Morgunblaðið - 03.09.2016, Qupperneq 48
48 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 2016
Laufey Rún Ketilsdóttir
laufey@mbl.is
„Mig langaði til að fleiri vissu af
þessum heimi þannig að við tókum
okkur til og ákváðum að gera sýn-
ingu – þetta snýst nefnilega um
miklu meira en að spila blak,“ segir
Aðalbjörg Árnadóttir leikkona, en
hún frumsýnir verkið Þær spila blak
Hallelúja / It’s Volleyball Hallelujah
í kvöld kl. 21 í leikfimihúsi Hlíða-
skóla við Hamrahlíð 2 í Reykjavík.
Aðalbjörg skrifaði verkið með Ylfu
Ösp Áskelsdóttur leikkonu, en þær
leika einnig bæði aðalhlutverkin.
Sýningin er aðeins 60 mínútur og
kostar 3.000 kr. inn en miðapantanir
fara fram á netfanginu volleyball-
hallelujah@gmail.com eða á Face-
book-síðu hópsins @theDuoDio.
„Hugmyndin kviknaði fyrir fimm
árum þegar ég steig inn í þennan
heim sem öldungablakið er en við
Ylfa höfðum ekki hugmynd um það á
sínum tíma hvað við vorum að stíga
inn í stóran og skrýtinn heim,“ bætir
Aðalbjörg við létt í bragði.
Enginn bumbubolti
Þetta eru kannski ekki konur eða
vinkonur sem ég hefði valið mér eða
eru í mínu mengi en af því að við er-
um í blakinu þá gerum við hvað sem
er hver fyrir aðra. Þetta hafði kona í
öldungablakinu á orði eitt sinn og
segir Aðalbjörg að það nái vel yfir
stemninguna í hópnum að öllu jöfnu.
Mikil samstaða sé á meðal
kvennanna en þær séu nú orðnar um
þúsund á landinu. „Þetta eru konur
úr öllum stéttum og öllum störfum á
aldrinum 30 til 75 ára – en það er til
dæmis eitt lið þar sem þær eru allar
65 ára og eldri.“
Ekki er um að ræða svokallaðan
bumbubolta heldur taka þátttak-
endur leikinn mjög alvarlega. „Fólk
er með fagþjálfara, kaupir búninga
og er með mikið keppnisskap,“ segir
Aðalbjörg en aldurinn hái engum í
leiknum því ef snerpuna vantar þá er
hún bætt upp með tækninni.
„Aðalpersónur verksins eru í raun
hliðarsjálf af okkur sjálfum – þetta
erum við með dass meira af monti,“
segir Aðalbjörg.
Verkið er sýnt á óhefðbundnum
stað enda miðaði grunnhandritið að
blakleik. „Við erum að bjóða fólki í
kvöldstund með blaki,“ segir hún en
ekki er gerð krafa um þátttöku í sýn-
ingunni. „Allavega ekki á þann hátt
sem fólk skelfist.“
Góðar viðtökur blakkvenna
Aðeins tólf áhorfendur eru á sýn-
ingunni í einu en Aðalbjörg segir það
vísun í að í einu blakliði séu sex
manns og því sé þetta eins og að hafa
tvö blaklið á vellinum.
Verkið hlaut afar góðar viðtökur á
hátíðinni Everybody’s Spectacular á
dögunum. „Það var biðlisti og upp-
selt strax en þetta var áhugavert því
það voru margir erlendir gestir,“
segir hún en verkið sé með mikið af
vísunum í nærumhverfið á Íslandi.
Fyrstu prufuáhorfendurnir voru
fólk sem hafði ekki vit á blaki en
Aðalbjörg bauð einnig liðsfélögum
sínum í blakinu að kíkja á sýninguna.
„Ég var mjög glöð þegar blakkon-
urnar fíluðu þetta því þá hefur mér
tekist þetta og náð því í gegn sem
okkur fannst mikilvægt að ná í gegn
– þessari vináttu,“ segir Aðalbjörg.
