Morgunblaðið - 03.09.2016, Page 27

Morgunblaðið - 03.09.2016, Page 27
27 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 2016 Einmana tré Náttúran á það til að draga upp fyrir okkur mannfólkið hin fegurstu málverk og ekki klikkar hún á myndbyggingunni og litavalinu, eins og sjá má af þessari mynd frá Kjalarnesinu. Eggert Það var miklu erfið- ara að eiga við rollu- kallana hér í Reykja- vík og koma þeim burt úr borginni á sínum tíma en við baráttu- mennina sem nú eru að berjast fyrir því að halda flugvellinum í Vatnsmýrinni. Á þessa leið hljóðuðu ummæli Dags B. Eggertssonar borgarstjóra á dögunum en hann var leiðsögumaður fyrrverandi al- þingismanna um Reykjavík. Þessi ummæli staðfesta að hann ber enga virðingu fyrir þeirri miklu starfsemi sem fram fer á og í kringum flug- völlinn, burt skal hann þó að það setji mannslíf í hættu og skaði einn öflugasta atvinnuveg okkar, flugið. Þegar í ráðhúsið kom tók Sóley Tómasdóttir borgarfulltrúi við og sagði gamla þingmannaliðinu að flugvöllurinn yrði að fara úr Vatns- mýrinni, það yrði að þétta byggðina svo Reykvíkingar gætu lagt einka- bílunum og farið að ganga og hjóla til bjargar ósonlaginu. Dagur er á bandi Valsmanna og peningavalds- ins sem vill græða og grafa í Vatnsmýrinni, Sóley blessuð er þó að hugsa um að bjarga mannkyninu og heim- inum. En í hvaða veröld búa þeir sem ráða Reykjavík í dag? Og fyrir hvaða hags- munum berjast þeir eða hverjir eru það sem þurfa að yfirtaka landið í Vatnsmýrinni? Það eru ekki eingöngu Valsmenn þótt yfirgangur þeirra sé mikill, ég býst við að bygginga- verktakar sjái glóandi gull í risa- blokkum og grósserahöllum sem rísa eiga á flugbrautunum. Hvassahraun er villuljós Dags borgarstjóra Sú var tíðin að til stóð að flytja flugvöllinn upp á Hólmsheiði eða út á Löngusker, já, malbika flóann. Hvort tveggja er út úr myndinni að mati Rögnunefndarinnar en í henni sat Dagur B. Eggertsson borgar- stjóri, að vísu vanhæfur að mati margra. Og Dagur, maðurinn með brotaviljann gagnvart flugvellinum. leiddi niðurstöðu nefndarinnar í Hvassahraun. Og hlægir það mig að hann biður um þjóðarsátt um þann stað. Hann hefur hinsvegar að engu undirskriftir og skoðanakannanir sem staðfesta að það er þjóðarsátt og samhugur um Reykjavíkur- flugvöll í Vatnsmýrinni. Eðlilegt framhald niðurstöðu Rögnunefnd- arinnar hefði verið að setja fókusinn á Vatnsmýrina þegar Hólmsheiði og Löngusker voru afskrifuð því Hvassahraun verður aldrei öryggis- flugvöllur eða miðstöð innanlands- flugsins að mati færustu manna. Dagur vissi að með umræðu um Hvassahraun, sem er villuljós, var hann að vinna tíma fyrir öflin sem ætla flugvöllinn á burt og Vatns- mýrina alla í byggingabrask. Og því miður hefur fjármálaráðherra tekið ákvörðun og gengið til samninga og sölu á „lífbrautinni“, neyðarbraut- inni, og orkar það tvímælis hvað heimildir varðar. Og ekki síður vegna þeirrar miklu andstöðu sem lokun brautarinnar hefur í för með sér. Margir ábyrgir aðilar hrópa á hjálp enda mikil aukning í sjúkra- fluginu og með lokuninni eykst hættan á alvarlegum slysum. En ætlunarverkið er eitt, Reykjavík- urflugvelli skal lokað innan sex ára, eða árið 2022. Alþingismenn koma flugvellinum til varnar Ég undrast hinsvegar aðgerðar- leysi Sambands íslenskra sveitarfé- laga því byggðalögin og fólkið á landsbyggðinni á svo mikið undir