Morgunblaðið - 04.11.2016, Síða 48
var rektor Háskóla Abbdulaziz kon-
ungs í Sádi-Arabíu, var velgjörðar-
maður fjölskyldunnar og styrkti
tímaritið. Hann er innanbúðarmaður
í stjórn Sádi-Arabíu. Hann hefur
einnig verið spyrtur við Osama bin
Laden og hryðjuverkasamtökin al-
Qaeda, nokkuð sem hann neitar.
Hann hefur einnig verið sagður
áhrifamaður í Bræðralagi múslíma í
Egyptalandi.
Spyrt við Bræðralag múslíma
Fyrir fjórum árum skrifaði Mic-
hele Bachmann ásamt fjórum öðrum
þingmönnum repúblikana bréf til ut-
anríkisráðuneytið þar sem því var
haldið fram að Bræðralag múslíma
hefði komið sér fyrir í æðstu lögum
bandaríska stjórnkerfisins. Nafn
Abedin var sérstaklega tilgreint í
bréfinu.
Mánuði síðar kvaddi John Mc-
Cain, öldungadeildarþingmaður
repúblikana og forsetaframbjóðandi
2008, sér hljóðs til að mótmæla til-
efnislausri árás á Abedin sem væri
„dyggur þjónn lands okkar og ríkis-
stjórnar“.
BAKSVIÐ
Karl Blöndal
kbl@mbl.is
Huma Abedin hefur um árabil verið
einn nánasti samstarfsmaður Hillary
Clinton, frambjóðanda demókrata í
forsetakosningunum í Bandaríkj-
unum, sem fram fara á þriðjudag. Í
kosningabaráttunni hefur Abedin
fylgt Clinton við hvert fótmál, en
undanfarna daga hefur hún ekki sést
við hlið hennar. Hennar dyggasti að-
stoðarmaður er orðinn dragbítur.
Á föstudag í liðinni viku sendi
James Comey, yfirmaður banda-
rísku alríkislögreglunnar, FBI,
Bandaríkjaþingi tilkynningu þess
efnis að hann teldi ástæðu til að hefja
að nýju rannsókn á tölvupóstum
Clinton vegna upplýsinga sem hefðu
komið fram við rannsókn á óskyldu
máli.
Comey lýsti í sumar yfir því að
rannsókn á því hvort Clinton hefði
brotið lög með því að vista tölvu-
pósthólf sitt á einkavefþjóni sínum
þegar hún var utanríkisráðherra í
stað þess að nota vefþjón ráðuneyt-
isins væri lokið og ekki væri ástæða
til að sækja hana til saka. Hann
bætti þó við að Hillary hefði sýnt
vítavert gáleysi með því að vista
samskiptin á ótryggum vefþjóni.
Áráttuhegðun eiginmanns
Óskylda málið snerist um Ant-
hony Weiner, mann Abedin. Við
rannsókn FBI á því hvort Weiner
hefði átt í ósæmilegum samskiptum
við 15 ára stúlku fundust mörg
hundruð þúsund tölvupóstar á far-
tölvu þeirra, þar af nokkur þúsund,
sem gætu hafa farið á milli Abedin
og Clinton. Þetta vakti að nýju
spurningar um að öryggisreglur
hefðu verið brotnar í meðferð póst-
anna og stendur nú yfir rannsókn á
innihaldi þeirra. Ekki er víst að
henni verði lokið fyrir kosningar.
Rannsókn FBI hefur hleypt
spennu í kosningarnar á nýjan leik.
Dregið hefur saman milli Clinton og
Donalds Trumps, en enn virðist hún
þó hafa forskot.
Abedin hefur látið lítið fyrir sér
fara frá því að málið kom upp, en
nánustu ráðgjafar Clinton hafa kom-
ið henni til varnar. „Við styðjum
hana að sjálfsögðu,“ sagði John Po-
desta, stjórnandi kosingaherferðar
Clinton, á laugardag þegar hann var
spurður hvort Abedin myndi stíga til
hliðar.
20 ár eru liðin frá því að leiðir
Abedin og Clinton lágu fyrst saman.
Árið 1996 kom Abedin í Hvíta húsið,
þá 19 ára gömul, sem lærlingur að
loknu háskólanámi og var falið að að-
stoða þáverandi forsetafrú, Hillary
Clinton.
Abedin fylgdi Clinton þegar hún
var kjörin öldungadeildarþingmaður
fyrir New York-ríki 2001 og varð
starfsmannastjóri hennar. Þegar
Clinton sóttist eftir að verða forseta-
frambjóðandi demókrata 2008 var
Abedin sérlegur aðstoðarmaður
hennar. Abedin gegndi stöðu aðstoð-
armanns starfsmannastjóra Clinton
þegar hún varð utanríkisráðherra í
stjórn Obama 2009.
Abedin fæddist í Michigan 1976.
Faðir hennar er frá Indlandi og móð-
ir hennar frá Pakistan og tóku þau
bæði doktorspróf í Bandaríkjunum.
Fjölskyldan flutti til Sádi-Arabíu
þegar Huma Abedin var tveggja ára.
Þar ólst hún upp og sneri ekki aftur
til Bandaríkjanna fyrr en hún fór í
háskóla. Hún ferðaðist hins vegar
mikið og gekk í stúlknaskóla á Bret-
landi.
Faðir hennar lagði stund á ísl-
ömsk fræði og Mið-Austurlönd.
