Morgunblaðið - 03.09.2016, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 03.09.2016, Qupperneq 45
DÆGRADVÖL 45 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 2016 PÖNTUN AUGLÝSINGA: Til kl. 16 mánudaginn 5. september Börn & uppeldi fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 9. sept. SÉRBLAÐ Víða verður komið við í uppeldi barna í tómstundum, þroska og öllu því sem viðkemur börnum frá fæðingu til 12 ára aldurs. –– Meira fyrir lesendur NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú finnur löngun hjá þér til að gera eitthvað nýtt og gætir fengið tækifæri til þess fyrr en síðar. Fólk vill leggja þér lið núna, gefa þér gjafir, gera þér greiða og lána þér hluti. 20. apríl - 20. maí  Naut Dragðu það fram eftir degi að ganga frá hvers konar kaupum eða samningum. Hálfn- að er verk þá hafið er og kemst þótt hægt fari. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Ferðaáætlanir þínar virðast ætla að ganga upp. Reyndu að halda aftur af löngun þinni til að kaupa eitthvað um leið og þér sérð það. Fall er fararheill. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Lærðu að greina á milli þess sem þú þarfnast og þess sem þú getur verið án. Var- astu að ganga á bak orða þinna, það getur dregið dilk á eftir sér. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Ef þú hefur ekki stuðningslið í kringum þig, þá er núna tími til að fá sér eitt. Hafðu það hugfast þegar þér finnst verkefni dagsins taka á sig snúnar myndir. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Það skiptir engu máli hversu lengir þú talar, fólk er ekki að hlusta. Menn munu sjá þegar mál skýrast að þú hefur rétt fyrir þér. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú ert ekki í góðu jafnvægi og kemur ekki auga á ástæðuna. Hafðu augun opin og ekki láta sárindi í fortíðinni hindra að þú nýtir tækifæri nú. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Það mun reyna verulega á þig í dag, en þú ert tilbúin/n í slaginn og sérð fram á að geta gert hlutina. Ekki er ráð að draga framkvæmdir heima á langinn. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Ótilgreind innkaup hafa hugs- anlega vakið sektarkennd hjá þér. Þú áttar þig á því hverjir veikleikar þínir eru. Hikaðu ekki við að notfæra þér tengslanet þitt. 22. des. - 19. janúar Steingeit Varastu að misnota góðvild vinar þíns þótt þægilegt sé að þurfa ekki að ganga í málin sjálf/ur. Einhver er ekki að vinna heimavinnuna sína og það pirrar þig óstjórn- lega, sá pirringur fer verst með þig. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú hefur svo margt á þinni könnu að þú þarft að gæta þess að lofa ekki upp í ermina á þér. Allir eru að gera sitt besta og líka þú. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú ert eitthvað annars hugar í dag og ættir því að fara þér hægt í ákvarðanatöku. Ekki hika við að láta í þér heyra ef þú kemur auga á óveðursský á himni. Síðasta laugardagsgáta var semendranær eftir Guðmund Arn- finnsson: Yfir hæð á fold ég fer. Í fornöld þarna kappi bjó. Sveitarfélag heitir hér. Hygg ég vera birkiskóg. Þessi gáta vafðist fyrir fólki en þó barst ein rétt lausn frá Hörpu á Hjarðarfelli: Yfir holtið oft hann fór átti Holt sá bógurinn. Ekki Holtshreppur var stór. Óx í holti skógurinn. Þannig skýrir Guðmundur gát- una: Á hauðri yfir holt ég fer. Í Holti kappinn Þorgeir bjó. Sveitarnafnið Holt er hér. Holt menn áður nefndu skóg. Og lætur limru fylgja: Réttarholtsbóndinn Refur, sá rækallans krummanefur, til veðurs gáir, í veður spáir og veður af öllu hefur. Síðan