innanlandsfluginu til höfuðborgar- innar, bæði út af Landspítalanum, vinnu og erindrekstri á báða bóga til og frá höfuðborginni. Það er eins og menn hafi ekki áttað sig á stóra samhenginu, að flugvöllurinn er að fara verði ekki gripið til varna og yfirgangi borgarstjórans og meiri- hlutans í borgarstjórninni mótmælt. Jafnframt er furðulegt að Samtök ferðaþjónustunnar skuli hvorki hreyfa legg né lið þar sem flugið verður dýrara til og frá Íslandi og allt það rask sem lokun Reykja- víkurflugvallar mun hafa í för með sér. Hvar eru stóru hagsmunaaðil- arnir þegar verið er að veita flug- velli þjóðarinnar náðarhöggið? Flugvelli, sem tryggir og stendur undir innanlandsfluginu og bjargar árlega tugum mannslífa með stað- setningu sinni og neyðarbrautinni. Með brotthvarfi Reykjavíkur- flugvallar verður innanlandsflugið ekki svipur hjá sjón. Vöruflutning- arnir voru færðir af hafinu fyrir ald- arfjórðungi með miklu álagi á veg- ina, nú á að færa umferðina úr lofti á þjóðvegina. Alþingismenn geta þá einnig sparað sér að vera að berjast fyrir flugvöllum í sinni heimabyggð því Reykjavíkurflugvöllur er móðurskip þeirra allra. Þökk sé þeim stóra hópi alþingismanna sem nú hefur lagt fram þingsályktun um að fram fari þjóðaratkvæðagreiðsla um framtíð Reykjavíkurflugvallar. Og nú hefur samgönguráðherra, Ólöf Nordal, loksins stigið fram og er líkleg til að þjarma að borgar- stjóranum og hún áttar sig á að flugvöllurinn allur er á dauðalist- anum. Eftir Guðna Ágústsson » Þessi ummæli stað-festa að hann ber enga virðingu fyrir þeirri miklu starfsemi sem fram fer á og í kringum flugvöllinn, burt skal hann … Guðni Ágústsson Höfundur er fv. alþingismaður og ráðherra. Flugvelli skal breytt í grósserahallir og risablokkir Í Staksteinum á fimmtudag er staðhæft að virðing Alþingis sé lítil, enda hafi margt ýtt undir þá útkomu. Þetta hlýtur að vera okkur gömlum þing- mönnum og forsetum Alþingis umhugsunar- efni. Hrunið var með réttu eða röngu mikill áfellisdómur yfir þeirri efnahagsstefnu sem fylgt hafði verið eftir að Ísland varð hluti af Evr- ópska efnahagssvæðinu. Geir H. Haarde var gerður að persónugerv- ingi þess tíma með því að stefna honum einum fyrir Landsdóm. Hann var að sjálfsögðu sýknaður enda atburðarásin öll sneypuför fyr- ir þá þingmenn sem að aðförinni stóðu, þar á meðal Eygló Harðar- dóttur velferðarráðherra. Nýkjörinn formaður Fram- sóknarflokksins, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, var guðfaðir minni- hlutastjórnar Jóhönnu Sigurðar- dóttur, sem settist að völdum 1. febrúar 2009, og varði hana van- trausti. Fyrsta verk hennar var að ráða erlendan mann seðlabankastjóra í stað þeirra sem fyrir voru. Eftir kosningarnar um vorið fengu Samfylk- ing og Vinstri græn meirihluta á Alþingi og mynduðu ríkisstjórn undir forsæti Jóhönnu en maddama Fram- sókn var skilin eftir með sárt ennið utan dyra. Þessi ríkisstjórn aflaði sér heimildar í fjárlögum til sölu lands á Skildinganesi við suðurenda neyð- arbrautarinnar. Frá sölunni var gengið 1. mars 2013. Undir kaup- samninginn skrifuðu Dagur B. Egg- ertsson f.h. Jóns Gnarr borgar- stjóra og Katrín Júlíusdóttir fjármálaráðherra. Jón Steinar Gunnlaugsson, fyrr- verandi dómari í Hæstarétti, heldur því fram í Morgunblaðinu sl. þriðju- dag að heimildir hafi skort fyrir söl- unni þar sem heimild í fjárlögum sé ekki