Morgunblaðið - 04.11.2016, Page 28

Morgunblaðið - 04.11.2016, Page 28
28 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2016 Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is „Ferðamenn bókstaflega lágu á gluggum Hveragarðsins í haust þegar við tókum á móti hópi breskra skólabarna og því var ákveðið að hafa garðinn opinn allt árið,“ segir Sigurdís Lilja Guðjóns- dóttir, forstöðumaður Hveragarðs- ins og Upplýsingamiðstöðvar Suð- urlands, en hingað til hefur garðurinn verið lokaður yfir vetr- armánuðina. „Aðsóknin hefur verið góð í ár en hátt í 20 þúsund gestir hafa sótt svæðið heim það sem af er ári. Ég reikna því með að aðsóknin í ár verði svipuð og í fyrra en þá komu 22 þúsund manns.“ Flestir sem heimsækja Hvera- garðinn eru erlendir ferðamenn og segir Sigurdís þá bæði koma til að sjá svæðið og til að fræðast um hverina og upplifa matargerðina. „Það er mjög vinsælt að sjóða egg í heitum læknum og borða það með rúgbrauði inni í gróðurhúsinu en þar ræktum við tómata og banana og bökum að sjálfsögðu brauðið. Matarupplifunin er því líka orðin stór hluti af því sem við bjóðum upp á.“ Einstök vetrarupplifun Framkvæmdir sem staðið hafa yf- ir í Hveragarðinum í haust auka á möguleika svæðisins og segir Sig- urdís m.a. hægt að bjóða upp á að hafa opið á kvöldin og nýta svæðið betur yfir dimma vetrarmánuðina. „Núna er kominn goshver inn á svæðið og lýsing hefur verið sett upp sem gefur gestum betri yfirsýn um leið og hægt verður að sjá litina á svæðinu betur þegar rökkva tek- ur.“ Tvisvar í viku verða opið að kvöldi í Hveragarðinum og er það einungis byrjunin. Einnig verða sér- stakar jólaopnanir, þar sem kölluð verður fram sérstök jólastemning. „Það er opið hjá okkur öll fimmtudags- og föstudagskvöld til að byrja með og síðan sjáum við til með framhaldið. Í desember ætlum við síðan að skapa einstaka vetrar- og jólastemningu þar sem boðið verður upp á lifandi tónlist, kakó og jólakökur,“ segir Sigurdís. Hveragarðurinn opinn í vetur  Áhugi erlendra ferðamanna gífurlegur  Vetrar- og jólastemning í desember innan um heita hverina  Vinsælt að sjóða egg í heitum læknum og borða þau með heimabökuðu rúgbrauði Hveragarðsins Vetur Hveragarðurinn er töfrandi staður þegar vetur konungur hefur lagt hvíta og kalda blæju sína yfir hita- og hverasvæði garðsins. Náttúra Í Hveragarðinum sjá gestir meira en bara íslensku hverina því ræktaðir eru tómatar og bananar í gróðurhúsinu við garðinn. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Þetta er bjart og fallegt húsnæði. Þarna er miklu rýmra um okkur og við getum kennt fleiri nem- endum í húsinu í einu en verið hefur,“ segir Olga Lísa Garðarsdóttir, skólameistari Fjölbrauta- skóla Suðurlands á Selfossi. Verið er að taka í notkun nýtt verknámshús skólans um leið og eldra verknámshúsið er endurnýjað. Olga Lísa nefnir að húsnæðið muni gefa skól- anum færi á því að bæta við þriðja árinu í málm- iðnbraut og bjóða upp á heildstætt vélvirkjanám. Hægt verður að kenna þremur námshópum í málmiðndeild í einu. Rýmra verður um húsa- smíðabrautina og aðstaða til smíði timburhúss verður mjög góð á malbikuðu og upplýstu plani við verknámshúsið. Rafvirkjadeildin fær einnig betri aðstöðu. Stefna skólans er að bjóða upp á heildstætt nám í rafvirkjun. Þá gefur húsnæðið möguleika