Morgunblaðið - 04.11.2016, Side 18

Morgunblaðið - 04.11.2016, Side 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2016 VIÐTAL Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Þau eru misjöfn verkefnin í lífinu og sum erfiðari en önnur. Ung móðir í Hafnarfirði, Hjördís Ósk Haralds- dóttir, hefur fengið sinn skerf af erf- iðleikum. Hún gefst ekki upp heldur tekst á við hvert verkefnið á fætur öðru með æðruleysi og jákvæðni að vopni. Í tvö ár hefur Hjördís barist við heilaæxli; fyrst góðkynja æxli og síð- ar illkynja. Hjördís, sem er 32 ára Montessori-kennari, hefur verið óvinnufær síðustu tvö árin sökum veikindanna. Fimm ára sonur henn- ar er langveikur og hefur farið í alls átta skurðaðgerðir en hann fæddist með utanáliggjandi líffæri. Veik- indin hafa tekið sinn toll á allan hátt og er oft erfitt fyrir þessa einstæðu móður að ná endum saman. Hress- leikarnir, góðgerðarleikar sem heilsuræktin Hress í Hafnarfirði stendur fyrir árlega, munu að þessu sinni styrkja Hjördísi og börn henn- ar. Elskar að vinna með börnum Hjördís fór um tvítugt á vit ævin- týranna til San Francisco þar sem hún vann sem au-pair stúlka. Þar kynntist hún þáverandi eiginmanni og barnsföður, Bandaríkjamanni sem búsettur er hérlendis. Þau eiga saman þrjú börn, Alyssu Lilju ellefu ára, Amý Lynn níu ára og Aron Rai- den fimm ára. Þau hjónin skildu árið 2014 eftir tíu ára hjónaband og hefur Hjördís að mestu verið ein með börnin síðan þá. Á meðan Hjördís bjó í Bandaríkj- unum lagði hún stund á þriggja ára kennaranám þar sem kennt var eftir kenningum Montessori. Að loknu námi vann Hjördís þar ytra sem kennari. Eftir heimkomuna hefur hún starfað á leikskólanum Múla- borg og sinnt þar sérkennslu. „Ég elska starfið mitt. Ég veit ekki hvort ég kemst aftur í það út af áreitinu,“ segir Hjördís sem hefur unnið á leik- skólum frá árinu 2004. Æxli á stærð við golfkúlu Árið 2014 fór Hjördís fyrst að finna fyrir veikindum. „Ég varð mjög lasin og var með einkenni MS- sjúkdómsins. Ég var alltaf þreytt. Ég fór til læknis og það fannst ekk- ert. Svo fór ég að fá taugaverk í and- litið og kippi í handlegginn og þá fékk ég flogalyf. En svo ágerðust verkirnir og stingirnir í andliti fóru að versna. Það átti að athuga hvort ég væri með MS en þá fannst góð- kynja æxli í heilanum. Það var á stærð við golfkúlu,“ útskýrir Hjör- dís. Í mars 2015 var Hjördís send í að- gerð til að minnka æxlið en ekki var unnt að fjarlægja það að fullu. „Þeir náðu samt einhverju en ég var mjög lengi að ná mér eftir það. Ég byrjaði að vinna í september 2015 í 50% starfi,“ segir Hjördís sem var búin að vera á Grensási í endurhæfingu frá því eftir aðgerðina í mars. Hún vann aðeins nokkra mánuði því orkan var engin. Hún segir að hún hafi upplifað mikinn slappleika, orkuleysi, titring vinstra megin í lík- amanum og hún átt erfitt með mál en að dvölin á Grensási hafi styrkt hana og hjálpað. Nýtt og illkynja æxli finnst „En þarna var ég ekki komin með krabbamein, þarna er þetta bara góðkynja æxli. Það var síðan í nóv- ember að ég fór að verða svo lasin. Ég var eiginlega alveg týnd. Ég fór að kvarta við lækninn minn og sagði honum að það væri eitthvað að mér, eitthvað meira. Ég væri bara týnd,“ segir