Fréttablaðið - 10.11.2016, Síða 62

Fréttablaðið - 10.11.2016, Síða 62
Óperukórinn í Reykjavík syngur Sálumessu Verdis – Verdi Requiem í Langholtskirkju á morgun, föstu- daginn 11. nóvember klukkan 20, ásamt einsöngvurunum Þóru Einarsdóttur, Sesselju Kristjáns- dóttur, Gissuri Páli Gissurarsyni og Viðari Gunnarssyni. Félagar úr Sinfóníuhljómsveit Íslands leika og stjórnandi er Garðar Cortes. Viðburðurinn er í minningu Jóns Stefánssonar organista en á morg- un er ár liðið frá síðasta heila deg- inum í lífi hans, því 12. nóvember í fyrra lenti hann í bílslysi og náði aldrei meðvitund aftur. „Við Jón vorum samferðamenn og þegar Jón var með allar sínar Bach-kantötur og Händel-stykki, fékk hann mig til að syngja fyrir sig. Þannig hófst okkar samstarf og vináttan entist þangað til hann fór. Við sem stöndum að þessum flutningi nú, um 130 manns, áttum sálumessuna í handrað- anum, við fluttum hana árið 2013 í tilefni af 200 ára afmæli Verdis. Vorum beðin um að fara með hana til Rússlands en það slóst af og okkur fannst við hæfi að minnast Jóns með því að flytja hana núna. Þá tökum við líka þátt í því að afla fjár í minningar- sjóðinn sem stofnaður hefur verið um hann og er í vörslu Listafélags Langholtskirkju, ágóði af tónleik- unum mun renna í þann sjóð.“ – gun Sálumessa sungin í minningu Jóns Stefánssonar organista „Jón fékk mig oft til að syngja og vinátta okkar entist þar til hann fór,“ segir Garðar Cortes söngvari og stjórnandi Óperukórsins. Fréttablaðið/PJetur Bækur Þættir af séra Þórarinum og fleirum HHHHH Þórarinn Eldjárn Útgefandi: Vaka-Helgafell Fjöldi síðna: 147 bls. Kápa: Sigurður Oddsson Prentun: Oddi Þættir af séra Þórarinum og fleirum, eftir Þórarin Eldjárn, er áttunda smásagnasafn höfundar. Yfirlætis- lausar smásögur, eða öllu heldur þættir, sem láta lítið yfir sér og sækja sögusvið sitt í hversdaginn sem er auðvitað borinn uppi af venjulegu fólki, við venjulegar aðstæður en á stundum eilítið á skjön við veru- leikann. Tekst á við þennan alltum- lykjandi hversdag í lífi okkar sem okkur er helst gerlegt að brjótast undan með ímyndunaraflið að vopni. Enda geta hugrenningar, hug- myndir og ímyndunarafl reynst allt eins mikilvægar ef ekki mikilvægari en eiginleg framvinda eða atburðir í þáttum Þórarins. Persónur þátt- anna láta sig dreyma, rifja upp liðna tíð, velta vöngum yfir framtíðinni og óttast jafnvel það sem hún ber í skauti sér þegar verst lætur. Upphafssetning fyrstu sögunnar, Hans heilagleiki, gefur tóninn: „Þegar Hans vaknaði morgun einn draumstola í rúmi sínu fann hann undireins að eitthvað mikið og merkilegt hafði gerst með hann um nóttina.“ (Bls. 7) Persónan Hans heldur draumstola til móts við nýjan dag sem heilagur maður og lifir þann draum sem eflaust hefur blundað með honum lengi. Og er það ekki einmitt það sem við þráum og óttumst í senn; að lifa drauminn og upplifa martröðina? Þessi draumsins þrá og hugsunin um hvað ef og hefði er rauði þráður- inn í þessum þáttum Þórarins. Flest- ar eru sögurnar einfaldar í byggingu og yfirlætislausar en þær leyna á sér. Þegar maður skoðar þær í samhengi og heild öðlast þær aukið vægi og vídd og því rétt að hvetja lesendur til þess að gefa sér góðan tíma. Meiri tíma en sögurnar kalla á við fyrsta lestur. Listin að segja sögur af misvenju- legu fólki í óvenjulegum aðstæðum er Þórarni líka hugleikin. Skáldið skilgreinir líka verk sitt inn í þessa íslensku hefð þáttanna fremur en að vísa til smásögunnar og hann virð- ist jafnvel vera heillaður af þessum sagnabrunni. Ákveðna vísbendingu þess efnis er til að mynda að finna í Músin sem æðir, ákaflega einfaldri en skemmtilegri frásögn og hug- renningum aðalpersónunnar úr biðröðinni í Elko. „Þetta lagaðist auðvitað mikið þegar ég söðlaði um og yfirgaf list- ferilinn, sótti um myndmennta- kennsluna á Ýsufirði og settist þar að. Þá kynntist ég fyrst ýmsum ættingjum mínum föðurmegin, fékk þannig beinan aðgang að tals- verðum sagnasjóði af einkenni- legum mönnum á þeim slóðum og gat með nokkrum rétti sagt eftir það að ég ætti mér þrátt fyrir allt mína purpurakápu.“ (Bls. 92) Yfirvegaður lestur gefur líka Hvað ef og hefði Þá tökum við líka Þátt í Því að afla fjár í minningarsjóðinn sem stofnaður hefur verið um hann og er í vörslu listafélags langholts- kirkju. 365.is Sími 1817 Í KVÖLD KL. 19:20 Stöð 2, Vísir, Góa, Fjarðarkaup og Sena Live standa fyrir söngkeppni fyrir unga snillinga fimmta árið í röð. Sigurvegari keppninnar kemur fram á stærsta sviði landsins með aragrúa af stjörnum laugardaginn 10. desember á stórtónleikunum Jólagestir Björgvins. Kynnir þáttanna er Rúnar Freyr Gíslason og dómnefndina skipa þau Björgvin Halldórsson, Jóhanna Guðrún og Gissur Páll. JÓLASTJARNAN 2016 NÝTT 1 0 . n ó v E m B E r 2 0 1 6 F I m m T u D A G u r50 m E n n I n G ∙ F r É T T A B L A ð I ð 1 0 -1 1 -2 0 1 6 0 4 :2 5 F B 0 8 0 s _ P 0 7 9 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 6 2 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 B 3 D -A C 8 4 1 B 3 D -A B 4 8 1 B 3 D -A A 0 C 1 B 3 D -A 8 D 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 8 0 s _ 9 _ 1 1 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.