Morgunblaðið - 04.11.2016, Síða 34
34 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2016
hafðu það notalegt
handklæðaofnum
Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - www.ofnasmidjan.is - sími 577 5177
Eigum úrval af
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Þess var minnst á dögunum að tutt-
ugu ár voru liðin frá stofnun Borgar-
holtsskóla í Grafarvogi í Reykjavík.
Efnt var til fjölbreyttrar dagskrár af
því tilefni, þar sem nemendur og
starfsfólk gerðu sér dagamun auk
þess sem vakin var athygli á fjöl-
breyttu starfi skólans. Alls eru nem-
endurnir í dag um
1.300 og flestir í
almennu bók-
námi. Sérstaðan í
starfinu er
kennsla í bifvéla-
virkjun, bifreiða-
smíði og bíla-
málun – svo og
járniðnum, auk
námslína í þjón-
ustustörfum. Þar
eru leikskóla- og félagsliðabrautir, fé-
lagsmála- og tómstundabraut og nám
fyrir stuðningsfulltrúa sem til dæmis
starfa með fötluðu fólki.
Fjórir ólíkir skólar
Ársæll Guðmundsson tók við emb-
ætti skólameistara í Borgarholts-
skóla um mitt þetta ár. Sem skóla-
maður á hann langan og fjölbreyttan
feril að baki. Hefur stýrt starfi alls
fjögurra framhaldsskóla; það er að
segja Fjölbrautaskóla Norðurlands
vestra um hríð og var svo skólameist-
ari Menntaskóla Borgarfjarðar, þá
Iðnskólans í Hafnarfirði og nú skól-
ans í Grafarvogi.
„Skólarnir sem ég hef starfað við
eru mjög ólíkir hver öðrum, hvað
varðar stærð, umhverfi og áherslu-
þætti. Verkefnin eru þó alltaf hin
sömu; það er að koma nemendum til
mennta og þroska. Sameiginlegt með
starfsfólkinu er síðan metnaðurinn
við þetta verkefni og umhyggjan fyrir
velferð nemenda og framtíð þeirra.
Eitt af því mikilvægasta í kennslu er
að þykja vænt um nemendurna,
tryggja velferð þeirra og mæta verk-
efnum af auðmýkt,“ segir Ársæll.
Sérstöðu Borgarholtsskóla segir
hann felast í öflugu grasrótar- og
frumkvöðlastarfi. Hugsjónastarfið
hafi verið drifkrafturinn á fyrstu
starfsárunum og áhrifa þess gæti
enn. Nemendur skólans komi af öllu
landinu. Flestir séu Grafarvogsbúar
og margir komi úr Grafarholtinu.
Núna í desember brautskrást tæp-
lega 100 nemendur frá hinum ýmsu
brautum skólans og svo um 180 í maí
á næsta ári.
Auk fyrrnefndra námsgreina er við
skólann starfrækt sérstakt afreks-
íþróttasvið, krefjandi nám sem um
120 ungmenni stunda.
En aftur að bílgreinunum og járn-
iðnum. Nám viðvíkjandi bílum hafði
lengi verið í Iðnskólanum í Reykjavík
og járniðnir kenndar í Fjölbrauta-
skólanum í Breiðholti. Strax við
stofnun Borgarholtsskóla árið 1996
var ákveðið að kennsla í áðurnefnd-
um fögum yrði þar og gaf það skól-
anum undirstöðu. „Við erum í góðu
samstarfi við atvinnugreinina. Starf-
rækt er sérstakt bílgreinaráð við
skólann þar sem þarfir atvinnulífsins
eru ræddar, skipst á skoðunum um
þróunina og hvernig samstarfið við
skólann geti vaxið og dafnað. Þá eru
bílaumboðin dugleg við að styrkja
skólann, bæði með bílum og tækja-
búnaði,“ segir Ársæll um námið sem
er sótt bæði af strákum og stelpum.
Samspil margra þátta
Þróun nýrra starfshátta og vinnu-
bragða, til dæmis í iðngreinum, er
samspil margra þátta. Framleið-
endur og atvinnugreinin leggja
ákveðnar línur sem svo eru útfærðar
og staðfærðar í skólanum. „Nýjungar
koma oft fram í rannsóknardeildum
til dæmis bílaframleiðenda. Þar má
nefna nýjar bílvélar sem ganga fyrir
metani eða rafmagni og í skólunum,
til dæmis hér, erum við að laga okkur
að þessu og kenna nemendum á nýja
tækni. Hlutverk skólanna er að
kenna nemendum vinnubrögð og
mikilvægi þess að tileinka sér nýj-
ungar jafnskjótt og þær koma. Sam-
starf atvinnulífs og skóla er æ mikil-
vægara, fólk aflar sér nýrrar
þekkingar alla ævi og aldrei er sagt
að einhver sé fullnuma,“ segir Ársæll.
Sett hefur verið á fót svonefnt málmgreinaráð Borg-
arholtsskóla og voru samningar um það undirritaðir
nú í vikunni. Ráð þetta er hugsað sem vettvangur
samstarfs Samtaka iðnaðarins, fræðslusetursins Ið-
unnar, Félags vélstjóra og málmtæknimanna, Félags
iðn- og tæknigreina og svo Borgarholtsskóla. Þarna
er í deiglunni þróun náms og kennslu í málm-
iðngreinum.
Markmiðið er að til starfa í málgreinum komi vel
menntað og þjálfað fagfólk, að skólarnir verði í
fremstu röð og að nýjunga í faginu sjái stað í iðn-
fræðslunni í Borgarholtsskóla. Einnig er markmið að
skólanum séu búin bestu skilyrði til að sinna skyldu
sinni að þessu leyti, en atvinnulífið kallar um þessar
mundir mjög eftir tæknimenntuðu fólki og það í
mörgum greinum - nú á tímum mikillar uppsveiflu í
atvinnulífinu.
Vel menntað og þjálfað fagfólk til starfa
ATVINNULÍFIÐ OG FRAMHALDSSKÓLINN Í SAMSTARFI
Samþykkt Frá gerð samninga um samstarf við atvinnulífið. Al-
mar Guðmundsson frá SI og Ársæll Guðmundsson skólameistari.
Nemendur tileinki sér nýjungar fljótt
Fjölbreytt starf í Borgarholtsskóla í Grafarvogi 1.300 nemendur eru við skólann um þessar
mundir Margir nema bílagreinar og þjónustufög Nemendur brautskráðir en enginn er fullnuma
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Örugg Frá vinstri: Ísak Árni Eiríksson, Róbert Leó Erlendsson, Ellert Danilíusson kennari og Ingibjörg Sif Sigur-
björnsdóttir. Hér eru þau við rennibekk í járnsmíðadeild, en mikil þörf er nú fyrir fólk með slíka iðnmenntun.
Skólahús Nemendur skólans eru margir úr efri byggðum borgarinnar.
Ársæll
Guðmundsson
Gleði Sungið fyrir Guðna Th. Jóhannesson, forseta Íslands, á afmælishátíð.