fullnægjandi heldur þurfi hún að vera í almennum lögum. Vitnar hann til stjórnarskrárinnar í þeim efnum með óljósum orðum, segir „fjármálaráðherra lét embættis- menn í ráðuneytinu semja minn- isblað“ og „vel má vera að þess megi finna dæmi í fortíðinni að ríkið hafi farið á svig við 40. gr. stjórnar- skrár hvað þetta varðar“. Á sinum tíma var Baldur Möller einn af þessum „embættismönnum í ráðuneytinu“ sem sömdu minnis- blað fyrir ráðherra. Mikið var lagt upp úr hans áliti. Bjarni Benediktsson var einn af aðalhöfundum stjórnarskrárinnar 1944 og mjög virtur fræðimaður ekki síður en stjórnmálamaður. Á 5. áratugnum eru heimildir um sölu á fasteignum í almennum lögum en einnig eru dæmi um að það sé gert í fjárlögum. Og ávallt síðan má finna slík dæmi. Á viðreisnarárunum í fjármálaráðherratíð Gunnars Thor- oddsen og eftir 1970 í forsætisráð- herratíð Ólafs Jóhannessonar. Ég kann ekki að nefna þrjá menn, sem vissu meir né stóðu framar þeim um túlkun á stjórnarskránni. Þeir voru gjörkunnugir allri lagaframkvæmd og störfum Alþingis. Til upplýsingar þykir mér rétt að bæta við að eftir 1980 verður það smám saman að reglu að heimildir til sölu ríkiseigna séu í fjárlögum. Í fjárlögum fyrir árið 1996, þegar ég átti sæti í ríkisstjórn Davíðs Odds- sonar, voru í heimildargrein 77 tölu- liðir um ráðstöfun eigna. Fjárlög yfirstandandi árs eru síð- ustu fjárlög Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar sem forsætisráð- herra. Þar er í heimildargrein „sala húsnæðis“ í 16 liðum, „sala á eignar- hluta í húsnæði“ í 15 liðum og „sala lóða og jarða“ í 18 liðum. Fjárlögin voru lögð fyrir ríkisstjórn og sam- þykkt þar. Varla hefur forsætisráð- herra setið með krosslagða fingur og hugsað „allt í plati“ eins og lítil börn í sandkassaleik. Þetta rifja ég upp, þar sem Sig- mundur Davíð hélt því fram í Morgunblaðinu á fimmtudag að sala landsins á Skildinganesi hefði verið ólögmæt þar sem heimildin væri einungis í fjárlögum. Þá vakti það athygli mína í grein Sigmundar Davíðs að þar staðhæfir hann að Hringbrautin hafi verið færð til að þrengja að flugvellinum sem liður í því að leggja hann niður. Þetta eru staðleysustafir. Færsla Hringbrautarinnar þótti nauðsynleg til að greiða fyrir umferð með mis- lægum gatnamótum á mótum Miklubrautar, Snorrabrautar og Hafnarfjarðarvegar. En jafnframt var hún óhjákvæmileg ef nýr land- spítali átti að rísa við hlið gamla Landspítalans. Ég heyrði fyrst um þær hugmyndir á Varðarfundi í Sjálfstæðishúsinu gamla. Jóhann Hafstein var heilbrigðisráðherra og Jónas H. Haralz formaður bygging- arnefndar Landspítalans. Um þenn- an fund má lesa í Morgunblaðinu þar sem ég sagði frá honum og birti útdrátt úr því sem sagt var. Það er erfitt að koma umræðum á hærra plan þegar fyrrverandi for- sætisráðherra og fyrrverandi hæstaréttardómari gæta ekki virð- ingar sinnar í málflutningi sínum. Sem fyrrverandi forseti Alþingis er mér stórlega misboðið þegar því- líkir menn halda því að fólki að vilji Alþingis og lagahefð skipti ekki máli. Eftir Halldór Blöndal » Það er erfitt að koma umræðum á hærra plan þegar fv. forsætis- ráðherra og fv. hæsta- réttardómari gæta ekki virðingar sinnar í mál- flutningi sínum. Halldór Blöndal Höfundur er fyrrverandi forseti Alþingis. Nokkur orð til Jóns Steinars Gunnlaugssonar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.