Morgunblaðið - 04.11.2016, Blaðsíða 88
Gaurar Alexía Björg Jóhannesdóttir, Sólveig Guðmundsdóttir og María
Pálsdóttir leika ólíka karaktera sem margir geta speglað sig í.
Gunnþórunn Jónsdóttir
gunnthorunn@mbl.is
Pörupiltarnir eru mættir aftur til
leiks en nú ætla þeir að ræða föður-
hlutverkið í sýningunni Who’s the
Daddy. Sýningin verður frumsýnd í
kvöld í Tjarnarbíói kl. 20.30 og verða
aðeins fjórar sýningar. Leikhóp-
urinn er skipaður leikkonunum
Alexíu Björgu Jóhannesdóttur, Mar-
íu Pálsdóttur og Sólveigu Guð-
mundsdóttur.
„Hugmyndin að Pörupiltunum
kom til eftir að ég hafði sótt drag-
námskeið úti í Finnlandi. Ég var þar
í mastersnámi og það sem heillaði
mig við það var að þar var verið að
stunda svolítið tilraunakennt leik-
hús, ekki þetta hefðbundna texta-
leikhús,“ segir María. „Eitt nám-
skeiðið var mjög spennandi, það var
drag-námskeið. Diane Torr kenndi á
námskeiðinu og var það í fyrsta sinn
fyrir leikara en hún hafði áður verið
með svona námskeið fyrir lesbíur.
Hún var búin að rannsaka líkams-
beitingu karla, hegðun þeirra og fas
og var með allskyns „trix“ til að
breyta okkur hreinlega í karlmenn.
Þetta lukkaðist svona ljómandi vel.
Okkur var skipt upp í stráka- og
stelpuhópa og við köfuðum ofan í
þessi fræði. Það sem var skemmti-
legast við þetta var að þetta var svo-
lítið öðruvísi en þessi hefðbundnu
leikhúsfræði þar sem maður er oft
að reyna að skilja karakterinn sinn í
gegnum textann og reyna að þreifa
fyrir sér þannig. En þetta var meira
þannig að við settum okkur í gervið,
í búninginn og kíktum síðan í spegil
til að sjá hver birtist.“
Hjálpaði að hætta að brosa
María segir að ráðin hennar Torr
hafi meðal annars verið þau að
ímynda sér að augun væru dýpra
inni í höfðinu og að allt tæki lengri
tíma. „Konur eru svo oft kvikar, örar
og oftar á tánum, en karlar eru af-
slappaðri. Auðvitað erum við eins
misjöfn og við erum mörg og mikið
um alhæfingar en allt svona hjálpaði
okkur að komast frá okkur sjálfum.
Annað ráð var að prófa að sleppa
því alveg að brosa. Bara hætta því.
Það var rosalega erfitt, eiginlega
bara hrikalega erfitt.“
Eftir að María flutti aftur heim
ákvað hún að halda dragnámskeið
fyrir konur. Um 15 leikkonur sóttu
námskeiðið og héldu þær síðan uppi-
stand á Kringlukránni á sínum tíma.
„Þá kölluðum við okkur Pörupilta og
við vorum ansi margar, en svo voru
það Alexía og Sólveig sem komu að
máli við mig eftir Kringlukráar-
ævintýrið og vildu halda áfram.“
Þær stofnuðu þá leikhópinn Pöru-
pilta og voru með uppistand í Þjóð-
leikhúskjallaranum, Homo Erectus.
