Morgunblaðið - 04.11.2016, Síða 44

Morgunblaðið - 04.11.2016, Síða 44
44 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2016 ekki jafngóðum stökkum, hið lengsta 13,38 og varð 22. í röðinni. Kepptu fyrir framan 100.000 áhorfendur Íslendingarnir voru viðvaningar í keppni á erlendri grund og því voru það mikil viðbrigði fyrir þá að standa á hinum mikla leikvangi umkringdir að staðaldri af um 100.000 áhorf- endum. Riðu Sveinn Ingvarsson og Sigurður á vaðið, Sveinn í sjötta riðli 100 metra hlaupsins og Sigurður í hástökki. Viðbragðið var jafnan veika hlið Sveins en ekki að þessu sinni. Rauk hann jafnt af stað með hinum og var jafnhliða þeim í fyrstu. Svo fór mismunurinn á flýti að segja til sín og smátogna úr bilinu milli keppinautanna. Varð Sveinn fimmti af sex keppendum. Tveir fyrstu menn fengu 10,7 sekúndur og var Sveinn um fjóra metra á eftir þeim í mark. Tími var aðeins tekinn á fyrstu þremur, en áætlað var að tími Sveins hefði verið 11,1 til 11,2 sek- úndur. Hans riðill reyndist einn sá sterkasti á leikunum. Sigurður Sigurðsson stökk fyrstur í öðrum tveggja stökkhópanna í há- stökkinu. Fór hann strax í fyrsta stökki yfir byrjunarhæðina, 1,60 m og sömuleiðis næstu hæð, 1,70 m, en þá hæð feldu ýmsir í fyrsta stökki í báðum hópum. Milli stökka hélt Sig- urður á sér hita undir ábreiðu sem hann deildi með kanadískum keppi- naut. Nokkrir keppendur voru falln- ir úr leik er hann reyndi fyrst við 1,80 metra. Atrennan passaði ekki og hann felldi rána. Hann lagðist niður aftur og beið næsta stökks. Kanadamaðurinn sá að Sigurður hafði nóga hæð í stökkinu en stykki upp of langt frá ránni. Ráðlagði hon- um að stytta atrennuna og var ekki að því að spyrja, yfir fór hann í þriðju og síðustu tilraun yfir. Allar tilraunir hans til að stökkva yfir næstu hæð, 1,85 metra, sem var lág- markshæðin inn í úrslitin, mistókust hins vegar. Tók Sigurður fjölda keppenda fram, meðal annarra frá stórþjóðum, en þrístökkið var þó að- algrein hans. Hryssingslegt og hvasst Skömmu fyrir leikana hafði Krist- ján Vattnes bætt Íslandsmetið í spjótkasti í 57,63 metra. Til að kom- ast í aðalkeppnina í Berlín þurfti hann að kasta 60 metra. Hvasst var og hryssingslegt var í veðri, en ekki kalt, er keppni hans og Sigurðar í þrístökkinu fór fram fimmtudaginn 6. ágúst. Leikvangurinn var fullskip- aður áhorfendum strax um morg- uninn. Eftir að þeir höfðu fengið nudd byrjuðu þeir Kristján og Sig- urður að liðka sig undir kappleikana, spjótkastararnir með smáköstum og þrístökkvararnir með smásprettum og hoppum. Á miðjum vellinum voru kast- lengdirnar sýndar með línum frá 60 metrum, sem var lágmarkskast til aðalkeppi. Styttri kastlengdir sáust ógerla. Kristján náði ekki lágmark- inu í köstum sínum, en hann var ekki einn um það, því tíu aðrir spjótkast- arar náðu því ekki heldur, þar á með- al margir mjög góðir. Var hann í miðjum hópi þeirra og áætlað að lengsta kast hans hafi verið um 55 metrar. Köst sem náðu ekki yfir 60 metra lágmarkslínuna voru ekki mæld en þeir sem köstuðu yfir 60 m fengu að keppa í aðalkeppninni síðar um daginn. Sigurður í úrslit í þrístökki Í undankeppni þrístökksins var sömuleiðis aðeins keppt um hvort menn næðu 14 m stökklengd. Þeir sem það gátu áttu að keppa í úrslit- um síðar um daginn, hinir voru úr leik. Þetta var sú grein sem mestir möguleikar voru taldir á að ná langt í því Sigurður hafði stokkið um 14 m á æfingum heima og eins í þorpinu fyr- ir keppni. Þetta tókst. Fyrsta stökk Sigurðar var talsvert yfir 14 metrum en dæmt ógilt. Annað stökkið var fullgilt og líka yfir 14 metrum. Hon- um var því sagt að hætta og koma til úrslitakeppninnar síðar um daginn. Eftir hvíld heima í ólympíuþorpinu lá leiðin út á leikvang aftur. Sigurður var í nokkrum vafa um að honum hefði heyrst rétt um þátttöku sína í aðalkeppninni. Nafn hans hafði ekki verið kallað upp meðal hinna er í að- alkeppnina komust. Ólafur Sveins- son