Morgunblaðið - 04.11.2016, Side 64

Morgunblaðið - 04.11.2016, Side 64
Tímatal Landnámurita Ártal Auðkenni tímabils Rit Skýring Árafjöldi frá landnámi til ritunar 870 • Orustan í Hafursfirði • Gos í Vatnaöldum, landnámslagið 870 +/–2 • Gos í Eldgjá 934 +/–4 •Alþingi stofnað, Úlfljótslög • Smábændasamfélag fram til um 1300 Landnám hefst 1000 • Kristnitakan, heiðnin fellur • Hróðólfur, trúboðsbiskup setti klaustur á Bæ í Borgarfirði e.t.v. um 1040 1100 • Heklugos, Þjórsárdalur eyðist • Lög fyrst rituð 1117–1118 Frumland- náma Hugmyndir eru uppi um að hún hafi verið til 230–250 • Jón Ögmundsson stofnaði klaustur á Þingeyrum, Húnaþingi 1112 Kolskeggur fróði Ari fróði Vitnað er til þeirra í eldri bókum en ekkert til skrifað eftir þá 230–250 1200 • Gamli sáttmáli 1262 Styrmisbók Ritið er glatað en yngri höfundar vitna til þess í Hauksbók • Goðaveldið fellur • Grágás • Járnsíða 1271, Jónsbók 1281 Sturlubók Ritið er glatað en til er afrit með eyðum af skinnbók Sturlu frá um 1400 350–380 • Sturla Þórðarson fyrsti lögmaður Íslands 1271, 1239 Snorri Sturluson jarl, 1258 Gissur Þorvaldsson jarl 1300 • Ísland féll með Noregi undir Danmörku Hauksbók Ritið er glatað en til er afrit frá 17. öld. Tvö blöð vantar í ritið 340–440 1380 • Gos í Öræfajökli 1362, byggð eyðist í Litlahéraði, 20–40 býli 1400 • Jarðeigendasamfélag fram yfir 1800 Melabók Ritið er glatað, tvö blöð varðveitt 530–540 1500 • Siðaskiptin 1550 • Guðbrandsbiblía 1584 1600 • Einokunarverslunin Skarðsárbók 760 • Kópavogsfundurinn 1661, erfðahylling, einveldi Friðriks III Þórðarbók 760 Um ástæður landnáms Af hverju tóku menn sig upp og námu land á þessari afskekktu eyju? Sjálfsagt liggja margar ástæður og fjölþættar því til grund- vallar og margar kenningar hafa komið fram. Könnunarþörf og fróð- leiksfýsn hafa snemma teygt menn víða yfir höf og lönd. Stundum hefur þörfin fyrir sjálfstæði, frelsi og olnbogarými einnig verið afl- gjafi. Í Vatns- dælu segir Grím- ur inn háleygski er hann ákvað að fara til Íslands; Er mér sagt gott frá landkostum, at þar gangi fé sjálfala á vetrum, en fiskr í hverju vatni, skógar miklir, en frjálsir af ágangi konunga ok ill- ræðismanna. (Íslendinga sögur, VII, (1978), bls. 28) Grálega þykir mörgum hér farið orðum um stjórnarhætti konunga. Í eðli mannsins virðist ríkt að leita á nýjar slóðir, virkja nýjar hugmyndir og hugdettur. Að leita nýrra landa, kanna ný lönd og nema ný lönd hefur verið ofarlega í huga víkinga og þjóðhöfðingja. Á okkar tímum, þegar flest á jörðinni er fullkannað, tekur farfýsin á sig nýja mynd; tunglið, Mars og aðrar reikistjörnur, jafnvel himingeim- urinn, verða freistandi áfanga- staðir. Á þeim tíma sem Ísland var num- ið, er víkingaöldin að ganga í garð. Hún er almennt talin standa á ár- unum 800 til 1050, stundum er talið að hún hefjist þegar norrænir vík- ingar rændu klaustrið í Lindisfarne á austurströnd Englands árið 793. Með þróun skipakosts verða sjó- ferðir algengari og verslun eykst yfir sund og höf. Ný útsýn opnast. Það er þó ekki fyrr en með fundi Ameríku fyrir 1500 sem verslun og siglingar færast í miklum mæli frá Miðjarðarhafi út á Atlantshaf; heimurinn stækkar. Um það leyti sem Ísland byggist er talið að landnám hefjist