Morgunblaðið - 04.11.2016, Page 62
BÆKUR
Eftir að þorp fór að myndast á Rauf-
arhöfn og allt fram undir miðja öld-
ina, var fyrst og fremst ein gata sem
máli skipti; Gamla gatan sem lá um
byggðina úti í Sandi – rætur þorps-
ins. Þaðan lá hún með sjónum, yfir
lækinn og ofan við athafnasvæði
bryggjanna, fyrir ofan norsku síld-
arverksmiðjuna, og meðfram þeim
íbúðarhúsum sem flutt voru eða rifin
þegar mjölgeymsla verksmiðjunnar
var byggð. Þá lá
gata þvert yfir
núverandi Hafn-
arbraut og suður
á Framnesið, þar
sem húsið Klöpp
stendur og lá svo
áfram til suðurs
rétt fyrir ofan
Sólvelli ofan við
Kottjörnina og þaðan upp í ásinn þar
sem hún sveigði til suðurs og var á
svipuðum slóðum og vegurinn út úr
þorpinu liggur nú. Við hefjum för
okkar uppi á Höfðanum og göngum
svo niður í þorpið.
Höfðinn á Raufarhöfn er svip-
sterkur og mótar sviðsmynd þorps-
ins; engu öðru líkur. Efst á Höfðan-
um er Raufarhafnarviti, byggður
1931. Þaðan er útsýni gott og hvergi
betra að virða staðinn fyrir sér. Ein-
hverjum kann að finnast það skrýtið
að höfn á Norðurlandi skuli opnast
til suðurs en svo er með Raufarhöfn
sem liggur eftir áttum; norður – suð-
ur. Höfnin er varin af Höfðanum til
austurs og fram undan honum til
suðurs er Hólminn og þar fyrir
framan til suðurs er flúðin Baka sem
skip og bátar þurfa að krækja fyrir
þegar siglt er inn á höfnina. Baka
hefur reynst mörgu fleyinu skeinu-
hætt í aldanna rás en við enda henn-
ar er nú mikil græn bauja til viðvör-
unar og leiðsagnar fyrir sjófarendur.
Horft til suðurs má sjá hvar Hóls-
höfðinn gengur fram í sjóinn, austar
er Ormarslónshöfðinn, svo Súlurnar
og þá Rakkanesið. Ef litið er til vest-
urs yfir þorpið blasir yngsti hluti
þess við á Vogsholtinu en uppbygg-
ing þar hófst á sjöunda áratug síð-
ustu aldar er síldarævintýrið stóð
sem hæst. Þar á holtinu fóru krakk-
ar í kríueggjaleit fyrr á árum – og
gera enn. Við beinum augum okkar
að ströndinni og staðnæmumst við
hæð handan við sundið. Þar hefur
fyrrum trúlega staðið bærinn Kot og
styðja þá tilgátu nöfn Kotflúð-
arinnar sem gengur þar fram í sjó-
inn, Kottjarnarinnar sem er rétt upp
af ströndinni og Kotbárunnar við
Framnesið. Þarna á hæðinni stóð í
um hálfa öld húsið Hjaltabakki sem
Hjalti Friðgeirsson byggði 1940 í
upphafi seinni heimsstyrjaldarinnar
og utan skipulags hreppsins. Hjalta
var bent á að Þjóðverjar kynnu að
álíta að húsið væri strandvirki og
myndu skjóta það niður. Hjalti var
óhræddur við slíkt og byggði húsið á
eigin ábyrgð. Styrjöldinni lauk hins
vegar án þess að Hjaltabakki væri
sprengdur. Húsið var hins vegar
eins og mörg önnur rifið í lok ald-
arinnar en eftir stendur mynd-
arlegur bæjarhóllinn. Handan
Hjaltabakka er Kottjörnin með sín-
um hólma og fuglalífi og hefur verið
leikvangur krakka svo langt aftur
sem elstu menn muna.
Þegar horft er yfir þorpið má
glögglega sjá að byggðin slitnar í
sundur. Syðst er nýja hverfið á
Vogsholtinu en norðan þeirrar
byggðar er Holtið þar sem að-
albyggðin var með sínum íbúðar-
húsum og atvinnufyrirtækjum.
