Morgunblaðið - 03.09.2016, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 03.09.2016, Blaðsíða 46
46 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 2016 Laufey Rún Ketilsdóttir laufey@mbl.is „Þjóðin getur verið stolt að eiga svona frábæra tónlistarmenn eins og komu fram á tónleikunum okkar í gær. Það er til vitnis um þann ótrú- lega kraft sem býr í tónlistarlífinu og íslensku menningarlífi yfirleitt,“ segir Arna Kristín Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Sinfóníu- hljómsveitar Íslands, en nýtt starfs- ár var kynnt á dögunum með viða- mikilli dagskrá þar sem fjöldi ólíkra verka mun óma í eyrum tónleika- gesta í Hörpu út árið. Starfsárinu var ýtt úr vör í gær- kvöldi þegar tónleikarnir Klassíkin okkar fóru fram í Eldborgarsal Hörpu. Þeir voru haldnir í samstarfi við Ríkisútvarpið en þjóðin kaus sjálf þau verk sem spiluð voru á tón- leikunum. „Þetta var uppáhalds- klassík þjóðarinnar en þúsundir greiddu atkvæði og úr varð alveg stórkostleg veisla,“ segir Arna en alls voru níu verk spiluð, þeirra á meðal voru kaflar úr Valkyrjureið- inni eftir Wagner og Níundu sinfón- íu Beethoven. Arna segir afar góða aðsókn vera á tónleika Sinfóníunnar almennt og hún hafi aukist með árunum. „Það er yfir 85% sætanýting í Eldborg á tónleikum þó við höfum farið úr helmingi minni sal í Háskólabíói. Við slógum aðsóknarmet á einstaka tónleika í fyrra,“ bætir hún við en stuðningurinn við hljómsveitina og áhugi á starfi hennar sé mikið gleði- efni. Frönsk verk í fyrirrúmi „Stóru fréttirnar þetta starfsár er að við erum að fá nýjan aðal- hljómsveitarstjóra, Yan Pascal Tortelier, og við hlökkum gríðarlega mikið til samstarfsins,“ segir Arna. Hinn franski Tortelier er virtur hljómsveitarstjóri og á langan feril að baki. „Hann kemur með mikla reynslu í farteskinu sem hann kem- ur til að miðla til okkar. Enginn verður ósnortinn af því að starfa með honum,“ bætir hún við en hann er meðal annars heiðursstjórnandi BBC-fílharmoníunnar. Spurð um áherslurnar sem nýr aðalhljómsveitarstjóri komi með inn í Sinfóníuhljómsveitina segir hún það verða frönsku verkin. „Hann er Frakki þannig að það verður áhersla á frönsk verk á hans efnis- skrám. Það er skemmtilegt því tón- mál þeirra býr kannski yfir meiri fí- nessum en til dæmis þýsk, rússnesk og skandinavísk tónlist sem við höf- um kannski meira leikið af í gegnum tíðina,“ bætir hún við en fyrstu tón- leikar Tortelier eru í næstu viku, 8. september. „Það er mikið og dýnamískt sam- band á milli hljómsveitarstjóra og hljómsveitar. Það er vel þekkt úr heimi íþróttanna hvað þjálfari getur haft mikið að segja fyrir liðið,“ segir Arna en líka þurfi að gæta að liðs- heildinni í hljómsveitum og misjafnt milli hljómsveitarstjóra hvernig þeir nái til allra og fái þá með sér. „Það eru því spennandi tímar framundan hjá hljómsveitinni.“ Á alþjóðlegu færibandi „Við erum á alþjóðlegu færibandi – hljómsveitarstjórarnir fara á milli hljómsveita og þannig erum við allt- af í samanburði við aðrar hljóm- sveitir,“ segir Arna en hún hafi fundið fyrir því að aðdráttarafl hljómsveitarinnar hafi aukist með tilkomu Hörpu en áður hafi aðstæð- urnar hamlað sveitinni. Ásamt Tortelier er Osmo Vänskä, aðalgestastjórnandi Sinfóníu- hljómsveitarinnar, en hann er að sögn Örnu á hátindi síns ferils og því mjög eftirsóttur stjórnandi. Hann framlengdi nýlega samning sinn við Sinfóníuna til ársins 2020. „Hann hefur alveg rosalega djúpa tengingu við okkur og nær svo miklu úr hljómsveitinni því hann þekkir þau svo vel og gefur enga af- slætti,“ bætir hún við en hann gegndi stöðu aðalhljómsveitarstjóra við Sinfóníuhljómsveitina árin 1993- 1996. Þá er Vladimir Ashkenazy heið- ursstjórnandi hljómsveitarinnar. „Þetta eru auðvitað gríðarleg meðmæli með hljómsveitinni – við erum