Morgunblaðið - 03.09.2016, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 03.09.2016, Qupperneq 35
MINNINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 2016 ✝ Guðrún Sigríð-ur Valgeirs- dóttir fæddist á Gemlufalli í Dýra- firði 11. ágúst 1934. Hún lést á Fjórð- ungssjúkrahúsi Ísa- fjarðar 23. ágúst 2016. Foreldrar hennar voru Ingibjörg Mar- grét Guðmunds- dóttir, hún ólst upp að Mýrum í Dýrafirði, f. 15. sept- ember 1901, d. 8. mars 1993, og Valgeir Jónsson frá Höfðaströnd í Grunnavíkurhreppi, f. 3. apríl 1899, d. 5. júlí 1981. Þau hófu bú- skap að Gemlufalli í Dýrafirði. Ingibjörg og Valgeir eignuðust alls níu börn og var Guðrún sú sjötta í röðinni. Hin eru: Guð- björg Sigrún, f. 28. mars 1926, d. 27. október 2011, Jón Kristinn, f. 25. október 1927, d. 7. maí 1999, Ingibjörg Elín, f. 21. febrúar 1929, Anna Jónína, f. 4. apríl 1931, d. 21. febrúar 2012, Arnór, f. 9. ágúst 1932, Elísabet, f. 6. júlí 1936, Friðrik Halldór, f. 11. febr- úar 1940, d. 4. júlí 2006, og Guð- rik, f. 5.3. 1965, maki: Júlía Mar- grét Jónsdóttir, 5.2. 1969. 7) Kol- brún, f. 11.11. 1966, maki: Erlendur Geirdal, f. 24.10. 1963. 8) Guðrún Sigríður, f. 26.3. 1971. Alls eru afkomendurnir orðnir 51 talsins. Tæpra tveggja ára fór Guðrún í fóstur til Hagalíns Guðmunds- sonar og Magneu Jónsdóttur að Lækjarósi í Dýrafirði og fluttist síðan með þeim að Hrauni á Ingj- aldssandi þar sem hún ólst upp ásamt sex fóstursystkinum. Þau eru: Ólafía, Guðmundur, Mar- grét, Valdís, María og Viggó. Átján ára réðst hún sem kaupa- kona eitt sumar að bæ í Borgar- firði og flutti svo um haustið til Ísafjarðar þar sem hún hóf störf á sjúkrahúsinu. Á Ísafirði kynnt- ist hún Matthíasi og þar hófu þau búskap og bjuggu síðan alla sína tíð á Ísafirði. Guðrún var heima- vinnandi að mestu á meðan börn- in voru lítil en þegar það elsta var 14 ára fór hún að vinna í rækju- verksmiðjunni O.N. Olsen. Síðar starfaði hún í öðrum rækjuverk- smiðjum og samtals vann hún 34 ár í rækjunni. Jafnframt því og inni á milli vann hún við ræst- ingar og stundum sem nætur- vörður á hótelinu. Guðrún verður jarðsungin frá Ísafjarðarkirkju í dag, 3. sept- ember 2016, og hefst athöfnin kl. 14. mundur, f. 6. ágúst 1942. Guðrún giftist 24. desember 1955 Matthíasi Vilhjálms- syni, f. 9. desember 1933, d. 18. maí 1999. Foreldrar hans voru hjónin Sesselja Svein- björnsdóttir f. á Botni í Súgandafirði 11. febrúar 1893, d. 10. desember 1950, og Vilhjálmur Jónsson, f. á Höfða í Grunnavík- urhreppi 25. maí 1888, d. 24. nóv- ember 1972. Börn Guðrúnar og Matthíasar eru: 1) Sesselja Magnea, f. 16.8. 1955, maki: Kristján Hilmarsson, f. 28.3. 1956. 2) Ómar Hafsteinn, f. 16.8. 1956, maki: Guðný Guð- mundsdóttir, f. 27.9. 1954. 3) Ingi- björg Margrét, f. 15.8. 1957, maki: Jökull Jósefsson, f. 2.8. 1952. 4) Auður Kristín, f. 18.10. 1959, maki: Aðalsteinn Ómar Ás- geirsson, f. 3.11. 1958. 5) Vil- hjálmur Valgeir, f. 11.1. 1963, maki: Ásdís Birna Pálsdóttir, f. 16.8. 1969. 