Morgunblaðið - 03.09.2016, Síða 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 2016
Hildur Loftsdóttir
hildurl@mbl.is
Suðurhlíðarskóli er lítill og heim-
ilislegur skóli sem kúrir við sam-
nefnda götu alveg niðri við fjöruna
í Fossvogi. Skammt undan er
grenndarskógur skólans og fyrir
framan skólann er matjurtargarður
sem nemendur hönnuðu á sjálf-
bærnidögum þar sem þau rækta nú
grænmeti sem þau síðan elda sjálf.
Fáir vita af þessum litla skóla
sem stofnaður var árið 1990 og
rekinn er af aðventistum, og því
eini kristni grunnskólinn á landinu.
Nemendurnir sem eru á aldrinum
6-16 ára eru ekki nema 34 að tölu,
og því mikil samkennsla.
Fæð nemenda býður upp á mikla
athygli fyrir hvern og einn nem-
anda, og nú hefur skólinn ákveðið
að byrja á svokölluðu þátttökunámi
þar sem hver og einn nemandi fær
að njóta sín enn betur með því að
ráða meira hvað hann lærir og
hvernig hann skilar lærdómnum af
sér.
Sjálfstæð vinnubrögð
Blaðamaður fékk að heimsækja
skólann og hitti þar fyrir tvo af
kennurum skólans, þær Sólrúnu
Ástu Steinsdóttur, sem er umsjón-
arkennari í 7.-10. bekk, og Lilju
Írenu Guðnadóttur, umsjónarkenn-
ara 4.-6. bekkjar, sem útskýrðu að í
þátttökunámi færi stór hluti
kennslustunda í svokallaðar vinnu-
stundir þar sem nemendur ynnu
sjálfstætt að sínum verkefnum á
sinn eigin hátt og tækju ábyrgð á
þeim.
Í 1.-3. bekk fara 6 af 30 kennslu-
stundum í þátttökunámið, en í 4.-
10. bekk eru það 12 kennslustundir
af 30. Þetta er mjög hátt hlutfall af
sjálfstæðri vinnu miðað við aðra
skóla.
„Margir skólar hafa t.d. loka-
verkefni 10. bekkjar sjálfstætt, og
er það þá unnið eftir öll próf um
vorið. Við erum hins vegar að gera
þetta allan veturinn. Aðrir skólar
skeyta saman náttúrufræði og sam-
félagsfræði og vinna með þema. En
við setjum fleiri tíma inn í þema-
verkefnin; einn enskutíma, tvo ís-
lenskutíma, einn tíma í upplýs-
ingafræði og tvo valtíma sem hver
skóli hefur til umráða,“ segir Lilja
Írena.
Bakkafjörður reið á vaðið
Helsta fyrirmynd Suðurhlíð-
arskóla að þessu er Grunnskólinn á
Bakkafirði sem einnig er lítill skóli
með 19 nemendur og því mikla
samkennslu.
„Þau riðu á vaðið með þátttök-
unámið og það kom mjög vel út.
Ingvar Sigurgeirsson á Mennta-
vísindasviði Háskóla Íslands hefur
skoðað það mjög vel, og hefur að-
stoðað okkur í innleiðingu okkar.
Við erum mjög spennt,“ segir Lilja
Írena, og Sólrún Ásta tekur heils-
hugar undir það. „Þetta passar vel
við það sem við höfum gert áður.
Við höfum unnið með námsstefn-
una Uppeldi til ábyrgðar sem
margir þekkja, og þátttökunámið
er mjög rökrétt framhald af því; að
taka ábyrgð á sínu námi, hvaða
manneskja maður er og að þekkja
þarfir sínar.“
Að kveikja áhuga
Nemendur í Suðurhlíðarskóla
þurfa að sjálfsögðu að stunda sínar
kjarnagreinar og taka próf í þeim.
Þátttökunámið fer svo fram í
vinnustundum sem eru fjórir tímar
þrisvar í viku, og hvert þema
stendur yfir í einn mánuð.
„Við byrjum með góða kveikju,
sem er fræðsla þar sem maður
kveikir áhuga á hjá nemendunum,
nær athygli þeirra svo hugmyndir
byrji að kvikna. Svo taka þau við
keflinu og fá að velja hvernig þau
vilja leysa úr viðfangsefninu,
hvernig þau vilja kynna það og
hvaða heimildir þau vilja nota,“
segir Lilja Írena.
„Fyrsta þemað okkar verður
mannslíkaminn í 4.-10. bekk. Við
verðum með sameiginlega kveikju,
en svo umræður inni í sitthvorri
stofunni og hjálpum þeim vel af
stað,“ útskýrir Sólrún Ásta, sem
segir að þær gerir kröfur til þess
að miðlunin sé fjölbreytt og breyti-
leg milli verkefna hjá nemend-
unum.
„Það er ekki nóg að geta skrifað
ritgerð, það þarf líka að geta haldið
kynningar, gert myndband, vegg-
spjald eða listaverk. Það er auðvit-
að gott að þau öðlist öryggi fyrst
með því að nota sína helstu styrk-
leika í verkefnin en þau þurfa
stundum að stíga út fyrir þæg-
indarammann. Þetta munu þau
taka með sér upp í háskóla og
áfram út í lífið; að vita hvar styrk-
leikar þeirra liggja og kunna að
nýta sér þá og auka þátt þeirra í
því sem þau taka sér fyrir hendur.“
Blómstrandi börn
Þær stöllur eru sammála um
þetta vinnulag og smæð skólans
henti nemendum sérlega vel sem
hafi íslensku sem annað mál eða
eiga við einhverfu, kvíða eða aðra
veikleika að stríða.
