Fréttablaðið - 15.09.2016, Síða 46

Fréttablaðið - 15.09.2016, Síða 46
„Þetta var dramatískur atburður og vakti gríðarlega athygli bæði hér á Íslandi og ekki síður í Frakklandi. Leiðangursstjór- inn Charcot var vissulega í hópi þekkt- ustu vísindamanna þar á sínum tíma.“ Þetta segir Illugi Jökulsson rithöfundur um sjóslysið stóra fyrir 80 árum þegar franska rannsóknarskipið Purquoi-Pas? (Hversvegna ekki?) fórst við Álftanes á Mýrum og með því 40 manns. Illugi verður með hádegisfyrirlestur um það á morgun í Sjóminjasafninu á Granda- garði. Illugi segir mörg skip hafa farist við Mýrar á fyrri tíð. „En það þótti merki- legt að svona þrautreynt skip eins og Purquoi-Pas? með svona þrautreynda áhöfn skyldi lenda í því,“ segir hann og Skætt sjóslys fyrir 80 árum Þess er minnst að 80 ár eru liðin síðan franska rannsóknarskipið Pourquoi-Pas? fórst við Mýrar og með því 40 manns, þar á meðal leiðangursstjórinn Jean-Baptiste Charcot. Þrímastra seglskipið Purquoi Pas? siglir út úr Reykjavíkurhöfn. Mynd/KaRl ChRistian nielsen/ljósMyndasafn ReyKjavíKuR En það þótti merkilegt að svona þrautreynt skip eins og Purquoi-Pas? með svona þrautreynda áhöfn skyldi lenda í því. Illugi Jökulsson, rithöfundur bætir við: „Charcot hafði komið oft til landsins, var þekktur hér og virtur vel. Ég ætla að segja svolítið frá ævi hans og rekja það sem ég veit um þessa síðustu siglingu skipsins.“ Franska sendiráðið, Háskóli Íslands og Vináttufélag Charcots og Pourquoi- Pas? standa einnig að viðburðum, í samstarfi við afkomendur Charcots sem hingað fjölmenna af þessu tilefni. Nú í dag klukkan 10 er athöfn í Straumfirði á Mýrum og í kvöld forsýning á nýrri heimildarmynd um Charcot í Alliance française, Tryggvagötu 8. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir en myndin er á frönsku og ekki textuð. Á morgun klukkan 10 er svo minningarmessa í Landakotskirkju. gun@frettabladid.is Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, Guðrún Sigfúsdóttir frá Flögu í Vatnsdal, verður jarðsungin frá Hvammstanga- kirkju föstudaginn 16. september kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Hollvinasamtök Heilbrigðisstofnunarinnar á Hvammstanga. Sigríður Ívarsdóttir Ármann Olgeirsson Sigfús Ívarsson Elísabet Halldórsdóttir Halldóra Ívarsdóttir Páll Sigurðsson María Ívarsdóttir Símon H. Ívarsson Níels Ívarsson Jónína Skúladóttir Ólafur Ívarsson Sigríður Fossdal Hermann Ívarsson Dagbjört Jónsdóttir Sigurður Ívarsson Ásdís Jónsdóttir Guðrún Sigurðardóttir og fjölskyldur. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Sigurður Jósefsson frá Torfufelli, lést á hjúkrunarheimilinu Lögmannshlíð, Akureyri, fimmtudaginn 8. september. Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 23. september klukkan 13.30. Guðrún Sigurðardóttir Loftur Sigvaldason Soffía Árnadóttir Árni Sigurðsson Björg Brynjólfsdóttir Jón Hlynur Sigurðsson Sigríður Steinbjörnsdóttir Bjarney Sigurðardóttir Pétur H. Ágústsson Sigrún Lilja Sigurðardóttir Einar Svanbergsson Hólmfríður Sigurðardóttir Haukur Tryggvason Sigurður Torfi Sigurðsson Ragnhildur Sigurðardóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, Brynhildur Ingibjörg Matthíasdóttir Klapparstíg 1, Reykjavík, lést á Landspítalanum mánudaginn 12. september. Útför hennar fer fram frá Dómkirkjunni mánudaginn 19. september kl. 13.00. Eggert Ólafur Eggertsson Matthías Eggertsson Marizelda Eggertsson Jóhanna Katrín Eggertsdóttir Halldór Jóhannesson Katrina Eggertsson Eggert Halldórsson Brynjar Halldórsson Þórunn Halldórsdóttir Elskulegur bróðir okkar, mágur og frændi, Kristján Már Ólafsson verður jarðsunginn frá Sólheimakirkju föstudaginn 16. september kl. 15. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Styrktarsjóð Sólheima. Ólafur Haukur Ólafsson Sigurbjörg H. Gröndal Ásdís Katrín Ólafsdóttir Pål O. Borgen Sigríður Edda Ólafsdóttir Magnús Jón Sigurðsson og fjölskyldur. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, Börkur Jóhannesson innanhússarkitekt, lést á heimili sínu í Ósló aðfaranótt 12. september. Útför fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju mánudaginn 26. september kl. 13.00. Sólveig Guðjónsdóttir Lísa Björk Barkardóttir Kenneth Borgerud Brynjar Barkarson Kine Faldin Borgar Faldin Brynjarsson og Frída Faldin Brynjarsdóttir Axel Borgerud Kennethss., Amanda Borgerud Kennethsd. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Hallfríður Petra Ólafsdóttir tannsmiður og fv. bankaritari, Borgarholtsbraut 35, Kópavogi, lést á Hrafnistu Hafnarfirði 8. september sl. Útför hennar fer fram frá Kópavogskirkju föstudaginn 16. september kl. 13. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á minningarsjóð FAAS, Félags aðstandenda Alzheimerssjúklinga. Ægir Jens Guðmundsson Linda Brá Hafsteinsdóttir Jónas Þröstur Guðmundsson Þóra Bryndís Árnadóttir Sigríður Hrund Guðmundsd. Skúli Sveinsson barnabörn og barnabarnabörn. Merkisatburðir 1967 Þjóðgarður er stofnaður í Skaftafelli. 1972 Ásgeir Ásgeirsson, fyrrverandi alþingismaður, ráðherra, bankastjóri og forseti Íslands frá 1952 til 1968, andast, 78 ára að aldri. 1981 Risalúða veiðist út af Rit á Vestfjörðum. Hún er 268 senti- metra löng og vegur yfir fjórðung úr tonni. 1985 Sif Sigfúsdóttir er kjörin fegurðardrottning Norðurlanda, 17 ára gömul. 1994 Helgi Áss Grétarsson verður heimsmeistari í skák í flokki 20 ára og yngri og jafnframt stórmeistari í skák. 2000 Sumarólympíuleikar eru settir í Sydney. 2008 Lehman Brothers, eitt stærsta fjármálafyrirtæki í heimi, verður gjaldþrota sem leiðir til bankahruns á Íslandi og víðar. 1 5 . s e p t e m b e r 2 0 1 6 F I m m t U D A G U r34 t í m A m ó t ∙ F r É t t A b L A ð I ð tímamót Í dag hefjast rússneskir kvikmyndadagar í Bíói Paradís og eru þeir haldnir í sam- starfi við sendiráð Rússneska sambands- ríkisins á Íslandi, menningarmálaráðu- neyti Rússlands og Northern Travelling Film Festival. Það er mjög mikilvægt að halda rúss- neska daga – maður sér þessar myndir ekkert í bíó, þetta eru handvaldar gæða- myndir sem eru nútímalegar og „current“. Við erum með menningarfulltrúa, hún er rússnesk og ráðleggur okkur í vali á myndum – þannig að við getum ábyrgst að þetta eru gæðamyndir,“ segir Ása Bald- ursdóttir, dagskrárstjóri í Bíói Paradís. Þetta er í fjórða sinn sem þessi hátíð er haldin og nú eins og áður verður í boði allt það besta í rússneskri kvikmynda- gerð. Þarna eru í boði ákaflega fjöl- breyttar verðlaunamyndir og auk þess verður leikstjórinn Mikhail Kosyrev- Nesterov viðstaddur sem heiðursgestur, en hann leikstýrði myndinni Journey to the Mother sem er opnunarmynd hátíð- arinnar og hefur hlotið fjöldamörg verð- laun á alþjóðlegum kvikmynda hátíðum. Það er frítt inn á allar sýningar á hátíð- inni og allir velkomnir. Rússneskir kvikmyndadagar hefjast í dag Ása Baldursdóttir, dagskrárstjóri í Bíói Paradís. 1 5 -0 9 -2 0 1 6 0 4 :3 2 F B 0 6 4 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 A 9 3 -8 2 3 0 1 A 9 3 -8 0 F 4 1 A 9 3 -7 F B 8 1 A 9 3 -7 E 7 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 6 4 s _ 1 4 _ 9 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.