Fréttablaðið - 10.11.2016, Side 10
1. Múslimum bannað að koma til Bandaríkjanna
Donald Trump eyddi
miklu púðri í kosn-
ingabaráttunni í
að ræða um íslam.
Í viðtali í vor sagði
Trump að íslam
ýtti undir hatur
á Bandaríkjunum.
Trump lagði til að múslimum yrði
bannað að koma til Bandaríkjanna
þangað til kennisetningunum væri
breytt.
Mike Pense, tilvonandi vara-
forseti Bandaríkjanna, gagnrýndi
Trump fyrir ummælin og sagði
þau vera móðgandi og brjóta gegn
stjórnarskránni. Þegar leið á kosn-
ingabaráttuna dró Trump aðeins
úr yfirlýsingunni en hana má þó
enn finna á kosningavef Trumps.
2. Obamacare lagt niðurSíðustu mánuði lofaði Trump
því sýknt og heilagt
að hann myndi
fella niður
Obama care og
koma á nýju heil-
brigðiskerfi, þegar
hann yrði kjörinn
forseti.
Frá því að Obamacare var
sett á laggirnar árið 2010 hafa
rúmlega 20 milljónir Bandaríkja-
manna bæst í hóp þeirra sem hafa
heilbrigðistryggingu. Hlutfall
ótryggðra Bandaríkjamanna hefur
aldrei verið jafn lágt en það er um
það bil 8,9 prósent.
Trump hyggst koma á fót eigin
kerfi sem býður upp á val, gæði og
er á viðráðanlegu verði. Til þess að
ná því fram þarf Trump á stuðn-
ingi 60 þingmanna í öldungadeild
Bandaríkjaþings að halda. Það er
lágmarksfjöldi atkvæða til þess að
koma í veg fyrir málþóf Demó-
krata en öldungadeildarþingmenn
úr röðum Repúblikana eru 51
talsins.
3. Endursamið um viðskiptasamninga
Trump hefur talað um að við-
skiptasamningar Bandaríkjanna
við önnur ríki séu vonlausir og
hefur hann lofað því að semja upp
á nýtt. Í sumar sagði Trump að
hann myndi draga Bandaríkin úr
Alþjóðaviðskiptastofnuninni yrði
hann kjörinn forseti. Hann segir
stofnunina stuðla að viðskipta-
ójöfnuði í landinu og hana vera
stórslys. Einnig muni Bandaríkin
yfirgefa samtök olíuútflutnings-
landa.
Hann hyggst semja aftur við
Kanada og Mexíkó um NAFTA-
fríverslunarsamninginn og við
Kyrrahafsríki um TPP-fríversl-
unarsamningin. Enda telur hann
að Bandaríkin hafi verið hlunn-
farin við samningagerðina.
4. Ausa fé í herinnÁ stefnuskrá Trumps er að
auka fjárútgjöld til hersins um 500
milljarða dollara næsta áratuginn.
Meðal annars til þess að glíma við
uppgang Íslamska ríkisins. Hann
telur þörf á að fjölga hermönnum
10 hlutir
sem Trump
hefur sagst
ætla að gera sem
forseti
Donald Trump boðaði miklar breytingar í banda-
rískum þjóðfélagsmálum í kosningabaráttu sinni til
forseta Bandaríkjanna. Hvort hann standi við loforð
sín, eins og að hefja á ný vatnspyndingar eða banna
múslimum að koma til Bandaríkjanna, á tíminn
eftir að leiða í ljós.
um 50 þúsund, herskipum um
rúmlega 80 og herflugvélum um
rúmlega hundrað.
Til þess að greiða fyrir útgjöld-
unum hyggst Trump biðja
fulltrúadeild Bandaríkjaþings
að hætta að takmarka eyðslufé
varnarmálaráðuneytisins. Hann
hyggst fjármagna útgjöldin með
því að rukka inn ógreidda skatta,
með niðurskurði í almannakerf-
inu, koma upp um tryggingasvindl
og hækka skatta á orkufyrirtæki.
5. SkattalækkanirTrump leggur til
gríðarlega umfangs-
miklar breytingar á
skattkerfinu. Tekju-
skattskerfi Banda-
ríkjanna byggir á
sjö þrepum. Frá
tíu prósenta skatti
upp í 39,6 prósent. Í stefnuskrá
Trumps leggur hann til þriggja
þrepa skattkerfi með 12, 25 og 33
prósenta þrepum. Trump hyggst
lækka fyrirtækjaskatt úr 35 pró-
sentum í fimmtán prósent og
afnema allan erfðafjárskatt.
Samkvæmt skattstefnumið-
stöðinni í Bandaríkjunum munu
skattalækkanir Trumps minnka
tekjur ríkissjóðs um rúmlega
6.200 milljarða dollara næstu
tíu árin. Rúmlega 47 prósent af
skattalækkununum munu renna
til ríkasta eins prósentsins, en
þær munu koma verst út hjá þeim
tekjulægstu.
6. PyndingarFyrr á árinu hótaði Trump
því að ef hann yrði kjörinn forseti
myndi hann láta drepa fjölskyldu-
meðlimi þeirra sem hann telur
Bandaríkjunum stafa ógn af.
Hann lofaði því að hann myndi
innleiða á ný vatnspyndingar og
aðrar pyndingaraðferðir. Trump
sagði að styrkja þyrfti lögin svo að
Bandaríkin gætu átt auðveldara
með að glíma við Íslamska ríkið.
Eftir að hafa verið harðlega gagn-
rýndur af hershöfðingjum og fyrr-
verandi yfirmanni leyniþjónustu
Bandaríkjanna dró Trump aðeins
í land. Hann viðurkenndi að
hann gæti ekki neytt hermenn til
þess að brjóta gegn alþjóðlegum
sáttmálum og lögum en að hann
myndi hins vegar reyna að auka
valdheimildir hermanna fyrir
bandaríska þinginu til þess að
berjast við Íslamska ríkið.
