Morgunblaðið - 19.08.2016, Síða 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 2016
Reyktur
og grafinn
lax
Söluaðilar: 10-11, Hagkaup, Iceland verslanir, Kostur, Kvosin, Melabúðin, Nettó,
Pure Food Hall flugstöðinni Keflavík, Samkaup, Sunnubúðin.
• Í forréttinn
• Á veisluborðið
• Í smáréttinn
Alltaf við hæfi
VIÐTAL
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Ef ég ætti að lýsa leikárinu í einni
setningu er ljóst að þetta verður
fjölbreytilegt og spennandi ár sem
einkennist af gleði og drama auk
þess sem farið er á dýptina í við-
fangsefnum,“ segir Ari Matthíasson
þjóðleikhússtjóri um væntanlegt
leikár sem hefst í septemberbyrjun.
„Þegar horft er yfir leikárið er
ekki hægt að segja að eitt þema ráði
ríkjum, en það er ekkert launung-
armál að í vali okkar á viðfangs-
efnum höfum við að markmiði að
takast á við samtíma okkar. Stærstu
viðfangsefnin þar snúa að innflytj-
endum, flóttamönnum, vaxandi
þjóðerniskennd og popúlisma, auk
hinna sígildu samskipta kynjanna.
Við reynum í nálgun okkar að skilja
og túlka samtímann, því við erum
rannsóknarstöð í mannlegum sam-
skiptum og tilfinningum. Þjóðleik-
húsið á ekki að vera flokkspólitískt
en það á að vera pólitískt í þeim
skilningi að það taki þátt í þjóð-
félagsumræðunni á breiðum
grunni.“
Aðspurður segir Ari samsetningu
leikársins verða til á nokkuð löngum
tíma. „Þar koma inn í mjög margir
þættir, m.a. hlutverk og skyldur
Þjóðleikhússins, sem lögum sam-
kvæmt ber t.d. að sinna íslenskri
leikritun. Mér reiknast til að 64%
verka leikársins séu íslensk. Við
stefnum að því að vera með mjög
öflugt starf fyrir börn og ungt fólk,
en það er um þriðjungur af því sem
við bjóðum upp á. Við reynum að
vera með klassísk verk og ný erlend
verk, en þetta er allt hluti af því
sem við eigum að gera. Síðan þurf-
um við að gæta að jöfnum tækifær-
um kynjanna,“ segir Ari og bendir á
að í hópi leikstjóra og listrænna
stjórnenda að höfundum und-
anskildum séu konur 44%, en voru
um 60% á síðasta leikári.
Frábær leikaraleikstjóri
„Svo þurfum við auðvitað líka að
stefna að því að sinna landsbyggð-
inni,“ segir Ari og bendir á að hann
sé mjög stoltur af því að geta frum-
sýnt barnaleikritið Lofthræddi örn-
inn hann Örvar í leikstjórn Björns
Inga Hilmarssonar í Vestmanna-
eyjum í október, en farið verður
með sýninguna í leikferð um allt
land og leik- og grunnskólabörnum
boðið ókeypis á sýninguna.
Fyrsta frumsýning haustsins á
Stóra sviðinu verður 3. september á
nýjum söngleik sem byggir á
Djöflaeyjunni eftir Einar Kárason
með tónlist eftir Memfismafíuna í
leikstjórn Atla Rafns Sigurðar-
sonar, sem vann leikgerðina í sam-
starfi við Melkorku Teklu Ólafs-
dóttir. „Með okkur sem listrænn
stjórnandi er Baltasar Kormákur,
sem tók virkan þátt í allri kons-
eptvinnu og hlutverkaskipan. Ég
held að þetta verði spennandi og
djörf sviðsetning á þessari grát-
broslegu sögu um utangarðsfólk á
Íslandi,“ segir Ari, en meðal leikara
eru Þórir Sæmundsson sem Baddi,
Guðjón Davíð Karlsson, Guðrún S.
Gísladóttir og Snæfríður Ingvars-
dóttir, en hún er nýútskrifuð af leik-
arabraut LHÍ og tekur þátt í nokkr-
um verkefnum hjá Þjóðleikhúsinu í
vetur.
Síðar í sama mánuði er á sama
sviði frumsýnt Horft frá brúnni eft-
ir Arthur Miller í leikstjórn Stefans
Metz, en sem fyrr sér Sean Macka-
oui um leikmynd og búninga. „Þeir
fara mjög spennandi leið að verkinu
og ætla að stílísera það inn í ritun-
artímann, sem er tími rökkur-
myndanna. Ég hef alltaf verið mjög
hrifinn af þessu verki síðan Krist-
björg Kjeld leikstýrði mér í því í
Leiklistarskólanum á sínum tíma,
en hún hafði sjálf leikið Katrínu
sem Lára Jóhanna Jónsdóttir leikur
núna. Við erum með öflugan og
glæsilegan leikhóp til að takast á við
þetta eitt magnaðasta leikverk 20.