til kennslu fyrsta árs í háriðn. „Þetta gefur okkur færi á að þróa okkur áfram í sértækari áföngum, til dæmis í smiðju, starfs- braut og nýsköpun,“ segir skólameistarinn. Eftir að ljúka loftræstingu Nýbygging verknámshússins er um 1.700 fer- metrar að stærð. Hún stendur við suðvesturhluta Hamars, gamla verknámshússins, og mynda hús- in eina heild. Olga Lísa segir að skólinn hafi fengið fyrsta hluta hússins afhentan í september. Þá hafi húsasmíðabrautin flutt inn og málmiðnadeildin um miðjan október. Enn er verið að vinna að endurbótum á eldra húsnæðinu og stefnt að af- hendingu þess 1. desember. Þar verða kennslu- stofur, teiknistofa og rafdeild. Skólameistarinn segir að samvinna við verktak- ann, Jáverk ehf., og Framkvæmdasýslu ríkisins hafi gengið vel. Þannig hafi gengið vel að koma starfseminni af stað í húsinu þrátt fyrir að starfs- menn verktakans séu enn að störfum. Þótt vélarnar séu komnar í gang í tréiðn- og málmiðndeildum er ekki kominn varanlegur loft- ræstibúnaður frá öllum vélum. Olga Lísa segir að hann hafi ekki verið með í upphaflegu útboði enda verið áhöld um það hvort hann tilheyrði húsinu eða búnaði skólans. Niðurstaðan hafi orðið sú að hann tilheyrði skólanum og nú sé verið að vinna að hönnun og uppsetningu búnaðar. Á meðan sé not- ast við bráðabirgðakerfi. Geta bætt við verknámið  Nýtt verknámshús Fjölbrautaskóla Suðurlands í notkun  Bjart og rúmgott Morgunblaðið/Sigmundur Verknám Gömlu rennibekkirnir eru komnir í aðstöðu málmiðnbrautar. Enn er unnið við frágang. Kirkjuþing 2016 verður sett kl. 9 að morgni laug- ardagsins 5. nóv- ember í Grens- áskirkju. Forseti kirkjuþings, Magnús E. Krist- jánsson, setur þingið og flytur ávarp og barna- kór Bústaða- kirkju syngur undir stjórn Svövu Kristínar Ingólfsdóttur. Biskup Ís- lands, Agnes M. Sigurðardóttir, leiðir bænastund og flytur ávarp. Setningarathöfnin er öllum opin. Þingfundur hefst í Grensáskirkju kl. 11 að lokinni setningarathöfn og kaffihléi. Kirkjuþing fer með æðsta vald í málefnum þjóðkirkjunnar. Á kirkjuþingi eiga sæti 29 kjörnir fulltrúar, 12 vígðir menn og 17 leik- menn, auk þess biskup Íslands, tveir vígslubiskupar og einn fulltrúi guðfræðideildar Háskóla Íslands með málfrelsi og tillögurétt. Hinir kjörnu fulltrúar eru kosnir í níu kjördæmum. sisi@mbl.is Kirkjuþing sett í Grensáskirkju Magnús E. Kristjánsson Á yfirstandandi sláturtíð hafa eftirlitsdýralæknar Matvælastofn- unar orðið varir við vöðvasull í sauðfé frá nokkrum bæjum og hef- ur greining verið staðfest af sér- fræðingum á Tilraunastöð HÍ að Keldum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Matvælastofnun. Þar segir að um sé að ræða aukna tíðni og gæti ástæðan verið misbrestur á band- ormahreinsun hunda, en slík hreinsun er lögboðin. Vöðvasullur er ekki hættulegur fyrir fólk en veldur tjóni vegna skemmda á kjöti og hugsanlega óþægindum fyrir féð. Vöðvasullur er lirfustig band- ormsins Taenia ovis, sem lifir í hundum og refum. Um er að ræða blöðrur sem finnast í vöðvum sýktra kinda. Aukin tíðni vöðva- sulls finnst í sauðfé Sauðfé Sullur virðist vera að aukast. TOPPUR ehf Bifreiðaverkstæði TOPPUR er viðurkennt þjónustuverkstæði fyrir Skemmuvegi 34 • Kópavogi • Sími 557 9711 • toppur@toppur.is majubud.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.