Morgunblaðið - 04.11.2016, Side 58
58 .
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2016
VIÐ ERUM
AÐ STANDA OKKUR!
AFNÁM TOLLA
SKILAR SÉR TIL NEYTENDA
VERÐ ÁÐUR 17.995
VERÐ NÚ 14.995
SKECHERS TOM CATS-BULLY
HERRASKÓR MEÐ GRÓFUM
GRIPMIKLUM HRÁGÚMMÍSÓLA
Stærðir 39-46
FERÐIR INNANLANDS í vetur
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Aldrei hafa verið fleiri góðar ástæð-
ur til að heimsækja Vestfirði yfir
vetrarmánuðina. Þar má finna
mikla náttúrusæld, einstakar laug-
ar og áhugaverð söfn. Það sem
meira er: Vestfirðingar eru menn-
ingarsinnað fólk og metnaðarfullt
leikhússtarf á svæðinu.
„Menningarlífið hér er mjög fjöl-
breytt og hefur Ísafjörður t.d. kom-
ist á kortið sem mikill tónlistarbær,
og eins er margt um að vera í
þorpunum í kring. Þannig er á
Þingeyri starfrækt öflugt áhuga-
mannaleikfélag sem setur upp veg-
lega barnaleiksýningu hvern vetur
og í þetta skipti sýna þau Dýrin í
Hálsaskógi,“ segir Elfar Logi
Hannesson.
Sjálfur er Elfar aðaldriffjöðrin í
starfi Kómedíuleikhússins
(www.komedia.is), eina atvinnuleik-
húss Vestfjarða. Leikhúsið var
stofnað árið 1997 í Reykjavík en
fluttist til Vestfjarða árið 2000. Elf-
ar er eini fastráðni starfsmaðurinn
en hæfileikafólk úr ýmsum áttum
leggur hönd á plóg. Hafa margar
uppfærslur Kómedíuleikhússins
vakið verðskuldaða athygli og má
þar t.d. nefna verk um Gísla Súrs-
son sem var verðlaunað á erlendum
leiklistarhátíðum.
„Fyrsta uppfærsla leikfélagsins
var á verki eftir Samuel Beckett,
en öll verk sem á eftir komu hafa
tengst vestfirskri sögu á einn eða
annan hátt,“ segir Elfar. „Eru
þetta verk sem fjalla t.d. um hetjur
Íslendingasagnanna, eða þjóðhetjur
og listamenn á borð við Jón Sig-
urðsson, Mugg og Sigvalda Kalda-
lóns.“
Himnarnir opnuðust
Nýjasta sýning Kómedíuleik-
hússins fjallar um einbúann Gísla á
Uppsölum en frumsýningin var í
september. Eins og venjan er með
frumsýningar leikfélagsins var
fyrsta sýningin haldin skammt frá
heimaslóðum Gísla, í Selárdals-
kirkju. „Það var stórkostleg stund
og virtist eins og Gísli væri þar
með okkur. Var þungskýjað allan
daginn en hálftíma áður en sýn-
ingin hófst opnuðust himnarnir og
sólin skein inn um glugga kirkj-
unnar,“ segir Elfar.
Elfar skrifaði handritið með
Þresti Leó Gunnarssyni. Þröstur
leikstýrir og Elfar leikur hlutverk
Gísla en Svavar Knútur Kristinsson
semur tónlistina. Útkoman er
merkileg sýning sem gefur áhorf-
endum innsýn í ævi og hugarheim
óvenjulegs manns.
„Það voru mjög skiptar skoðanir
um það hér í samfélaginu þegar tók
að fréttast af þessu verkefni okkar.
Sumum leist ekkert á þetta og ótt-
uðust að útkoman myndi verða
verk sem gerði grín að Gísla.“
Vissulega var Gísli á Uppsölum
ekki eins og fólk er flest og þótti
það mikill viðburður þegar Ómar
Ragnarsson fréttamaður tók frægt
sjónvarpsviðtal við þennan aldna
einbúa, og eins þegar Árni John-
sen, þá blaðamaður á Morgun-
blaðinu, ræddi við og myndaði
Gísla. „Jafnvel sveitungar hans
vissu ekki af þessum manni. Sjálfur
er ég frá Bíldudal og eins og nán-
ast allir aðrir sá ég Gísla fyrst í
sjónvarpinu og hafði aldrei fyrr
heyrt á hann minnst,“ segir Elfar.
Hugsanir einbúans
Ævi Gísla var merkileg fyrir
margra hluta sakir og sumir kafl-
arnir í sögu hans átakanlegir.
Styðst sýningin við bókina Eintal
sem hefur að geyma ljóð, dag-
bókabrot, minningar og ýmsar hug-
leiðingar Gísla, en bókin byggist á
gögnum sem fundust að Gísla látn-
um. „Þegar átti að ganga frá eigum
hans kom í ljós fullt af efni, blöð og
snifsi inni í bókum, með ljóðum,
sálmum og minningabrotum. Í dag-
bókum sínum skrifar Gísli t.d. á
áhrifaríkan hátt um æsku sína og
hrottalegt einelti sem hann varð
fyrir í skóla. Hann skrifar líka
mjög fallega, en af ákveðinni bit-
urð, um móður sína en samband
þeirra var mjög sérstakt.“
Elfar segir að það efni sem Gísli
skildi eftir sýni að hann var heim-
spekingur. Í einverunni lét hann
hugann reika og velti ýmsu fyrir
sér. „Það er margt sem verður til
þess að hann einangrast. Eineltið
setti mark sitt á hann, en greinilegt
er að Gísli var bráðgreindur og
hann vildi fara suður til að mennta
sig, og jafnvel til útlanda. Faðir
hans fellur frá á mjög sviplegan
máta þegar Gísli er ungur, og
bræður hans flytja burt. Loks er
Gísli einn eftir í kotinu með móður
sinni, sem kemur í veg fyrir að
hann fari og láti sína eigin drauma
rætast.“
Á sínum yngri árum virtist sem
Gísla væru allir vegir færir. „Hann
þótti efnilegur og myndarlegur
ungur maður en náði einhvern veg-
inn ekki að dansa í takt við lífið.“
Menningarveisla á Bíldudal
Framundan hjá Kómedíuleikhús-
inu eru sýningar á verkinu um
Gísla á Uppsölum í Skjaldborg-
arbíói á Patreksfirði á morgun,
laugardaginn 5. nóvember, og í
Einarshúsi á Bolungarvík viku síð-
ar, sunnudaginn 13. nóvember. 19.
nóvember verður síðan haldin mikil
matar- og listaveisla á Bíldudal þar
sem dagskrá kvöldsins saman-
stendur af kvöldverði með dýrindis
hangikjöti, leiksýningu og loks tón-
leikum Lay Low.
Lítið en öflugt leikhús í beinum
tengslum við sögu Vestfjarða
Nýjasta sýning
Kómedíuleikhússins
fjallar um einbúann
Gísla í Uppsölum
Metnaður í menn-
ingarstarfinu á Vest-
fjörðum
Ljósmynd/Halldór Sveinbjörnsson
Hugsuður Elfar leikur Gísla á Uppsölum í nýju sýningunni. Ævi Gísla var merkileg en sumir kaflarnir átakanlegir.
Ljósmynd/Árni Johnsen
Einstakur. „Hann þótti efnilegur og myndarlegur ungur maður en náði ein-
hvern veginn ekki að dansa í takt við lífið,“ segir Elfar um Gísla.