Fréttablaðið - 15.09.2016, Side 28

Fréttablaðið - 15.09.2016, Side 28
Tískuáhugi Jökuls Vilhjálmsson­ ar kviknaði á menntaskólaárunum en með árunum fékk hann meiri áhuga á formlegum og klassískum herrafatnaði. Sá áhugi vatt upp á sig og endaði með því að hann og félagi hans, Egill Ásbjarnar­ son, stofnuðu herrafataverslun­ ina Suit up Reykjavik sem sérhæf­ ir sig í sérsaumuðum herrafatnaði og vönduðum aukahlutum. „Síðan þá er ég svo gott sem jakkafata­ klæddur flesta daga vikunnar en blanda þó einnig áhrifum úr götu­ tísku inn á milli.“ Samhliða rekstri verslunarinnar er Jökull í meist­ aranámi við Háskóla Íslands í markaðsfræði og alþjóðaviðskipt­ um og stefnir á útskrift vorið 2017. Lýstu fatastílnum þínum Ég hall­ ast mun meira að ítalska stílnum og þá helst þeim suður ítalska sem er kenndur við borgina Nap­ ólí. Hann einkennist af léttari og bjartari efnum sem eru oftar en ekki í bláum tónum. Fyrir mér er jakkinn miðpunkturinn. Því geng ég oft í munstruðum jökkum og held þá buxum og skyrtum ein­ litum. Ég legg mikið upp úr skó­ búnaði og passa að hafa skóna mína vel pússaða. Í þau fáu skipti sem ég er ekki í leðurskóm finnst mér gott að ganga í þægilegum hvítum strigaskóm. Hvernig fylgist þú með tískunni? Instagram er mjög góður mið­ ill til að fylgjast með tískunni og reyni ég að vera virkur þar. Það eru líka nokkur skemmtileg tískublogg sem ég skoða af og til auk þess sem ég er áskrifandi að hinu stórgóða blaði The Rake. Hvað einkennir klæðnað ungra karla í dag? Það hefur orðið mikil breyting þar undanfarin ár til hins betra. Þeir eru duglegri að klæða sig upp við góð tilefni og spá meira í því hvernig þeir líta út. Samfélagsmiðlar eins og Insta­ gram leika klárlega stórt hlut­ verk þar. Einnig er meiri áhersla lögð á gæði og að líta á vandaðan fatnað sem góða fjárfestingu sem hægt er að eiga í áratugi ef vel er hugsað um hann. Hverjir eru uppáhaldshönnuðir þínir? Þar sem áhugi minn liggur aðal lega í klassískum herrafatnaði fylgist ég ekki mikið með íslenskri hönnun sem er mun öflugri í kven­ fatnaði og götutísku. Annars er Ralph Lauren einn sá flottasti auk margra ítalskra meistara á borð við Gennaro Rubinacci og Vin c­ enzo Attolini, sem er oft kallaður faðir Neapolitan­klæðskerastíls­ ins. Áttu þér uppáhaldsflík? Ég er mjög hrifinn af tvíhneppta kamel­ litaða frakkanum mínum sem er saumaður úr 100% kasmír. Nauð­ synlegt á köldum vetrardögum. Getur þú nefnt dæmi um bestu og verstu kaup þín? Ég hef gert óteljandi slæm kaup en í seinni tíð man ég ekki eftir neinu sérstöku sem ég sé eftir. Bestu kaupin eru sennilega Allen Edmonds leður­ skór sem ég fékk fyrir slikk á eBay fyrir fjórum árum og líta út eins og þeir séu glænýir. Ertu farinn að spá í næsta vetri? Ég er nú þegar búinn að setja nokkar vel valdar flíkur í fram­ leiðslu fyrir veturinn. Þar á meðal er vatnsheldur frakki úr svoköll­ uðu Storm System efni frá Loro Piana sem er algjör snilld fyrir íslenska veturinn. Notar þú fylgihluti? Ég er ekki sá duglegasti við að nota hefðbundna aukahluti en ég hendi stundum á mig armbandi eða úri. Á góðum sumardögum er fátt betra en góð sólgleraugu og góðir leðurhansk­ ar eru mikilvægir á veturna. Svo fer ég ekki út úr húsi nema vera með vasaklút í brjóstvasanum. Hvað er fram undan hjá þér? Í vetur eru virkilega spennandi hlutir í gangi hjá Suitup Reykja­ vik. Fljótlega kynnum við til leiks skólínuna okkar sem er handgerð á Mallorca úr ítölsku og frönsku leðri. Við munum bæði bjóða upp á tilbúna skó auk þess sem við­ skiptavinir okkar geta pantað sér sérsaumaða skó þar sem þeir stjórna hverju smáatriði. Á sama tíma munum við svo kynna nýja jakkafatalínu sem er handsaumuð að fullu á Ítalíu. Jakkinn er frá Caccioppoli Napoli og er úr ull og kasmír. Buxurnar eru úr ,,jogging” efni og pólóbolur er frá Loro Piana. Armbandið er eftir Hendrikku Waage. Jakkafötin eru úr ull, hör og silki. Skórnir koma frá Allen Edmonds. FóLk Er kyNNiNGarbLað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. ÚtgEfANdi: 365 miðLAr | ÁByrgðArmAður: Svanur Valgeirsson umSJóNArmENN EfNiS: Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Lilja Björk Hauksdóttir, liljabjork@365.is, s. 512 5372 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@365.is, s. 512 5367 | Sólveig Gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351 Starri Freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358 | Vera Einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357 SöLumENN: Atli Bergmann, atlib@365.is, s. 512 5457 | Jóhann Waage, johannwaage@365.is, s. 512 5439 | Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.is, s. 512 5433 Starri freyr Jónsson starri@365.is í SkÁPiNN SkoðAð ALLTAF VIÐ HÖNDINA Þú getur lesið Fréttablaðið í heild sinni á Vísi og í Fréttablaðs-appinu ... allt sem þú þarft Þú færð appið á visir.is/fbl eða beint í gegnum Lógó með adressulínu Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is = Coopet Hewitt light (má vera book ef það er minna en 8pt) Ný sending! Laugavegi 178 | Sími 555 1516 Kíkið á myndir og verð á Facebook Opið virka daga kl. 11–18 laugardaga kl. 11-15 Síðar peysur Verð 14.900 kr. - 3 litir: turkisblátt, ljósgrátt, svart - stærð 38 - 50 - 100% bómull Skyrta á 8.900 kr. Buxur á 13.900 kr. 1 5 . s e p t e m b e r 2 0 1 6 F I m m t U D A G U r2 F ó l k ∙ k y n n I n G A r b l A ð ∙ X X X X X X X XF ó l k ∙ k y n I n G A r b l A ð ∙ t í s k A 1 5 -0 9 -2 0 1 6 0 4 :3 2 F B 0 6 4 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 A 9 3 -9 5 F 0 1 A 9 3 -9 4 B 4 1 A 9 3 -9 3 7 8 1 A 9 3 -9 2 3 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 6 4 s _ 1 4 _ 9 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.