„Það eru nemendur í skólanum
með athyglisbrest og ofvirkni en þú
gætir ekki giskað á hve mörg þau
eru. Þetta er svo mikið umhverfið.
Ef þú ert í stóru rými með mörg-
um krökkum þá hamlar það þér í
náminu. Í svona litlum bekkjum
nær kennarinn betur að halda utan
um allt, þá eru þessir þættir ekki
jafn hamlandi. Og þessir sömu
nemendur geta einmitt sökkt sér
svo vel ofan í verkefnin þegar þeir
fá að vinna með sitt eigið áhuga-
svið.
Það eru mörg dæmi um börn
sem hafa ekki plumað sig annars
staðar en koma hingað og byrja að
blómstra,“ segir Sólrún Ásta.
Svigrúm fyrir alla
Sérstaða Suðurhlíðarskóla er
ekki bara smæðin og dásamleg
staðsetning hans, heldur einnig að
hann er kristinn skóli. Lilja Írena
segir að borin sé virðing fyrir ólík-
um trúarskoðunum og að þær rým-
ist allar innan skólans. „Sumir
nemendurnir, sérstaklega ungling-
arnir, hafa tekið þá afstöðu að trúa
ekki á Jesú, og oft eru miklar rök-
ræður um trúmál í kristinfræðitím-
um.“
„En við njótum þess að vera yf-
irlýstur kristinn skóli og erum allt-
af með kirkjustund um jólin í Að-
ventkirkjunni í Ingólfsstræti,“
bætir Sólrún Ásta við. „Þá koma
foreldrarnir og nemendurnir sjá al-
veg um stundina; eru með leikrit,
söngatriði, tónlistarflutning eða
önnur skemmtiatriði. Þetta verður
eitt af þemunum okkar í vetur, þau
fá að velja hvað þau gera og
byggja á styrkleikum sínum.“
Margir nemendanna koma frá
heimilum þar sem er ekki mikið
trúarlíf og sjálfar eru Lilja Írena
og Sólrún Ásta ekki í Aðventkirkj-
unni heldur í KFUM&K.
„Við kennum þeim Biblíusög-
urnar sem sannleika en ekki þjóð-
sögur. Við hefjum daginn á bæna-
stund og við biðjum fyrir matnum
líka, syngjum jafnvel borðbæn.
Börnin koma með bænarefni og þá
er beðið fyrir því, hvort sem ein-
hver er með sífelldar martraðir
eða á veikan afa. Þetta er góður
vettvangur til að veita samhug og
fyrir börnin til að létta á sér. Það
er oft ekki pláss í skólastarfinu til
að vekja máls á áhyggjum og sorg,
en þarna fá þau tækifæri til að
segja frá og þá vita hinir krakk-
arnir hvað þau eru að ganga í
gegnum. Þeim finnst það mjög
gott,“ segir Sólrún Ásta, og Lilja
Írena tekur undir að þannig veiti
trúarlegi þátturinn í skólastarfinu
enn meira öryggi og vellíðan hjá
nemendunum á meðan það sé full-
komið svigrúm fyrir alla. „Við
segjum engum hverju hann á að
trúa og ekki, ekki heldur hvernig
manneskja hann eigi að vera eða
hvernig leysa skuli skólaverk-
efnin.“
www.sudurhlidarskoli.is
facebook: Suðurhlíðarskóli
Nemendur taka við keflinu
Bjartsýnar Lilja Írena Guðnadóttir og Sólrún Ásta Steinsdóttir vilja leyfa nemendum sínum að blómstra á sinn eigin hátt og ýta undir sjálfstæði.
Morgunblaðið/Þórður
Stolt Nemendur rækta sjálfir eigið grænmeti.Duglegar Búnar að taka upp kartöflur í soðið!Stuð Það er gott að fá útrás í frímínútum.
Núna í vetur ætlar Suðurhlíðarskóli að byrja með þátttökunám Það gerir nemandann ábyrgari
og áhugasamari Nemandinn vinnur á þann hátt sem vekur hjá honum áhuga og ánægju
Söngskólinn íReykjavík
Fyrsta 7 vikna námskeið vetrarins
hefst 12. september og lýkur 28. október
Einnig er hægt að fá einkatíma í söng - fjöldi tíma samkomulag
SÖNGNÁMSKEIÐ
Nánari upplýsingar
www.songskolinn.is / 552-7366
Allir geta fundið eitthvað fræðandi og skemmtilegt við sitt hæfi!
• Fyrir fólk á öllum aldri:
Sem undirbúningur fyrir frekara söngnám
eða tómstundagaman fyrir söngáhugafólk
• Kennslutímar:Morguntímar / Síðdegistímar / Kvöldtímar
• Söngtækni:Raddbeiting / Túlkun / Einsöngur / Raddaður söngur
• Tónmennt:Tónfræði / Tónheyrnarþjálfun / Nótnalestur