Fréttablaðið - 10.11.2016, Blaðsíða 25

Fréttablaðið - 10.11.2016, Blaðsíða 25
Saga Bandaríkjanna er stutt, samfellt ævintýri. Ekkert land hefur í tímans rás upp- skorið viðlíka velvild og aðdáun umheimsins og Bandaríkin, virðist mér, jafnvel ekki Frakkland, vagga nútímans. Forusturíki hins frjálsa heims Samt er saga Bandaríkjanna engin geislabaugssaga. Banda- ríkjamönnum er talið til tekna að hafa brotizt undan yfirráðum Englendinga í byltingarstríðinu 1775-1783, en við þá sögu er því að bæta að Bandaríkjamenn frömdu þjóðarmorð á þeim Indjánum sem fyrir voru í landinu. Þá stað- reynd hafa Bandaríkjamenn æ síðan farið með sem feimnismál í kennslubókum og fjölmiðlum þótt það sé nú loksins að breytast. Bandaríkjamenn komu sér upp prýðilegri stjórnarskrá 1787 án afskipta þingmanna þótt hún hafi að vísu reynzt meingölluð eins og nú hefur enn einu sinni komið á daginn og þarfnist því frekari lagfæringar. Bandaríkjastjórn reis gegn þrælahaldi sem kostaði borg- arastyrjöld 1861-1865 og 620.000 mannslíf, en það tók heila öld til viðbótar að tryggja blökkumönn- um full mannréttindi til jafns við hvíta menn; enn vantar þó talsvert á fullt jafnrétti. Bandaríkjamenn komu Evrópu til hjálpar í báðum heimsstyrjöldum 20. aldar og hafa æ síðan verið nánir bandamenn Evrópulanda í ótryggum heimi. Eftir síðari heimsstyrjöldina gerð- ust Bandaríkin, þá orðin ríkasta land heimsins, helzta forusturíki hins frjálsa heims. Margir deila á Bandaríkin fyrir misheppnaða utanríkisstefnu sem leiddi m.a. til stuðnings Banda- ríkjanna við einræðisstjórnir víða um heim, t.d. í Kongó og Sádi- Arabíu, og einnig fyrir innrásina í Írak 2003 sem leiddi beint af því að Hæstiréttur Bandaríkjanna stal forsetakosningunni 2000 með því að afhenda George W. Bush forsetaembættið með fimm atkvæðum gegn fjórum eftir flokkslínum. E.t.v. hefur ekkert eitt atvik skaðað ásjónu Banda- ríkjanna til jafns við þessa skyssu Hæstaréttar. Vantraust Banda- ríkjamanna í garð yfirvalda hefur ágerzt. Aðeins tíundi hver Banda- ríkjamaður ber traust til þingsins í Washington skv. könnun Gallups. Fjáraustur hagsmunahópa í stjórn- málamenn og flokka skv. nýlegri heimild Hæstaréttar, njósnir um óbreytta borgara undir yfirskini hryðjuverkavarna og pyndingar stríðsfanga hafa ásamt öðru orðið til þess að óháðir sérfræðingar gefa Bandaríkjunum ekki lengur fullt hús stiga fyrir frelsi og lýð- ræði. Lífskjör venjulegra launþega stöðnuðu á meðan auðmenn muldu undir sjálfa sig og sína. Bankar hrundu. Jafnvel bílafyrir- tækin í Detroit reyndust vera svo illa rekin að þau voru þjóðnýtt um skeið til að halda í þeim lífinu. Margt gekk þó vel, t.d. tækni- byltingin sem gerði Apple að lang- verðmætasta fyrirtæki heims. Fyrsti svarti forsetinn – og síðan fyrsti sósíalistinn eða fyrsta konan? Bandaríkjamenn brugðust við þessari þróun með því að kjósa sér blökkumann sem forseta 2008, demókratann Barack Obama, umbótasinnaðan öldungadeildar- þingmann frá Illinois. Repúbl- ikanar brugðust hart við, svo hart að flokkarnir tveir á Banda- ríkjaþingi geta varla talazt við. Fasteignajöfurinn Donald Trump í New York gekk í að grafa undan forsetanum með því að dreifa þeim orðrómi að forsetinn væri fæddur í Keníu og hefði