Verkið er aðeins sýnt fjórum sinn-
um, þ.e. í kvöld kl. 21, sunnudaginn
11. september kl. 20, laugardaginn
24. september kl. 21 og sunnudaginn
25. september kl. 20 í leikfimihúsinu.
Blak Aðalbjörg og Ylfa leiða áhorfendur í sannleikann um öldungablak.
Inn í heim
öldungablaks
Samstaða, tækni og hrein alvara
Rannveig Káradóttir sópran og
Birna Hallgrímsdóttir píanóleikari
halda tónleika í tilefni af útgáfu
geisladisksins Krot – Icelandic
Songs í Salnum á morgun kl. 17.
„Eftir að hafa hlotið styrk úr
Tónlistarsjóði ferðuðust Rannveig
og Birna um landið sumarið 2011
og héldu tíu tónleika með íslensk-
um sönglögum innblásnum af nátt-
úru Íslands. Lögin fundu þær í
skjalasafni Bókasafns Tónlistar-
skólans í Reykjavík og höfðu sum
laganna þá ekki oft litið dagsins
ljós. Nú fimm árum síðar hefur
langþráður draumur þeirra um að
gefa þessi lög út á geisladisk orðið
að veruleika með hjálp hundrað
stuðningsmanna á Karolina Fund.“
Fimm ára draumur orðinn að veruleika
Dúó Rannveig og Birna fagna útgáfu.
Eftir að hefðarmaðurinn Judah Ben Hur er
ranglega sakaður um glæp af æskuvini sínum
Messala og hnepptur í þrældóm í kjölfarið sver
hann þess dýran eið að hefna sín. Á sama tíma
kynnist hann Jesú og verður djúpt snortinn af
boðskap hans.
Metacritic 38/100
IMDb 5,4/10
Sambíóin Álfabakka 17.20, 20.00, 22.40
Sambíóin Egilshöll 17.30, 20.00, 22.30
Sambíóin Kringlunni 22.20
Sambíóin Akureyri 20.00
Ben-Hur 12
Páfagaukurinn Tuesday býr á lítill framandi paradísareyju,
ásamt skrýtnum vinum sínum. Eftir mikið óveður finna
Tuesday og vinir hans undarlega veru á ströndinni: Robinson
Crusoe.
Sambíóin Álfabakka 13.00,
14.00, 16.00, 18.00
Sambíóin Egilshöll 17.30
Sambíóin Kringlunni 13.00,
13.20, 15.20
Sambíóin Akureyri 14.00, 16.00,
18.00
Sambíóin Keflavík 13.30, 15.30
Robinson Crusoe Hundurinn Max hefur lítið til að kvarta undan. Hann lifir góðu
dekurlífi með eigandanum sínum Katie, í fínni íbúð. Tilvera
Max tekur krappa beygju þegar Katie kemur heim með flæk-
ingshund.
