Morgunblaðið - 03.09.2016, Side 10
VIÐTAL
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Það er fæðuöryggismál að varðveita
og byggja upp jarðveg, eins og starf
Landgræðslunnar snýst um. Þeim
mun betri sem jarðvegurinn er, því
betra er að rækta plöntur. Jarðveg-
urinn og vatnið er verðmætasta eign
okkar mannfólksins, er okkar gull og
demantar, og við getum ekki lifað
án,“ segir Árni Bragason sem tók við
embætti landgræðslustjóra í vor.
Verkefni Landgræðslunnar eru
ærin. Árni segir að Íslendingar hafi
tapað miklum jarðvegi í gegnum ald-
irnar. „Ofbeit hefur því miður verið
allt of mikil og er enn. Við erum enn
að beita svæði sem ekki þola beit. Nú
stendur þannig á að við höfum tæki-
færi til breytinga, vegna offram-
leiðslu á lambakjöti. Hún er þó ekki
meiri en svo að ef við myndum draga
úr beit á allra verstu svæðunum vær-
um við samt sem áður með næga
framleiðslu til að uppfylla kröfur inn-
anlandsmarkaðar.“
Árni sér fyrir sér búvörusamninga
sem tæki til að snúa þróuninni við.
„Ég myndi gjarnan vilja að búvöru-
samningar væru gerðir til lengri
tíma, til dæmis 30 ára, og á þeim tíma
yrði tekið á þessum vandamálum.
Það er ekki ofbeit alls staðar en
það eru vandamál á ákveðnum svæð-
um. Þau svæði eru þekkt og því hægt
að taka á málum með því að létta á
beit. Alvarlegustu vandamálin eru á
afréttum á gosbeltinu. Þar er enn beit
sem ekki ætti að vera. Ég áætla að
15-20% af heildarframleiðslu kinda-
kjöts komi af vandamálasvæðum.
Með réttu skipulagi væri hægt að
leysa málið. Það væri hægt að gera í
áföngum með löngum búvörusamn-
ingi og gera fólki kleift að fara inn á
aðrar brautir. Með þriggja ára samn-
ingi, eins og nú er verið að ræða um,
er ekki hægt að beita neinni aðlögun,
aðeins þvingandi aðgerðum. Þessi
mál eru ekki á mínu valdi en ég vona
að þingmenn hugsi til lengri tíma.“
Ekki hægt að slaka á
Nefnir Árni að þetta hafi aðrar
þjóðir gert. Þjóðverjar hafi til dæmis
létt á beit á þýsku heiðunum í áföngum
með langtíma samningi.
Spurður um stöðu gróðurreiknings
landsins segir Árni að gróðureyðing sé
á ákveðnum svæðum. Á móti komi að
veðurfar hafi verið hagstætt á undan-
förnum árum og mörg svæði í framför.
Það hjálpi og starf Landgræðslunnar
komi þar til viðbótar. Hann telur að
heildarjöfnuðurinn sé jákvæður.
„En það er ekki hægt að halla sér
aftur í stólnum. Það eru mörg við-
kvæm svæði og lítið þarf til að þróunin
verði til verri vegar. Ef við ætlum að
ná tökum á öllum þeim svæðum sem
eru í hættu tekur það mörg hundruð
ár með núverandi fjárveitingum.“
Árni vann lengi að náttúruvernd-
armálum og segist náttúruverndar-
sinni. Hann styður hugmyndir um
þjóðgarð á miðhálendinu en hefur
áhyggjur af framkvæmdinni.
„Ég tel að menn þurfi að hafa var-
ann á. Markmið þjóðgarðs má ekki
vera að varðveita það ömurlega
ástand sem nú er á afréttum gosbelt-
isins. Þótt margt gott hafi verið gert
þar er land enn að eyðast og lítið þarf
til að það fari að blása upp á stórum
svæðum. Þetta er manngert ástand,
skapað með ofbeit, ekki náttúrulegt.
Við stofnun þjóðgarðs þarf að gera
ráð fyrir stórfelldri uppgræðslu
lands.“
Margvísleg not á
landgræðslusvæðum
Árni er að móta stefnuna til fram-
tíðar. Eitt af því sem hann vill inn-
leiða er umræða um markmið með
uppgræðslu á hverjum stað fyrir sig.
Fá fram framtíðarsýn um notkun
þess lands sem verið er að græða
upp.
Hann segir að notin geti verið fjöl-
breytt, bæði til landbúnaðar, skóg-
ræktar og annarra nota.
„Það getur verið markmið að nota
landgræðslusvæði til akuryrkju. Það
hefur verið gert í töluverðum mæli.
