Morgunblaðið - 03.09.2016, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 03.09.2016, Blaðsíða 25
FRÉTTIR 25Erlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 2016 Fyrsti fellibylurinn sem gengið hef- ur yfir Flórída í áratug olli miklu eignatjóni á norðurströnd ríkisins í gær og að minnsta kosti einn maður lét lífið í óveðrinu. Heimilislaus mað- ur beið bana þegar tré féll á hann, að sögn Ricks Scotts, ríkisstjóra Flór- ída. Miklar skemmdir urðu víða vegna flóða og öldugangs, sem fylgdi felli- bylnum, meðal annars í bænum Ced- ar Key, þar sem ölduhæðin mældist um 2,9 metrar, að sögn fréttaveit- unnar AFP. Vindhraðinn var um 36 metrar á sekúndu. Að minnsta kosti 70.000 heimili í Tallahassee, höfuð- stað ríkisins, voru rafmagnslaus um tíma vegna óveðursins. Íbúarnir voru hvattir til að forða sér frá ströndinni vegna flóðanna. Bylurinn, sem fékk nafnið Herm- ine, var seinna skilgreindur sem hitabeltisstormur þegar hann gekk yfir grannríkið Georgíu. Stormar eru algengir á Flórída en þetta var fyrsti fellibylurinn í ríkinu frá október 2005 þegar fimm manns fórust. AFP Allt á floti Íbúi Tampa í Flórída kannar skemmdir á húsi sínu vegna fellibyls og flóðs sem fylgdi honum. Fellibylur olli tjóni á strönd Flórída Skýrt frá því í gær að Islam Karimov, leið- togi Úsbekistans, fyrrverandi lýð- veldis Sovétríkj- anna, væri lát- inn. Lát hans var staðfest í tilkynn- ingu sem var les- in í ríkissjónvarpi landsins síðdegis í gær. Í yfirlýsingu frá ríkisstjórn Úsbekistans um morguninn var sagt að Karimov væri þungt hald- inn og að heilsu hans hefði hrakað eftir að hann hefði fengið heilablóð- fall. Karimov stjórnaði Úsbekistan harðri hendi í 27 ár og komst til valda áður en landið hlaut sjálf- stæði frá Sovétríkjunum árið 1991. Mannréttindasamtök hafa gagn- rýnt stjórn hans harðlega fyrir að berja niður alla andstöðu. ÚSBEKISTAN Karimov látinn eftir 27 ár á valdastóli Móðir Teresa verður tekin í dýrlingatölu við athöfn í Páfa- garði á morgun. Búist er við að um 100.000 manns safnist saman í Róm til að fylgjast með athöfninni. Nítján ár eru liðin frá andláti alb- önsku nunnunnar sem helgaði líf sitt umönnun fátækra í Kolkata í Indlandi. Hún hlaut friðarverðlaun Nóbels árið 1979 fyrir starf sitt í þágu fátækra. Hún var 87 ára þeg- ar hún lést árið 1997. PÁFAGARÐUR Móðir Teresa tekin í tölu dýrlinga Suðurkóreska fyrirtækið Sam- sung hefur ákveðið að taka snjallsímann Galaxy Note 7 af markaði vegna þess að kviknað hefur í símum vegna gallaðrar rafhlöðu. Síminn var settur á markað fyrir tæpum mánuði. Samsung ætlar að bjóða þeim sem þegar hafa keypt símann að fá nýtt tæki. Forstjóri fyrirtækisins, Koh Dong-Jin, ræddi málið við frétta- menn í gær og sagði að í nokkrum tilvikum hefði rafhlaða símans sprungið vegna galla í henni. Alls hefur um milljón Galaxy Note 7 snjallsíma selst frá því að hann kom á markað. SUÐUR-KÓREA Galaxy Note 7 tek- inn af markaði Snjallsíminn auglýstur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.