Morgunblaðið - 04.11.2016, Side 38

Morgunblaðið - 04.11.2016, Side 38
38 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2016 Hann sagði að ekkjan hefði beðið sig um að geyma milli 15 og 17 svarta ruslapoka með myndunum eftir að Picasso lést í apríl 1973. Einhverju seinna hefði Jacqueline Picasso sótt pokana en gefið honum einn þeirra með orðunum: „Eigðu þetta, þetta er handa þér.“ Le Guennec sagði að „kannski“ hafi ekkjan verið að reyna að koma verkunum undan búi listamannsins. Sagðist hann ekki hafa sagt sann- leikann fyrr við réttarhöldin af ótta við að vera dæmdur ásamt konu sinni fyrir þjófnað á pokunum með listaverkunum í. Á fyrri stigum hélt hann því fram að sjálfur Pablo Pi- casso hafi gefið honum verkin 1971 eða 1972, meðan hann var enn á lífi. Lögmaður hjónanna, Eric Du- pond-Moretti, segir aðeins nokkra dagar liðna frá því hann hafi fengið vitneskju um nýju útgáfuna um til- komu verkanna. Le Guennec segir nú, að Jacqueline hafi gefið honum myndirnar 271; 180 stakar myndir og skissubók með 91 mynd í . Hafi hún viljað með því þakka hjónunum trygglyndi þeirra og þjónustu við Picassohjónin. Lýsti hann mynd- unum sem „teikningum, skissum og krumpuðum pappír.“ Hann sagðist á sínum tíma ekki hafa sýnt þeim mikinn áhuga og sett í geymslu í bílskúr sínum. Það hefði svo ekki verið fyrr en 2009 að hann opnaði pokann og áttaði sig fyllilega á góssinu. „Stórkostleg lygi“ Lögmanni Claude Ruiz-Picasso, Jean-Jacques Neuer, gramdist framburður Le Guennec og sagði hann vera „stórkostlega lygi“. Hélt hann því fram, að málið snerist meðal annars um „svörtustu og öfl- ugustu öfl“ á listaverkamarkaði er reyndu að þvætta stolin listaverk með svikum. Saksóknarinn Christophe Raffin sagðist ekki leggja trúnað á að teikningarnar hefðu verið gjöf. „Ég held að um sé að ræða þjófnað frá Pablo Picasso öldruðum og frá Jac- queline, sem var meira en nokkru sinni umhugað um eiginmann sinn,“ sagði Raffin. Hann bætti því svo við, að allteins mætti hugsa sér að nýja útgáfan á tilurð pokanna í bíl- skúr Le Guennec sem nú væri kynnt sem sannleikur væri líka lygi. „Herra og frú Le Guennec, þér hafið logið til um ýmis atriði,“ sagði saksóknarinn. Góssið hefur ekki verið verðmet- ið, en meðal myndanna eru teikn- ingar af konum og hestum, níu sjaldgæfar kúbískar klippimyndir frá þeim tíma er Picasso átti sam- starf við franska listamanninn Georges Braque og myndir frá svo- nefndu „bláa tímabili“ Picasso. Meðal myndanna er einnig portrett af hjákonu Picasso, Fernande, teikningar af fyrstu konu lista- mannsins, Olgu, og mynd af hesti fyrir börn hans. Myndirnar voru teiknaðar á ár- unum 1900 til 1932. Yfirvöld lögðu hald á þær eftir að Le Guennec freistaði þess árið 2010 að fá stað- fest að þær væru ófalsaðar. Í þeim tilgangi sýndi hann myndirnar Ru- iz-Picasso, sem komið hefur fram fyrir hönd erfingja Picasso. Fóru þeir þegar í stað á fund lögreglu og lögðu fram kæru á hendur rafvirkj- anum aldna. Voru verkin afhent Ruiz-Picasso. Engin mynd árituð Lögmaður Ruiz-Picasso hefur bent á, að ekkert verkanna í vörslu Le Guennec hafi verið áritað, og það væri óvenjulegt því Picasso hefði alltaf áritað verk sín, hvort sem hann seldi þau eða gaf. Annar af verjendum Le Guennec, Charles- Etienne Gudin, hélt því fram að einungis um tylft verkanna gæti talist verðmæt og afganginn væri „mjög lítið varið í“ og hefði Picasso aldrei reynt að selja þau. Catherine Hutin-Blay, barna- barn Picassos, einn af fáum sókn- araðilum málsins sem þekktu Le Guennec frá því hann vann fyrir málarann, viðurkenndi við vitna- leiðslur, að samband afa hennar og rafvirkjans hefði verið sérstakt. Saksóknari að nafni Laurent Ro- bert heldur því fram, að Le Guen- nec-hjónin séu peð í tafli ófyrirleit- inna listaverkasala