Morgunblaðið - 03.09.2016, Page 37

Morgunblaðið - 03.09.2016, Page 37
MINNINGAR 37 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 2016 ars staðar vildi afi vera. Það var því mikilsvert að hann skyldi hafa fengið hvíldina þar og ber að þakka þeim mörgu sem hlúðu að honum síðustu árin til að svo mætti vera. Ég kveð hann elsku afa minn og nafna hinstu kveðju með djúpri virðingu og þökk fyrir samfylgdina síðustu tæpu 40 ár. Blessuð sé minning hans. Árni Sigurjónsson. Okkur systkinin langaði að skrifa nokkur kveðjuorð um Árna Sigurjóns. Ekki verður hans minnst öðru vísi en minnast á Ástu, konu hans, sem alltaf var kölluð Ásta frænka á okkar heimili. Ásta lést 1993. Þau Árni og Ásta bjuggu við Víkurbraut- ina í Vík, í húsinu Háeyri, sem afi okkar byggði fyrsta hlutann af. Árni og Ásta eignuðust sex börn, þau: Þorstein, Sigríði Dóróteu, Sigurjón, Hermann, Elínu (sem er látin) og Odd, en þau ganga jafnan undir samheitinu Háeyr- ingarnir hjá okkur. Foreldrar okkar systkinanna voru miklir vinir Árna og Ástu og hefur ætíð verið mikil vinátta milli okkar fjölskyldu og þeirra. Okkur eru í fersku minni kvöldin sem Árni og Ásta komu í heim- sókn á Kirkjuveginn og rifjuðu upp gamlar sögur, oftar en ekki á gamansömum nótum, við mikla kátínu þeirra sem yngri voru. Við áttum líka margar ánægjustund- ir með þeim við Grænalón og í hjólhýsinu hjá pabba og mömmu. Úr daglegu amstri munum við einna best eftir Árna frá því að hann vann í Pakkhúsinu hjá Kaupfélagi Skaftfellinga. Þar var hann æðsti prestur og við yngri kynslóðin litum mikið upp til hans. Léttleiki hans gerði það að verkum að við fundum okkur oft ástæðu til að fara í heimsókn í Pakkhúsið og fylgjast með hon- um grínast í viðskiptavinum og jafnvel hrekkja einn og einn á saklausan hátt. Síðustu starfsár- in átti hann á Gömlu trésmiðj- unni og hjá Trévík og kynntust sum okkar Árna þar sem skemmtilegum samstarfsmanni. Árni hafði mjög gaman af því að fá okkur í heimsókn. Hann fylgdist með högum okkar, ræddi um landsins gagn og nauðsynjar en alltaf var glettnin skammt undan. Til margra ára var hesta- mennska helsta tómstundagam- an Árna og Ástu og fengum við krakkarnir að kynnast hestum hjá þeim. Eitt sem einkenndi Árna alla tíð var að hann gekk helst allra sinna erinda í Vík en eftirlét Ástu bílinn. Eftir að hann flutti á Hjúkrunarheimilið Hjal- latún mátti gjarnan sjá til hans storma um þorpið, upp og niður brekkur, þótt hann þyrfti að styðjast við tvær hækjur. Við minnumst höfðingja og trausts vinar sem genginn er og erum við þess fullviss að hans bíða hlýjar móttökur í nýjum heimkynnum. Að eiga Árna að sem vin voru forréttindi. Kæru Háeyringar, við vottum ykkur og fjölskyldum ykkar sam- úð á kveðjustundu. Blessuð sé minning þín, Árni Sigurjónsson. F.h. Háagarðs- gengisins, Ragnar, Pétur, Egilína, Bryndís og fjölskyldur. Glettni, létt lund, mikill svip- ur, stórar hendur og gott hjarta- lag einkenndu þann mikla kar- akter sem Árni, föðurbróðir minn, var. Árni frá Pétursey, eða Árni á Háeyrinni í Vík, var ein- stakur maður. Hann hafði góða nærveru og alltaf fylgdi glað- værð og glettni með þegar hann var annars vegar. Mikil samheldni, hlýja og virð- ing hvert fyrir öðru og umhverfi sínu hefur einkennt systkinin frá Pétursey. Árni var af þeirri kynslóð