Metacritic 61/100
IMDb 6,8/10
Laugarásbíó 14.00, 16.00,
18.00
Sambíóin Álfabakka 14.00,
16.00, 18.00
Smárabíó 13.00, 15.20, 17.45
Háskólabíó 15.00
Leynilíf Gæludýra War dogs 16
Metacritic 57/100
IMDb 7,3/10
Laugarásbíó 20.00, 22.25
Sambíóin Álfabakka 15.00,
17.30, 17.40, 20.00, 22.30
Sambíóin Egilshöll 17.30,
20.00, 22.30
Sambíóin Kringlunni 15.00,
17.30, 20.00, 22.30
Sambíóin Akureyri 20.00,
22.30
Sambíóin Keflavík 17.30
Lights Out 16
Metacritic 58/100
IMDb 6,8/10
Sambíóin Álfabakka 20.00,
22.00
Sambíóin Egilshöll 20.00,
22.00
Sambíóin Kringlunni 22.40
Sambíóin Akureyri 22.30
Pelé: Birth of a
Legend Metacritic 39/100
IMDb 7,4/10
Sambíóin Kringlunni 20.00
The Shallows 16
Metacritic 59/100
IMDb 6,7/10
Smárabíó 19.30, 20.00,
22.10
Háskólabíó 18.00, 21.00
Borgarbíó Akureyri 20.00,
22.00
Sausage Party 16
Metacritic 67/100
IMDb 7,3/10
Smárabíó 14.00, 17.00,
20.10, 21.40, 22.20
Háskólabíó 15.00, 18.00,
21.00
Borgarbíó Akureyri 18.00,
22.00
Suicide Squad 12
Metacritic 40/100
IMDb 6,9/10
Sambíóin Álfabakka 20.00,
22.40
Sambíóin Egilshöll 20.00,
22.30
Sambíóin Kringlunni 17.20,
20.00
Sambíóin Akureyri 17.20
Hell or High Water 12
Metacritic 86/100
IMDb 8,2/10
Laugarásbíó 17.50, 20.00,
22.10
Háskólabíó 21.10
Borgarbíó Akureyri 20.00
Nerve 12
IMDb 7,2/10
Metacritic 58/100
Smárabíó 20.10
Jason Bourne 12
Metacritic 62/100
IMDb 8,9/100
Laugarásbíó 20.00
Sambíóin Álfabakka 22.40
Smárabíó 22.25
Bad Moms
Morgunblaðið bbbmn
Metacritic 60/100
IMDb 6,8/10
Smárabíó 15.25, 17.45,
20.00, 22.20
Háskólabíó 18.10, 21.10
Ghostbusters 12
Morgunblaðið bmnnn
Metacritic 60/100
IMDb 5,3/10
Smárabíó 13.00, 17.35
Háskólabíó 15.10
Now You See Me 2 12
Morgunblaðið bbbmn
Metacritic 47/100
IMDb 7/10
Sambíóin Álfabakka 20.10
Pete’s Dragon
Bönnuð yngri en 6 ára.
Metacritic 72/100
IMDb 7,5/10
Sambíóin Álfabakka 13.00,
15.20, 17.40
Sambíóin Egilshöll 17.30
Sambíóin Kringlunni 13.00,
15.20, 17.40
Sambíóin Akureyri 14.00
The BFG
Bönnið innan 6 ára.
Morgunblaðið bbbmn
Metacritic 65/100
IMDb 7,3/10
Sambíóin Álfabakka 15.00
Níu líf Laugarásbíó 14.00, 16.00,
18.00
Smárabíó 13.00, 15.20,
17.45
Háskólabíó 15.10, 18.10
Borgarbíó Akureyri 14.00,
16.00, 18.00
Ísöld: Ævintýrið
mikla Metacritic 44/100
IMDb 6,1/10
Smárabíó 13.00, 15.20
Leitin að Dóru Metacritic 75/100
IMDb 9/10
Sambíóin Álfabakka 13.00,
15.20
Lífið í bænum 10
Frír aðgangur.
Sambíóin Keflavík 13.30,
14.15, 15.00, 15.45, 16.30,
17.15
The Blue Room 16
Metacritic 72/100
IMDb 6,3/10
Bíó Paradís 18.00
Race
Metacritic 56/100
IMDb 7,1/10
Bíó Paradís 22.15
VIVA
Bíó Paradís 18.00
Me Before You 12
Metacritic 51/100
IMDb 7,7/10
Bíó Paradís 20.00
Þrestir
Bíó Paradís 20.00
Hrútar 12
IMDb 7,4/10
Morgunblaðið bbbbm
Bíó Paradís 18.00
Fúsi
IMDb 7,5/10
Bíó Paradís 22.00
Ríkharður þriðji
Bíó Paradís 20.00
Kvikmyndir
bíóhúsannambl.is/bio