Morgunblaðið - 21.10.2016, Qupperneq 28
28
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 2016
Ráðgjöf og þjálfun
nolta.is
mann var það há fyrir að hér
koma ferðamenn örugglega við
sögu. Skyrsala innanlands hefur
aukist um átta milljónir dósa á ári
síðan 2009,“ segir Ari. Þá hefur
sala á smjöri aukist um 70% frá
2008 og sala á rjóma aukist um
30%. „Mikið af þessari aukningu
er sala til hótela og veitingastaða,
en MS selur þessum aðilum vörur
fyrir um sex milljarða króna í ár.
Einnig er aukin sala á mygluost-
um og ýmsum sérostum tengd
ferðamönnum,“ segir Ari.
Meira framleitt af mjólk
Mjólkurframleiðsla hefur auk-
ist í takt við aukna sölu á síðustu
árum. Árið 2013 og síðustu sex ár
á undan var hún á bilinu 120-125
milljónir lítra á ári en árið 2014
fór hún upp í 133,5 milljónir lítra
og var 146 milljónir lítrar í fyrra.
Gert er ráð fyrir að mjólkur-
framleiðslan verði um 150 millj-
ónir lítra í ár.
MS hefur beint ákveðinni
markaðssetningu að ferðamönn-
um, t.d. verið með auglýs-
ingaskildi í búðum á sex tungu-
málum auk þess að auglýsa í
flugvélum og í Leifsstöð. Enn
fremur hafa verið sérstakar vöru-
kynningar á skyri sem beint hefur
verið sérstaklega að erlendum
ferðamönnum þar sem best er að
nálgast þá með beinum hætti.
Jafnframt hefur verið auglýst í
miðlum fyrir ferðamenn til að
vekja athygli þeirra á íslensku
skyri.
„Það er enginn vafi á því að
íslensk matvæli eru hluti af upp-
lifun ferðamanna og því sem þeir
sækja til landsins, fyrir utan beina
þátttöku sveitanna í ferðaþjónustu
og þau áhrif sem landbúnaður og
önnur matvælaframleiðsla hefur á
menningarlegt yfirbragð lands-
ins,“ segir Ari. Hann er á því að
íslenskur matur verði stærri hluti
af aðdráttarafli landsins þegar
fram í sækir.
Íslenskt grænmeti út
Eftirspurn eftir garðyrkju-
afurðum hefur aukist á síðustu ár-
um, að sögn Katrínar Maríu
Andrésdóttur, framkvæmdastjóra
Sambands garðyrkjubænda.
„Framleiðslan hefur aukist nokk-
uð, bæði til að svara innlendri eft-
irspurn og erlendum gestum sem
hingað koma, en ferðafólk er afar
jákvætt í garð íslenskrar rækt-
unar. Þá er vaxandi eftirspurn eft-
ir íslenskum garðyrkjuafurðum á
markað erlendis og verið er að
skoða nokkur verkefni sem því
tengjast,“ segir Katrín María.
„Fyrir utan að framleiða meira
magn fyrir Íslendinga og ferðafólk
er horft til útflutnings og úr-
vinnslu afurða, sem þegar er
nokkur hérlendis. Áfram er unnið
að því að rækta fleiri tegundir og
að hver og ein tegund sé á boð-
stólum lengri tíma úr árinu. “
Fjölga eggjunum í körfunni
Fjölmargir viðmælendur, sem
allir tengjast landbúnaði, mat-
vælaframleiðslu og ferðaþjónustu
á einhvern hátt, eru allir sammála
um að aukinn ferðamannastraum-
ur veiti íslenskum landbúnaði og
dreifðum byggðum ómæld tæki-
færi.
Fjölgun ferðamanna hafi ekki
aðeins áhrif á búvöruframleiðslu
heldur hafi hún hjálpað bændum
við að fjölga eggjunum í körfunni;
fyrir utan að bjóða upp á gistingar
og veitingar séu þeir farnir að
bjóða upp á alls konar afþreyingu
og opna heimili sín og útihús til að
ferðamenn geti fylgst með því
hvernig íslenskur búskapur fer
fram. Ferðamaðurinn hefur gefið
bændum tækifæri á annarri tekju-
öflun samfara hefðbundnum bú-
skap.
„Öll þróun sem hefur átt sér
stað í matargerð styður við ferða-
þjónustuna og er ákveðin af-
þreying einnig,“ segir Skapti Örn
Ólafsson, upplýsingafulltrúi Sam-
taka ferðaþjónustunnar (SAF).
