Fréttablaðið - 10.11.2016, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 10.11.2016, Blaðsíða 8
WA OR MT ND MN MI WI IL IN OH PA NY MEVT NH MA RI CT NJ DE MD DCWV KY TN MS AL GA SC NC VA FL IA MO AR LA SD NE KS OK TX WY ID NV UT AZ AK HI NM COCA n al | Alabama 9 n ak | Alaska 3 n az | Arizona 11 n ar | Arkansas 6 n ca | Kalifornía 55 n co | Colorado 9 n ct | Connecticut 7 n dc | Washington DC 3 n de | Delaware 3 n fl | Flórída 29 n ga | Georgía 16 n hi | Havaí 4 n id | Idaho 4 n il | Illinois 20 n in | Indiana 11 n ia | Iowa 6 n ks | Kansas 6 n ky | Kentucky 8 n la | Louisiana 8 n me | Maine 4 n md | Maryland 10 n ma | Massachusetts 11 n mi | Michigan 16 n mn | Minnesota 10 n ms | Mississippi 6 n mo | Missouri 10 n mt | Montana 3 n ne | Nebraska 5 n nv | Nevada 6 n nh | New Hampshire 4 n nj | New Jersey 14 n nm | Nýja-Mexíkó 5 n ny | New York 29 n nc | Norður-Karólína 15 n nd | Norður-Dakóta 3 n oh | Ohio 18 n ok | Oklahoma 7 n or | Oregon 7 n pa | Pennsylvanía 20 n ri | Rhode Island 4 n sc | Suður-Karólína 9 n sd | Suður-Dakóta 3 n tn | Tennessee 11 n tx | Texas 38 n ut | Utah 6 n vt | Vermont 3 n va | Virginía 13 n wa | Washington 12 n wv | Vestur-Virginía 5 n wi | Wisconsin 10 n wy | Wyoming 3 ✿ Niðurstöður kosninganna Kjörmenn, kosnir af almennum kjósendum, kjósa forsetann – 270 atkvæði þarf til sigurs ✿ Bandaríkjaþing Öldungadeild 100 þingsæti alls Kosið var um 34 þingsæti til sex ára 47 Demókratar 193 Demókratar 51 Repúblikanar 239 Repúblikanar 2 Óháðir Fulltrúadeild 435 þingsæti alls BaNdaríkiN Sigur Donalds Trump í forsetakosningunum í Bandaríkj- unum hefur skotið ýmsum skelk í bringu, þar á meðal minnihlutahóp- um á borð við ólöglega innflytjendur og múslimakonur. „Börnin eru hrædd,“ var til dæmis haft eftir konu af rómönskum upp- runa í Los Angeles á fréttavef dag- blaðsins LA Times. Og bandarísk múslimakona skrif- aði þetta á Twitter-síðu sína: „Ég ótt- ast að dagurinn í dag verði sá síðasti sem mér hefur fundist ég vera sæmi- lega örugg með slæðuna.“ Í Kaliforníu, New York og víðar hefur fólk haldið út á götur til að mót- mæla hinum nýkjörna forseta. Sjálfur lagði Trump sig hins vegar fram um það að róa fólk og boðaði sættir í ávarpi sínu í gærmorgun, þegar úrslitin voru komin í ljós: „Ég heiti því að verða forseti allra Banda- ríkjamanna, og þetta skiptir mig miklu máli.“ Hann hét því að sýna öllum sann- girni og eiga gott samstarf við allar þjóðir heims. Svo ætlar hann að tvö- falda hagvöxt Bandaríkjanna og fá andstæðinga sína til liðs við sig. Clinton sagðist í símtali sínu við Trump, stuttu áður en hann flutti ávarp sitt, hafa boðist til þess að starfa með honum að málefnum Banda- ríkjanna og hún sagðist vonast til þess að hann muni reynast vel: „Ég veit hve vonsvikin þið eruð því ég er það líka,“ sagði hún. „Þetta er sársaukafullt og mun verða það lengi.“ Hins vegar verði Bandaríkjamenn að viðurkenna úrslitin og una þeim: „Stjórnarskrárbundið lýðræði okkar krefst þess að við tökum þátt, ekki bara á fjögurra ára fresti heldur alltaf.