með tríó af hljómsveitar- stjórum sem eru á því kaliberi að það er mikill gæðastimpill fyrir Sin- fóníuhljómsveit Íslands gagnvart umheiminum að þetta séu menn henni tengdir, það segir að hljóm- sveitin sé á ákveðnum stað,“ segir Arna. Fjölbreyttar áskriftarleiðir Dagskráin í vetur verður fjöl- breytt og eitthvað í boði í nær hverri viku, að sögn Örnu. Áskrift- arleiðirnar eru fimm talsins og bjóða upp á mismunandi áherslur í sinfóníutónlist. Föstudagsröðin verður á sínum stað en hún hófst í fyrra. Þar er boð- ið upp á sinfóníutónleika í Norður- ljósasal Hörpu á föstudögum þar sem gestir eru í áður óþekktu návígi við hljómsveitina en Daníel Bjarna- son, staðarlistamaður hljómsveitar- innar, er listrænn stjórnandi raðar- innar. Þá verður Bruckner-sinfónía nr. 8 einnig leikin í vetur ásamt fleiri verkum, til dæmis Beethoven nr. 7 sem Osmo Vänskä kemur til með að stjórna. „Það er alltaf mikil upplifun þegar hann er mættur á pallinn hjá okkur.“ Græna leiðin býður upp á léttari tónlist í ætt við Vínartónleikana og svo er Litli tónsprotinn fyrir fjöl- skyldur. „Þar hefjum við leika með Fantasíu Disneys sem er teikni- mynd úr smiðju Walt Disney þar sem hann túlkar klassísku tónlist- ina. Hún er algjör klassík og hefur fylgt kynslóðunum,“ segir Arna. Það er skoðun hennar að öll börn eigi að hafa aðgengi að tónlist enda sé ekkert afl sterkara. „Það er okk- ar einlæga trú og því höfum við allt- af lagt mikla áherslu á fræðslustarf hjá hljómsveitinni,“ bætir hún við. Hæfileikarnir ráða för „Við fórum að horfa á það af al- vöru í kjölfar 100 ára kosninga- afmælis kvenna í fyrra að of fá verk eftir konur rötuðu á efnisskrána og alltof fáar konur voru á hljómsveit- arstjórapallinum – þó þeim fari vissulega fjölgandi,“ segir Arna en Sinfóníuhljómsveitin hafi því horft markvisst til þess að auka hlut kvenna við val á verkum í efnis- skrána í ár þó enn megi gera betur. Hljómsveitin flytur því meðal annars tvö verk eftir Kaija Saaria- ho, eitt dáðasta núlifandi tónskáld Finna, að sögn Örnu. Þá kemur hin finnska Anna-Maria Helsing og stjórnar konsert þar sem Kari Kri- ikku, önnur finnsk kona og einleik- ari á klarínett, leikur Klarínettu- konsert Saariaho. Einnig verða leikin verk eftir tón- skáldin Þuríði Jónsdóttur, Önnu Þorvaldsdóttur og Maríu Huld Markan á nýju starfsári. „Konur eru helmingur skattgreið- enda þannig að þær þurfa að fá að spegla sig í menningunni og listinni eins og karlarnir,“ segir Arna en hinn sinfóníski heimur sé enn mjög karllægur og því getur verið þörf á að gera breytingar með handaflinu. Hins vegar er kynjahlutfallið í Sinfóníuhljómsveitinni sjálfri hníf- jafnt. Það kemur til af því að prufu- spil fara fram á bakvið tjald þar sem ekki sést hvort það er karl eða kona sem leikur á hljóðfærið. Það eru því hæfileikarnir sem ráða. „Við erum nefnilega alveg jafn góð – þegar þessi breyta er ekki höfð með.“ Auka hlut kvenna  Nýju starfsári Sinfóníuhljómsveitar Íslands var ýtt úr vör í gærkvöldi  Viðamikil og fjölbreytt dagskrá framundan Morgunblaðið/Þórður Sinfónían Arna Kristín Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands, segir starfsárið framundan vera viðamikið og spennandi en verkin séu fjölbreytt. Starfsárið hófst á tónleikunum Klassíkin okkar, í gærkvöldi. Söfn • Setur • Sýningar LISTASAFN ÍSLANDS BERLINDE DE BRUYCKERE 21.5 - 4.9.2016 Ath síðasta sýningarhelgi. Sunnudagsleiðsögn með safnstjóra 4. september kl. 14 LJÓSMÁLUN – LJÓSMYNDIN OG MÁLVERKIÐ Í SAMTÍMANUM 7.5 - 11.9.2016 UDSTILLING AF ISLANDSK KUNST UPPHAF KYNNINGAR Á ÍSLENSKRI MYNDLIST Í KAUPMANNAHÖFN 21.1 - 11.9 2016 PABLO PICASSO Í SAFNEIGN LISTASAFNS ÍSLANDS; JACQUELINE MEÐ GULAN BORÐA (1962) 21.7. 2015 - 25.9. 