Hann stofnaði tímarit helgað rann-
sóknum á hlutskipti minnihlutahópa
múslíma í samfélögum sem ekki eru
íslömsk, Journal of Muslim Minority
Affairs. Huma Abedin var skráð
aðstoðarritstjóri þess frá 1996 til
2008.
Abdullah Omar Nasseef, sem þá
Abedin kynntist Timothy Weiner,
sem þá var fulltrúadeildarþingmað-
ur, 2001. Sagan segir að hún hafi ætl-
að að skorast undan þegar hann
bauð henni upp á drykk vegna þess
að hún hefði þurft að vinna, en
Hillary Clinton hafi sagt að henni
væri óhætt að slaka á.
Hún vildi þó lítið af honum vita og
það var ekki fyrr en sex árum síðar
að samband myndaðist á milli þeirra.
2010 gengu þau í hjónaband og gaf
Bill Clinton þau saman.
2011 fór allt á annan endann þegar
Weiner sendi óvart mynd af kynfær-
um sínum, sem ætluð var háskóla-
nema í Seattle, 45.000 fylgismönnum
sínum á félagsvefnum Twitter.
Weiner sagði af sér þingmennsku
og lofaði bót og betrun. Hann og
Abedin, sem var ólétt, ákváðu að
halda sínu striki.
2013 hugðist Weiner bjóða sig
fram til borgarstjóra í New York.
Aftur kom strik í reikninginn. Í ljós
kom að hann hafði sent ósæmileg
skilaboð á félagsmiðlum undir við-
urnefninu „Carlos Danger“. Í heim-
ildarmynd um hið misheppnaða
borgarstjóraframboð Weiners sagði
Abedin að hún elskaði mann sinn og
hefði fyrirgefið honum.
Í sumar kom í ljós að Weiner hefði
verið í netsambandi við stúlku undir
lögaldri. Í ágúst var tilkynnt að þau
Abedin væru skilin. Rannsókn FBI á
Weiner fylgdi í kjölfarið og í henni
fundust tölvupóstar Abedin og Clin-
ton, sem nú eru til rannsóknar.
Clinton og Abedin eru mjög nán-
ar. Þeir sem þekkja til segja ýmist að
Abedin sé eins og önnur dóttir Clin-
ton eða yngri systir hennar. Hermt
er að Abedin geymi símann fyrir
Clinton og passi svo vel upp á að ekki
komist hver sem er að henni að jafn-
vel Bill Clinton kvarti undan því að
hafa ekki aðgang að konu sinni.
„Í áranna rás höfum við deilt sög-
um af lífi okkar, við höfum borðað
oftar saman en ég hef á tölu, við höf-
um fagnað saman, við höfum syrgt
saman,“ sagði Abedin í viðtali við
tímaritið Vogue fyrr á þessu ári.
Abedin hefur verið orðuð við stöðu
starfsmannastjóra forsetans, nái
Hillary kjöri. Rannsókn FBI gæti
sett þar strik í reikninginn.
AFP
Nánar Huma Abedin talar í síma á meðan Hillary Clinton skoðar síma Brians Fallons blaðafulltrúa.
Huma Abedin
í eldlínunni
Einn nánasti ráðunautur Clinton
48 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2016
EXPLORE WITHOUT LIMITS
®
ARCTIC TRUCKS ÍSLAND EHF.
KLETTHÁLSI 3
110 REYKJAVÍK
SÍMI: 540 4900
NETFANG: info@arctictrucks.is
www.arctictrucks.com
VÖNDUÐ JEPPADEKK
FYRIR ÍSLENSKAR AÐSTÆÐUR
VÖNDUÐ OG HLJÓÐLÁT
DEKK UNDIR FLESTAR
GERÐIR JEPPA OG
JEPPLINGA.
STÆRÐIR FRÁ 29-44 TOMMU.
ÖLL ALMENN
DEKKJAÞJÓNUSTA
TÍMABÓKANIR
Í SÍMA 540 4900
Breskur dómstóll úrskurðaði í gær
að bresk stjórnvöld gætu ekki virkj-
að 50. grein Lissabonsáttmálans og
hafið samninga um útgöngu úr Evr-
ópusambandinu án undangengins
samþykkis þingsins.
Bretar samþykktu í þjóðarat-
kvæði í sumar að ganga úr ESB.
Theresa May, forsætisráðherra
Bretlands, hefur lýst yfir því að haf-
ist verði handa í lok mars. Á þingi er
andstaða við útgöngu. Umræður á
þingi gætu tafið, en ólíklegt er þó tal-
ið að þingið gangi gegn niðurstöðu
þjóðaratkvæðagreiðslunnar.
Í yfirlýsingu frá embætti forsætis-
ráðherra sagði að ákvörðun réttarins
ylli vonbrigðum. Málinu yrði áfrýjað.
Búist er við að hæstiréttur fjalli um
málið fyrri hluta desember.
„Þjóðin greiddi atkvæði um að
ganga úr Evrópusambandinu í þjóð-
aratkvæðagreiðslu, sem samþykkt
var á þingi,“ sagði í yfirlýsingu frá
May. „Stjórnin er staðráðin í að
virða niðurstöðu þjóðaratkvæðis-
ins.“
Stefnendur fögnuðu niðurstöð-
unni og sögðu hana sigur fyrir
bresku þjóðina. AFP.
AFP
Sigri hrósandi Gina Miller ávarpar fjölmiðla fyrir utan yfirdómstólinn í
London. Hún leiddi málsóknina um að þingið yrði að samþykkja Brexit.
Samþykkja verður
útgöngu á þingi