aldarinnar, sem fjallar um for-
boðnar ástir, svik og frelsisþrána. Í
fararbroddi leikhópsins er Hilmir
Snær Guðnason, en með honum eru
auk Láru m.a. Harpa Arnardóttir,
Stefán Hallur Stefánsson, Snorri
Engilbertsson og Arnar Jónsson.“
Spurður hvers vegna ítrekað sé
leitað til Metz um að leikstýra bend-
ir Ari á að hann sé frábær leikara-
leikstjóri. „Allir leikarar hússins
sækja í að vinna með honum. Það er
mikilvægt fyrir bæði leikhópinn og
ekki síst áhorfendur að sett séu upp
meistaraverk,“ segir Ari og bendir á
að Horft frá brúnni sé eins og
dæmigerður grískur harmleikur.
„Miller er stórkostlegur höfundur
og það virkar nánast eins og hann
hafi samið Horft frá brúnni eftir
forskrift Aristótelesar eins og hún
birtist í Um skáldskaparlistina.“
Hælisleitendur í Húsinu
Jólasýning Þjóðleikhússins á
Stóra sviðinu verður Óþelló eftir
William Shakespeare, en í ár er 400
ára ártíðar hans víða minnst. „Gísli
Örn Garðarsson leikstýrir nýrri
þýðingu Hallgríms Helgasonar.
Leikmynd hannar Börkur Jónsson
og í burðarhlutverkum eru leikarar
úr Vesturporti,“ segir Ari og bendir
á að spennandi verði að sjá Nínu
Dögg Filippusdóttur túlka hlutverk
Iagós. „Mér vitandi hefur hlut-
verkið ekki áður verið leikið af
konu,“ segir Ari og bendir á að for-
svarsmenn ýmissa leiklistarhátíða
erlendis sem og leikhúsa t.d. í Bret-
landi séu spenntir fyrir útkomunni.
„Konsept sýningarinnar byggir á
því að þetta gerist á byggingar-
svæði meðal pólskra verkamanna,“
segir Ari, en með hlutverk Óþellós
og Desdemónu fara Ingvar E. Sig-
urðsson og Aldís Amah Hamilton,
sem útskrifaðist af leikarabraut
LHÍ síðastliðið vor.
Seinni hluta janúar verður frum-
sýnt nýtt íslenskt barnaleikrit eftir
Guðjón Davíð Karlsson sem nefnist
Fjarskaland í leikstjórn Selmu
Björnsdóttur, en tónlistina semur
Vignir Snær Vigfússon. „Gói er
ótrúlega klár og næmur listamaður
sem kann að semja fyrir börn. Það
er því mikill fengur fyrir Þjóðleik-
húsið að fá hann sem leikskáld, en
hann samdi þetta sérstaklega fyrir
okkur. Leikritið minnir okkur á
mikilvægi þess að foreldrar lesi fyr-
ir börnin sín, því persónur verksins
eru þekktar persónur ævintýranna
sem eru að hverfa sökum þess að
mannfólkið er farið að gleyma
þeim.“
Í mars verður frumsýnt áður
ósýnt verk eftir Guðmund Steinsson
sem nefnist Húsið í leikstjórn Bene-
dikts Erlingssonar „Skömmu eftir
að ég var skipaður Þjóðleikhússtjóri
kom Kristbjörg Kjeld, sem er stór-
kostlegur listamaður, á minn fund
með leikritið Húsið eftir manninn
sinn heitinn. Ég skoðaði verkið og
hreifst strax af því,“ segir Ari og
tekur fram að það sé ótrúlega
spennandi að fá að frumsýna áður
ósýnt verk eftir Guðmund. „Verkið
ber öll höfundareinkenni hans, en
það var skrifað á undan Stundar-
frið. Það fjallar um uppgjör kyn-
slóða, í því er trúarlegt þema og það
er skemmtilega órætt og opið. Í
samtali við Benedikt kom upp sú
hugmynd að fólkið sem flyttist
óvænt inn í húsið væri hælisleit-
endur og Kristbjörgu leist strax
mjög vel á þá hugmynd.“
Hitler snýr aftur
Síðasta frumsýningin á Stóra
sviðinu verður ný leikgerð Þorleifs
Arnar Arnarssonar og Símons
Birgissonar á Aftur á kreik eftir
skáldsögu Timurs Vermes í leik-
stjórn Þorleifs Arnar. „Við frum-
sýnum það 20. apríl, sem er engin
tilviljun, því það er fæðingardagur
Adolfs Hitler sem er aðalpersóna
verksins og túlkaður verður af Atla
Rafni,“ segir Ari og bendir á að þótt
bókin hafi þegar verið kvikmynduð
hafi hún enn ekki ratað á leiksviðið.