6) Guðmundur Frið- Við skulum bera harm í hljóði henni biðja góðra stunda, minnast þess í mildu ljóði konu sem hvarf til æðri funda. Á saknaðarstundu er sárt að kveðjast safnast að huganum liðin kynni, því er einnig svo gott að gleðjast af gjöfum hennar á vegferðinni. Og þó að svíði í sálarundur sorg sem tíma hugann þreyti, þá munu trega- og tárastundir tímannn lækna að ýmsu leyti. (Sigríður Meyvantsdóttir.) Elsku mamma. Ég kveð þig með tárum. Þú hefur alltaf verið klettur í mínu lífi. Það leið ekki sá dagur að þú vildir allt um alla vita. Börn, tengdabörn, barnabörn og barna- barnabarn. Ef einhver var að ferðast, hvort sem það var á landi, í lofti eða á sjó þá fylgdist þú með öllu. Þar kom sér vel að hafa texta- varpið. Þú varst dugleg, glöð, gjafmild og kjarnakona. Þú vildir allt fyrir alla gera. Þú hefur alltaf verið til staðar fyrir mig. Þegar barnabörnin komu í heiminn þá fylgdist þú með þeim. Þegar þau komu í heimsókn, þá ríkti alltaf gleði. Síðustu mánuðir hafa verið erf- iðir, bæði fyrir okkur og ekki síst fyrir þig, elsku mamma. En þú barst harm þinn í hljóði, barst höf- uðið hátt. Það eru margar minn- ingar sem fara í gegnum hugann á svona stundu. Hinn 11. ágúst sl. er þú varðst 82 ára komum við systkinin sem hér voru og þau sem komu að, til að halda upp á afmælið þitt uppi á sjúkrahúsi með tertu og kaffi. Dag- arnir á undan voru spennandi þar sem þú vissir að barnabarn var að koma í heiminn og var það einlæg ósk að barnið kæmi á þessum merkisdegi. En allt kom fyrir ekki. Stúlkan vildi sinn eigin afmælisdag og kom hinn 12. ágúst falleg og spræk. Þér þótti vænt um að fá hana í fangið einni klst. eftir fæð- ingu. Mikið var fallegt að sjá ykkur saman þennan dag. Hinn 21. ágúst var ákveðið að skíra stúlkuna, og var óskað eftir að þú héldir á barninu undir skírn. Það var auðsótt mál. Alla dagana fram að skírn varst þú með puttana í öllum undirbúningi eins og þér einni var lagið. Já, það er ekki of- sögum sagt að þú hafir verið dugn- aðarforkur og gleðigjafi allt þitt líf. Þegar nær dró skírn vissir þú í hvað stefndi án þess að segja eitt eða neitt. Einn daginn þegar ég var hjá þér baðstu mig um að hringja í Guðmund Hagalínsson, fóstur- bróður þinn (þú sagðir alltaf að hann væri besti bróðir þinn) og baðst hann um að koma strax, þú þyrftir að tala við hann. Ekki vissi ég hvert erindið þitt var við hann, en tárin læddust fram þegar þú baðst hann um að halda á barninu undir skírn, þar sem þú vissir í hvað stefndi og máttur þinn þverr- andi. Mér varð á orði að þú kæmir mér sífellt á óvart. Þessi bón var efnd og falleg var athöfnin. Já, mamma, þú varst engri lík. Hinn 23. ágúst var sorgardagur er þú kvaddir þennan heim. En ég veit að pabbi hefur tekið vel á móti þér því samrýndari hjón var vart að finna. Ég er viss um að þú hefur bakað pönnukökur fyrir alla sem voru þér kærir og voru farnir yfir móðuna miklu. Guð geymi þig, elsku mamma. Starfsfólki á Fjórðungssjúkra- húsinu á Ísafirði þakka ég góða umönnun og hlýhug til okkar allra. Þín dóttir, Auður. Nú þegar kjarnakonan Guðrún Valgeirsdóttir, tengdamóðir mín, er fallin frá leita góðar minningar á hugann. Ég kynntist henni fyrir rúmum þrjátíu árum er ég kom inn í fjölskylduna