Ís- lendinga sem lifðu þær miklu breytingar sem urðu með til- komu bíla og vélbáta á Íslandi. Hann byrjaði snemma til sjós frá Sandinum og að keyra með varn- ing og fólk og var einn af þeim görpum sem óku trukkum hlöðn- um varningi til íbúa austan Mýr- dalssands og Skeiðarársands í byrjun bílaaldar. Á þeim árum voru fáar brýr á þessum leiðum, aðeins slóðar sem myndast höfðu í aldanna rás. Menn höfðu aðeins reynslu og eigið hyggjuvit að styðjast við. Kom vel í ljós úr hverju menn voru gerðir í þess- um ferðum sem oftar en ekki tóku marga daga og voru miklar svaðilfarir. Eitt sinn er allt var ófært á Klaustur tók Árni hesta og reið með póstinn til þess að koma honum í réttar hendur. Hann var því síðasti landpóstur- inn sem fór með póstinn á hest- um austur yfir sand, en hvort sem hann var á hesti eða bíl skil- aði hann því á áfangastað sem honum var treyst fyrir. Nánast ómögulegt er í dag að setja sig í hans spor í þessum ferðum, svo mikil hefur byltingin í sam- göngum orðið frá hans fyrstu ferðum yfir sandanna. Árni hafði gaman af að segja sögur af mönnum og málefnum. Því var gaman að ræða við hann um þær miklu breytingar sem urðu á ís- lensku samfélagi á hans ævi. Ég vil við leiðarlok þakka Árna og Ástu fyrir góðar stundir. Börnum, afkomendum þeirra, frændum og vinum votta ég sam- úð mína. Haraldur Þórarinsson. Nú er fallinn frá kær vinur og samferðamaður Árni Sigurjóns- son frá Pétursey í Mýrdal, lengst af búsettur í Vík. Árni var okkur hjónum afar kær og áttum við einstaklega ánægjulegar stundir um árabil í leik og starfi með Ástu og Árna. Erlen þekkti þau heiðurshjón fyrr, enda alin upp í Víkinni og var á unga aldri barn- fóstra hjá þeim hjónum og pass- aði elstu börnin, Steina og Siggu Dóru. Á sinni löngu ævi hefur Árni orðið fyrir þungum áföllum í líf- inu, missti Ástu eiginkonu sína langt um aldur fram, Elínu dótt- ur sína, sem lést ung frá eigin- manni sínum og ungum börnum og Jón Þór dótturson sinn í blóma lífsins. Alla tíð hefur hald- ist góður vinskapur við fjölskyld- una. Gleymast seint allar hesta- ferðirnar með þeim hjónum og fleiri vinum okkar í Vík. Árni var um árabil forstöðumaður bifreiða og flutningadeildar Kaupfélags Skaftfellinga og þar var hann réttur maður í krefjandi starfi. Hann var af þeirri kynslóð flutn- ingabílstjóra á Íslandi sem unnu við erfið skilyrði, lélegir vegir um land allt og yfir óbrúð fljót að fara. Bílstjórar vöruflutningabíla á fyrrihluta síðustu aldar voru sannarlega hetjur þess tíma. Með þessum fáu orðum langar okkur að þakka fyrir samfylgd- ina með þeim heiðurshjónum Ástu Hermannsdóttur og Árna Sigurjónssyni. Og held að ég geti mælt fyrir hönd allra fyrrverandi sam- starfsmanna hans hjá Kaupfélagi Skaftfellinga, þegar við kveðjum Árna og færum honum þakkir fyrir framúrskarandi hjálpsemi, greiðvikni og gott samstarf lið- inna ára. Við hjónin og synir okk- ar þökkum að lokum langa vin- semd í okkar garð. Vottum við fjölskyldu hans innilega samúð. Blessuð sé minning hans. Erlen og Matthías Gíslason. Elsku Stebbi, þú varst alltaf svo hlýr og góður. Vildir allt fyrir mann gera og varst svo áhugasam- ur um allt í lífi manns, spurðir ótal spurninga um líðan, vinnu og fjöl- skylduna. Ég man svo vel eftir því þegar ég bjó í Kaupmannahöfn ár- ið 2007 og þið Ella kíktu