Fréttablaðið - 10.11.2016, Blaðsíða 56

Fréttablaðið - 10.11.2016, Blaðsíða 56
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@365.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid. is eða hringja í síma 512 5000. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og sonur, Kristþór Halldórsson Moldhaugum, lést á lyflækningadeild Sjúkrahússins á Akureyri, þriðjudaginn 8. nóvember. Jarðarförin verður auglýst síðar. Ása Björk Þorsteinsdóttir Sigríður Kristín Kristþórsdóttir Gunnar Reynisson Elmar Freyr Kristþórsson Agnes Þóra Kristþórsdóttir Andri Már Sigurðsson Halldór Árnason og barnabörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Þorfinnur Óli Tryggvason Réttarheiði 12, Hveragerði, lést á Sjúkrahúsi Suðurlands 28. október sl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Sérstakar þakkir til lækna og starfsfólks krabbameinsdeildar Landspítala. Alda Berg Óskarsdóttir Steinunn Þorfinnsdóttir Sigurður Kristófersson Anna Margrét Þorfinnsdóttir Ásgeir Andrason Tryggvi Óli Þorfinnsson Margrét Guðmundsdóttir Björn Ingi Sverrisson barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Guðrún Sigbjörnsdóttir Akureyri, er látin. Kristín Gunnarsdóttir Gunnar Kristinsson Gunnar Gunnarsson Guðbjörg Þorvaldsdóttir barnabörn og langömmubörn. Okkar ástkæri faðir, tengdafaðir, afi, langafi og okkar besti vinur, Hilmar Vilhjálmsson fyrrverandi forstjóri, lést á sjúkrahúsi í Bad Reichenhall 20. október. Minningarathöfn verður föstudaginn 11. nóvember kl. 16.30 í Hjallakirkju. Hallgrímur Kr. Hilmarsson Nijole Hilmarsson Hafdís Hilmarsdóttir Baldvin Baldvinsson Berglind Hilmarsdóttir Óskar Borg Elín Brynja Hilmarsdóttir Eyjólfur Kr. Kolbeins barnabörn og langafabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar og systir, Guðríður Ósk Jóhannesdóttir Þorrasölum 2, Kópavogi, f. 18. nóvember 1967, lést á líknardeild Landspítalans Kópavogi, þann 4. nóvember síðastliðinn. Jarðarförin fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 11. nóvember kl. 15.00. Jaap de Wagt, Sientje Sólbjört Nína de Wagt, Alex Matthías Dagur de Wagt, Sigurður Ingvar Geirsson, Viðar Geirsson, Hannes Geirsson, Anton Jóhannesson, Guðjón Jóhannesson Elskulegur unnusti minn, stjúpfaðir, sonur og bróðir, Friðjón Fannar Hermannsson Laugateig 54, Reykjavík, varð bráðkvaddur á heimili sínu 30. október sl. Útförin fer fram frá Hallgrímskirkju föstudaginn 11. nóvember nk. kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja styrkja er bent á reikning: 0301-26-200004, kt. 2208524749. Margrét Gígja Þórðardóttir Þórunn, Eysteinn, Emil og Sóla Hermann Jóhannesson og Elísa Friðjónsdóttir Hermann og Hjörvar Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Erla Ásgeirsdóttir Borgarhrauni 10, Hveragerði, sem lést á Sjúkrahúsi Selfoss þann 3. nóvember, verður jarðsungin frá Kotstrandarkirkju laugardaginn 12. nóvember kl. 14.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Krabbameinsfélagið. Ólafur Pétursson Magnús K. Bjarkason Guðlaug Pálmadóttir Hólmfríður Bjarkadóttir Páll Eggert Ólason Anna Elín Bjarkadóttir Pétur Már Ólafsson Aðalheiður Lára Guðmundsd. Eva María Ólafsdóttir Bragi Konráðsson ömmubörn og langömmubörn. Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegs eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, Guðmundar Viggóssonar frá Ísafirði, Skipalóni 10, Hafnarfirði. Við þökkum starfsfólki Drafnarhúss og hjúkrunar- heimilisins Ísafoldar fyrir góða umönnun og kærleika. Alda Garðarsdóttir Helga Björk Guðmundsdóttir Einar Már Jóhannesson Kristín Þorbj. Guðmundsdóttir Sigurður B. Sigurðsson Sæmundur G. Guðmundsson Íris Hrund Sigurðardóttir Hafdís Erla Guðmundsdóttir og barnabörn. Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug vegna fráfalls Þorkels Bergssonar Haukshólum 3. Ásta Aðalheiður Ingólfsdóttir Bergur Þorkelsson Sigríður Ósk Halldórsdóttir Þórey Þorkelsdóttir Anton Lundberg Kristi Jo Jóhannsdóttir Nancy Lyn Jóhannsdóttir Laufey Anna Guðmundsdóttir Birna Bergsdóttir Björgvin Bergsson barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Baldur Gunnarsson Víðilundi 24, Akureyri, sem lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri 2. nóvember, verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju mánudaginn 14. nóvember kl. 13.30. Ásta Hallgrímsdóttir María Baldursdóttir Helgi Helgason Guðrún Baldursdóttir Halldór Víðir Jónsson barnabörn og barnabarnabörn. Opnunarsýningin á barnasýningunni Hvítt í Listasafni Reykjavíkur verður styrktarsýning fyrir UNICEF. Sýningin verður aftur tekin til sýninga á laugardag- inn og hefur forseti landsins, Guðni TH. Jóhannesson, þegar boðað komu sína. Barnasýningin Hvítt fékk magnaða dóma þegar hún var sýnd í Hafnarborg og fékk meðal annars fjórar stjörnur í Fréttablaðinu. Draumur þeirra sem bjuggu sýninguna til var að hún væri sýnd í listasöfnum og það tókst hér á Íslandi. Gunnar Helgason, leikstjóri sýningar- innar, segir að sýningar hafi gengið svo vel að enginn hafi verið við því búinn. „Sýningin fékk svo góða dóma að maður fór bara hjá sér. Þess vegna var tilvalið að fara inn í Listasafn Reykjavíkur þegar það var til í að hýsa sýninguna. Það er nefnilega erfitt að sýna þessa sýningu í leikhúsi því leikhús eru í eðli sínu svört en listasöfn hvít þannig það sparar vinnu að fara á listasafn. Hún á heima á listasafni vegna litanna og það var draumur þeirra sem bjuggu til sýn- inguna að hún ætti heima þar.“ Aðstandendum sýningarinnar lang- aði að vekja athygli á því góða starfi sem UNICEF vinnur og sérstaklega neyðar- söfnuninni fyrir börn í Sýrlandi. Á opn- unarsýningunni á laugardag klukkan 13 er tækifæri fyrir almenning til að leggja sitt af mörkum með því að kaupa leik- húsmiða. Hvítt er heildræn leikhúsupplifun sérstaklega gerð fyrir börn á aldrinum 2-6 ára. Hvítt er heimur án lita, fullur af fuglasöng og fuglahúsum. Tveir vinir, Bómull og Krumpa, annast heiminn sem er bjartur, skipulagður og hvítur. Hins vegar kemur í ljós að ekki er allt  hvítt. Hvítt var fyrst frumsýnt í Edinborg 2010 af skoska barnaleikhúsinu Cath- erine Wheels Theatre Company og hefur sýningin  hlotið fjölda viðurkenninga. „Tengingin við UNICEF er að við bjóð- um alla liti í heiminum velkomna, ekki bara hvíta. Það er hin djúpa merking verksins. Það var alveg dásamlegt að sjá Íslendinga af erlendu bergi brotna koma á sýninguna og sjá hvernig þeir upplifðu hana. Þeir tengdu við verkið alveg rosa- lega sterkt og öðruvísi en hinn upplýsti leikhúsunnandi. Þess vegna er svo frábært að tengja sýninguna við forsetann því forsetafrúin okkar, hin frábæra Eliza, er af erlendu bergi brotin og þetta syngur allt saman,“ segir Gunnar. benediktboas@365.is  Á heima á listasafni Barnasýningin Hvítt verður tekin aftur til sýninga í takmarkaðan tíma í Listasafni Reykjavík- ur. Á laugardag verður sérstök opnunarsýning þar sem allar tekjur fara til UNICEF á Íslandi. Guðni Th., forseti Íslands, hefur nú þegar boðað komu sína á sýninguna. Í Listasafni Reykjavík- ur verður hægt að láta taka mynd af sér með Bómull og Krumpu og verða myndirnar hengdar upp í safninu undir yfirskriftinni „Ég elska alla liti!“ Guðni hefur þegar tryggt sér mynd. 1 0 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 F I m m T U D A G U r44 T í m A m ó T ∙ F r É T T A b L A ð I ð tímamót 1 0 -1 1 -2 0 1 6 0 4 :2 5 F B 0 8 0 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 B 3 D -D 8 F 4 1 B 3 D -D 7 B 8 1 B 3 D -D 6 7 C 1 B 3 D -D 5 4 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 8 0 s _ 9 _ 1 1 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.