Fréttablaðið - 10.11.2016, Qupperneq 62
Óperukórinn í Reykjavík syngur
Sálumessu Verdis – Verdi Requiem
í Langholtskirkju á morgun, föstu-
daginn 11. nóvember klukkan
20, ásamt einsöngvurunum Þóru
Einarsdóttur, Sesselju Kristjáns-
dóttur, Gissuri Páli Gissurarsyni
og Viðari Gunnarssyni. Félagar úr
Sinfóníuhljómsveit Íslands leika
og stjórnandi er Garðar Cortes.
Viðburðurinn er í minningu Jóns
Stefánssonar organista en á morg-
un er ár liðið frá síðasta heila deg-
inum í lífi hans, því 12. nóvember
í fyrra lenti hann í bílslysi og náði
aldrei meðvitund aftur.
„Við Jón vorum samferðamenn
og þegar Jón var með allar sínar
Bach-kantötur og Händel-stykki,
fékk hann mig til að syngja fyrir
sig. Þannig hófst okkar samstarf
og vináttan entist þangað til hann
fór.
Við sem stöndum að þessum
flutningi nú, um 130 manns,
áttum sálumessuna í handrað-
anum, við fluttum hana árið
2013 í tilefni af 200 ára afmæli
Verdis. Vorum beðin um að fara
með hana til Rússlands en það
slóst af og okkur fannst við hæfi
að minnast Jóns með því að flytja
hana núna. Þá tökum við líka
þátt í því að afla fjár í minningar-
sjóðinn sem stofnaður hefur verið
um hann og er í vörslu Listafélags
Langholtskirkju, ágóði af tónleik-
unum mun renna í þann sjóð.“
– gun
Sálumessa sungin í minningu Jóns Stefánssonar organista
„Jón fékk mig oft til að syngja og vinátta okkar entist þar til hann fór,“ segir Garðar
Cortes söngvari og stjórnandi Óperukórsins. Fréttablaðið/PJetur
Bækur
Þættir af séra Þórarinum og
fleirum
HHHHH
Þórarinn Eldjárn
Útgefandi: Vaka-Helgafell
Fjöldi síðna: 147 bls.
Kápa: Sigurður Oddsson
Prentun: Oddi
Þættir af séra Þórarinum og fleirum,
eftir Þórarin Eldjárn, er áttunda
smásagnasafn höfundar. Yfirlætis-
lausar smásögur, eða öllu heldur
þættir, sem láta lítið yfir sér og sækja
sögusvið sitt í hversdaginn sem er
auðvitað borinn uppi af venjulegu
fólki, við venjulegar aðstæður en
á stundum eilítið á skjön við veru-
leikann. Tekst á við þennan alltum-
lykjandi hversdag í lífi okkar sem
okkur er helst gerlegt að brjótast
undan með ímyndunaraflið að
vopni. Enda geta hugrenningar, hug-
myndir og ímyndunarafl reynst allt
eins mikilvægar ef ekki mikilvægari
en eiginleg framvinda eða atburðir
í þáttum Þórarins. Persónur þátt-
anna láta sig dreyma, rifja upp liðna
tíð, velta vöngum yfir framtíðinni
og óttast jafnvel það sem hún ber í
skauti sér þegar verst lætur.
Upphafssetning fyrstu sögunnar,
Hans heilagleiki, gefur tóninn:
„Þegar Hans vaknaði morgun einn
draumstola í rúmi sínu fann hann
undireins að eitthvað mikið og
merkilegt hafði gerst með hann um
nóttina.“ (Bls. 7) Persónan Hans
heldur draumstola til móts við
nýjan dag sem heilagur maður og
lifir þann draum sem eflaust hefur
blundað með honum lengi. Og er
það ekki einmitt það sem við þráum
og óttumst í senn; að lifa drauminn
og upplifa martröðina?
Þessi draumsins þrá og hugsunin
um hvað ef og hefði er rauði þráður-
inn í þessum þáttum Þórarins. Flest-
ar eru sögurnar einfaldar í byggingu
og yfirlætislausar en þær leyna á sér.
Þegar maður skoðar þær í samhengi
og heild öðlast þær aukið vægi og
vídd og því rétt að hvetja lesendur
til þess að gefa sér góðan tíma. Meiri
tíma en sögurnar kalla á við fyrsta
lestur.
Listin að segja sögur af misvenju-
legu fólki í óvenjulegum aðstæðum
er Þórarni líka hugleikin. Skáldið
skilgreinir líka verk sitt inn í þessa
íslensku hefð þáttanna fremur en að
vísa til smásögunnar og hann virð-
ist jafnvel vera heillaður af þessum
sagnabrunni. Ákveðna vísbendingu
þess efnis er til að mynda að finna í
Músin sem æðir, ákaflega einfaldri
en skemmtilegri frásögn og hug-
renningum aðalpersónunnar úr
biðröðinni í Elko.
„Þetta lagaðist auðvitað mikið
þegar ég söðlaði um og yfirgaf list-
ferilinn, sótti um myndmennta-
kennsluna á Ýsufirði og settist þar
að. Þá kynntist ég fyrst ýmsum
ættingjum mínum föðurmegin,
fékk þannig beinan aðgang að tals-
verðum sagnasjóði af einkenni-
legum mönnum á þeim slóðum og
gat með nokkrum rétti sagt eftir það
að ég ætti mér þrátt fyrir allt mína
purpurakápu.“ (Bls. 92)
Yfirvegaður lestur gefur líka
Hvað ef og hefði
Þá tökum við líka
Þátt í Því að afla
fjár í minningarsjóðinn
sem stofnaður hefur verið
um hann og er í vörslu
listafélags langholts-
kirkju.
365.is Sími 1817
Í KVÖLD KL. 19:20
Stöð 2, Vísir, Góa, Fjarðarkaup og Sena Live standa fyrir söngkeppni fyrir unga snillinga fimmta árið í röð.
Sigurvegari keppninnar kemur fram á stærsta sviði landsins með aragrúa af stjörnum laugardaginn 10. desember á
stórtónleikunum Jólagestir Björgvins. Kynnir þáttanna er Rúnar Freyr Gíslason og dómnefndina skipa þau Björgvin
Halldórsson, Jóhanna Guðrún og Gissur Páll.
JÓLASTJARNAN 2016
NÝTT
1 0 . n ó v E m B E r 2 0 1 6 F I m m T u D A G u r50 m E n n I n G ∙ F r É T T A B L A ð I ð
1
0
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:2
5
F
B
0
8
0
s
_
P
0
7
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
3
D
-A
C
8
4
1
B
3
D
-A
B
4
8
1
B
3
D
-A
A
0
C
1
B
3
D
-A
8
D
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
8
0
s
_
9
_
1
1
_
2
0
1
6
C
M
Y
K