Morgunblaðið - 03.09.2016, Side 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 2016
DÖMUSKÓR
Ökklaháir loðfóðraðir
dömuvetrarskór á flottu
verði. Fást einnig í svörtu.
VERÐ 12.995.-
BARNASKÓR
Flottir barnavetrarskór
á góðu verði. Fást einnig
í svörtu. Stærð 27,5-39,5
Verð 9.995,-
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Fiskistofa hefur úthlutað aflamarki
fyrir fiskveiðiárið 2016/2017 en það
hófst 1. september síðastliðinn. Út-
hlutunin fer fram á grundvelli afla-
hlutdeilda að teknu tilliti til 5,3%
frádráttar fyrir jöfnunaraðgerðir
með sama hætti og á fyrra fisk-
veiðiári.
Að þessu sinni er úthlutað 369.925
tonnum í þorskígildum talið sam-
anborið við um 368.394 þorskígildis-
tonn í fyrra. Aukning á milli ára
samsvarar því um 1.530 þorskígild-
istonnum. Úthlutun í þorski er rúm-
lega 194 þúsund tonn og hækkar um
tæp 4.000 tonn frá fyrra ári. Ýsu-
kvótinn er 27.523 tonn og dregst
saman um rúm 1.400 tonn. Rúmlega
1.200 tonna samdráttur er úthlutun
á gullkarfa, 5.200 tonna samdráttur
í löngu og 6.800 tonna samdráttur í
úthlutun á íslanskri sumargotssíld.
Úthlutað aflamark er alls 429.363
tonn sem er um 16 þúsund tonnum
minna en á fyrra ári.
Í frétt á vef Fiskistofu er vakin
athygli á því að síðar á árinu verði
úthlutað aflamarki í deilistofnum og
ekki sé óalgengt að aukið sé við afla-
mark í uppsjávarfiski. „Þess vegna á
heildaraflamark einstakra skipa og
hafna og innbyrðishlutfall þeirra
eftir að breytast í kjölfar slíkra út-
hlutana þegar líður á fiskveiðiárið,“
segir í fréttinni.
Mikil fækkun skipa
Alls fá 504 skip úthlutað afla-
marki að þessu sinni samanborið við
534 á fyrra fiskveiðiári. Mikil fækk-
un hefur orðið undanfarin ár, en ár-
ið 2013 fengu 627 skip úthlutað afla-
marki.
Það skip sem fær úthlutað mestu
aflamarki er skuttogarinn Guð-
mundur í Nesi RE 13, en hann fær
8.324 þorskígildistonn eða 2,25% af
úthlutuðum þorskígildum. Brim hf.
gerir togarann út. Kaldbakur EA
fékk næsthæstu úthlutunina, en
Kaldbakur var með mesta aflamark-
ið á síðasta fiskveiðiári. Guðmundur
í Nesi var hins vegar með hæsta
aflamarkið á fiskveiðiárinu sem
hófst 2014.
Fimmtíu stærstu fyrirtækin fá út-
hlutað sem nemur um 86,6% af því
aflamarki sem úthlutað er og er það
álíka og í fyrra. Alls fá 398 fyrirtæki
eða lögaðilar úthlutað nú eða um 20
aðilum færra en í fyrra.
Sé litið til þeirra sem eru með
mesta úthlutun fær HB Grandi í
Reykjavík mest úthlutað til sinna
skipa eða 10,3% af heildinni, næst
kemur Samherji á Akureyri með 6%
og þá Þorbjörn hf. í Grindavík með
5,5%. Þetta er sama röð efstu fyr-
irtækja og undanfarin ár. Til sam-
anburðar má nefna að árið 2013 var
HB Grandi með 11,2% af heildinni,
Samherji 6,8% og Þorbjörn 5,5%
Þrjár heimahafnir skera sig úr
eins og undanfarin ár með að skip
sem þar eru skráð fá töluvert mikið
meira úthlutað í þorskígildum talið
en þær hafnir sem á eftir koma.
Mest fer til skipa með heimahöfn í
Reykjavík eða 12,1% af heildinni
samanborið við 12,4% í fyrra. Næst-
mest fer nú til Grindavíkur, eða
10,6% af heildinni sem er sam-
dráttur um 0,8 prósentustig frá
fyrra ári. Skip með heimahöfn í
Vestmannaeyjum ráða fyrir 9,9%
úthlutunarinnar eins og í fyrra.
Til samanburðar má nefna að árið
2013 var aflahlutdeild Reykjavíkur
13,3%(14,2% árið 2012), Grindavíkur
8,4% og Vestmannaeyja 11,2%.