þjálfari brá hratt við og spurðist fyrir um þetta hjá dómurunum, sem staðfestu að Sigurður væri meðal keppenda í úrslitunum. Gekk Vest- mannaeyingurinn til keppninnar en tókst nú verr en um morguninn. Náði hann aldrei aftur 14 metra stökklengd og var svo um fleiri. Að- almarkmiðinu hafði þá verið náð, að stökkva yfir 14 metra og komast í úr- slitin. „Þegar því var náð kom aftur- kippurinn sem er svo alþekkt fyrir- brigði undir líkum kringumstæðum. Með þessum tveimur ágætu afrek- um sínum hefir Sigurður unnið sér ágætan orðstír,“ sagði Ólafur á sín- um tíma í Morgunblaðinu. Heyrði ekki nafnið Daginn eftir, 7. ágúst, keppti Karl Vilmundarson í tugþraut. Heyrði hann ekki nafn sitt við nafnakall og þurfti því að hlaupa einn er öllum öðrum riðlum var lokið og kepp- endur byrjaðir á næstu grein, lang- stökkinu. „Auðvitað varð Karli svo bilt við þetta, að allt fór út um þúfur hjá honum og hann fékk versta tíma, sem hann hefir fengið á sprettinum í mörg ár, 12,6 sek. Í fyrra hljóp hann 100 metra á 11,5 sek. Er ekki að undra að svo færi, því sterkar taugar þarf til að manni fatist ekki undir slíkum kringumstæðum,“ segir Ólaf- ur. Langstökkið fór fram strax á eftir og gætti þar áhrifanna frá hugróti því er Karl varð fyrir. Tvö af þremur stökkum hans urðu ógild en hið eina gilda mældist aðeins 5,62 metrar. Í miðdegishléinu álitu Karl og aðstoð- armenn hans ástæðulaust að hann héldi keppninni áfram er svo ógiftu- samlega hafði til tekist í byrjun. Gekk hann því úr leik eftir þessar tvær greinar ásamt tveimur öðrum keppendum. Owens gerir Hitler grikk Berlínarleikanna er minnst í íþróttasögunni fyrst og fremst fyrir sigur bandaríska blökkumannsins Jesse Owens í fjórum greinum. Hlaut hann gull í 100 og 200 metra hlaupi, 4x100 metrum og í lang- stökki. Með því mistókst sú ætlan Hitlers að nota leikana til að sýna fram á yfirburði hins hvíta kyn- stofns, aríans. Leikarnir í Berlín voru þeir fyrstu í sögunni sem sjónvarpað var frá. Voru 25 sjónvarpsherbergi sett upp á Stór-Berlínarsvæðinu svo almenn- ingur sem ekki komst á völlinn gæti notið þeirra. Þrettán ára bandarísk stúlka að nafni Marjorie Gestring sigraði í dýfingum af bretti í Berlín. Er hún enn þann dag í dag yngsti gull- verðlaunahafi á Ólympíuleikum frá upphafi. Hún var þó ekki yngst verð- launahafa því 12 ára dönsk stúlka að nafni Inge Sörensen vann brons- verðlaun í 200 metra bringusundi. Er hún enn yngsti verðlaunahafi sögunnar í einstaklingsgrein. Greinar sem í fyrsta sinn komust á dagskrá Ólympíuleika voru körfu- bolti, húðkeipasiglingar og handbolti utanhúss. Alls voru þátttökuþjóðir 49 og keppendur 3.936, þar af 3.632 karlar og 331 kona. Skýrslur sýna, að á þremur vikum í ólympíuþorpinu neyttu íþróttamenn og fylgismenn þeirra kjöts af 100 kúm, 91 svíni og 650 lömbum. Sem áður segir notuðu nasistar leikana til að halda úti gríðarlegum áróðri um land allt meðan á leik- unum stóð. Eftir seinna stríðið og skiptingu Berlínar á yfirráðatíð kommúnista féll ólympíusvæðið að hluta í óhirðu. Lagði sovéskt setulið svæðið undir sig og hafði þar meðal annars miðstöð yfirheyrslna og pyntinga. Til Berlínar Frjálsíþróttahópurinn um borð í Dettifossi. Á myndinni eru Ólafur Sveinsson þjálfari, Karl Vilmundarson, Sveinn Ingvarsson, Kristján Vattnes og Sigurður Sigurðsson. Ljósmynd birt með leyfi ÍSÍ Setningarathöfn Íslendingar ganga inn á leikvanginn í Berlín. Fánaberi er Kristján Vattnes. Afreksmaður Með fernum gullverðlaunum í frjálsíþróttakeppninni gerði Jesse Owens Hitler og áróðursmeisturum nasista mikinn grikk. Lágmúli 5, 108 Reykjavík | Sími 571 5800 | gudrun@garun.is | garun.is Ertu í sölu hugleiðingum? Guðrún Antonsdóttir Lögg.fasteignasali Sími 697 3629 Viltu kraftmikinn fasteignasala sem vinnur fyrir þig, er heiðarlegur og traustur. Bjóddu mér í heimsókn og fáðu frítt söluverðmat og tilboð í söluferlið þitt.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.