Fréttablaðið - 10.11.2016, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 10.11.2016, Blaðsíða 10
1. Múslimum bannað að koma til Bandaríkjanna Donald Trump eyddi miklu púðri í kosn- ingabaráttunni í að ræða um íslam. Í viðtali í vor sagði Trump að íslam ýtti undir hatur á Bandaríkjunum. Trump lagði til að múslimum yrði bannað að koma til Bandaríkjanna þangað til kennisetningunum væri breytt. Mike Pense, tilvonandi vara- forseti Bandaríkjanna, gagnrýndi Trump fyrir ummælin og sagði þau vera móðgandi og brjóta gegn stjórnarskránni. Þegar leið á kosn- ingabaráttuna dró Trump aðeins úr yfirlýsingunni en hana má þó enn finna á kosningavef Trumps. 2. Obamacare lagt niðurSíðustu mánuði lofaði Trump því sýknt og heilagt að hann myndi fella niður Obama care og koma á nýju heil- brigðiskerfi, þegar hann yrði kjörinn forseti. Frá því að Obamacare var sett á laggirnar árið 2010 hafa rúmlega 20 milljónir Bandaríkja- manna bæst í hóp þeirra sem hafa heilbrigðistryggingu. Hlutfall ótryggðra Bandaríkjamanna hefur aldrei verið jafn lágt en það er um það bil 8,9 prósent. Trump hyggst koma á fót eigin kerfi sem býður upp á val, gæði og er á viðráðanlegu verði. Til þess að ná því fram þarf Trump á stuðn- ingi 60 þingmanna í öldungadeild Bandaríkjaþings að halda. Það er lágmarksfjöldi atkvæða til þess að koma í veg fyrir málþóf Demó- krata en öldungadeildarþingmenn úr röðum Repúblikana eru 51 talsins. 3. Endursamið um viðskiptasamninga Trump hefur talað um að við- skiptasamningar Bandaríkjanna við önnur ríki séu vonlausir og hefur hann lofað því að semja upp á nýtt. Í sumar sagði Trump að hann myndi draga Bandaríkin úr Alþjóðaviðskiptastofnuninni yrði hann kjörinn forseti. Hann segir stofnunina stuðla að viðskipta- ójöfnuði í landinu og hana vera stórslys. Einnig muni Bandaríkin yfirgefa samtök olíuútflutnings- landa. Hann hyggst semja aftur við Kanada og Mexíkó um NAFTA- fríverslunarsamninginn og við Kyrrahafsríki um TPP-fríversl- unarsamningin. Enda telur hann að Bandaríkin hafi verið hlunn- farin við samningagerðina. 4. Ausa fé í herinnÁ stefnuskrá Trumps er að auka fjárútgjöld til hersins um 500 milljarða dollara næsta áratuginn. Meðal annars til þess að glíma við uppgang Íslamska ríkisins. Hann telur þörf á að fjölga hermönnum 10 hlutir sem Trump hefur sagst ætla að gera sem forseti Donald Trump boðaði miklar breytingar í banda- rískum þjóðfélagsmálum í kosningabaráttu sinni til forseta Bandaríkjanna. Hvort hann standi við loforð sín, eins og að hefja á ný vatnspyndingar eða banna múslimum að koma til Bandaríkjanna, á tíminn eftir að leiða í ljós. um 50 þúsund, herskipum um rúmlega 80 og herflugvélum um rúmlega hundrað. Til þess að greiða fyrir útgjöld- unum hyggst Trump biðja fulltrúadeild Bandaríkjaþings að hætta að takmarka eyðslufé varnarmálaráðuneytisins. Hann hyggst fjármagna útgjöldin með því að rukka inn ógreidda skatta, með niðurskurði í almannakerf- inu, koma upp um tryggingasvindl og hækka skatta á orkufyrirtæki. 5. SkattalækkanirTrump leggur til gríðarlega umfangs- miklar breytingar á skattkerfinu. Tekju- skattskerfi Banda- ríkjanna byggir á sjö þrepum. Frá tíu prósenta skatti upp í 39,6 prósent. Í stefnuskrá Trumps leggur hann til þriggja þrepa skattkerfi með 12, 25 og 33 prósenta þrepum. Trump hyggst lækka fyrirtækjaskatt úr 35 pró- sentum í fimmtán prósent og afnema allan erfðafjárskatt. Samkvæmt skattstefnumið- stöðinni í Bandaríkjunum munu skattalækkanir Trumps minnka tekjur ríkissjóðs um rúmlega 6.200 milljarða dollara næstu tíu árin. Rúmlega 47 prósent af skattalækkununum munu renna til ríkasta eins prósentsins, en þær munu koma verst út hjá þeim tekjulægstu. 6. PyndingarFyrr á árinu hótaði Trump því að ef hann yrði kjörinn forseti myndi hann láta drepa fjölskyldu- meðlimi þeirra sem hann telur Bandaríkjunum stafa ógn af. Hann lofaði því að hann myndi innleiða á ný vatnspyndingar og aðrar pyndingaraðferðir. Trump sagði að styrkja þyrfti lögin svo að Bandaríkin gætu átt auðveldara með að glíma við Íslamska ríkið. Eftir að hafa verið harðlega gagn- rýndur af hershöfðingjum og fyrr- verandi yfirmanni leyniþjónustu Bandaríkjanna dró Trump aðeins í land. Hann viðurkenndi að hann gæti ekki neytt hermenn til þess að brjóta gegn alþjóðlegum sáttmálum og lögum en að hann myndi hins vegar reyna að auka valdheimildir hermanna fyrir bandaríska þinginu til þess að berjast við Íslamska ríkið. 