Bátum með krókaaflamark fækk-
ar milli ára, þeir eru nú 281 en voru
297 í fyrra. Skipum í aflamarkskerf-
inu fækkar um 14 á milli ára og eru
nú 223. Samkvæmt útgerðarflokkun
Fiskistofu fá skuttogarar úthlutað
rúmum 200 þúsund tonnum af því
heildaraflamarki sem úthlutað var
að þessu sinni og skip með aflamark
fá rúm 177 þúsund tonn. Smábátar
með aflamark og krókaaflamarks-
bátar fá tæp 50 þúsund tonn.
Um 1.570 þorskígildistonnum er
úthlutað nú í upphafi árs sem skel-
og rækjubótum en það er svipað og í
fyrra og fara þau til 30 báta sam
5,3% í stuðning
og strandveiðar
Árlega ráðstafar atvinnuvega- og
nýsköpunarráðherra ákveðnum
aflaheimildum, nú 5,3% heildarkvót-
ans, til að mæta sérstökum
úthlutunum og strandveiðum. M.a.
er um að ræða byggðarlög sem lent
hafa í vanda vegna samdráttar í
sjávarútvegi og eru háð veiðum eða
vinnslu á botnfiski. Einnig byggðar-
lögum sem hafa orðið fyrir óvæntri
skerðingu á heildaraflaheimildum
fiskiskipa sem gerð hafa verið út og
landað hafa afla í viðkomandi
byggðarlögum.
Skipum fækkar milli kvótaára
Alls fá 504 skip úthlutað aflamarki að þessu sinni samanborið við 534 á fyrra fiskveiðiári Fiski-
stofa úthlutaði 369.925 tonnum í þorskígildum HB Grandi fékk úthlutað 10,3% af heildarkvótanum
Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson
Guðmundur i Nesi RE 13 Fékk úthlutað hæstu aflamarki. Togarinn er 2.464 brúttótonn, smíðaður í Noregi 2000.
Aflamark/þorskígildi
» Aflamark er notað yfir árleg-
ar aflaheimildir sem hverju
skipi er úthlutað í hverri teg-
und.
» Þorskígildi eða þorskígildis-
tonn eru orð sem notuð eru til
að bera saman afla af mismun-
andi tegundum sjávarfangs.
» Þorskígildistonn er það afla-
magn eða veiðikvóti af tiltek-
inni tegund sem telst jafn-
verðmætt og eitt tonn af
þorski.
» Leyfilegur heildarafli er
ákveðinn af ráðherra eftir til-
lögum Hafrannsóknastofn-
unar.
Hér er listi yfir skip sem hafa feng-
ið úthlutað 3.000 þorskígildis-
tonnum eða meira. Skuttogarar eru
í 43 efstu sætunum yfir þau skip
sem fengu aflamark. „Athygli vek-
ur að togurum fækkar enn, þetta
árið um tvo en þeim hefur fækkað
um 12 frá upphafi fiskveiðiársins
2013/2014 og eru þeir nú 43 í ís-
lenska flotanum,“ segir Fiskistofa.
Hæsta úthlutun
NAFN SKIPS HEIMAHÖFN AFLAMARK
Guðmundur í Nesi RE Reykjavík 8.324.297
Kaldbakur EA Akureyri 8.086.046
Gullberg VE Vestmannaeyjar 7.493.792
Júlíus Geirmundsson ÍS Ísafjörður 7.121.951
Málmey SK Sauðárkrókur 6.847.904
Vigri RE Reykjavík 6.813.571
Björgvin EA Dalvík 6.693.818
Ottó N Þorláksson RE Reykjavík 6.569.100
Höfrungur III AK Akranes 6.476.761
Helga María AK Akranes 5.489.555
Arnar HU Skagaströnd 5.483.196
Sturlaugur H Böðvarsson AK Akranes 5.479.371
Gnúpur GK Grindavík 5.455.395
Hrafn Sveinbjarnarson GK Grindavík 5.373.226
Kleifaberg RE Reykjavík 5.232.600
Örfirisey RE Reykjavík 4.989.332
Mánaberg ÓF Ólafsfjörður 4.956.969
Ásbjörn RE Reykjavík 4.926.812
Klakkur SK Sauðárkrókur 4.899.637
Björgúlfur EA Dalvík 4.779.889
Barði NK Neskaupstaður 4.751.413
Ljósafell SU Fáskrúðsfjörður 4.448.977
Páll Pálsson ÍS Hnífsdalur 4.399.558
Sigurbjörg ÓF Ólafsfjörður 4.383.320
Sirrý ÍS Bolungarvík 4.345.366
Snæfell EA Akureyri 4.307.607
Oddeyrin EA Akureyri 4.281.712
Þórunn Sveinsdóttir VE Vestmannaeyjar 3.934.727
Sóley Sigurjóns GK Garður 3.918.131
Múlaberg SI Siglufjörður 3.111.701
Bjartur NK Neskaupstaður 3.060.347
Heimild: Fiskistofa
Togarar í efstu sætunum