og frá fyrstu tíð reyndist hún mér vel. Minningarn- ar eru um kraftmikla konu og glað- væra svo gustaði af. Því Gunna Valgeirs, eins og hún var jafnan kölluð hafði létta lund og hress- leika sem fékk mann til að taka eft- ir og hlusta því hún hafði jafnan frá mörgu að segja. Hún naut sín þeg- ar hún lýsti skemmtilegum atvik- um úr hversdagslífinu og þó sér- staklega þegar hún rifjaði upp prakkarastrik sín og Gumma bróð- ur síns frá barnsárunum á Hrauni á Ingjaldssandi. Þá hló hún og tísti eins og henni var svo lagið. Þessir eiginleikar hennar, ásamt um- hyggjusemi fyrir samferðamönn- um sínum, sköpuðu henni enda orðspor sem sú hressa og skemmtilega manneskja sem hún var því allir sem kynntust henni bera henni gott vitni. Börnin og barnabörnin nutu eðlilega mestu umhyggjunnar og hún reyndi eftir megni að halda sambandi við þau og fjölskyldur þeirra sem hún fylgdist með eftir megni. Hafði oft áhyggjur ef hún vissi af einhverj- um í vanda og jafnvel bara á ferða- lagi um þjóðvegina. Þá þótti henni betra að fólkið hringdi í hana og léti vita hvernig ferðin gengi allt þar til áfangastað var náð. Þá fyrst varð hún róleg. Það var alltaf svo gott að koma í heimsókn til þeirra Matta heitins á Urðarveginn á Ísafirði því saman stóðu þau hjónin sem traustur klettur í fjölskyldunni. Séð var til þess að gesti skorti aldr- ei neitt í mat og drykk og fiskiboll- urnar hennar Gunnu, sem voru dá- læti allra, voru hafðar í matinn að minnsta kosti einu sinni í hverri heimsókn. Við matargerðina voru handtök hennar snögg og fumlaus og það var eftirminnilegt að sjá hana baka pönnukökur með hraði á tveimur pönnum samtímis. Eftir að Matti lést fyrir aldur fram árið 1999 fluttist hún í Sundstræti þar sem hún bjó síðan. Gunna Valgeirs var sannur Ísfirðingur og sagði þar best að vera. Meira að segja veðrið væri oftast betra þar en annars staðar á landinu og minnti hún gjarnan á það símleiðis suður til okkar ef þannig stóð á að betra veður væri fyrir vestan en á suð- vesturhorninu. Hún sagði líka margoft að aldrei mundi hún geta hugsað sér að búa annars staðar en á Ísafirði. Hún stóð við það þrátt fyrir að hafa litist illa á bæinn milli fjallanna fyrst þegar hún kom þar átján ára gömul. En svo kynntist hún Matta sínum og þau bjuggu sér heimili og komu upp börnunum átta. Það er gott að geta yljað sér við minningar um þá sómakonu sem Guðrún Valgeirsdóttir var. Hennar er sárt saknað og ég votta börnum hennar og aðstandendum öllum mína dýpstu samúð. Blessuð sé minning Guðrúnar Valgeirsdóttur. Erlendur Geirdal. Elsku hjartans Gunna, amma okkar. Ég trúi því varla að þú sért farin frá okkur, enda stórkostleg kona. Nú er stórt skarð eftir í hjörtum okkar en við vitum að nú ertu búin að finna hann Matta þinn, enda voruð þið eitt. Mér finnst ég ótrúlega heppin að hafa kynnst þér þegar ég kom í fjölskylduna þegar við Jói Matti urðum par fyrir 18 árum, þú tókst mér mjög vel og var ég alltaf vel- komin. Gunna Valgeirs, eins og þú varst alltaf kölluð, var hörkudugleg og þú hugsaðir einstaklega vel um þína nánustu. Það fór enginn svangur frá þér