Fréttablaðið - 15.09.2016, Blaðsíða 30
Kylie Jenner hefur oft verið með ljósar hárkollur eins og á
þessari mynd en fyrir nokkrum dögum lét hún hins vegar lita
hárið á sér alveg ljóst í fyrsta skipti.
Kim Kardashian með afar náttúrulega hárkollu.
Khloe Kardashian finnst gaman að breyta um hárgreiðslu
og hárlit eins og systrum hennar.
Kendall Jenner skartar hér bleikri kollu.
Hárkollur hafa verið áberandi á
höfði stjarnanna í Hollywood að
undanförnu og hafa Kardashian-
systur verið sérstaklega dugleg-
ar að skarta slíkum höfuð búnaði.
Bergþóra Þórsdóttir, eigandi hár-
greiðslustofunnar Hairbrush og
förðunarskólans MASK Makeup
& Airbrush Academy, segir að það
líti út fyrir að hárkollurnar séu
líka á leið til Íslands. „Það er fullt
af stelpum búið að koma hingað að
undanförnu í mátun með kollurnar
sínar sem þær hafa keypt í versl-
uninni Glam Room og við kennum
þeim að setja þær á,“ segir Berg-
þóra sem er menntaður hárkollu-
meistari. „Það er smávegis serím-
ónía í kringum þetta, það er ekki
bara hægt að skella kollunni á höf-
uðið, það þarf að sníða tjullið undir
henni til og klippa það, rúlla hárinu
upp og undirbúa það undir hárkoll-
unni og læra að festa hana á. Einn-
ig þarf að plokka úr hárkollunni
ef það á að vera skipting í henni
á ákveðnum stað og móta hana á
höfuð hvers og eins svo hún komi
raunverulega út.“
Bergþóra segir hárkollunotk-
unina vera mjög algenga meðal
stjarnanna vestanhafs en fólk
geri sér ekki alltaf grein fyrir að
þetta sé ekki hár þeirra í raun.
„Til dæmis fór allt á hliðina þegar
Beyoncé birtist með topp. Þá héldu
allir að hún hefði klippt á sig topp
og töluðu um að þetta færi henni
alls ekki en þetta var var bara
„clip-in“ toppur sem hún var með
eitt kvöld. Það er líka vinsælt að
nota þessar „clip-ins“ í hárið, að
geta þannig breytt til við einhver
ákveðin tilefni. Kardashian-syst-
ur hafa mest verið með heilar hár-
kollur í hinum ýmsu litum og oftast
með um það bil ellefu sentimetra
rót, það virðist vera málið hjá þeim
en þær skipta um kollur eins og við
um sokka.“
Hárkollurnar eru til í öllum
regnbogans litum, til dæmis bleik-
ar, fjólubláar og gráar, en Berg-
þóra segir í léttum dúr að þær séu
ekki eitthvað sem fólk fari með í
vinnuna á þriðjudagsmorgni. „Þær
eru meira í partíið en það eru líka
til eðlilegri kollur, til dæmis dökk-
ar með lit sem búið er að vaxa að-
eins úr. Þær eru kannski eitthvað
sem þær sem eru svolítið hugað-
ar geta gengið með hversdags en
það eru ekki allar sem þora það,“
segir hún brosandi og bætir við
að hún hafi ekki átt von á að þetta
æði myndi berast hingað til lands.
„Ef ég á að vera alveg hreinskilin,
þá bjóst ég ekki við því að einhver
myndi kaupa sér hárkollu hérna á
Íslandi en það virðist samt vera að
gerast, íslenskar stelpur eru fljótar
að pikka upp tískustrauma.“
Æði í uppsiglingu?
Litríkar hárkollur sem sést hafa á höfði stjarnanna eru einnig farnar að
sjást á kolli íslenskra kvenna sem og kollur í hefðbundnari litum.
Bergþóra Þórsdóttir hárgreiðslu-
meistari.
Lilja Björk
Hauksdóttir
liljabjork@365.is
Bæjarlind 6 • S. 554 7030 Við erum á Facebook
Haustlitirnir komnir
Buxur
kr. 4.990.-
Flísfóðraðar
kr. 5.900.-
5
litir
Str. 38 - 52
Netverslun á tiskuhus.is
Nýjar vörur í hverri viku
Bæjarlind 1-3
201 Kópavogur
s: 571-5464
Vertu einstök – eins og þú ert
stærðir 38-52
my style
Meiri sveifla
stríðsár
aswing
Lilja
Eggertsdóttir
söngur
Gunnar
Gunnarsson
píanó
Ásgeir
Ásgeirsson
gítar
Þorgrímur
Jónsson
kontrabassi
Scott
McLemore
trommur
Söngur: Örn Arnarson - Örn Ýmir Arason - Þorkell H. Sigfússon
FRÍKIRKJAN Í REYKJAVÍK Í DAG, FIMMTUDAG KL. 12
Miðaverð 1.500 kr.
LJÚFI
R
TÓNA
R
Í HÁD
EGIN
U
Í DAG
1 5 . s e p t e m b e r 2 0 1 6 F I m m t U D A G U r4 F ó l k ∙ k y n n I n G A r b l A ð ∙ X X X X X X X XF ó l k ∙ k y n I n G A r b l A ð ∙ t í s k A
1
5
-0
9
-2
0
1
6
0
4
:3
2
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
9
3
-8
2
3
0
1
A
9
3
-8
0
F
4
1
A
9
3
-7
F
B
8
1
A
9
3
-7
E
7
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
6
4
s
_
1
4
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K