“ Hillary Clinton fékk fleiri atkvæði en Donald Trump í forsetakosning- unum á þriðjudag, en tapaði engu að síður. Það stafar af því að hún fær ekki jafn marga kjörmenn. Hún var komin með um það bil 150 þúsund atkvæðum meira en Trump þegar búið var að telja rúmlega 98 prósent atkvæða, en allt stefndi í að Trump fengi vel yfir 300 kjörmenn af 438, sem dugar honum ríflega til sigurs. Þetta hefur gerst fjórum sinnum áður í sögu forsetakosninga í Banda- ríkjunum, síðast árið 2000 þegar Repúblikaninn George W. Bush sigr- aði Demókratann Al Gore sem hafði fengið fleiri atkvæði. Trump hefur með sér meirihluta Repúblikanaflokksins í báðum deildum Bandaríkjaþings, en sú staða hefur verið harla sjaldgæf á síðustu áratugum. Þar með mætti ætla að Trump muni eiga frekar auðvelt með að koma stefnumálum sínum í gegnum þingið. Þótt Bandaríkjaforseti geti verið valdamikill með öflugan þingmeiri- hluta sér við hlið, þá er völdum hans veruleg takmörk sett ef þingið er ekki með honum. Þingið þarf til dæmis að samþykkja öll útgjöld, til dæmis ef reisa á múr við landamæri Mexíkó, og þingið þarf að vera fylgjandi hernaði sem Trump gæti viljað hrinda af stað. Eitt af því fyrsta sem nýkjörið þing gæti hins vegar komið í framkvæmd, með Trump í fararbroddi, er að koll- varpa heilbrigðisþjónustulöggjöf Baracks Obama sem hefur verið eitt helsta hitamálið í bandarískum stjórnmálum árum saman. „Þegar Trump tekur formlega við embættinu 20. janúar næstkomandi verður hann 70 ára gamall og kominn 220 daga inn á 71. árið. Þar með verður hann elstur allra forseta Bandaríkjanna á innsetning- ardegi. Næstur kemur Ronald Reagan sem var 69 ára og 349 daga þegar hann tók við embætti árið 1981. Trump lofar að sýna öllum sanngirni Donald Trump verður næsti forseti Bandaríkjanna og heitir því að verða forseti allra Bandaríkjamanna. Hillary Clinton, sem tapaði þrátt fyrir að hafa fengið fleiri atkvæði, vonast til þess að hann muni reynast vel en segir úrslitin sár vonbrigði. Donald Trump ásamt Mike Pence þegar úrslitin voru orðin ljós snemma í gærmorgun. Trump tekur við forsetaembættinu 20. janúar næstkomandi og Pence verður varaforseti hans. NORDICPHOTOS/AFP Demókrati Hillary Clinton Repúblikani Donald Trump 22 8 279 Ríkin sem hún vann sigur í Ríkin sem hann vann sigur í 20 28 kjör Donalds Trump í embætti forseta Bandaríkjanna getur haft mikil áhrif á Hæstarétt Banda- ríkjanna. Enn á eftir að skipa í stöðu níunda dómarans eftir að öldunga- deild Bandaríkjaþings neitaði að taka tilnefningu Baracks Obama á Merrick Garland til meðferðar. Hefði sú skipun verið samþykkt hefðu Demó- kratar náð meirihluta í réttinum í fyrsta skipti í meira en hálfa öld. Donald Trump, fyrstur forseta- frambjóðenda í sögunni, lagði fram lista í kosningabaráttunni yfir þá sem honum finnst að gætu sest í hæsta- rétt Bandaríkjanna. Trump hét því í kosningabaráttunni að hann myndi skipa íhaldssaman dómara sem myndi vernda skotvopnaréttindi, snúa við eins og hálfs árs gömlum dómi um lögleiðingu hjónabands samkynhneigðra og snúa við dómi frá árinu 1971 sem samþykkti rétt kvenna til að gangast undir fóstur- eyðingu. Niðurstaða kosninganna kann að hafa haft áhrif á hvort Ruth Bader Ginsburg, 83 ára, og Stephen Breyer, 78 ára, sjái sér fært að setjast í helgan stein á kjörtímabilinu, en þau voru bæði skipuð af Demókrötum. Ákveði þau hins vegar að láta af störfum má gera ráð fyrir að Repúblikanar haldi meirihluta í réttinum næstu árin og jafnvel áratugina. Guðsteinn Bjarnason gudsteinn@frettabladid.is 1 0 . N ó v e m B e r 2 0 1 6 F i m m T U d a G U r8 F r é T T i r ∙ F r é T T a B L a ð i ð 1 0 -1 1 -2 0 1 6 0 4 :2 5 F B 0 8 0 s _ P 0 7 3 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 6 8 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B 3 D -E 7 C 4 1 B 3 D -E 6 8 8 1 B 3 D -E 5 4 C 1 B 3 D -E 4 1 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 0 8 0 s _ 9 _ 1 1 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.