við erum þakklát Ara fyrir
hans mikilvæga lífsstarf í þágu
kynslóðarinnar sem ól okkur
upp.
Við munum sakna hans og
við vitum að það verður vel tek-
ið á móti honum þar sem hann
fer núna.
Innilegar samúðarkveðjur til
systra, fjölskyldu og vina Ara.
Fyrir hönd skólasystkin-
anna,
Helgi Helgason.
Kæri vinur. Raunveruleikinn
getur verið kaldur, hann birtist
svo áþreifanlega og þó ég héldi
að ég væri undirbúinn þá var
alls ekki svo, þó vissi ég hvert
stefndi, vinur. Eftir erfið veik-
indi sem hafa staðið í eitt og
hálft ár þá hefur þú fengið
hvíld. Þú sýndir mikið æðru-
leysi í baráttunni við illvígan
sjúkdóm, jákvæðni var þitt að-
alsmerki fram í andlátið. Við
Gulla reyndum eftir fremsta
megni að aðstoða þig og von-
andi gerðum við gagn, allavega
varstu afar þakklátur. Þú hefur
ekki viljað vera mikið upp á
aðra kominn.
Þú kenndir mér margt á
þessum erfiðu tímum, t.d. að
það er ekkert sjálfgefið eða
sjálfsagt í þessu lífi, enda ekki
langt liðið frá því faðir þinn lést
eftir stutta sjúkdómslegu þar
til þú greindist sjálfur með
krabbamein. Þetta var allt
frekar óraunverulegt og sárt,
en þú varst ekkert að bera á
torg líðan þína sem ég vissi að
var ekki góð.
Við höfum átt góðan tíma
saman á Hvammi í 12 ár en þar
hefur þú unnið samfleytt í 40 ár
eða frá því byrjað var að
byggja heimilið og Hvammur
hefur notið góðs af störfum þín-
um allan tímann og allt gamla
fólkið sem hefur notið góðvildar
þinnar er þér afar þakklátt fyr-
ir þolinmæði og velvilja í sinn
garð. Ari minn, þú vildir ekki
flækja málin mikið, heldur hafa
allt í föstum skorðum eða eins
og þú sagðir svo oft „innan
skynsamlegra marka“ en
marga frasana áttirðu og not-
aðir. Eitt af því sem ég dáðist
að hjá þér var handavinnan þín
sem þú dundaðir þér við á með-
an kraftar þínir entust; allir út-
saumuðu stólarnir þínir bera
þér fagurt vitni, algjör lista-
verk enda búinn að taka þátt í
tveimur samsýningum. Hund-
arnir þínir, sem þú unnir svo
mikið og hreinlega elskaðir,
sýna svo ekki verður um villst
hversu miklum kostum þú varst
búinn.
Nú fer í hönd sá tími árs
sem þú naust best, haustið með
öllum sínum kostum, kartöflu-
uppskera sem þú gerðir að at-
höfn hverju sinni og sláturtíðin
og það sem henni fylgdi, og
frystikistan full af lambskropp-
um eins og þú sagðir. Eitt var
það sem ekki mátti sleppa og
það var að fara í Skógarhlíð og
svíða hausa, það var stór at-
höfn, svo var rabbarbarasultan
einstaklega góð hjá þér.
Ari minn, þú varst einstakur
húmoristi og sást alltaf spaugi-
legu hliðarnar á málunum, þeg-
ar við fórum saman til Kaup-
mannahafnar í jáeinda-
skannann, þá hélstu að það
væri alveg nóg fyrir okkur að
vera á einnar stjörnu hóteli þar
sem við værum nú ekki í neinni
bisnessferð, en við gerðum
samt vel við okkur í mat og
drykk. Eins og áður hefur kom-
ið fram var sl. ár þér afar erfitt
en aldrei kvartaðir þú, í versta
falli sæmilegur, þannig fórstu í
gegnum veikindin á jákvæðn-
inni og hjálpaðir um leið öllum í
kringum þig að takast á við
veikindin. Það var vel hugsað
um þig hvort heldur sem var
hér á sjúkrahúsinu eða á Ak-
ureyri.
Í gegnum árin höfum við átt
mörg góð samtöl en síðasta
daginn þinn áttum við ein-
hverja mögnuðustu stund sem
ég hef upplifað, það var bara á
milli okkar, og mun ég geyma
hana með sjálfum mér. Að lok-
um vil ég senda systrum þínum
og fóstursystrum innilegar
samúðarkveðjur. Minning þín
lifir, kæri vinur minn.
Pétur Helgi Pétursson.
Ari Hafliðason
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin
að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á
föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber-
ist áður en skilafrestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri grein-
ar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju,
HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við
síðuna.
Minningargreinar