Morgunblaðið - 04.11.2016, Page 81

Morgunblaðið - 04.11.2016, Page 81
DÆGRADVÖL 81 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2016 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú færð hverja hugmyndina á fætur annarri en gengur illa að gera þær allar að raunveruleika. Treystu innsæi þínu, þar liggur svarið. 20. apríl - 20. maí  Naut Ekki rétti dagurinn til að ræða um pen- inga eða lána einhverjum eða taka lán. Aðal- málið er að vera með góðum vinum sem hægt er að deila með sorg og gleði. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Líklegt er að rómantíkin blómstri næstu vikur. Hvað sem því líður þarftu á til- breytingu að halda. Þú hefur stöðugar áhyggjur, en mundu að það er alger tímasó- un. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Vertu ekki með stöðugar áhyggjur af því hvað öðrum kann að finnast um þig. Ekki horfa niður, þú færð bara svima. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Í nýjum hugmyndum felast oft gömul sannindi. Notaðu innsæi þitt til að velja það sem hentar þér best. Notfærðu þér persónu- töfrana til að vingast við smáfólkið. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Framabrautin virðist greið, nýttu tækifærin sem árið ber í skauti sér. Sýndu fólki áhuga. Þú færð góðar fréttir af ætt- ingjum. 23. sept. - 22. okt.  Vog Gefstu ekki upp á því að leggja góðum málstað lið þótt baráttan sé hörð og þér finn- ist lítið miða áfram. Sýndu stórhug og réttu fram sáttarhönd í deilum við nágranna. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Sérvitringur eða mjög sérstakur einstaklingur mun líklega verða á vegi þínum í dag. Kannski væri rétt að skera á sum vina- bönd og bæta önnur – ákvörðunin er þín. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Ekki þreyta vinnufélagana með endalausum sögum af einkahögum þínum. Leyfðu öðrum að láta ljós sitt skína af og til. 22. des. - 19. janúar Steingeit Á meðan þú umbreytir þínum ytri heimi verða einnig breytingar á þínum innri heimi. Nú er tími til kominn að slaka á, þú hefur unnið of mikið of lengi. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Það reynir heldur betur á þig nú þegar til stendur að breyta starfi þínu. Þú hefur ekkert val í ástamálunum. Gerðu það rétta. Einhver býður þér til veislu og þar verður sko gaman. 19. feb. - 20. mars Fiskar Grunnurinn þarf að vera góður til þess að það sem á honum rís sé til fram- búðar. Þannig er með ástarsamböndin, þau verður að reisa á traustum grunni. Íslenskt afreksfólk í íþróttum erengu líkt. Augu heimsins hafa verið á fótboltalandsliði karla í kjöl- far frábærs árangurs þess á Evr- ópumótinu í Frakklandi á liðnu sumri og undanfarna daga hefur kylfingurinn Ólafía Þórunn Krist- insdóttir átt sviðið í golfumfjöllun margra erlendra miðla. Reyndar er sama hvert litið er. Hvar sem er al- þjóðleg keppni í íþróttum með þátt- töku Íslendinga eru þeir í sviðsljós- inu. x x x Öllum á óvart var Ólafía Þórunn íefsta sæti að loknum fyrsta keppnisdegi á móti á Evrópumóta- röðinni í Abu Dhabi í Sameinuðu ar- abísku furstadæmunum í fyrra- kvöld. Árangurinn vakti athygli erlendra sjónvarpsstöðva og gaman var að sjá hvað hún var yfirveguð í viðtölum eftir hringinn. x x x Margir efuðust um að Ólafía Þór-unn næði að fylgja árangrinum eftir í gær en hún þaggaði niður í öll- um efasemdaröddum og jók foryst- una. Enn eru tveir keppnisdagar eft- ir