Morgunblaðið - 04.11.2016, Side 36
36 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2016
VINNINGASKRÁ
27. útdráttur 3. nóvember 2016
122 12035 20613 29279 40882 48636 59745 70012
363 12122 20693 30148 40999 48688 59886 71468
665 12192 21165 30425 41016 48908 60621 71596
1174 12260 21234 30671 41390 48930 61193 71600
1900 12338 21260 31318 41397 49347 61361 71832
1929 12420 21369 31328 41565 49748 61958 72313
1936 12525 21410 31454 41607 50317 62201 72664
2373 12655 21412 32045 42006 50762 62418 72733
2393 12867 21677 32483 42376 50831 62617 72748
3333 12928 21737 32487 43387 51433 62638 73343
3564 12964 21884 32651 43828 51756 62700 73442
3833 13297 21911 33387 44080 51964 62703 73708
4730 13716 21975 33855 44401 52127 62726 74330
4927 14156 22125 33944 44503 52374 63010 74343
4938 14508 22652 34948 44831 53326 63148 74428
5126 15001 22796 35467 44934 53723 64288 74544
5237 15363 22849 35865 44953 53927 64675 75087
5339 15560 22872 36158 45032 54105 64719 75794
5431 15814 22989 36196 45333 54340 65333 75889
6026 15880 23877 36224 45485 54416 65433 75970
6223 15974 23905 36691 45486 54956 66043 75982
7364 17022 24035 36775 45766 55105 66060 76213
7919 17133 24932 37337 46054 55565 66923 76342
7974 17137 24946 37464 46134 55644 67250 77014
8045 17564 25644 37542 46211 55730 67334 77157
8204 17601 25944 37700 46317 55803 67388 78013
8581 18007 26026 38024 46412 55840 67573 78163
8614 18403 26164 38169 46460 56582 67859 78804
8629 18589 26293 38703 47092 56642 68029 79069
8795 19062 26442 38880 47311 57050 68486 79623
8983 19208 27186 38901 47554 57547 68629 79663
9140 19398 27851 39183 47676 57773 68888
10055 19468 27943 39454 47757 57803 68916
10459 19578 28552 39514 47801 58100 69034
10927 19668 28845 39662 48031 58296 69434
11197 20081 28981 39851 48165 58728 69502
11547 20119 29231 40113 48350 59509 69823
54 10167 19510 32597 40382 52535 63697 67860
103 10937 20807 33262 40745 55510 64110 68470
126 12385 21981 33346 41018 55804 64697 68521
2372 12585 22108 34186 41266 56682 65263 69304
3803 13782 23654 34378 42301 57407 65484 72260
3931 14159 23980 34398 42836 57548 65573 73379
4875 14280 24570 36716 44388 58413 65582 73609
5236 14303 25535 37830 44989 60332 65725 75775
6875 14624 26675 38771 45986 60976 66437 79347
7229 15196 26996 39117 47533 61062 66669
7411 16593 27998 39447 49070 61239 66906
8210 18393 32109 40060 52075 61460 67358
8426 19149 32531 40102 52410 62036 67392
Næstu útdrættir fara fram 10., 17., 24. nóv & 1. des 2016
Heimasíða: www.das.is
Vinningur
Kr. 10.000 Kr. 20.000 (tvöfaldur)
Vinningur
Kr. 20.000 Kr. 40.000 (tvöfaldur)
Vinningur
Kr. 150.000 Kr. 300.000 (tvöfaldur)
9149 43739 70149 77517
Vinningur
Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur)
3347 15085 37055 64778 68193 73809
4592 22447 40545 64794 68200 74265
10813 24559 60686 64860 70914 74872
12132 30224 64557 66724 72146 78797
Aðalv inningur
Kr. 3.000.000 Kr. 6.000.000 (tvöfaldur)
6 4 1 9 2
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Ís-
lands, er sennilega manna fróðastur
um sögu stjórnarmyndana og veit-
ingu umboða til stjórnarmyndunar á
Íslandi, enda hefur hann skrifað
lærðar greinar um þetta hugðarefni
sitt í fræðimannstíð sinni sem sagn-
fræðingur. Hann afhenti á miðviku-
dag Bjarna Benediktssyni, formanni
Sjálfstæðisflokksins, umboð til að
hefja stjórnarmyndunarviðræður.
Það er engin stjórnarskrárbundin
regla um það hver fær umboð for-
seta Íslands til þess að mynda rík-
isstjórn. „Forsetinn ræður því alger-
lega sjálfur. Það er alveg á hans
valdi að velja það,“ sagði Guð-
mundur Hálfdanarson, prófessor í
sagnfræði og forseti hugvísindasviðs
Háskóla Íslands, í samtali við mbl.is
12. október sl.
Á Vísindavef Háskóla Íslands er
að finna yfirlit um stjórnarmyndanir
fyrri ára. Þar er m.a. vísað til þess,
að í kjölfar alþingiskosninganna
2013 hafi Ólafur Ragnar Grímsson,
forseti Íslands, farið þá leið að kalla
alla formenn eða fulltrúa þeirra
stjórnmálahreyfinga, sem höfðu náð
fulltrúum á Alþingi, til sín á stuttan
fund í því skyni að fá úr því skorið
hver væri best til þess fallinn að
mynda ríkisstjórn. Í kjölfar fund-
anna ákvað Ólafur að veita Sigmundi
Davíð Gunnlaugssyni, formanni
Framsóknarflokksins, umboðið.