sem ráðskist með þau og misnoti í vafasömum tilgangi. Væri þar um að ræða menn sem reyndu að komast yfir verk sem fyrrverandi bílstjóri Pi- casso hefði stolið. Í niðurstöðum rannsóknar málsins er hvergi form- lega leitt í ljós hver eða hverjir stálu myndunum. Eins og fyrr seg- ir kemur í ljós 16. desember hvort Le Guennec hjónin verða fundin sek um hylmingu þýfis eða þjófnað, er dómur gengur í þessu óvenju- lega máli. Ekkja Picassos hugðist fela verkin  Spurt er hvort 271 listaverk eftir Picasso sem var í fórum fyrrverandi húsvarðar hans hafi verið gjöf eða þýfi  Faldi húsvörðurinn verkin fyrir erfingjum að beiðni Jacqueline, ekkju listamannsins? AFP Í dómsalnum Pierre Le Guennec og kona hans Danielle á sakamannabekk fyrir áfrýjunarréttinum í Aix-en- Provence í Frakklandi síðastliðinn mánudag. Þau halda fram sakleysi sínu og segja verkin hafa verið gjöf. Morgunblaðið/RAX Listahátíð Jacqueline Picasso kom á Listahátíð í Reykjavík árið 1986. Hér sést hún með Hrafni Gunnlaugssyni á Picasso-sýningunni á Kjarvalsstöðum. Morgunblaðið/G.Rúnar List Jacqueline gaf íslensku þjóðinni brjóstmynd sem eiginmaður hennar, Pablo Picasso, gerði af henni. BAKSVIÐ Ágúst Ásgeirsson agas@mbl.is Aldraður fyrrverandi rafvirki Pi- casso-hjónanna og eiginkona hans eru fyrir rétti í Frakklandi vegna 271 verks eftir listamanninn heims- fræga. Sakadómur í bænum Grasse dæmdi þau í tveggja ára óskilorðs- bundið fangelsi í mars í fyrra fyrir hylmingu. Þau áfrýjuðu þeim dómi, sem og saksóknari, sem krefst stað- festingar dóms undirréttarins. Meðferð málsins fyrir áfrýj- unarréttinum í Aix-en-Provence lauk sl. mánudag og við það tæki- færi var dómsuppsaga boðuð 16. desember næstkomandi. Mál þetta á rætur aftur til ársins 2010 er aldraði rafvirkinn Pierre Le Guennec hafði samband við Claude Picasso, son listamannsins, sem fer fyrir stofnuninni Société Picasso Administration, til að fá staðfestingu hans á dularfullum myndskissum. Alls voru þær 291 og rissaðar upp á árunum 1900 til 1932. Var þær ekki að finna á nein- um skrám erfingja spænska lista- mannsins. Le Guennec sagðist hafa eignast verkin meðan hann starfaði sem umsjónarmaður húseigna Pi- casso. Eftir andlát hans hefði hann verið sérlegur aðstoðarmaður ekkju hans Jacqueline, allt þar til hún svipti sig lífi árið 1986. Saksóknari leggur ekki trúnað á þann framburð Le Guennec að um gjöf hafi verið að ræða af hálfu listamannsins eða konu hans. Sam- kvæmt lögum gætu rafvirkinn fyrr- verandi og kona hans átt yfir höfði sér fimm ára fangelsi og greiðslu sektar sem annaðhvort næmi 375.000 evrum eða helmingi af ætl- uðu verðmæti verkanna. Réði sú upphæð er hærri væri. Saksóknari fer þó aðeins fram á að refsing þeirra fyrir héraðsdómi verði stað- fest, þ.e. tveggja ára skilorðsbundið fangelsi. Sjálf krefjast rafvirkja- hjónin sýknu. Í svörtum pokum í bílskúr Í vitnaleiðslum fyrir áfrýj- unarréttinum í Aix sagðist Le Gu- ennec hafa búið um verkin í bílskúr sínum og þar hefðu þau verið óhreyfð í tæp 40 ár. Kvað hann það vel geta verið að ekkja Pablo Pi- casso, Jacqueline, hefði viljað fela verkin fyrir fjölskyldu listamanns- ins. „Frú Jacqueline Picasso átti í útistöðum við [stjúpson sinn] Claude [Ruiz] Picasso,“ sagði Pierre Le Guennec skjálfandi röddu í dómssalnum. Var þar um að ræða nýja útgáfu af vörn hans. Vesturhrauni 3, 210 Garðabæ | Sími 480 0000 | sala@aflvelar.is | aflvelar.is Vagnar og kerrur frá OPIÐ mánudaga til föstudags 8:00-17:00 Hafið samband í síma 480 0000 Gullsmiðir CARAT eru sérfræðingar í trúlofunar, giftingarhringum og demantsskartgripum CARAT Haukur gullsmiður O Hátúni 6a O s. 577 7740 O carat.is Gull, hvítagull, rauðagull, rósagull, platína, með eða án demanta.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.