„Símon hafði samband við þýska
forlagið og lýsti hugmynd sinni að
nálgun verksins, sem höfundinum
leist einstaklega vel á,“ segir Ari og
bendir á að í leikritinu sprangi
Hitler ekki um götur Berlínar 2011
eins og í bókinni heldur í Reykjavík
2016. „Verkið er allegoría sem á að
vekja okkur til umhugsunar um það
hvort Hitler sé aftur kominn. Það
má velta fyrir sér hvernig orðræða
hans væri í dag ef hann kæmi
aftur,“ segir Ari og bendir á að
óhugnanlegt sé að fylgjast með upp-
gangi popúlisma bæði austan- og
vestanhafs. „Hver veit nema Hitler
verði sýnilegur í komandi alþingis-
kosningum og tjái sig á samfélags-
miðlunum.“
Flókin og marglaga samskipti
Þrjár sýningar verða frumsýndar
í Kassanum í vetur. „Um miðjan
september verður frumsýnd sænsk
leikgerð á metsölubókinni Maður
sem heitir Ove í leikstjórn Bjarna
Hauks Þórssonar. Um er að ræða
einleik, en Sigurður Sigurjónsson,
sem leikur verkið, hefur mikla og
góða reynslu af því formi.“
Í janúarbyrjun verður frumsýnt
nýtt verk eftir Val Grettisson sem
hann byggir á samnefndri skáld-
sögu sinni Góðu fólki. „Þetta er
áhugaverð stúdía um samskipti
kynjanna, ofbeldi í samböndum og
refsingu. Af því að verkið er skrifað
af karlmanni fannst mér mjög
mikilvægt að kona leikstýrði því til
þess að fá sjónarmið beggja kynja,
því að verkið birtir flókin og marg-
laga samskipti pars,“ segir Ari. Par-
ið leika Stefán Hallur Stefánsson og
Vigdís Hrefna Pálsdóttir, en leik-
stjóri er Una Þorleifsdóttir.
„Una er einn mest spennandi
ungi leikstjórinn á Íslandi í dag.
Hún leikstýrir einnig Tímaþjófnum
sem við frumsýnum um mánaða-
mótin mars/apríl. Þar er um að
ræða leikgerð Melkorku Teklu á
frábærri skáldsögu Steinunnar Sig-
urðardóttur. Eins og Steinunnar er
von og vísa er textinn uppfullur af
kaldhæðnum húmor og skemmti-
legum orðaleikjum. Alda, sem Nína
Dögg Filippusdóttir leikur, er mjög
áhugaverð persóna sökum þess
hversu berskjölduð hún er, sem
stafar af aristókratískum bakgrunni
hennar. Hún sýnir af sér kaldlyndi
gagnvart tilfinningum manns sem
gengur fyrir vikið í sjóinn, en lendir
síðan sjálf í vandræðum þegar ást
hennar og þráhyggju er mætt með
fáleika,“ segir Ari, en elskhuga Öldu
leikur Björn Hlynur Haraldsson.
„Loks ber að nefna nýtt íslenskt
leikrit úr smiðju Bernds Ogrodnik
og Brúðuheima sem nefnist Íslenski
fíllinn og fjallar um óvenjulegan
innflytjanda, því að leikritið fjallar
um ferðalag fíls til Íslands sem sest
hér að,“ segir Ari, en sýningin, sem
er í leikstjórn Ágústu Skúladóttur,
verður frumsýnd á Brúðuloftinu.
„Ég hef fulla trú á því að þetta verði
frábærlega falleg og indæl sýning,“
segir Ari, en líkt og í Aladdín leggja
fjölmargir leikarar Þjóðleikhússins
til raddir sínar í hljóðmynd verks-
ins. „Þjóðleikhúsið heldur áfram
frjóu samstarfi við spennandi leik-
húsfólk og leikhópa. Frumsýndur
verður glænýr einleikur, Ég vil
frekar að Goya haldi fyrir mér vöku
en einhver djöfulsins fáviti eftir Ro-
drigó García þar sem Una leikstýrir
Stefáni Halli. Improv Ísland heldur
áfram með spunasýningar í Leik-
húskjallaranum og Mið-Ísland hefur
sitt fimmta leikár í Þjóðleikhúsinu
með nýrri uppistandssýningu, auk
þess sem Spaugstofan heldur áfram
að gleðja leikhúsgesti með Yfir til
þín.“
„Skilja og túlka samtímann“
Þjóðleikhúsið frumsýnir barnaleikrit í Vestmannaeyjum Áður ósýnt verk eftir Guðmund Steins-
son ratar á Stóra sviðið Gísli Örn Garðarsson leikstýrir Óþelló þar sem Iagó er leikinn af konu
Morgunblaðið/Golli
Val „Í vali okkar á viðfangsefnum höfum við að markmiði að takast á við samtíma okkar,“ segir Ari Matthíasson.
» Þjóðleikhúsið á ekkiað vera flokks-
pólitískt en það á að
vera pólitískt í þeim
skilningi að það taki
þátt í þjóðfélagsumræð-
unni á breiðum grunni.