Morgunblaðið - 04.11.2016, Page 58

Morgunblaðið - 04.11.2016, Page 58
58 . MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2016 VIÐ ERUM AÐ STANDA OKKUR! AFNÁM TOLLA SKILAR SÉR TIL NEYTENDA VERÐ ÁÐUR 17.995 VERÐ NÚ 14.995 SKECHERS TOM CATS-BULLY HERRASKÓR MEÐ GRÓFUM GRIPMIKLUM HRÁGÚMMÍSÓLA Stærðir 39-46 FERÐIR INNANLANDS í vetur Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Aldrei hafa verið fleiri góðar ástæð- ur til að heimsækja Vestfirði yfir vetrarmánuðina. Þar má finna mikla náttúrusæld, einstakar laug- ar og áhugaverð söfn. Það sem meira er: Vestfirðingar eru menn- ingarsinnað fólk og metnaðarfullt leikhússtarf á svæðinu. „Menningarlífið hér er mjög fjöl- breytt og hefur Ísafjörður t.d. kom- ist á kortið sem mikill tónlistarbær, og eins er margt um að vera í þorpunum í kring. Þannig er á Þingeyri starfrækt öflugt áhuga- mannaleikfélag sem setur upp veg- lega barnaleiksýningu hvern vetur og í þetta skipti sýna þau Dýrin í Hálsaskógi,“ segir Elfar Logi Hannesson. Sjálfur er Elfar aðaldriffjöðrin í starfi Kómedíuleikhússins (www.komedia.is), eina atvinnuleik- húss Vestfjarða. Leikhúsið var stofnað árið 1997 í Reykjavík en fluttist til Vestfjarða árið 2000. Elf- ar er eini fastráðni starfsmaðurinn en hæfileikafólk úr ýmsum áttum leggur hönd á plóg. Hafa margar uppfærslur Kómedíuleikhússins vakið verðskuldaða athygli og má þar t.d. nefna verk um Gísla Súrs- son sem var verðlaunað á erlendum leiklistarhátíðum. „Fyrsta uppfærsla leikfélagsins var á verki eftir Samuel Beckett, en öll verk sem á eftir komu hafa tengst vestfirskri sögu á einn eða annan hátt,“ segir Elfar. „Eru þetta verk sem fjalla t.d. um hetjur Íslendingasagnanna, eða þjóðhetjur og listamenn á borð við Jón Sig- urðsson, Mugg og Sigvalda Kalda- lóns.“ Himnarnir opnuðust Nýjasta sýning Kómedíuleik- hússins fjallar um einbúann Gísla á Uppsölum en frumsýningin var í september. Eins og venjan er með frumsýningar leikfélagsins var fyrsta sýningin haldin skammt frá heimaslóðum Gísla, í Selárdals- kirkju. „Það var stórkostleg stund og virtist eins og Gísli væri þar með okkur. Var þungskýjað allan daginn en hálftíma áður en sýn- ingin hófst opnuðust himnarnir og sólin skein inn um glugga kirkj- unnar,“ segir Elfar. Elfar skrifaði handritið með Þresti Leó Gunnarssyni. Þröstur leikstýrir og Elfar leikur hlutverk Gísla en Svavar Knútur Kristinsson semur tónlistina. Útkoman er merkileg sýning sem gefur áhorf- endum innsýn í ævi og hugarheim óvenjulegs manns. „Það voru mjög skiptar skoðanir um það hér í samfélaginu þegar tók að fréttast af þessu verkefni okkar. Sumum leist ekkert á þetta og ótt- uðust að útkoman myndi verða verk sem gerði grín að Gísla.“ Vissulega var Gísli á Uppsölum ekki eins og fólk er flest og þótti það mikill viðburður þegar Ómar Ragnarsson fréttamaður tók frægt sjónvarpsviðtal við þennan aldna einbúa, og eins þegar Árni John- sen, þá blaðamaður á Morgun- blaðinu, ræddi við og myndaði Gísla. „Jafnvel sveitungar hans vissu ekki af þessum manni. Sjálfur er ég frá Bíldudal og eins og nán- ast allir aðrir sá ég Gísla fyrst í sjónvarpinu og hafði aldrei fyrr heyrt á hann minnst,“ segir Elfar. Hugsanir einbúans Ævi Gísla var merkileg fyrir margra hluta sakir og sumir kafl- arnir í sögu hans átakanlegir. Styðst sýningin við bókina Eintal sem hefur að geyma ljóð, dag- bókabrot, minningar og ýmsar hug- leiðingar Gísla, en bókin byggist á gögnum sem fundust að Gísla látn- um. „Þegar átti að ganga frá eigum hans kom í ljós fullt af efni, blöð og snifsi inni í bókum, með ljóðum, sálmum og minningabrotum. Í dag- bókum sínum skrifar Gísli t.d. á áhrifaríkan hátt um æsku sína og hrottalegt einelti sem hann varð fyrir í skóla. Hann skrifar líka mjög fallega, en af ákveðinni bit- urð, um móður sína en samband þeirra var mjög sérstakt.“ Elfar segir að það efni sem Gísli skildi eftir sýni að hann var heim- spekingur. Í einverunni lét hann hugann reika og velti ýmsu fyrir sér. „Það er margt sem verður til þess að hann einangrast. Eineltið setti mark sitt á hann, en greinilegt er að Gísli var bráðgreindur og hann vildi fara suður til að mennta sig, og jafnvel til útlanda. Faðir hans fellur frá á mjög sviplegan máta þegar Gísli er ungur, og bræður hans flytja burt. Loks er Gísli einn eftir í kotinu með móður sinni, sem kemur í veg fyrir að hann fari og láti sína eigin drauma rætast.“ Á sínum yngri árum virtist sem Gísla væru allir vegir færir. „Hann þótti efnilegur og myndarlegur ungur maður en náði einhvern veg- inn ekki að dansa í takt við lífið.“ Menningarveisla á Bíldudal Framundan hjá Kómedíuleikhús- inu eru sýningar á verkinu um Gísla á Uppsölum í Skjaldborg- arbíói á Patreksfirði á morgun, laugardaginn 5. nóvember, og í Einarshúsi á Bolungarvík viku síð- ar, sunnudaginn 13. nóvember. 19. nóvember verður síðan haldin mikil matar- og listaveisla á Bíldudal þar sem dagskrá kvöldsins saman- stendur af kvöldverði með dýrindis hangikjöti, leiksýningu og loks tón- leikum Lay Low. Lítið en öflugt leikhús í beinum tengslum við sögu Vestfjarða  Nýjasta sýning Kómedíuleikhússins fjallar um einbúann Gísla í Uppsölum  Metnaður í menn- ingarstarfinu á Vest- fjörðum Ljósmynd/Halldór Sveinbjörnsson Hugsuður Elfar leikur Gísla á Uppsölum í nýju sýningunni. Ævi Gísla var merkileg en sumir kaflarnir átakanlegir. Ljósmynd/Árni Johnsen Einstakur. „Hann þótti efnilegur og myndarlegur ungur maður en náði ein- hvern veginn ekki að dansa í takt við lífið,“ segir Elfar um Gísla.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.