á ýmsum eyjum. T.d. byggjast Madagaskar og Nýja Sjáland á þessum tíma. Talið er að Færeyjar hafi verið numdar um 800, en nú eru komnar fram kenningar um að það hafi ver- ið fyrr. Fræðimenn hafa sett fram ýmsar tillögur um tilurð landnáms- ins. Telja sumir að fólksfjölgun á Norðurlöndum hafi verið orsök, þrengst hafi um íbúa þessara landa, land hafi í auknum mæli verið tekið til landbúnaðar og erfitt hafi orðið fyrir yngra fólk að hasla sér völl. [...] Um breytingu samfélagsins á ritunartíma Landnámu Talsverðar breytingar verða á Landnámabók í rás tímans frá elstu gerð hennar. Síðari afritarar setja sitt mark á Landnámu með at- hugasemdum, breytingum og við- horfum. Eins og áður segir er Landnáma Sturlu Þórðarsonar, sem er meginuppistaða þeirrar Land- námu sem við lesum nú, rituð um 380 árum eftir að landnám hófst. Nær fjórar aldir eru langur tími og hætt við að margt skolist til á svo löngum tíma. Sturla byggir á eldri heimildum, sem glatast hafa og leggur vafalítið út af þeim. Haukur Erlendsson lögmaður ritar sitt afrit um 50 árum eftir að Sturla skrifar sína bók. Melabók er talin rituð um 100 árum eftir að Haukur gerir sitt afrit og Skarðsbók og Þórðarbók eru ritaðar á 17. öld eða um 760 ár- um eftir að landnám hófst. Mót- unarsaga þeirra gagna sem við höf- um um landnám á Íslandi er því mjög löng. Því vaknar sú spurning hvort at- hugun á aldarfari samtíðar afrit- aranna, höfundanna, geti aukið skilning á Landnámabók og Íslend- ingabók og varpað ljósi á ritin og þær breytingar sem verða með af- ritunum, þegar menn taka eldra rit, auka það og lagfæra. Flestir menn eru að marki börn síns tíma og stundum er sagt að skrif manna lýsi meir þeim sjálfum en því sem þeir vilja lýsa. Eitt er að átta sig á hvernig sagnaritararnir sjá og lýsa landnámsöldinni og sögunni fram til um 1120 og annað að reyna að átta sig á hvernig þetta tímabil var í raun og veru. Á landnámsöld og þjóðveldistím- anum 870 til 1262 verða miklar breytingar á samfélagsgerðinni og skipulagi þjóðveldisins. Sveinbjörn Rafnsson leggur í doktorsritgerð sinni áherslu á, að við túlkun Land- námu sé þessi flaumur breytinga mikilvægt athugunarefni. Á tíma þjóðveldisins er valdið í höndum goðanna, goðaveldi. Þjóð- veldið fellur og vald konungs tekur við, embættismenn konungs fara með vald hans, kristnitaka setur mörk sín á þjóðfélagið. Margir þeir, sem ritað hafa um íslenskt þjóð- félag frá landnámi og á tíma þjóð- veldisins hafa í ritum sínum sagt að stéttaskipting hafi verið lítil á Ís- landi í upphafi. Nefna má bók Jóns Jónssonar Aðils, Gullöld Íslendinga, rit Konrads Maurer og rit Jóns Jó- hannessonar um þetta efni. Kjarni samfélagsins á landnámstíma hafi verið sjálfseignarbændur og þjóð- félagsstaða frjálsra manna hafi ver- ið mjög jöfn. Frjálsir menn og þrælar voru helstu samfélagshóp- arnir og stéttamunur milli frjálsra manna var lítill. En síðan verður breyting á. Af fornum sögum okkar og ritum má ráða að frá um 1100 þegar ritun um landnám hefst fram til seinni hluta 13. aldar breytist þjóðfélagsgerðin mikið og síðan áfram eftir fall þjóðveldisins, kristnitökuna og siðskiptin, á þeim tíma sem seinni afrit Landnámu eru rituð. Á landnáms- og söguöld telja ætt- ir sjálfseignarbænda