því logið sig til valda þar eð stjórnarskráin mælir fyrir um að forsetinn þurfi að vera fæddur í Bandaríkjunum. Annað var eftir þessu. Flokksmenn í báðum flokkum risu upp gegn flokkseigendum. Uppreisninni lyktaði í flokki repúblikana með útnefningu Trumps sem forseta- frambjóðanda flokksins í óþökk margra forustumanna repúbl- ikana. Svipuð atlaga var gerð í Demókrataflokknum þar sem lýð- ræðissósíalistinn Bernie Sanders, öldungadeildarþingmaður frá Vermont, talaði máli þeirra sem höllum fæti standa, en hann þurfti að lúta í lægra haldi fyrir Hillary Clinton, fv. utanríkisráðherra og forsetafrú. Nei, Trump vann Ég skrifaði á þessum stað 28. júlí sl.: „Sumir þeirra sem mæra bandarísku stjórnarskrána frá 1787 þótt hún sé meingölluð gætu átt eftir að vakna upp við vondan draum nú í nóvember. Þá getur það t.d. gerzt að Donald Trump, frambjóðandi repúblikana, nái kjöri sem forseti með 270 kjör- menn að baki sér gegn 268 kjör- mönnum fyrir Hillary Clinton, frambjóðanda demókrata, jafnvel þótt Clinton fái … fleiri atkvæði en Trump á landsvísu. … Þetta gæti gerzt ef spádómur Michaels Moore, kvikmyndagerðarmanns- ins góða, gengur eftir. Moore spáir Trump sigri í sömu 24 fylkjum og Mitt Romney vann í forsetakosn- ingunum 2012 og að Trump bæti við sig fjórum ryðbeltisfylkjum: Pennsylvaníu, Ohio, Michigan og Wisconsin. Það er allt sem þarf. Rök Moores eru m.a. þau að ryðbeltisfylkin fjögur eiga margt sammerkt með þeim hlutum Englands sem réðu úrslitum í atkvæðagreiðslunni um úrsögn Bretlands úr ESB í júní, m.a. lágar tekjur, litla menntun og hátt hlut- fall eldra fólks.“ Þessi spásögn Michaels Moore gekk eftir. Hillary Clinton fékk fleiri atkvæði á landsvísu en Trump. Atkvæðamunurinn er 165.000 og getur átt eftir að aukast þar eð talningu er ekki lokið til fulls. Trump fékk eigi að síður fleiri kjörmenn en Clinton. Þetta er í fimmta skiptið sem sá sem hlýtur flest atkvæði í forseta- kosningum í Bandaríkjunum þarf að lúta í lægra haldi. Það gerðist síðast 2000 með þeim hörmulegu afleiðingum sem ég lýsti að fram- an að Hæstiréttur lét það henda sig að stöðva talningu atkvæða og stela kosningunni handa George W. Bush. Sigur Trumps nú getur þó varla skoðazt eingöngu sem upp- reisn gegn ríkjandi ástandi þar eð repúblikanar halda meiri hluta sínum í báðum deildum Banda- ríkjaþings, engin uppreisn þar. Nú er að sjá hvernig Banda- ríkjunum reiðir af undir forustu nýs forseta sem fráfarandi forseti hefur lýst óhæfan til starfans. Heimsveldi við hengiflug Þorvaldur Gylfason prófessor Í dag Frá Mið- og Suður Ameríku Arial reg. 8 pt Línubil 10Ylur og krydd frá Gvatemala. Jólailmur, hlátrasköll og gott kaffi. Hátíðakaffi kaffitár frá býli í bolla kaffitár frá býli í bolla kaffitár frá býli í bol la k aff itá R f rá bý li í b ol la ka ff itá r f rá býli í boll a hátíðí bæ s k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 25F i M M T u d a g u R 1 0 . n ó v e M B e R 2 0 1 6 1 0 -1 1 -2 0 1 6 0 4 :2 5 F B 0 8 0 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 B 3 D -D 8 F 4 1 B 3 D -D 7 B 8 1 B 3 D -D 6 7 C 1 B 3 D -D 5 4 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 8 0 s _ 9 _ 1 1 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.