og því getur margt gerst, en hver sem niðurstaðan verður er ljóst að Ólafía Þórunn hefur skráð nafn sitt í sögubækur golfsins. x x x Víkverji horfði á keppnina í beinniútsendingu um stund í gær og það var hrein unun að sjá hvernig Ís- landsmeistarinn brást við auknu álagi. Fróðlegt verður að fylgjast með Ólafíu Þórunni á golfvellinum í náinni framtíð. Ótrúleg keppnis- kona, frábær landkynning. x x x Íslenska karlalandsliðið í handboltahefur lengi verið flaggskip ís- lenskra íþrótta og staðið sig frábær- lega í alþjóðakeppni. Í raun hefur framgangan verið með ólíkindum. x x x Í fyrrakvöld hófst ný keppni.Nokkrir lykilmenn undanfarinna ára eru ekki lengur með og vænting- arnar því kannski minni en oft áður. Leikurinn á móti Tékkum var ekki sá besti en hann vannst og það er að- alatriðið. Landsliðið verður áfram í sviðsljósinu. víkverji@mbl.is Víkverji Jesús sagði: „Óttast ekki, trú þú að- eins“ (Mark. 5:36B) Á þessum degi árið 1899 fædd-ist Jóhannes úr Kötlum. Í Skáldu, afmælisdagabók sinni, tekur hann þetta erindi eftir sig: Allt við þau hamarshögg hrekkur í kuðung: dengir rauður dauðinn dárahníf. Mannkind ró rúin ranghvolfir augum – eins og hýhnoðri hangir á bláþræði vort litla líf. Á Boðnarmiði skrifar Kristinn R. Ólafsson: „Nýyrði dagsins: Eco- sexual – Umhverfur, sbr. kyn- hverfur Í umhverfisástarblossa átti ég mök við fossa og gröð varð þá mold er ég giljaði fold meðal gneggjandi útigangshrossa.“ Og til skýringar bætir Kristinn við: „Úr Kvennablaðinu: Ecosex- ual er heiti yfir það fólk sem örv- ast kynferðislega í náttúrunni og þykir jörðin kynþokkafull. Þessa vikuna í Sydney Ástralíu er tæki- færi til að stunda kynlíf með jörð- inni.“ Á Leirnum á miðvikudagskvöld kvaðst Fía á Sandi ekki nenna að yrkja meira um stjórnmál að sinni, – „og þá er að snúa sér að vín- skápnum og vita hvort ekki finnst þar góð flaska. Einu sinni orti ég þessa: Í sumum flöskum andi er, aðrar hrífa varla. Góðar flöskur gefa mér gleði og ást til karla.“ Þetta tendraði neistann í Pétri Stefánssyni: Það er ljúft að leika sér, láta bjórinn renna. Alltaf gefur ölið mér ástarþrá til kvenna. Ingólfur Ómar var með á nót- unum: Veitir svölun, gefur grið, gjarna hrindir trega. Drekka öl og daðra við dömu yndislega. Og Sigurlaug Hermannsdóttir var sama sinnis og spurði á kjör- dag hvort ekki væri ágætt að taka smáhvíld frá pólitíkinni: Er Dúddi með draumlynda hugann sá dróna einn ókunnugan hann kollhúfur lagði og með kindarsvip sagði: „A-tarna var furðuleg flugan.“ Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Kötluskáldið, nýyrði dags- ins og pólitísk þreyta Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að líta til baka einu sinni enn. HJÁLP! HEY, ÞIÐ ÞARNA Í LAUTARTÚRNUM! HENDIÐ TIL MÍN SAMLOKU! ÉG BÝÐ ÞÉR BRUNAÁBYRGÐ... ÞÚ MEINAR BRUNATRYGGINGU! NEI, ÉG ÁBYRGIST AÐ KASTALINN ÞINN BRENNUR EF ÞÚ LÆTUR EKKI ÖLL VERÐMÆTI AF HENDI! FYRRVERANDI REYKINGAMENN ERU SLÆMT FÓLK. ÞAÐ ER SORGLEGT AÐ SÍGARETTUPAKKARNIR SÉU EKKI MEÐ VIÐVÖRUNUM. „ÉG HEF BARA SÉÐ ÞESSAR SKRÍTNU KLESSUR SÍÐAN VIÐ KOMUM HINGAÐ – EKKERT RAUNVERULEGT FÓLK.“ Keilulegur Flans- og búkkalegur Hjólalegusett Nála- og línulegur LEGUR Í BÍLA OG TÆKI Það borgar sig að nota það besta! TRAUSTAR VÖRUR ...sem þola álagið Dalvegi 10–14 • 201 Kópavogi • Sími: 540 7000 • www.falkinn.is Kúlu- og rúllulegur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.