Hjördís og útskýrir að hún hafi verið með stöðugan höfuðverk, svakalega syfjuð og utan við sig. „Þetta var bara ekki ég. Ég var grátandi af því að þetta var ekki ég. Ég var alltaf sofandi og þetta var eitthvað skrítið,“ segir Hjördís sem var þá á leið í segulómum sem hún fór í á þriggja mánaða fresti vegna góðkynja æxlisins. „Ég fór í segulómun og þá fannst krabbameinið. Og það var bara önn- ur golfkúla, rétt hjá hinni golfkúl- unni. En þær snertast ekki,“ út- skýrir hún. „Æxlið kom svo hratt. Ég hafði farið í skanna þremur mán- uðum áður og þá var ekkert en þarna var komið risaæxli,“ segir hún. „Ég fór beint í aðgerð þar sem tekið var vefjasýni til að sjá hvað þetta væri. Til að athuga hvort þetta væri MS. Þeir sáu bara nýjan skugga. En svo kom í ljós að þetta var krabbamein,“ segir Hjördís. Síðan er liðið eitt ár. Telja æxlið ólæknandi Hvernig leið þér að fá þessar fréttir? „Ég veit ekki, mamma og lækn- arnir voru að vona að þetta væri MS, það væri skárri kosturinn. En ég var ekki að vonast eftir því. MS er eitt- hvað sem er langvarandi á meðan krabbinn væri eitthvað sem væri hægt að vinna á og sigra. Eða það var hugsunin mín. Mamma var nýbúin að vera með krabbamein í brjósti og sigraðist á því. Þannig ég tók þessu með æðruleysi og já- kvæðni. Ég hef kannski verið of æðrulaus, ég veit það ekki. Ég fékk ekki sjokk. Ég held að sjokkið hafi verið þegar ég fékk fyrsta æxlið, ég tók það út þá,“ segir hún. „Þá brá mér mikið.“ Í janúar hóf Hjördís geisla- og lyfjameðferð við krabbameinsæxl- inu. Hún nær í símann og sýnir blaðamanni myndir af heilanum í sér. Þar má sjá dökkan blett og ann- an hvítan. Hvíti bletturinn er krabbameinið sem hefur minnkað mikið frá fyrstu mynd. „Þeir eru að vonast til að geta minnkað það nógu mikið og leyft því svo bara að vera. En ef það fer að stækka aftur verður gerð skurðaðgerð,“ útskýrir Hjördís sem segir að læknarnir telji æxlið ólæknandi og því þarf að gera allt til að halda því í skefjum. Ég sagði þeim að þetta væri ekki leyndarmál  Hjördís Ósk Haraldsdóttir berst við krabbamein í heila  Fimm ára sonur hennar er langveikur Morgunblaðið/Ásdís Æðruleysi Hjördís Ósk Haraldsdóttir á þrjú börn, þau Aron, Amý og Alyssu. Hún greindist með tvö æxli á stærð við golfkúlur í höfðinu.  SJÁ SÍÐU 20 Íslenska sjávarútvegssýningin auglýsir eftir umsóknum um tvo styrki hvor að upphæð kr. 500.000.- til framhaldsnáms nemenda sem lokið hafa námi í Fisktækni eða sambærilegu námi í sjómennsku, fiskvinnslu eða fiskeldi og hyggja á framhaldsnám við Fisktækniskóla Íslands í Grindavík á vorönn 2017. Styrkirnir eru veittir til eins árs náms á eftirtöldum námsbrautum: Gæðastjóri • Vinnslutæknir • Fiskeldi Frekari upplýsingar um þessar námsbrautir má finna á heimasíðu Fisktækniskóla Íslands www.fiskt.is Á www.icefish.is er hægt að sækja um og fá nánari upplýsingar um styrkinn, ásamt upplýsingum um Íslensku sjávarútvegssýninguna 2017. Umsóknarfrestur er til 1. desember 2016. Organiser Official International publication Umsókn um námsstyrk Íslensku sjávarútvegssýningarinnar Supported by Official Logistics Company www.icefish.is Official airline/air cargo handler & hotel chain

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.