að viku liðinni segir Guð- mundur: Hér er gátu ómynd ein auðveld við að glíma. Varla skáldin verða sein verðugt svar að ríma. Þá er það gátan: Á helgum tíðum hann er framinn. Hann er af rímnaskáldum saminn. Hungraðir þann hefja enn. Hálsi fullum iðka menn. Á miðvikudaginn skrifaði Fía á Sandi að mikið væru fréttirnar daprar að undanförnu. – „Maður getur jafnvel ekki ort um þær. Ég fann þessa gömlu stöku, breytti henni aðeins og ætla að fara að ráð- um hennar: Ei má heimsins sorg og sút setjast að í geði. Drekkum út úr einum kút og yrkjum svo um gleði.“ Og bætti síðan við síðar um dag- inn að það væru ekki ferðir til fjár fyrir fátæklinga að safna matar- forða í ár. Krækiber engin og aðal- bláberin með ryðsvepp. Leitaði en lítið fékk þó lengi sliti ég skónum. Kaupauka ég fínan fékk í fyrra í berjamónum. En áður hafði Hjálmar Frey- steinsson ort: Hér á Fróni flest er dýrt, í fátækt þraukum sárri. Hjá Kaupþingi er kaupið rýrt en kaupaukarnir skárri. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Oft er í holti heyrandi nær Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að hlaupa, ekki ganga, inn kirkjugólfið!„ÉG RÆÐ EKKI VIÐ ÞAÐ, ÉG ER MEÐ AFPLÁNUNARBREST.“ „HERRA KAMBAN, ÞAÐ ER MAÐUR HÉR AÐ SÆKJA UM STARFIÐ. HANN LÍTUR EKKI ÚT FYRIR AÐ VERA SÁ SKARPASTI.“ ELÍN, ÉG VAR AÐ SEMJA ÁSTARLJÓÐ. VILTU HEYRA ÞAÐ? ER ÞAÐ TIL ÞÍN SJÁLFS? ÞAÐ HEITIR „APPELSÍNUGULT ER HIÐ NÝJA SEXÍ.“ ÉG ER KOMINN HEIM AF BARNUM! ÉG VEIT! ÉG FINN LYKTINA AF HELLTUM BJÓR Á FÖTUNUM ÞÍNUM HINGAÐ! ÉG SETTI ÞAU Á GÓLFIÐ EF ÞÚ SKYLDIR VILJA ÞVO ÞAU… ÓKEI… …EN VÆRI ÞÉR SAMA ÞÓ AÐ ÞÚ FÆRIR ÚR ÞEIM? Jesús sagði: …Guði er ekkert um megn. (Mt. 19.26) Mikil ósköp sem það gladdisplunkunýtt körfuboltahjarta Víkverja að sjá íslenska karla- landsliðið í körfubolta sigra Sviss- lendinga á heimavelli í vikunni. Leikurinn var mjög spennandi vægast sagt þrátt fyrir að Íslend- ingar hafi leitt leikinn þá þótti Vík- verja leikurinn mjög tvísýnn á köfl- um. Víkverji verður að viðurkenna að hann er nýbyrjaður að horfa á körfubolta og er alls ekki svikinn af útkomunni. Hingað til hefur hann ekki haft neinn áhuga á þessari íþrótt en gott gengi íslenska karla- landsliðsins og sjónvarpútsend- ingar af leikjunum hefur spilað stóra rullu í því að draga hann að skjánum. Snilli Víkverja sjálfs í þessari boltaíþrótt er ekki fyrir að fara. Hvorki í þessari né öðrum. x x x Auðvitað er það jákvætt að Vík-verji sé farinn að fylgjast með körfuboltanum með öðru auganu. En honum verður samt hugsað til glataðs tíma, tíma sem hann hefði getað nýtt og horft á körfubolta. Víkverji lætur að sjálfsögðu kvennakörfuboltann ekki framhjá sér fara og fylgist spenntur með gengi félagsliða og einnig landslið- inu. Víkverji er hins vegar eitt spurningarmerki þegar kemur að dómgæslunni. Hann skilur hvorki upp né niður en veit að þetta heitir villa. Það er nóg í bili. x x x Ungt og efnilegt íþróttafólk þykirVíkverja alltaf afskaplega skemmtilegt að horfa á. Sjá flotta takta, snerpu, hraða og klókindi. Eitt er víst að nóg er til af efnilegu og flottu íþróttfólki hér á landi. x x x Í hvert sinn sem ólympíuleikar eruhaldnir og þeir sýndir í sjónvarp- inu rifjast það upp fyrir Víkverja hversu gaman honum þykir að horfa á íþróttir. Allar íþróttagrein- arnar eru jafn skemmtilegar að mati Víkverja en hann verður að viðurkenna að fimleikar og hlaup eru þó í sérflokki. Svo ekki sé nú talað um góða lýsingu flinks íþróttaþular með sjónvarps- konfekti. – víkverji@mbl.is Víkverji

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.