„Ég held að það sé verið að gera
ágætis hluti til að vekja athygli á
matvælaframleiðslunni en ég tel
að við mættum vera óhræddari
við að draga fram sérkenni okkar,
þennan hefðbundna íslenska mat
sem flestir ólust upp við og þá á
ég ekki við þorramatinn sem slík-
an. Þegar við förum til útlanda
viljum við upplifa þarlenda menn-
ingu og það sama á við um er-
lenda ferðamenn sem koma hing-
að; ég held að þar liggi frekari
sóknarfæri,“ segir Skapti Örn.
Eitt af forgangsmálum ferðaþjón-
ustunnar í dag er að dreifa ferða-
mönnunum betur um landið allan
ársins hring. „Það styður ferða-
þjónustu á vettvangi bænda og
styður beint við veitingastaðina
sem t.d. selja mat úr heima-
byggð,“ segir Skapti Örn.
Getum enn sótt fram
Sindri Sigurgeirsson, formað-
ur Bændasamtaka Íslands, segir
tækifærin sem ferðamennirnir
veiti landbúnaðinum mörg. Fleiri
munnar sem þurfi að metta komi
búvöruframleiðslu til góða.
„Ferðamannastraumurinn
veitir okkur þau tækifæri að við
getum mögulega selt og framleitt
meira af landbúnaðarvörum þótt
ekki séu uppi nein áform um að
auka búvöruframleiðslu verulega.
Það koma tímabil þegar bændur
eru að framleiða umfram innan-
landsþarfir, eins og í lambakjöti
og í mjólk núna þótt ekki sé langt
síðan varla náðist að anna eft-
irspurn í mjólkinni. Við gætum
selt þó nokkuð meira af lamba-
kjöti hér heima og þá er verið að
fara í verkefni til að auka nauta-
kjötsframleiðsluna. Það er alltaf
dálítið flutt inn af nauta-, svína-
og alifuglakjöti og þar af leiðandi
gætum við framleitt meira af
þeim vörum.
Við getum enn sótt fram til
að uppfylla heimamarkað en við
ættum að hafa það sem keppikefli
að framleiða meira af matvælum
hér og flytja minna inn,“ segir
Sindri.
Heildarfjöldi ferðamanna á Íslandi 2000 til 2016
Fjöldi ferðamanna
20
00 20
01
20
02
20
03
20
04
20
05
20
06
20
07
20
08
20
09 20
10 20
11
20
12
20
13
20
14
20
15
20
16*
1.800.000
1.600.000
1.400.000
1.200.000
1.000.000
800.000
600.000
400.000
200.000
0
Heimild: Ferðamálastofa*Áætlaðar tölur
-2
,3
%
-6
,1% 15
,1% 12
,6% 3,8
%
12
,9
%
14
,9
%
3,5
%
-1,
6%
-1,
1% 15
,7% 18
,9
% 2
0% 2
3,6
%
29
,2
%
31
,9
%
Kjötsala innanlands 2015
– innlent og innflutt kjöt í þúsundum tonna
Heimild: Matvælastofnun
Alifuglakjöt Nautakjöt Svínakjöt Lambakjöt Hrossakjöt
8.201.005 3.609.965 6.363.515 6.461.610 534.372
1.502.168 1.414.036 964.152 0 0
9.703.172 5.024.001 7.327.667 6.461.610 534.372
Innlent: Innlent: Innlent: Innlent: Innlent:
Innflutt: Innflutt: Innflutt: Innflutt: Innflutt:
Samtals: Samtals: Samtals: Samtals: Samtals:
Magn innanlandskjöts 25.170.467
Magn innflutnings 3.946.023
Samtals: 29.116.490
Skyrsala MS innanlands
– seldar 170 gr. dósir
H
ei
m
ild
:M
jó
lk
ur
sa
m
sa
la
n
20.000.000
17.500.000
15.000.000
12.500.000
10.000.000
7.500.000
5.000.000
2.500.000
0
1993 20051997 20092001 20131995 20071999 20112003 2015 2016
Morgunblaðið/Ómar
Á ferðalagi Erlendir ferðamenn borða um 22 tonn af innlendri matvöru á dag. Þeir verða um 1,7 milljónir í ár.
Tækifæri í landbúnaði
1,2
milljarðar ferðamanna
í heiminum.
610
milljónir ferðamanna
í Evrópu.
78
milljónir ferðamanna
í Norður-Evrópu.
1,3
milljónir ferðamanna komu
til Íslands árið 2015.
1,7%
af þeim sem ferðuðust
í Norður-Evrópu komu til Íslands.
0,2%
af þeim sem ferðuðust
í Evrópu
komu til Íslands.
0,1%
af þeim sem ferðuðust
í heiminum komu til Íslands.
1,7
milljónir ferðamanna koma
til Íslands árið 2016
samkvæmt spám.
Heimild: Samtök ferðaþjónustunnar
ÁRIÐ 2015
»