„Forsetinn rökstuddi þá ákvörðun
meðal annars með því að Framsókn-
arflokkurinn hefði unnið stórsigur í
kosningunum. Sjálfstæðisflokkurinn
var engu að síður sá flokkur sem
hafði fengið flest atkvæði allra
flokka en litlu munaði þó og hlutu
báðir flokkar jafnmarga þingmenn.
Einnig vísaði Ólafur til viðhorfa sem
komu fram í viðræðum hans við for-
ystumenn stjórnmálaflokkanna.
Þannig beitti Ólafur eigin mati á
stjórnmálaaðstæðum í stað þess að
fara eftir fyrirfram gefnum meg-
inreglum.“
Fóru öðruvísi að
Og síðan segir: „Aðrir forsetar
hafa farið öðruvísi að, til dæmis voru
Kristján Eldjárn og Vigdís Finn-
bogadóttir þeirrar skoðunar að helst
ætti að veita umboðið þeim flokki
sem hefði flest atkvæði á bak við sig.
Sú skoðun grundvallaðist á þeirri af-
stöðu að forseti Íslands ætti helst
ekki að taka fram fyrir hendur Al-
þingis. Á sömu forsendum þótti
heldur ekki við hæfi að mynda ut-
anþingsstjórn nema í ýtrustu neyð.
Kristján Eldjárn var að vísu kom-
inn á fremsta hlunn með að skipa ut-
anþingsstjórn árið 1979 þegar mikil
stjórnmálakreppa ríkti á Íslandi. Jó-
hannes Norðdal seðlabankastjóri
átti að vera forsætisráðherra í
þeirra stjórn og velja aðra ráðherra í
samráði við Kristján. Til þess kom
þó ekki þar sem Benedikt Gröndal,
Alþýðuflokki, myndaði minni-
hlutastjórn að lokum. Svipað var
uppi á teningnum ári síðar. Þá höfðu
allir formenn stjórnmálaflokkanna
sem áttu sæti á þingi fengið stjórn-
armyndunarumboð og skilað því aft-
ur þegar Gunnar Thoroddsen, vara-
formaður Sjálfstæðisflokksins, fékk
umboðið og myndaði ríkisstjórn með
minnihluta sjálfstæðismanna, Fram-
sóknarflokki og Alþýðubandalaginu.
Vigdís Finnbogadóttir var efins
um þetta stjórnarmyndunarkerfi
vegna þess hve illa gat gengið að
mynda stjórn. Hún var þeirrar skoð-
unar að stjórnmálamenn ættu að
geta leyft sér óformlegar þreifingar
áður en umboð til stjórnarmyndunar
væri veitt. Eftir alþingiskosning-
arnar, þegar formenn allra flokka
höfðu skilað af sér umboði, lét hún
nokkra daga líða án þess að nokkur
hefði umboð til stjórnarmynd-
unarviðræðna til að undirstrika
þessa skoðun sína.“
Það hefur aðeins einu sinni gerst í
sögunni að utanþingsstjórn hafi ver-
ið skipuð á Íslandi, en það var árið
1942.
Óróaskeið
Forseti Íslands, Guðni Th. Jó-
hannesson, segir m.a. í útdrætti með
fræðigrein sinni „Stjórnarmyndanir
á Íslandi 1971-2007“, frá 2007: „Eftir
tólf ára tímabil viðreisnarstjórnar
Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks,
sem lauk árið 1971, tók við óróaskeið
í íslenskum stjórnmálum. Næstu tvo
áratugi voru átta ríkisstjórnir við
völd í landinu og stjórnarmyndanir
voru nær alltaf langar og strangar;
tóku að jafnaði einn til tvo mánuði í
það minnsta.
Árið 1991 varð hins vegar breyt-
ing á. Stjórnarskipti urðu þá hröð,
sömuleiðis árið 1995 og næstu tólf ár
sátu Sjálfstæðisflokkur og Fram-
sóknarflokkur saman í stjórn – jafn-
lengi og viðreisnarstjórnin á sínum
tíma. Stjórnarmyndunarviðræður
vorið 2007 gengu jafnsnurðulaust
fyrir sig og því má jafnvel ætla að
verklag við stjórnarskipti hafi
breyst til frambúðar. „Stjórn-
arkreppa“, „stjórnarmynd-
unarviðræður“ og „stjórnarmynd-
unarumboð“ eru hugtök sem áður
voru á hvers manns vörum eftir
kosningar en eru nú nær horfin úr
hugum landsmanna.“
Flókinn kapall Stjórnarmyndun hefur oft verið flókin. Kristján Eldjárn forseti og Benedikt Gröndal, formaður Al-
þýðuflokksins, ræða hér saman árið 1978. Lúðvík Jósepsson, formaður Alþýðubandalagsins, kemur á fund forseta.
Engar reglur um
veitingu umboðs
Sjálfstæðisflokk-
urinn var stærstur
eftir kosningar
2013 en formaður
Framsóknarflokks
fékk stjórnarmynd-
unarumboðið
Morgunblaðið/Golli
Umboð Ólafur Ragnar Grímsson forseti veitti Sigmundi Davíð Gunnlaugs-
syni, formanni Framsóknarflokks, umboð til stjórnarmyndunar 2013.
Morgunblaðið/Emilía
Stjórnarmyndun Geir Hallgrímsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, og Vig-
dís Finnbogadóttir forseti á fundi um stjórnarmyndun árið 1983.
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
ÞARFTU AÐ LÁTA GERA VIÐ?