7. Verndarskattur TrumpsTrump hefur hótað því
að koma ekki öðrum þjóðum
í Atlantshafsbandalaginu til
aðstoðar greiði þær ekki sann-
gjarnan hlut af útgjöldum banda-
lagsins. Eystrasaltslöndin hafa
tekið þessar hótanir mjög alvar-
lega, sérstaklega í ljósi aðdáunar
Trumps á Pútín. Aðspurður hvort
hann myndi koma Eystrasalts-
löndunum til varnar ef Rússar
gerðu innrás neitaði Trump að
svara. Hann gæti aðeins svarað
spurningunni játandi ef löndin
hefðu borgað sinn hlut til banda-
lagsins.
8. ParísarsamkomulagiðDonald Trump hefur margoft
haldið því fram að það sé ekkert
sem bendi til þess að loftslagið á
jörðinni sé að hlýna. Hann hefur
hvatt til frekari olíuvinnslu, bor-
unum eftir jarðgasi og að fækka
reglugerðum við vinnslu jarðefna-
eldsneytis. Parísarsamkomulagið,
sem 195 lönd samþykktu,
telur Trump vera slæmt
fyrir bandarísk viðskipti. Í
kosningabaráttunni hvatti
hann til þess að Bandaríkin
drægju sig út úr samkomu-
laginu.
Á síðustu árum hefur
Trump birt tugi tísta þar
sem hann þvertekur fyrir að
hlýnun jarðar sé vandamál.
Í einu þeirra segir hann að
Kínverjar hafi fundið upp
gróðurhúsaáhrifin til þess
að lama bandarískan
iðnað. Í öðru kvartar
hann yfir kulda í New
York borg og spyr
hvar í fjandanum
megi finna fyrir
þessari hlýnun jarðar.
9. Umbætur í WashingtonEitt af loforðum Trumps var
að útrýma peningasjóðunum úr
bandarískum stjórnmálum. Hann
segist ætla að koma í veg fyrir spill-
ingu og hagsmunapólitík og hann
sé fullkominn í það starf því ekki
sé hægt að kaupa hann. Í stefnu-
skrá Trumps eru hugmyndir um
að takmarka setu í fulltrúadeild
Bandaríkjaþings við ákveðinn
fjölda kjörtímabila og að banna
fyrrverandi starfsmönnum Hvíta
hússins og þinghússins að gerast
lobbýistar fyrstu fimm árin eftir að
störfum lýkur.
10. Reisa múrDonald Trump hefur
ítrekað, frá fyrstu framboðsræðu
sinni og allt þangað til hann náði
kjöri, að hann ætli að reisa múr á
landamærum Bandaríkjanna og
Mexíkó. Trump nýtur lítilla vin-
sælda í Mexíkó því auk hugmynda
hans um að reisa múr á landamær-
unum hefur hann kallað Mexíkóa
dópsala, glæpamenn og nauðgara.
Landamærin eru um 3.200 kíló-
metrar að lengd og bandarísk
verktakafyrirtæki hafa metið
kostnaðinn við byggingu múrsins
á milli 15 til 25 milljarða dollara.
Einnig hyggst Trump vísa öllum
ólöglegum innflytjendum úr landi
en fjöldi þeirra hleypur á milljón-
um. Þrátt fyrir þessa orðræðu hlaut
Trump meira fylgi hjá spænskætt-
uðum Bandaríkjamönnum en Mitt
Romney, forsetaframbjóðandi
Repúblikanaflokksins, gerði árið
2012. thorgeirh@frettabladid.is
Forseti Íslands,
Guðni Th. Jóhannes-
son, hefur í dag, miðviku-
daginn 9. nóvember, sent
Donald Trump, nýkjörnum
forseta Bandaríkjanna,
heillaóskir frá sér og íslensku
þjóðinni í kjölfar sigurs hans
í forsetakosning-
unum.
Guðni Th.
Jóhannesson, for-
seti Íslands
Maður sér ekki í
fljótu bragði að
þetta hafi áhrif á samskipti
Íslands og
Bandaríkj-
anna.
Geir H. Haarde,
sendiherra Íslands í
Bandaríkjunum
Milli ríkjanna hefur
ríkt mikil og góð
vinátta um áratugaskeið og
leggur forsætisráðherra í
bréfi sínu áherslu á áfram-
haldandi gott samstarf og
samvinnu, bæði tvíhliða og á
alþjóðavett-
vangi.
Sigurður Ingi
Jóhannsson, for-
sætisráðherra
Niðurstaðan er ákall
um kerfisbreytingar
í bandarísku samfélagi og
kjósendur telja
að Trump sé
líklegri til að
koma þeim á.
Lilja Alfreðsdóttir,
utanríkisráðherra
Verð að segja að ég
er mjög döpur.
Málflutningur þröngsýni og
haturs virðist
hafa haft sigur
í nótt.
Katrín Jakobs-
dóttir, formaður
Vinstri grænna
Viðbrögð leiðtoga við úrslitum kosninganna
1 0 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 F I m m T U D A G U r10 F r é T T I r ∙ F r é T T A b L A ð I ð
1
0
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:2
5
F
B
0
8
0
s
_
P
0
7
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
7
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
3
D
-F
B
8
4
1
B
3
D
-F
A
4
8
1
B
3
D
-F
9
0
C
1
B
3
D
-F
7
D
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
9
B
F
B
0
8
0
s
_
9
_
1
1
_
2
0
1
6
C
M
Y
K