þangað og vilduð hitta mig. Ég fór með ykkur út að borða og vita þeir sem mig þekkja að ég borða aldrei fisk en einhvern veginn náðir þú að láta mig smakka nokkrar tegund- ir, það var bara einhvern veginn með þig að ef þú mæltir með ein- hverju þá bara hlustaði maður á þig. Þegar við Steve fluttum heim til Íslands frá Kaupmannahöfn og erfitt var að finna vinnu varstu þú með þeim fyrstu að bjóða hjálp sína og ætlaðir að finna eitthvert starf handa honum í Perlunni. Þar veittir þú mér mína fyrstu vinnu á unglingsárunum. Eftir að Steve náði að fóta sig á Íslandi með smíðafyrirtækið sitt hrósaðir þú honum ítrekað fyrir það sem hann náði að gera hér og þótti okkur báðum svo rosalega vænt um það og þú gafst honum „extra kick“ til að halda áfram. Ég eyddi miklum tíma sem barn heima hjá ykkur Ellu og leið mér alltaf svo vel hjá ykkur og vildi eyða þar sem mestum tíma. Stefán Sigurðsson ✝ Stefán Sigurðs-son fæddist 1. júlí 1956. Hann varð bráðkvaddur 13. ágúst 2016. Útför Stefáns var gerð 23. ágúst 2016. Það var alltaf til svo mikið af nammi og vídeómyndum frá Ameríku og það fannst mér voða spennandi. Mér þykir rosalega vænt um þig og fjöl- skyldu þína og það var rosalegt áfall að heyra af fráfalli þínu, elsku Stebbi. Hvíldu í friði. Linda Ósk Guðmundsdóttir. Við félagarnir úr veiðiklúbbn- um eigum eftir að sakna þín mikið, elsku Stebbi, og minning þín mun lifa í okkar hjörtum af eilífu. „Sagan þegar menn missa þann stóra“ er líklega sönn, því að í þetta skiptið horfum við á eftir einum slíkum. Hvíldu í friði, kæri vinur, og takk fyrir allt gamalt og gott. Fyrir hönd veiðiklúbbsins Belgs, Ólafur Már Gunnlaugsson. Við félagar Stefáns Sigurðsson- ar í Rótarýklúbbi Kópavogs minn- umst með þakklæti og hlýhug fé- laga okkar við skyndilegt fráfall hans. Okkur þótti mikill fengur að því að fá Stefán til liðs við klúbbinn fyrir nokkrum árum og væntum okkur mikils af þátttöku hans um ókomin ár. Hann hafði af mikilli reynslu og þekkingu að miðla úr atvinnulífinu, sem vel þekktur veitingamaður, kokkur og fram- kvæmdastjóri veitingahússins Perlunnar. Stefán var umfram allt góður félagi og vinur. Hjálpfús, hófsam- ur og alltaf tilbúinn að rétta hjálp- arhönd hvenær sem færi gafst. Hann var jafnframt kappsamur og metnaðarfullur í störfum sínum og í fremstu röð í hverju sem hann tók sér fyrir hendur. Hann var úr hópi gjörvulegra Kópavogsbúa, sem ólst upp á frumbýlisárum bæjarfélagsins. Æskuheimili Stefáns var við- komustaður margra Kópavogs- búa á þessum árum, enda faðir hans og móðir leiðandi í málefnum bæjarins um árabil. Saga Stefáns og afrek, sem ekki verða tíunduð í stuttu máli eru til marks um dugnað þess fólks og þeirra fjölskyldna, sem byggðu sér heimili í Kópavogi og ólu hér upp harðduglegt og gott fólk. Sjálfur varð Stefán forvígis- maður í sínum störfum eins og hann átti kyn til. Stefán fylgdi með klúbbsaðild sinni í fótspor föður síns, Sigurðar Helgasonar hrl., sem var einn af stofnfélögum, bróður, Helga Sig- urðssonar, sem er fyrrverandi for- seti klúbbsins og systur, Mar- grétar Maríu Sigurðardóttur, sem er fyrsta konan, sem gerðist félagi í Rótarýklúbbi Kópavogs. Hugur okkar er hjá eiginkonu, sonum og fjölskyldu hans og við biðjum þess að almáttugur Guð styrki þau. Við þökkum Stefáni samfylgdina. Fyrir hönd