Morgunblaðið - 04.11.2016, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2016
flokka á ýmis málefni“ og er niður-
staðan sú að þau eru „bæði kunnugri
afstöðu hvort annars“.
Næstir á fund Bjarna voru full-
trúar Pírata með Birgittu Jóns-
dóttur, þingmann flokksins, í for-
svari. Eftir fundinn sagði hún stöðu
Bjarna til að mynda ríkisstjórn vera
„mjög þrönga“ og sagðist hún enn-
fremur halda að hann væri einangr-
aður.
Formenn Bjartrar framtíðar og
Viðreisnar gengu saman á fund
Bjarna í ráðherrabústaðnum, en þeir
höfðu áður boðað samstarf komi til
stjórnarmyndunarviðræðna.
Benedikt Jóhannesson, formaður
Viðreisnar, sagði fundinn hafa verið
„gagnlegan“ en einnig að hann hefði
leitt í ljós að meira bæri í milli í mál-
efnum Viðreisnar og Sjálfstæðis-
flokksins en Viðreisnar og Bjartrar
framtíðar. „Það eru mismunandi
áherslur og það endurspeglaðist
núna,“ sagði Benedikt.
Óttarr Proppé, formaður Bjartrar
framtíðar, sagði samtalið við Bjarna
hafa verið ágætt og til þess fallið að
útskýra afstöðu og áherslur flokk-
anna þriggja.
Logi Már Einarsson, nýr formað-
ur Samfylkingarinnar, hitti Bjarna
síðastur manna. Hann sagði flokk
sinn ekki vera á leið í ríkisstjórn.
Kristján H. Johannessen
Skúli Halldórsson
„Við finnum að sums staðar eru góðir
samstarfsfletir, en annars staðar er
lengra í milli. Þessi dagur var ágæt-
ur til þess að spjalla við forystu allra
flokka um stöðuna og mér fannst
vera mikið gagn að því fyrir mig, upp
á framhaldið. Og ég er enn vongóður
um að hægt sé að mynda hér sterka
ríkisstjórn.“
Þetta sagði Bjarni Benediktsson,
formaður Sjálfstæðisflokksins, við
fjölmiðlamenn eftir fund sinn með
fulltrúum stjórnarandstöðuflokka á
Alþingi í gær, en áður hafði hann
fundað með Framsóknarmönnum.
Bjarni ítrekaði þó að hann hefði
ekki hafið formlegar stjórnarmynd-
unarviðræður við neinn flokk – menn
hefðu fyrst og fremst verið að ræða
helstu málefni og þau verkefni sem
blasa við nýrri ríkisstjórn. Að sögn
Bjarna voru samtöl hans við fulltrúa
flokkanna „gagnleg“ og „afslöppuð“.
Yfirstíganlegar hindranir?
Aðspurður sagðist Bjarni ekki
vera búinn að ákveða hvaða flokka
hann mundi setja sig í samband við
til að hefja formlegar viðræður um
stjórnarmyndun. „En við skildum
eftir hvert hjá öðru nokkur mál til
þess að hugsa um og mun ég ræða
þau við minn þingflokk.“
Bjarni sagði að af öllum flokkum á
þingi hefði hann átt í mestum mál-
efnalegum umræðum við Framsókn-
arflokkinn, Viðreisn, Bjarta framtíð
og Vinstri græna. „Það ber auðvitað
langmest í milli í viðræðum við
Vinstri græna, en ég hef hins vegar
verið að velta því upp hvort þau at-
riði, þar sem mest ber í milli, séu þau
mál sem helst verði á dagskrá á
næstu árum. Það er ekki endilega
augljóst,“ sagði hann.
Næstu skref Bjarna er að ræða við
þingflokk sinn, setja forseta Íslands
inn í stöðu mála og hugsa næsta út-
spil. „Eftir helgi væri tímabært að
láta reyna á það hvort menn vildu
taka samtalið lengra. En þá á enn
eftir að taka allan málefnalegan
ágreining, slípa hann niður og sjá
hvort eitthvað gott kemur út úr því.“
Bjarni sagður í erfiðri stöðu
Katrín Jakobsdóttir, formaður
Vinstri grænna, átti fyrsta fund með
Bjarna. Að honum loknum sagðist
hún hafa farið yfir „ólíka sýn þessara
Gagnleg samtöl að baki
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, hefur nú rætt við alla
formenn flokka á Alþingi Mun næst ræða við forseta og ígrunda næstu skref
Samstiga Sendinefnd Pírata á leið til fundar við Bjarna Benediktsson.