og oft voru á borð- um fiskibollur eða upprúllaðar pönnukökur. Gunna fylgdist vel með sínum nánustu og vildi vita um ferðir og uppákomur hjá sínu fólki. Við tvær áttum góðar stundir saman og það verður skrítið að koma vestur og eiga ekki góða stund með kaffibolla og heyra hlát- ur þinn. Gunna Valgeirs var með fallegt hjarta og var gjafmild með ein- dæmum og gat vel verið stolt af sínu. Allir sem búa á Ísafirði, eða hafa búið þar, vita hver hún var enda hörkudugleg, brosmild og mikil kjarnakona. Við eigum góðar minningar sem munu lifa í hjarta okkar og mun ég passa upp á að minning þín lifi hjá börnum okkar Jóa Matta. Jói Matti samdi ljóð þegar Matti þinn dó og mér finnst við hæfi að enda þessa grein með ljóði sem hann samdi til þín. Ó elsku amma svo ástkær og góð, nú horfið á braut hefur þú. Til afa ertu komin svo falleg og rjóð, með söknuði við kveðjum þig nú. (Jósef Matthías.) Guð geymi þig. Margrét Ólína, Jósef Matt- hías, Ísabella Rún og Jökull Gunnar. Það er svo margt, svo ótal- margt, sem rennur í gegnum huga minn þegar ég hugsa til þín, elsku mamma mín, og þarf að kveðja þig. Þú hefur nú fengið hvíldina eftir stutt en erfið veikindi, það var erf- itt að horfa á þig veikjast svona mikið, þú þessi kjarnakona sem gast alltaf allt, baðst aldrei um hjálp, þú bara gerðir þetta allt. Þú ólst okkur átta systkinin upp ásamt því að vera útivinnandi alla daga og tókst svo að þér að þrífa skólann í aukavinnu. Ég minnist með hlýju í hjarta þeirra stunda sem ég átti með þér þegar við þrifum skólann, þá áttum við oft gott spjall og ég átti þig út af fyrir mig, sem var nú ekki auðvelt í svona stórum syst- kinahópi, en þetta voru stundirnar okkar. Ég gleymi því aldrei þegar ég var í einhverri stofunni að þurrka af að ég heyrði svo fallegan píanóleik. Í forvitni minni fór ég að athuga hver spilaði svona fallega á píanó, ég varð svo hissa þegar ég sá að það varst þú, elsku fallega mamma mín, ég sem vissi ekki að þú spilaðir á hljóðfæri. Þarna sast þú og spilaðir eins og engill, ég stóð hjá þér í góða stund með aðdáun- arglampa í augunum yfir því hvað mamma mín var flink. Ég man líka vel eftir því þegar þú fórst með mig að kaupa bindingar á skíðin mín í laun fyrir hjálpina, það var góður dagur. Þegar maður hugsar til baka þá bara skilur maður ekki hvernig þú komst yfir allt það sem þú áork- aðir, ósérhlífin með eindæmum og alltaf boðin og búin að hjálpa til og hugsaðir svo fallega til allra í kring- um þig, þrátt fyrir rosalega stóran barna-, barnabarna- og barna- barnabarnahóp þá gleymdir þú aldrei neinum einasta afmælisdegi. Fram á síðasta dag varst þú að hringja í fólk og kalla til þín til þess að óska þeim innilega til hamingju með afmælisdaginn. Þá var það góð tilfinning fyrir stóran strák sem var löngu farinn að búa sjálfur að finna hvað mamma tók alltaf vel á móti manni, alltaf var maður vel- kominn til hennar, sama hversu lít- ið eða stórt hún bjó, alltaf átti mað- ur stað hjá mömmu. Þá áttum við margar góðar stundir þegar ég kom vestur í vinnuferðir í ófá skipti, þá fór ég alltaf að kaupa fisk, kartöflur, lauk, smjör, mjólk