sig jafningja og jafnréttháar höfðingjaættum. Stofnun allsherjarríkisins er undra- verð. Bændur taka sig saman, dreifðir í þessu stóra landi, með- fram langri strandlengjunni, inni í landi og upp til fjalla. Þeir stofna allsherjarþing í landinu og setja sér ein lög sem gilda fyrir alla. Tvær stofnanir voru á Alþingi, lögrétta og dómstólar. Lögrétta hafði löggjaf- arvald og ákvæði voru um að kynna skyldi öllum landsmönnum lögin reglulega. Dómstólar voru tveir; fjórðungsdómur og fimmtardómur. Hér er stofnað ríki án miðstýringar, án konungs eða höfðingja, sem fara með völdin. Samkvæmt stjórn- skipan, sem landsmenn ákveða, koma goðarnir, veraldlegir og trúarlegir leiðtogar, saman á Þing- velli, dæma í deilumálum, setja lög og sitja á rökstólum. Ríkið, þjóð- veldið, er bundið við goðorðin. Lög- gjafarvaldið var sjálfstætt og að- skilið frá dómsvaldinu. Aðskilnaður löggjafarvalds og dómsvalds er eitt hið merkasta atriði í löggjöf Íslend- inga á þjóðveldisöld. Oft er rætt um að menn á þessum tíma hafi ekki talið sig vera að stofna ríki, e.t.v. hefur hugtakið ríki ekki verið skýrt í hugum manna þá. Aðalatriðið var að ein lög giltu í landinu. Lögin voru bindiefnið, límið í þessu sam- félagi. Adam biskup af Brimum seg- ir í Sögu erkibiskupanna sem hann ritar um 1070, að Íslendingar hafi ekki konung en þeir hafi ein lög. Sumir hafa viljað kalla þetta sam- félag lagaveldi þjóðveldisins fremur en ríki. Jafnrétti var mikið. Land er dæmt á fyrri hluta tíundu aldar af þeim manni sem átti Bláskóga, fyrir dráp á þræli eða leysingja, og land- ið lagt undir Alþingi sem almenn- ingur. Skyldi þrælsdráp hafa verið svona alvarlegt, haft svo af- drifamiklar afleiðingar, í mörgum löndum á þessum tíma? En breyt- ing verður á. Fall þjóðveldisins á að miklu leyti orsakir í því að goðorð gengu kaup- um og sölum, voru gefin og gengu í arf. Goðarnir voru 36 við stofnun Alþingis árið 930, níu í hverjum fjórðungi. Árið 965 var ákveðið að fjölga goðum um þrjá í Norðlend- ingafjórðungi og urðu þeir þá 39 talsins. Grundvöllur þjóðskipulags- ins var að hver goði hafði eitt at- kvæði og einfaldur meirihluti réð úrslitum. Goðorðin söfnuðust síðan á fárra hendur og landeignir líka. Talið er að um 1220 hafi tíu einstaklingar ráðið yfir öllum 39 goðorðunum. [...] Um uppruna Íslendinga Árdagar Íslendinga heitir bók eftir Guðmund G. Þórarinsson verkfræðing sem fjallar um helstu kenningar sem settar hafa verið fram um upp- runa Íslendinga og land- nám Íslands. Hér eru birtir kaflar úr bókinni sem Einir útgáfa gefur út. 64 . MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2016 Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is Gámaleiga Er gámur lausnin fyrir þig? Við getum líka geymt gáminn fyrir þig 568 0100 stolpigamar.is HAFÐU SAMBAND Búslóðageymsla ❚ Árstíðabundinn lager ❚ Lager ❚ Sumar-/vetrarvörur Frystigeymsla ❚ Kæligeymsla ❚ Leiga til skemmri eða lengri tíma Flottar vínyl gólfmottur Slitsterkar, liggja vel á gólfi, renna ekki til og auðveldar í þrifum. LISTHÚSINU fyrir eldhúsið, forstofuna, baðherbergið og skrifstofur Listhúsinu við Engjateig, 105 Reykjavík, sími 551 2050 Opið virka daga 11-18. BÆKUR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.