Mörk þess hverfis til norðurs lágu
eina tíð um læk sem rann úr Fenj-
unum til sjávar rétt norðan við at-
hafnasvæði frystihússins. Norðan
lækjarins var elsta byggðin, Sand-
urinn. Allt of mörg falleg og sögu-
fræg hús sem þar stóðu eru nú horf-
in af sjónarsviðinu. Oft voru harðir
„bardagar“ milli stráka í Sandinum
og Holtaranna, en eftir því sem
byggðin þróaðist, færðust þessi
landamæri einnig til og Valgeir segir
að í sína tíð hafi mörkin legið um
Hafnarbrautina – og þó kannski ekki
alveg því bræður tveir sem bjuggu í
sama húsinu á átakalínunni voru
hvor í sínu liðinu. Lágir ásar – Nón-
ásinn til vesturs og Melrakkaásinn
og Klifin til norðurs afmarka og
skýla byggðinni en ofan þeirra er
heiðin, land Raufarhafnar með
fjölda mýra og vatna. Við höldum
niður af Höfðanum sem er stolt
þorpsins og prýði með sínum dokk-
um og dældum, básum og bollum,
víkum og vogum. Þangað hafa marg-
ir lagt leið sína og notið kyrrðar og
náttúrufegurðar og rétt eins og
Siglufjarðarskálin gaf mörgum elsk-
endum næði var Höfðalautin sá stað-
ur þar sem haldist var hönd í hönd,
framtíðardraumar reifaðir og inn-
siglaðir með hring á fingri. Í hall-
anum upp á Höfðann er kirkjugarð-
urinn sem tekinn var í notkun 1920
en stækkaður fyrir allmörgum árum
og er vel við haldið. Þar hvíla látnir
Raufarhafnarbúar og aðrir sem hafa
kosið sér þar sitt hinsta ból. Helgi
segir mér að Raufarhafnarbúar sem
deyi, fari ekki frá staðnum heldur
færi sig aðeins um set. Á norðurbrún
Höfðans er slétt flöt þar sem sjúkra-
flugvélar lentu og þótt brautin sé
stutt var hún samt eina grjótlausa
slétta flötin í nágrenninu. Annars
var aðalflugvöllur héraðsins til
margra ára á söndunum norðan við
Kópasker og þangað flugu síld-
arstúlkurnar og síðan ekið með þær
í rútu á vit ævintýranna í síldinni á
Raufarhöfn. [...] Í Sandinum stóðu
húsin þétt og mynduðu lítið sam-
félag sem misst hefur sinn svip.
Varla var um götur að ræða milli
húsanna, miklu fremur stíga sem
lágu þeirra á milli. Því er erfitt að
staðsetja húsin með nákvæmni. Við
skulum fylgja sjávarbakkanum og
sunnan við Lundshúsið var og er lít-
ið hús með risi sem heitir Barð. Það
byggðu Guðmundur Jónasson og
kona hans Fanney Jóhannesdóttir,
Friðbjörnssonar frá Grashóli. [...]
Finnsahúsið eða Bára eins og það
hét á pappírum var eitt húsanna í
Sandinum; stóð sunnan við Sand-
gerði. Það byggði Þorfinnur Jónsson
ættaður austan af Fáskrúðsfirði.
Móðir hans lést þar og pabbi hans
ákvað að fara til Ameríku og hafa
Þorfinn með sér. Þeir fóru til Ak-
ureyrar og biðu eftir skipinu sem
aldrei kom og ekkert varð úr þeirra
för vestur. Þá lést faðir Þorfinns en
honum var komið fyrir í Presthólum
þar sem hann ólst upp. Þaðan kom
hann til Raufarhafnar. Eins og fleiri
tók Þorfinnur sig upp og fór til Nor-
egs til að kynna sér fiskveiðar. Þeg-
ar hann kom aftur hafði hann keypt
sér bát, Fálkann, og á honum sigldi
hann heim og hafði með sér efni í
nýtt hús, Báruna, sem hann smíðaði
á Raufarhöfn.
Rölt um Raufarhöfn sem var
Sléttunga, safn til sögu Melrakkasléttu, heitir þriggja
binda verk í ritstjórn Níelsar Árna Lund sem kom út
fyrir stuttu og segir sögu ábúðar á Sléttunni. Hér er
gripið niður í kaflann „Rölt um gömlu Raufarhöfn“.
Ljósmynd/Sveinn Niklulásson
Raufarhöfn Báturinn Fram TH 245 við SKOR-bryggjuna á góðviðrisdegi.
Um borð er uppábúið fólk á leið í skemmtisiglingu.
Iðnaðareiningar
í miklu úrvali
Funahöfða 7, 110 Reykjavík, s. 577 6666
Opnum á nýjum stað!
Ármúla 40
– full búð af nýjum vetrar vörum
Opnunar-
tilboð
20% afsl.
lÍs en ku
ALPARNIR
s
alparnir.is