Morgunblaðið - 21.10.2016, Side 34
34 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. OKTÓBER 2016
urður varla muna eftir svona veðri í
sinni búskapartíð. Hann segir að það
hafi fram að þessu verið heldur heitt
til þess að reykja, best sé að hafa svo-
lítið kalt og þurrt veður meðan verið
sé í reykhúsvinnunni. Mikil rign-
ingartíð er ekki góð því þá myndast
of mikill raki, sem hefur áhrif á reyk-
inguna.
Þá eru stórhríðar heldur ekki góð-
ar, en Sigurður vonar að veðrið verði
áfram gott því til stendur að setja
kjötlærin í pækil og þar þurfa þau að
vera í um það bil 14 daga. Að því
loknu eru þau hengd upp í reykhúsið
og þá er kveikt upp. Það tekur um
það bil tvær vikur að reykja stór
hangilæri en ef tíðin er blaut segist
Sigurður bíða aðeins, kyndir þá daga
ekki alveg eins mikið, og það lengir
þá tímann sem tekur að reykja. Bjúg-
un eru hins vegar fljótreykt, því það
tekur að sögn Sigurðar einungis fjóra
daga að reykja þau. Þetta er vinsæll
matur og selur heimavinnslan í
Skarðaborg töluvert magn af bjúgum
til fastra áskrifenda.
Það reykja ekki allir eins
Nokkrir bændur í Þingeyjar-
sýslum eru þegar farnir að reykja og
á hverjum bæ hafa bændur sína eigin
aðferð í reykhúsinu. Oft eru það
gamlar og góðar venjur sem stuðst er
við, en áður fyrr reyktu bændur kjöt-
ið töluvert lengur en nú á dögum og
reykbragðið var sterkara. Nokkuð er
misjafnt hvað er sett á eldinn, en Sig-
urður í Skarðaborg notar einungis
tað, sem hann segir að gefist mjög
vel. Sumir slá lyng og bæta á eldinn
með taðinu og enn aðrir nota gulvíði
og fleiri víðitegundir til þess að fá
bragðið. Reykhúsvinnan er mjög ólík
eftir því hver á í hlut. Sumir segja að
engir tveir reyki alveg eins og bragð-
ið af hangilærunum sé eins misjafnt
og reykhúsin eru mörg.
Haustlyktin finnst milli bæja
Það er í mörgu að snúast hjá Sig-
urði og Helgu á þessum haustdögum,
en auk þess að vinna reykmeti full-
vinna þau ærkjöt og selja einnig
lambakjöt. Í góðu veðri berst reyk-
ingarlyktin á milli bæja og það er sú
haustlykt sem margir þekkja í sveit-
unum.
Sigurður segist alltaf vera í sér-
stökum galla í reykhúsinu til þess að
bera lyktina ekki inn í íbúðarhúsið.
Hann lærði snemma að reykja og
finnst reykhúsvinnan skemmtilegur
hluti af haustinu.
Reykhúsvinnan hluti af haustinu
Ábúendur á Skarðaborg í Reykja-
hverfi byrjaðir að reykja hangikjötið
Vottuð heimavinnsla Skarðabjúg-
un vinsæl og margir fá þau í áskrift
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Reyking Sigurður Ágúst á Skarðabakka býr sig undir að reykja kjötið.
Skarðaborg er nýbýli sem var
byggt árið 1949 út úr landnáms-
jörðinni Skörðum í Reykjahverfi.
Í Skörðum bjó Ófeigur Járn-
gerðarson og er hann talinn
heygður í Ófeigshóli, sem er í
heimatúninu á bænum. Langafi
Ófeigs var Höskuldur landnáms-
maður og er talið að hann hafi
búið í Skörðum. Í Skarðaborg
var blandað bú í fyrstu en
bændur þar, þau Helga og Sig-
urður, ásamt sonum sínum og
þeirra fjölskyldum, einbeita sér
nú að sauðfjárrækt og áttu
2.200 fjár á fjalli í sumar.
Á slóðum
Höskuldar
VIÐ LANDNÁMSJÖRÐ
VIÐTAL
Atli Vigfússon
laxam@simnet.is
„Ég er kominn með taðið í reykhúsið
en ég á eftir að laga til í því áður en
ég byrja að reykja. Ég reyki í tveim-
ur járnbölum sem ég raða taðinu í og
ég kveiki upp tvisvar á dag. Þetta er
töluverð yfirlega en það er gaman að
reykja í góðri tíð.“ Þetta segir Sig-
urður Ágúst Þórarinsson, bóndi í
Skarðaborg í Reykjahverfi í S-Þing-
eyjarsýslu, en í vikunni var hann að
búa sig undir að reykja hangikjötið.
Hann og kona hans, Helga Guðrún
Helgadóttir, eru með vottaða heima-
vinnslu og því eru það mörg læri sem
eru hengd upp á haustin, auk þess
sem hann reykir bjúgu sem þau búa
til sem hafa stundum verið nefnd
Skarðabjúgu. Þegar mikið er reykt
er þörf fyrir mikið tað, en Sigurður
og fjölskylda hans verka tað sem
nægir ágætlega. Þau hafa kindur á
taði í gömlu fjárhúsunum á bænum
og stinga út tvisvar á ári; í febrúar og
júní. Taðið þurrka þau svo á grindum
úti en það fer svolítið eftir tíðarfari
hvernig það heppnast. Í ár er taðið
gott og Sigurður er kominn með
marga fulla poka í reykhúsið.
Reykmetið er vinsæll matur
Undanfarið hefur verið mjög góð
tíð í Þingeyjarsýslum og segist Sig-
Við vorum að taka upp nýjar vinyl gólf- og diskamottur.
Nýjar stærðir og ný mynstur og því mikið úrval af þessum vinsælu mottum.
Vinyl er náttúrulegt efni, motturnar leggjast vel að gólfi og auðvelt að þrífa þær.
Upplagðar í eldhúsið, baðherbergið, forstofuna, sumarbústaðinn og skrifstofuna.
LISTHÚSINU
Listhúsinu við Engjateig, 105 Reykjavík, sími 551 2050 Opið virka daga kl. 11-18, laugardaga kl. 11-16.