og rúgbrauð, fór með allt til mömmu áður en haldið var til vinnu og hún græjaði fyrir strákinn sinn sínar bestu fiskbollur í hvert skipti. Og svo lét hún það berast að Guð- mundur hennar hefði komið með allt í fiskibollur og nú væri nóg til og allir sem vettlingi gátu valdið mættu í fiskibollur, þetta eru heimsins bestu fiskibollur sem ég er svo heppinn að geta gert áfram fyrir mín börn og leyft þeim að njóta áfram. Elsku yndislega móðir, ég veit að þú ert komin á góðan stað núna í faðm pabba, veit að þú hefur sakn- að hans mjög og nú eruð þið saman á ný. Ég sé ykkur fyrir mér bæði tvö sameinuð á ný með bros á vor að fylgjast með okkur, sæl og ánægð með ykkar ævistarf. Þótt móðir mín sé nú aðeins minningin ein mun ég ávallt minnast hennar með glöðu geði og dýpstu virðingu, hugheilu þakklæti og hjartans hlýju, fyrir allt og allt. Ég kveð þig nú með tárum og trega en hjartað fullt af yndisleg- um og góðum minningum. Ég elska þig alltaf. Þinn, Guðmundur, Júlía og börn. Guðrún S. Valgeirsdóttir Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Með kærleik og virðingu Útfararstofa Kirkjugarðanna Útfarar- og lögfræðiþjónusta Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Við önnumst alla þætti undir- búnings og framkvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin. Við þjónum með virðingu og umhyggju að leiðarljósi og af faglegum metnaði. Guðmundur Baldvinsson Faðir okkar og tengdafaðir, HAUKUR BERGSSON, er látinn. Útför hans verður gerð frá Guðríðarkirkju í Grafarholti miðvikudaginn 7. september klukkan 15. . Eva Hauksdóttir, Viðar Freyr Sveinbjörnsson, Bergur Hauksson, Auður Harðardóttir, Ólafur Steinar Hauksson, Bergþóra Hafsteinsdóttir, Sigurður Hauksson, Kristín Axelsdóttir. Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, GUNNAR PÉTUR PÉTURSSON, Lækjargötu 34e, Hafnarfirði, lést í faðmi fjölskyldu á Landspítalanum þriðjudaginn 23. ágúst. Jarðsungið verður frá Hafnarfjarðarkirkju mánudaginn 5. september klukkan 15. . Sæbjörg Ólafsdóttir, Pétur Ingi Pétursson, Guðrún Björg Gunnarsdóttir, Ásmundur Pétursson, Barbara Sirrý Jónsdóttir, Kristín Edda Gunnarsdóttir, barnabörn. Yndisleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HALLA KRISTINSDÓTTIR, lést á hjúkrunarheimilinu Ísafold í Garðabæ 29. ágúst. Hún verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Reykjavík miðvikudaginn 7. september klukkan 13. . Matthildur Rósenkranz Guðmundsdóttir, Elín Birna Guðmundsdóttir, Trausti Þór Guðmundsson og fjölskyldur. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, EINAR GUÐBJARTSSON, Þorláksgeisla 10, sem lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi laugardaginn 27. ágúst, verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju í Reykjavík þriðjudaginn 6. september klukkan 13. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á líknardeild Land- spítalans í Kópavogi og Heimahlynningu Landspítalans fyrir einstaka alúð og hjúkrun. . Bára Guðmundsdóttir, börn, tengdadóttir, barnabörn og barnabarnabarn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.