Rótarýklúbbs Kópavogs, Sveinn Hjörtur Hjartarson. Í minningu Stebba. Maður sem var mér og öðrum ætíð rausnarlegur og hlýr. Þú varst alltaf tilbúinn að veita mér og fjölskyldu minni stuðning, hafðir trú á öllu sem ég gerði og hvattir mig áfram í einu og öllu. Þú gast alltaf samglaðst afrekum annarra og naust þess að sjá þeg- ar vel gekk. Það gladdi mig alltaf mikið að hitta þig á fjölskylduviðburðum og ná að spjalla við þig um daginn og veginn. Ég mun aldrei gleyma þessari brosandi sýn. Þín verður sárt saknað af okkur öllum en þú munt aldrei gleymast. Samúðarkveðjur til Ellu, Stef- áns, Sigga, Bjarka og fjölskyldna þeirra. Stephen Paul Roberts. Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vin- samlega beðnir að nota inn- sendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einn- ig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef út- för er á mánudegi eða þriðju- degi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skila- frestur rennur út. Minningargreinar HJARTAVERND Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800 Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð, vináttu og kærleiksríkan hlýhug vegna fráfalls og útfarar okkar ástkæra JÓHANNESAR HILMARS JÓHANNESSONAR, Sóltúni 2, Garði. Fyrir hönd fjölskyldunnar, . Jóna Rut Gísladóttir, Jóhannes Jóhannesson, Þórey Ása Hilmarsdóttir. Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar föður okkar, tengda- föður, afa og langafa, HARALDAR JÓNASSONAR rafvirkjameistara, Lækjargötu 30, Hafnarfirði. . Ólafur Haraldsson, Jónas Haraldsson, Halldóra Teitsdóttir, Hulda Sólborg Haraldsdóttir, Einar Örn Einarsson, Oddný Halla Haraldsdóttir, Finnur Logi Jóhannsson, Haraldur Haraldsson, Bergljót Vilhjálmsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Þökkum veitta samúð og hlýhug vegna andláts elskulegrar eiginkonu minnar, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, RÖGNU JÓNSDÓTTUR, sem lést á hjúkrunarheimilinu Mörk þriðjudaginn 28. júní. Sérstakir þakkir færum við starfsfólki á hjúkrunarheimilinu Mörk fyrir góða umönnun og virðingu. . Theodór Jóhannesson Björn Theodórsson Valgerður Kristjónsdóttir Helga Theodórsdóttir Örn Friðrik Clausen barnabörn og barnabarnabörn. Þökkum auðsýnda samúð, vináttu og hlýhug vegna andláts elskulegs eigin- manns, föður, tengdaföður, afa og langafa, ÞORSTEINS I. STEFÁNSSONAR, Fróðengi 1, áður til heimilis að Langagerði 46, sem andaðist á hjúkrunarheimilinu Eiri 4. ágúst. . Lilja Gróa Kristjánsdóttir, Kristján Þorsteinsson, Kristín Jónsdóttir Njarðvík, Guðrún Þorsteinsdóttir, Erla Þorsteinsdóttir, Kjartan Blöndahl, Stefán Þorsteinsson, Sigríður St. Björgvinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar eiginkonu, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ELÍNAR BJÖRNSDÓTTUR, Stellu, Heiðargerði 3, Akranesi, sem fór inn í Sumarlandið og sólina 8. ágúst. Sérstakar þakkir til starfsfólks dagvistar dvalar- heimilisins Höfða, Akranesi og til starfsfólks A-deildar á HVE á Akranesi. . Þorbergur E. Þórðarson, Sigurlín Þóra Þorbergsdóttir, Ómar Þorst. Árnason, Elínborg Þóra Þorbergsdóttir, Friðrik Jónsson, Birna Þorbergsdóttir, Ingunn María Þorbergsdóttir, Arnar Hjartarson, Þórður Þorbergsson, ömmubörn og langömmubörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.