7. Verndarskattur TrumpsTrump hefur hótað því að koma ekki öðrum þjóðum í Atlantshafsbandalaginu til aðstoðar greiði þær ekki sann- gjarnan hlut af útgjöldum banda- lagsins. Eystrasaltslöndin hafa tekið þessar hótanir mjög alvar- lega, sérstaklega í ljósi aðdáunar Trumps á Pútín. Aðspurður hvort hann myndi koma Eystrasalts- löndunum til varnar ef Rússar gerðu innrás neitaði Trump að svara. Hann gæti aðeins svarað spurningunni játandi ef löndin hefðu borgað sinn hlut til banda- lagsins. 8. ParísarsamkomulagiðDonald Trump hefur margoft haldið því fram að það sé ekkert sem bendi til þess að loftslagið á jörðinni sé að hlýna. Hann hefur hvatt til frekari olíuvinnslu, bor- unum eftir jarðgasi og að fækka reglugerðum við vinnslu jarðefna- eldsneytis. Parísarsamkomulagið, sem 195 lönd samþykktu, telur Trump vera slæmt fyrir bandarísk viðskipti. Í kosningabaráttunni hvatti hann til þess að Bandaríkin drægju sig út úr samkomu- laginu. Á síðustu árum hefur Trump birt tugi tísta þar sem hann þvertekur fyrir að hlýnun jarðar sé vandamál. Í einu þeirra segir hann að Kínverjar hafi fundið upp gróðurhúsaáhrifin til þess að lama bandarískan iðnað. Í öðru kvartar hann yfir kulda í New York borg og spyr hvar í fjandanum megi finna fyrir þessari hlýnun jarðar. 9. Umbætur í WashingtonEitt af loforðum Trumps var að útrýma peningasjóðunum úr bandarískum stjórnmálum. Hann segist ætla að koma í veg fyrir spill- ingu og hagsmunapólitík og hann sé fullkominn í það starf því ekki sé hægt að kaupa hann. Í stefnu- skrá Trumps eru hugmyndir um að takmarka setu í fulltrúadeild Bandaríkjaþings við ákveðinn fjölda kjörtímabila og að banna fyrrverandi starfsmönnum Hvíta hússins og þinghússins að gerast lobbýistar fyrstu fimm árin eftir að störfum lýkur. 10. Reisa múrDonald Trump hefur ítrekað, frá fyrstu framboðsræðu sinni og allt þangað til hann náði kjöri, að hann ætli að reisa múr á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó. Trump nýtur lítilla vin- sælda í Mexíkó því auk hugmynda hans um að reisa múr á landamær- unum hefur hann kallað Mexíkóa dópsala, glæpamenn og nauðgara. Landamærin eru um 3.200 kíló- metrar að lengd og bandarísk verktakafyrirtæki hafa metið kostnaðinn við byggingu múrsins á milli 15 til 25 milljarða dollara. Einnig hyggst Trump vísa öllum ólöglegum innflytjendum úr landi en fjöldi þeirra hleypur á milljón- um. Þrátt fyrir þessa orðræðu hlaut Trump meira fylgi hjá spænskætt- uðum Bandaríkjamönnum en Mitt Romney, forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins, gerði árið 2012. thorgeirh@frettabladid.is Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannes- son, hefur í dag, miðviku- daginn 9. nóvember, sent Donald Trump, nýkjörnum forseta Bandaríkjanna, heillaóskir frá sér og íslensku þjóðinni í kjölfar sigurs hans í forsetakosning- unum. Guðni Th. Jóhannesson, for- seti Íslands Maður sér ekki í fljótu bragði að þetta hafi áhrif á samskipti Íslands og Bandaríkj- anna. Geir H. Haarde, sendiherra Íslands í Bandaríkjunum Milli ríkjanna hefur ríkt mikil og góð vinátta um áratugaskeið og leggur forsætisráðherra í bréfi sínu áherslu á áfram- haldandi gott samstarf og samvinnu, bæði tvíhliða og á alþjóðavett- vangi. Sigurður Ingi Jóhannsson, for- sætisráðherra Niðurstaðan er ákall um kerfisbreytingar í bandarísku samfélagi og kjósendur telja að Trump sé líklegri til að koma þeim á. Lilja Alfreðsdóttir, utanríkisráðherra Verð að segja að ég er mjög döpur. Málflutningur þröngsýni og haturs virðist hafa haft sigur í nótt. Katrín Jakobs- dóttir, formaður Vinstri grænna Viðbrögð leiðtoga við úrslitum kosninganna 1 0 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 F I m m T U D A G U r10 F r é T T I r ∙ F r é T T A b L A ð I ð 1 0 -1 1 -2 0 1 6 0 4 :2 5 F B 0 8 0 s _ P 0 7 1 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 7 0 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B 3 D -F B 8 4 1 B 3 D -F A 4 8 1 B 3 D -F 9 0 C 1 B 3 D -F 7 D 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 9 B F B 0 8 0 s _ 9 _ 1 1 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.