Morgunblaðið - 03.09.2016, Side 29
UMRÆÐAN 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 2016
Íslensku liðin unnu stórsigur,4:0, í fyrstu umferð Ólympíu-skákmótsins sem hófst í gær íhöfuðborg Aserbaídsjan,
Bakú. Í opna flokknum þurftu menn
að hafa svolítið fyrir hlutunum gegn
Eþíópíu en andstæðingur Hjörvars
Steins Grétarssonar átti vænlega
stöðu lengi vel en missti tökin í
kringum 40. leikinn. Jóhann Hjart-
arson hvíldi en Hannes Hlífar Stef-
ánsson, Hjörvar Steinn, Guðmundur
Kjartansson og Bragi Þorfinnsson
skiluðu vinningum í land.
Í kvennaflokki unnu íslensku
stúlkurnar lið Maldíveyja einnig 4:0.
Lenka Ptacnikova, Hallgerður
Helga Þorsteinsdóttir, Hrund
Hauksdóttir og Veronika Steinunn
Magnúsdóttir unnu en Guðlaug Þor-
steinsdóttir hvíldi. Mikill elo-stiga-
munur er á íslensku liðunum og mót-
herjunum og því varla hægt að líta á
viðureignirnar nema sem góða upp-
hitun.
Allar umferðir mótsins hefjast kl.
11 að íslenskum tíma að lokaumferð-
inni undanskilinni. Hægt er fylgjast
með öllum viðureignum á hinum
ýmsu vefsvæðum, t.d. Chess24,
Chessbomb, ICC og svo er sent út
frá heimasíðu skipuleggjenda. Tefld-
ar verða ellefu umferðir í báðum
flokkum og eru gefin 2 stig fyrir sig-
ur og eitt fyrir jafntefli. Alls eru 180
lið skráð til keppni í opna flokknum
og í kvennaflokknum eru þátttöku-
þjóðirnar 140 talsins.
Úrslit í gær voru undantekningar-
laust eftir bókinni. Í opna flokknum
unnu átta stigahæstu liðin 4:0 og í
kvennaflokknum unnu 14 sterkustu
liðin með sömu tölum og íslensku lið-
in. Armenar sem hafa þrisvar unnið
ólympíugull taka ekki þátt en þeir
hafa átt í harðvítugum deilum við
Asera um héraðið Nagorno Karab-
ak.
40 ár frá sigri Bandaríkja-
manna í Haifa
Fyrir greinarhöfnd sem horfir
yfir sviðið eftir að hafa tekið þátt í
næstum því hverju einasta Ólympíu-
móti yfir 40 ára tímabil er tæknibylt-
ing skákarinnar stærsta breytingin.
Gönguferðir um söguslóðir Biblí-
unnar gera fyrsta Ólympíumót mitt í
Haifa í Ísrael árið 1976 eitt það
minnisstæðasta. Það fór samt fram
við aðstæður sem hafa komið fyrir í
sögu keppninnar; nokkrar aðildar-
þjóðir FIDE virtust hafa gleymt
merkingu einkennisorða FIDE,
Gens una sumus. Sovétmenn og önn-
ur ríki Varsjárbandalagsins sátu
heima.
Keppnin um gullið stóð á milli
Bandaríkjamanna og Hollendinga.
Þeir fyrrnefndu höfðu sigur eftir
harða keppni en í sveitinni voru
gamlir og góðir Bandaríkjamenn,
Robert Byrne, William Lombardy
og Larry Evans.
Og nú 40 árum síðar gætu Banda-
ríkjamenn unnið aftur. Þeir eru með
þrjá ása uppi í erminni: Caruana,
Nakamura og So. Forseti Rúss-
neska skáksambandsins, Andrei
Filatov, staðhæfir að Garrí Kaspar-
ov sé þjálfari Bandaríkjamanna en
ætti samt að geta andað rólega;
Rússar eru með sterkasta liðið á
pappírnum. Vladimir Kramnik teflir
á 1. borði og áskorandinn Sergei
Karjakin á 2. borði. Ekki má heldur
gleyma Kínverjum sem eru núver-
andi ólympíumeistarar.
Magnús Carlsen er mættur
Búast hefði mátt við því að heims-
meistarinn Magnús Carlsen myndi
safna kröftum fyrir HM-einvígið í
New York í nóvember. En hann er
mættur til leiks en hvíldi í gær.
Magnús hefur átt misjöfnu gengi að
fagna í sveitakeppnum, tapaði tveim
skákum á EM í fyrra og einnig
tveimur á ÓL í Tromsö 2014. Á 2.
borði norsku sveitarinnar er félagi
hans og aðstoðarmaður, Jon Ludwig
Hammer.
Íslensku liðin hófu Ólympíu-
mótið með stórsigri
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
AFP
Heimsmeistari Magnús Carlsen er mættur til Bakú en hvíldi í gær.
Heilbrigðismálin
verða í forgangi hjá
Sjálfstæðisflokknum á
næsta kjörtímabili
eins og formaður
flokksins hefur boðað.
Ég fagna þeirri sýn
og er þeirrar skoð-
unar að enda þótt
vægi heilbrigðismála
hafi aukist verulega
undir forystu núver-
andi ríkisstjórnar þurfi að gera
enn betur á næstu árum. Þar er
að mörgu að hyggja.