2016 HRYNJANDI HVERA 17.6 - 11.9 2016 Gagnvirk videó-innsetning eftir Sigrúnu Harðardóttur Leiðsagnir á ensku alla þriðjudaga og föstudaga kl. 12:10 SAFNBÚÐ - Listrænar gjafavörur • KAFFISTOFA - Ljúffengar veitingar Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is. Opið daglega í sumar kl. 10-17 LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR SAMSKEYTINGAR 3.9. - 28.05. 2017 Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-17. Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is KAFFISTOFA heimabakaðar kökur SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR UNDIR BERUM HIMNI - MEÐ SUÐURSTRÖNDINNI 5.2.-16.9.2016 Opið þriðjudaga, fimmtudaga og sunnudaga kl. 14-17. Bergstaðastræti 74, sími 561 9616, www.listasafn.is Sunnudagur 4. september kl. 14: Barnaleiðsögn um grunnsýningu Þjóðminjasafnsins Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár grunnsýning Þjóðminjasafnsins Með kveðju – Myndheimur íslenskra póstkorta í Myndasal Dálítill sjór – Ljósmyndir Kristínar Bogadóttur á Vegg Hvað er svona merkilegt við það? Störf kvenna í 100 ár í Bogasal Síðasti sýningardagur 18. september Bláklædda konan - Ný rannsókn á fornu kumli í Horni Norðrið í norðrinu á 3. hæð Safnbúð fjölbreytt úrval gjafavöru Kaffitár ljúfar veitingar í fallegu umhverfi ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200, www.thodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn Opið daglega frá kl. 10-17. Sunnudagur 4. september: 2 fyrir 1 af aðgangseyri Sýningin Sjónarhorn Ferðalag um íslenskan myndheim fyrr og nú Jónsbók, kirkjulist, skjöl, samtímalist, alþýðulist, plötuumslög, ljósmyndir, landakort, vaxmynd og margt fleira Geirfugl †Pinguinus impennis Aldauði tegundar – Síðustu sýnin Fræðslurými og skemmtilegt fræðsluefni fyrir alla fjölskylduna. Safnbúð Bækur og gjafavörur í úrvali Kaffitár nú einnig í Safnahúsinu Safnahúsið er hluti af Þjóðminjasafni Íslands Hverfisgötu 15, 101 Reykjavík s: 530 2210 www.safnahusid.is Sýningin opin daglega frá 10-17 Kaffitár opið mánudaga til föstudaga frá 8-17, 10-17 um helgar SAFNAHÚSIÐ VIÐ HVERFISGÖTU Sígildir sunnudagar nefnist ný tón- leikaröð sem hefur göngu sína í Norðurljósasal Hörpu á morgun kl. 17. Á fyrstu tónleikunum kemur fram Strokkvartettinn Siggi, en hann skipa Una Sveinbjarnardóttir og Helga Þóra Björgvinsdóttir fiðluleikarar, Þórunn Ósk Marinós- dóttir víóluleikari og Sigurður Bjarki Gunnarsson sellóleikari. Tónleikarnir bera yfirskriftina Stillshot-Snapshot en á þeim verður fluttur í fyrsta sinn utan Bandaríkj- anna nýr strengjakvartett Daníels Bjarnasonar sem nefnist „Still- shot“. Verkið er pantað af Sigga í samstarfi við hinn ameríska Cald- er-kvartett. Einnig verður flutt verk Bandaríkjamannsins John Co- rigliano, „Snapshot“, kvartett Lud- wigs van Beethoven nr. 11 í f-moll opus 95 Serioso og El Greco kvart- ettinn eftir Jón Leifs. Ný tónleikaröð hefur göngu sína í Hörpu Strokkvartett Sigurður Bjarki, Þórunn Ósk , Una og Helga Þóra mynda Sigga. Mirage nefnist sýning sem opnuð verður í Verksmiðjunni á Hjalteyri í dag milli kl. 14 og 17. Sýningar- stjóri er Þóra Sólveig Bergsteins- dóttir en með henni sýna Erwin van der Werve og Ema Nik Thomas. „Þau vinna gjarnan með gjörn- inga, vídeó og málverk. Erwin velt- ir fyrir sér samspili hluta í rými; hvernig þeir skilgreina það og raða sér upp eins og dansarar á sviði. Ema mun að þessu sinni vinna út frá orðinu „mirage“ og uppruna- legri merkingu þess. Verk hennar lýtur að nánum tengslum ímynd- unar og umhverfis. Í gjörningum sínum er Þóra Sólveig að skoða gaumgæfilega stundleg tengsl við umhverfið og velur úr allt það er myndar landslag tilverunnar.“ Sýn- endur fremja gjörning í dag kl. 14.30 og 15.30. Mirage opnuð á Hjalteyri í dag Lófafylli Sýnendur vinna gjarnan með gjörninga, vídeó og málverk.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.