Til dæmis kemur þriðjungur af bygg-
uppskeru í landinu af landgræðslu-
svæðum. Það er hluti af fæðuöryggi
landsins að koma upp góðu akurlendi
en það tekur tíma. Landið í kringum
Gunnarsholt var gróðurlaus sandur
fyrir 60 árum en hér hafa nú verið
ræktuð tún, byggakrar, repjuakrar
og skógur.
Fólk sem hingað kemur á erfitt
með að trúa því að hér hafi verið upp-
blásið land fyrir tæpum mannsaldri.
Sama á við um mörg önnur svæði.
Ég vil gjarnan fá aðrar stofnanir til
samstarfs um skipulag og nýtingu
landgræðslusvæða, Skógræktina,
Umhverfisstofnun og sveitarfélög.
Við eigum þegar í góðu samstarfi við
bændur í verkefninu „Bændur græða
landið“.
Sum svæðin henta til skógræktar.
Ég hef þegar rætt við forsvarsmenn
Skógræktarinnar og þeir vilja skoða
ákveðin svæði sem við höfum umsjón
með en hentar að þróa yfir í skóg.
Sveitarfélög þurfa að koma að slíkum
áformum því þau fara með skipulags-
valdið.“
Kannar hug fólks í Ölfusi
„Önnur svæði er ef til vill rétt að
binda og tryggja að vistkerfin geti
þróast eftir eigin lögmálum. Nefna
má svæðið frá Gunnarsholti að Heklu
þar sem unnið er að Hekluskógaverk-
efninu. Önnur svæði mætti þróa á
svipaðan hátt. Sem dæmi má nefna að
rækta mætti fjölbreyttan skóg á
söndunum við Þorlákshöfn. Búið er
að loka sandinum en eftir er að
byggja upp jarðveg til þess að binda
vatn og gefa plöntum tækifæri til að
dafna. Margir gætu sameinast um
það verkefni, eins og í Hekluskógum.
Mikilvægt er að heyra sjónarmið íbú-
anna um það. Ég mun hitta forystu-
menn sveitarfélagsins Ölfuss á næst-
unni til að ræða þau mál,“ segir Árni
Bragason.
Landgræðsla er
fæðuöryggismál
Árni Bragason, nýr landgræðslustjóri, segir að ofbeit sauð-
fjár sé enn vandamál á afréttum á gosbeltinu Leggur til að
vandamálið verði leyst í áföngum í 30 ára búvörusamningi
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Sáning Vélar Landgræðslunnar hafa farið gríðarlegar vegalengdir á sönd-
um og uppblásturssvæðum landsins. Landgræðslustjóri vill nú huga að
framtíðarnotum landgræðslusvæðanna í samvinnu við heimamenn.
Landgræðslustjóri Árni Bragason býr og starfar í Gunnarsholti á Rang-
árvöllum. Þar eru höfuðstöðvar Landgræðslu ríkisins. Staðurinn ber þess
merki því gróðurinn umlykur byggingar og fólk.
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 2016
Guðmundur Franklín
í 4.-6. sæti
í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins
í Reykjavík þann 3. september
Árni Bragason var skipaður í embætti landgræðslustjóra frá 1. maí í vor.
Hann er líffræðingur og doktor í jurtaerfðafræði.
Bakgrunnur hans er í náttúruvernd og skógrækt. Hann var for-
stöðumaður Rannsóknastöðvar Skógræktar ríkisins á Mógilsá, forstjóri
Náttúruverndar ríkisins og forstöðumaður náttúruverndar- og útivist-
arsviðs Umhverfisstofnunar eftir sameiningu stofnana. Hann vann sam-
tals í 9 ár að stjórnun náttúruverndarstarfs. Hann vann síðan sem for-
stjóri Norrænu erfðaauðlindastofnunarinnar, NordGen, í Svíþjóð áður en
hann tók við starfi landgræðslustjóra. Hann segir að starf þeirrar stofn-
unar snúist um varðveislu erfðaauðlindar plantna, trjáa og húsdýra. Það
sé fæðuöryggismál, eins og landgræðslustarfið á Íslandi.
Árni kom ekki inn í neitt tómarúm hjá Landgræðslu ríkisins. Sjálfur
hefur hann víðtæka reynslu af stjórnun stofnana, náttúruvernd og skóg-
rækt, og „er ekki lengur neitt unglamb,“ eins og hann segir sjálfur frá, 63
ára gamall. Hann tók við embætti af Sveini Runólfssyni sem setið hefur
einna lengst í embætti hér á landi. „Stofnunin hefur mótast af hans
starfi. Sveinn hafði þann eiginleika að geta haldið sér sífellt ferskum og
brennandi af áhuga fyrir starfinu. Stofnunin hefur notið þess og andinn
hér innanhúss mótast af því,“ segir Árni.
Náttúruvernd og skógrækt
REYNDUR MAÐUR