Morgunblaðið - 03.09.2016, Síða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 2016
Sigríður Á. Andersen
alþingismaður
2. sæti
www.sigridur.is
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Skemmtiferðaskipið Europa 2 kom
til hafnar í Reykjavík í gærmorgun í
sinni fyrstu ferð hingað. Europa 2 er
eitt nýjasta skipið í flotanum og í
hópi þeirra glæsilegustu. Það er
42.830 brúttótonn.
Á vefsíðunni Cruise Critic fær
skipið 5 stjörnur af 5 mögulegum.
Þar segir m.a. að farþegarnir upplifi
sig frekar sem gesti á glæsilegu evr-
ópsku hóteli en farþega á skemmti-
ferðaskipi. Skipið var tekið í notkun
árið 2013 og hefur síðan þá verið val-
ið besta skemmtiferðaskip heims öll
árin. Gestum var boðið að skoða
skipið í gær og er óhætt að fullyrða
að fátt er ofsagt um glæsileika skips-
ins.
Það er þýsk útgerð, Hapag-Lloyd
Cruises, sem gerir skipið út. Far-
þegarnir eru aðallega efnafólk eins
og nærri má geta. Flestir farþeg-
anna eru Þjóðverjar.
Íbúðir fremur en klefar
Í skipinu er 251 farþegaklefi en
nær væri að tala um íbúðir. Stærstu
íbúðirnar eru 114 fermetrar með
svölum en þær minnstu 35 fermetr-
ar. Í ferðinni til Íslands voru 480 far-
þegar. Þeir létu vel af ferðinni hing-
að og voru stórhrifnir af norður-
ljósadýrð sem við blasti þegar skipið
sigldi frá Vestmannaeyjum í fyrra-
kvöld.
Um borð eru sjö veitingastaðir og
56 kokkar sjá um eldamennskuna.
Farþegarnir geta valið úr 600 vín-
tegundum.
Þá eru ótaldir afþreyingarmögu-
leikar sem eru ótalmargir. Sund-
laugar og sólbaðsaðstöðu er að finna
á skipinu, samkomusal þar sem lista-
menn koma fram á hverju kvöldi,
djassklúbba og margt fleira.
Skipið prýða alls 890 listaverk eft-
ir marga heimsþekkra listamenn. Í
þeim hópi er Íslendingurinn Ólafur
Elíasson.
Eins og venjan er þegar nýtt skip
kemur til hafnar í Reykjavík voru
fulltrúar Faxaflóahafna mættir um
borð. Erna Kristjánsdóttir markaðs-
stjóri afhenti skipstjóranum Christi-
an van Zwamen skjöld til minningar
um komu skipsins. Þá voru einnig
mættir fulltrúar frá Gáru, umboðs-
aðila skipsins hér á landi, og færðu
þeir skipstjóranum gjafir frá fyrir-
tækinu.
Europa 2 var ekki eina skipið sem
lá við Skarfabakka í Sundahöfn í
gær. Þar var einnig Serenade of the
Seas, 90.900 tonn að stærð. Með því
skipi voru 2.100 farþegar.
Nú er langt liðið á vertíð skemmti-
ferðaskipa hér á landi í sumar. Enn
eiga 17 slík skip eftir að koma í höfn
í Reykjavík. Hið síðasta þeirra,
Marco Polo, er væntanlegt 11. októ-
ber.
Glæsiskip í heimsókn
Europa 2 kom til Reykjavíkur í gærmorgun Hefur verið valið besta skemmti-
ferðaskip heims Minnir frekar á hótel en skip 56 kokkar sjá um matinn
Ljósmynd/Erna Kristjánsdóttir
Europa 2 Mikill íburður er í skipinu og öll aðstaða farþega fyrsta flokks.
Afhending Skipstjórinn fékk skjöld
til minningar um komuna hingað.
Hátíðin Ljósanótt í Reykjanesbæ er
í fullum gangi og fjöldi viðburða allt
fram á sunnudag. Ljósanótt var sett
á fimmtudaginn í mikilli og góðri
stemningu og var fimmtudagskvöld
líkast einni stórri vinahátíð þar sem
bæjarbúar og brott fluttir röltu um
götur og kíkja á viðburði að sögn
Svanhildar Eiríksdóttur, verkefna-
stjóra upplýsinga- og kynningar-
mála hjá Reykjanesbæ. „Enginn fer
hratt yfir enda mikið um dýrðir og
alls staðar er fólk sem þarf að kasta
kveðju á. Heimamönnum finnst því
gott að hafa daginn í dag, morg-
undaginn og sunnudaginn til þess að
ná að sjá og upplifa alla viðburði sem
eru í gangi,“ sagði hún um stöðu há-
tíðarhaldanna í gær.
Á öðrum degi Ljósanætur var
m.a. opnuð hönnunarveisla á Park
Inn by Radisson þar sem fjölmargt
listafólk sýnir verk sín og hönnun og
súpubílarnir frá Skólamat keyrðu
niður Hafnargötu að hátíðarsvæðinu
þar sem viðstöddum var gefin súpa
við smábátahöfnina. Í gærkvöldi var
þar svo slegið upp Bryggjuballi þar
sem Bæjarstjórnarbandið var á dag-
skrá ásamt fleiri sveitum.
Meðal stærstu viðburða sem eru á
dagskrá í dag og kvöld eru stór-
tónleikar Ljósanætur sem hefjast kl.
20.30 og aðstandendur hátíðarinnar
boða svo björtustu flugeldasýningu
landsins í boði HS Orku sem á að
hefjast kl. 22.15. Margt verður einn-
ig í boði á sunnudag, m.a. tvær sýn-
ingar tónleikanna ,,Með blik í auga“.
Ljósmynd/OZZO
Sól og blíða Ljósanótt stendur yfir í 4 daga og veðrið leikur við hátíðargesti.
„Mikið um dýrðir
og alls staðar er fólk“
Úr mörgu er að velja á Ljósanótt
Ljósmynd/Myndasafn Reykjanesbæjar
Sýning Ungur gestur bókasafnsins
skoðar Álfabækur Garason.
Sveitarfélögin Reykjanesbær, Sand-
gerði, Vogar og Garður, ásamt þró-
unarfélaginu Fluglestinni, hafa und-
irritað samstarfssamning um
skipulagsmál vegna hraðlestar milli
Keflavíkurflugvallar og höfuðborg-
arsvæðisins.
Markmiðið með samningnum er
að tryggja hagkvæmni framkvæmd-
arinnar og að styrkja byggð og at-
vinnulíf á Suðurnesjum. Samið hefur
verið um greiningu á samfélags-
legum áhrifum framkvæmdarinnar
á nærumhverfi með sérstöku tilliti
til fasteignaverðs, launaþróunar og
atvinnulífs, meðal annars ferðaþjón-
ustu, segir í tilkynningu.
Breyta þarf skipulagi svo koma
megi fyrir lestarlínu, lestarstöðvum
og viðhaldsaðstöðu. Með samstarfs-
samningnum veita sveitarfélögin vil-
yrði fyrir lóðum í deiliskipulagi og
úthluta þeim og/eða byggingarrétti,
skv. nánara samkomulagi. Samning-
urinn gildir til fimm ára.
Hraðlest Sveitarstjórnarmenn á
Suðurnesjum í samstarfi.
Semja um
hraðlest í
skipulagið
Suðurnesja-
menn í samstarf