Uppbygging við Hringbraut
Við þurfum að efla enn frekar
heilsugæsluna og styrkja okkar
aðalsjúkrahús Landspítalann við
Hringbraut. Fyrir liggur áætlun
um meiriháttar endurbætur og
endurbyggingu spítalans, auk
kaupa á nýjum tækjum. Hafin er
bygging sjúkrahótels á lóð spít-
alans við Hringbraut og miklu
skiptir að hefjast sem fyrst handa
við byggingu nýrrar bráðadeildar.
Mín skoðun er sú að einnig sé
tímabært að skoða og ræða bygg-
ingu annars fullkomins hátækni-
spítala, sem við Íslendingar þurf-
um að geta tekið í
notkun eftir 20-30 ár.
En það er verkefni
númer tvö, á eftir því
að klára marg-
samþykkta uppbygg-
ingu við Hringbraut.
Eldri borgurum
þessa lands fer hratt
fjölgandi á næstu ár-
um og við þurfum að
geta hlúð að þeim,
hvort heldur er með
heimahjúkrun eða á
hjúkrunarheimilum.
Börn og unglingar eiga því miður í
vaxandi mæli við ýmis kvíðavanda-
mál að stríða og þeim vanda verð-
um við að mæta og tryggja að
þeim líði vel og þau blómstri. Þau
eru jú framtíðin. Langveikum
börnum fjölgar hér á landi. Þau
eru oft að kljást við sjaldgæfa og
mjög erfiða sjúkdóma og eiga að
fá bestu þjónustu sem völ er á.
Staðfesta í ríkis-
fjármálum lykilatriði
Þetta eru dæmi úr fjölbreyttri
flóru viðfangsefna heilbrigðisþjón-
ustu sem þarf að taka myndarlega
á. Sjálfstæðisflokkurinn lofar auk-
inni áherslu á bætta samfélags-
þjónustu, minni greiðsluþátttöku
sjúklinga, eflingu Landspítalans
og bætta heilbrigðisþjónustu með
stórauknum fjárframlögum á
næsta kjörtímabili. Þetta getum
við ekki síst vegna þess að ríkis-
sjóður stendur vel eftir ríkisstjórn
okkar. Staðfesta í ríkisfjármálum
er og verður kjölfestan í okkar
stefnu. Ríkissjóður hefur verið
rekinn með afgangi og áhersla
lögð á að greiða niður skuldir og
lækka vaxtabyrðina. Lækkun
vaxtagreiðslna er fundið fé og við
munum einmitt uppskera af þess-
um verkum á næstu árum. Mitt
aðalkeppikefli er að Íslandi geti í
náinni framtíð státað af heilbrigð-
isþjónustu í fremstu röð. Annað er
ekki í boði.
Heilbrigðisþjónusta
í fremstu röð
Eftir Elínu
Hirst »Eldri borgurum fer
hratt fjölgandi á
næstu árum og við þurf-
um að geta hlúð að
þeim, hvort heldur er
með heimahjúkrun eða
á hjúkrunarheimilum.
Elín Hirst
Höfundur er alþingismaður og býður
sig fram í 2.-3. sæti í prófkjöri Sjálf-
stæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi.
www.fi.is
FERÐAFÉLAG ÍSLANDS
Mörkinni 6 | 108 Reykjavík | S: 568 2533 | www.fi.is
Skráðu þig inn – drífðu þig út
Reykjavík – Þingvellir – Geysir - Haukadalur
Skálholt – Hraungerði – Kaldaðarnes
Í fótspor Konrads Maurer
um Suðurland
11. september með Ferðafélagi Íslands
Leiðsögumaður: Bjarni Harðarson
Fararstjórar: Jóhann J. Ólafsson og Sigurjón Pétursson
Skráning á skrifstofu FÍ.
Ljósmynd: Þóra Hrönn Njálsdóttir
Lækjargata 2, 2 hæð. Sími 5461100 invesis@invesis.is
Við vinnum að sölu á
eftirtöldum fyrirtækjum:
• Áhugaverð sérverslun í Kringlunni.
• Boostbar, ís, borgarar, góð verslun í
úthverfi, veltir um 100 milljónum,
góð kaup.
• Fyrirtæki í viðburðarvörum, leigu á tjöldum
og öðrum búnaði til fyrirtækja og stofnana.
• Veitingastaður í 101, velta um
400 milljónir, mjög góð afkoma.
• Innflutningsfyrirtæki í byggingarvörum.
• Heildverslun með sælgæti oþh.
Dreifing til verslana.
• Heildverslun með vín, kaffi og orkudrykki.
• Hádegisverðarþjónusta í Reykjavík.
• Stórt verslunarfyrirtæki í Reykjavík.
• Sérhæfð bílaleiga með mjög góða afkomu.
•Mjög áhugavert kaffihús í 101 Reykjavik.
Við erum með kaupendur og fjárfesta að ýmsum gerðum
fyrirtækja, við hvetjum fyrirtækjaeigendur sem eru í
söluhugleiðingum til að hafa samband.
Móttaka aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar grein-
ar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota
innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam-
skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki
greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla.
Að senda grein
Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu
mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn
grein“ er valinn.
Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn í
kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að
viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu
notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólar-
hringinn.
Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma
569-1100 frá kl. 8-18.