Morgunblaðið/Eggert
Bandalag Óttarr Proppé, formaður Bjartrar framtíðar, og Benedikt Jóhannesson, formaður Viðreisnar, mættu
saman til fundar við formann Sjálfstæðisflokksins í ráðherrabústaðnum við Tjörnina í Reykjavík.
Ráðherrabústaður Katrín Jakobsdóttir, formaður VG, átti fyrsta fund.
„Það hefur verið lítill kraftur í
þessu undanfarið og gengið illa að
finna almennilegar torfur,“ segir
Ingimundur Ingimundarson, út-
gerðarstjóri uppsjávarskipa hjá
HB Granda. Skipin hafa verið að
veiðum á íslenskri sumargotssíld
djúpt út af Reykjanesi undanfarið
og hafa reyndar leitað víða. Ingi-
mundur segir að 300 tonn á sólar-
hring hafi ekki verið óalgengur
afli, en hann hafi verið misjafn á
milli daga. Venus og Víkingur,
skip HB Granda, eru komin með
tæpan helming af síldarkvóta fyr-
irtækisins.
Beitir NK kom til Neskaupstað-
ar á mánudagskvöld með 950 tonn
af íslenskri sumargotssíld sem
fékkst fyrir vestan land. Haft er
eftir Sturlu Þórðarsyni skipstjóra
að um fallega demantssíld sé að
ræða og hafi vinnsla á henni hafist
strax í fiskiðjuveri Síldarvinnsl-
unnar. „Við fengum þennan afla
100 mílur vestur og vestnorðvest-
ur af Garðskaga. Holin voru afar
misjöfn; í sumum var sáralítið en
mest fengum við 230-240 tonn í
holi. Það er alls ekki mikla síld að
sjá þarna en við fengum þó einn
ágætan sólarhring,“ sagði Sturla á
vef SVN.
Morgunblaðið/Börkur Kjartansson
Vertíð Aflaskipin Beitir NK og Venus NS á siglingu í fyrravetur.
Illa hefur gengið að finna
almennilegar síldartorfur
Demantssíld land-
að í Neskaupstað
Ekki hefur verið tekið tilboði í smíði
nýrrar Vestmannaeyjaferju. Sam-
kvæmt upplýsingum Ríkiskaupa er
ekki vitað hve langan tíma það tekur
að yfirfara tilboðin.
Fram hefur komið að Vegagerðin
og Ríkiskaup hafa sérstaklega verið
að skoða tilboð frá pólsku skipa-
smíðastöðinni Crist SA, eftir að
norskur bjóðandi féll frá sínu tilboði.
Tilboð pólska fyrirtækisins var það
fimmta lægsta, samkvæmt upplýs-
ingum sem fram komu þegar til-
boðin voru opnuð. Tvö kínversk til-
boð, annað norskt og hitt tyrkneskt,
voru lægri en það pólska. Munar
rúmum 600 milljónum á lægsta til-
boðinu og því pólska. Ríkiskaup
veita engar upplýsingar um ástæður
þess að ekki voru teknar upp við-
ræður við lægstbjóðendur.
Næsta skrefið er að gefin verður
út tilkynning til bjóðenda um að til-
teknu tilboði hafi verið tekið. Þá
hefst 10 daga frestur sem aðrir bjóð-
endur geta notað til að kæra útboðið
og þá stöðvast samningsgerð sjálf-
krafa þar til kærunefnd útboðsmála
hefur tekið afstöðu til kæruefnis.
helgi@mbl.is
Ekki búið að
taka tilboði
í Eyjaferju
Landeyjahöfn Herjólfur leggst að
bryggju í Landeyjum.
Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar
bárust boð um hádegi í gær um að
neyðarsendir væri í gangi inni á há-
lendinu um 75 kílómetra suður af
Akureyri. Þyrla Gæslunnar sem
stödd var í eftirlitsflugi yfir Húna-
flóa var strax beint á vettvang.
Kom í ljós að um bandarískan hóp
var að ræða sem var á ferð um
Dragaleið, sem er við Sprengi-
sandsleið norðaustur frá Hofsjökli.
Allir voru heilir á húfu en fólkið
hafði villst af leið í fyrrakvöld og
bíllinn orðið eldsneytislaus. Í gær-
morgun gangsettu þau síðan
gervihnattaneyðasendi. Þyrlan
flutti fólkið til Akureyrar.
Viðbúnaður vegna
fólks á hálendinu
Láttu okkur ráða
Elja starfsmannaþjónusta 4 150 140 elja.is elja@elja.is
Þarftu að ráða
öryggisvörð?
Neyðarsendir Þyrlan flutti fólkið.