Uppistandið endaði svo á Stóra sviði
Þjóðleikhússins. „Þetta átti að vera
bara lítið og sætt en gekk svona
glimrandi vel og fólk hló mikið.“
Kynfræðslan sló í gegn
Eftir Homo Erectus ákvað
þríeykið að setja upp kynfræðslu-
sýningu þar sem 10. bekkingum á
höfuðborgarsvæðinu hefur verið
boðið í Borgarleikhúsið síðustu þrjá
vetur. „Unglingarnir hafa mjög
gaman af okkur og þarna erum við
að taka á ákveðnu „tabúi“ og gera
það skemmtilegt. Um leið og við er-
um búnar að ná krökkunum í hlátur
og gleði þá er ýmislegt sem við get-
um frætt þau um á laun.“ María seg-
ir að það standi til að fara með verk-
efnið til Ísafjarðar, en draumurinn
er að fara um allt land. „Það væri
óskandi að þetta færi í fjárlög og við
gætum haldið þessu áfram. Við höf-
um verið í miklu sambandi við land-
læknisembættið og höfum fengið
góðan stuðning og hvatningu frá
því.“
Pörupiltarnir takast nú á við
föðurhlutverkið í þessari þriðju og
síðustu sýningu í þríleiknum. „Nú
þarf að taka afleiðingunum af allri
kynfræðslunni! Dóri Maack er orð-
inn pabbi og þarf að skaffa peninga
svo hann skellir í fræðslukvöld fyrir
einstæða foreldra en eins og allt sem
þessir dúddar ætla að gera þá klúðr-
ast það. Það sem er gaman við þetta
form er að það leynist svo mikið
frelsi í þessu – af því að við erum
konur að leika karla þá megum við
segja það sem hvorki konur né menn
kæmust upp með að segja, allt fær
annað vægi og verður stundum
skemmtilega mótsagnakennt.“
Pörupiltarnir
verða pabbar
Ný sýning Pörupiltanna, Who’s the
Daddy, frumsýnd í Tjarnarbíói í kvöld
88 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2016
Dr. Stephen Vincent Strange slasast svo illa á
höndum í bílslysi að hann verður ófær um
framkvæmd skurðaðgerða. Til að leita sér
lækninga heldur hann út í heim og hittir að lok-
um "hinn forna" sem kennir honum að nota
hendurnar og hæfileika sína á alveg nýjan hátt.
Metacritic 74/100
IMDb 8,2/10
Laugarásbíó 20.00, 22.30
Sambíóin Álfabakka 15.00, 16.00, 17.30, 18.30, 20.00,
21.00, 22.40
Sambíóin Egilshöll 17.30, 19.00, 20.00, 22.00, 22.30
Sambíóin Kringlunni 17.30, 20.00, 22.30
Sambíóin Akureyri 17.30, 20.00, 22.40
Sambíóin Keflavík 17.30, 20.00
Doctor Strange
Grimmd 12
Íslensk spennumynd
sem segir frá því
þegar tvær ungar
stelpur hverfa spor-
laust af leikvelli í Ár-
bænum. Stúlkurnar
finnast látnar í Heið-
mörk og rannsókn í
leit að sökudólgum
fléttast saman nokkrar sögur.
IMDb 5,8/10
Smárabíó 17.20, 20.00, 22.10, 22.20
Háskólabíó 18.10, 21.10
Jack Reacher:
Never Go Back 12
Jack Reacher þarf að
fletta ofan af stóru sam-
særi til þess að sanna
sakleysi sitt
IMDb 7,9/10
Sambíóin Álfabakka
20.00, 22.30
Sambíóin Egilshöll
20.00, 22.30
Sambíóin Kringlunni
22.30
The Accountant 16
Christian Wolff er stærð-
fræðingur sem hefur meiri
áhuga á tölum en fólki.
Metacritic 51/100
IMDb 7,7/10
Sambíóin Álfabakka 17.20,
20.00, 22.40
Sambíóin Egilshöll 17.30,
20.00, 22.40
Sambíóin Kringlunni 18.00,
21.00, 23.40
Sambíóin Akureyri 20.00,
22.40
Sambíóin Keflavík 20.00,
22.40
Eiðurinn 12
Morgunblaðið bbbbb
IMDb 7,7/10
Háskólabíó 18.10
Bridget Jones’s
Baby 12
Metacritic 59/100
IMDb 7,4/10
Laugarásbíó 17.00, 20.00,
22.25
The Girl on
the Train 16
Metacritic 47/100
IMDb 6,8/10
Sambíóin Álfabakka 20.00
Inferno 12
Smárabíó 19.30, 19.50,
22.30
Sully 12
Morgunblaðið bbbbn
Metacritic 74/100
IMDb 7,9/10
Sambíóin Álfabakka 20.00,
22.10
Hacksaw Ridge 16
Byggð á magnaðri sögu her-
læknisins Desmond T. Doss,
sem neitaði að bera vopn í
seinni heimsstyrjöldinni.
Metacritic 66/100
IMDb 8,7/10
Sambíóin Keflavík 22.40
Háskólabíó 18.00, 21.00
Max Steel 12
Hér segir frá ævintýrum tán-
ingsins Max McGrath og
framandi félaga hans, Steel.
Smárabíó 15.20, 17.40,
20.00, 22.20
Masterminds
Metacritic 47/100
IMDb 5,8/10
Smárabíó 17.20, 19.50,
22.00
Háskólabíó 20.50
Borgarbíó Akureyri 18.00
The Magnificent
Seven 12
Metacritic 54/100
IMDb 7,2/10
Háskólabíó 21.00
Middle School Metacritic 51/100
IMDb 5,8/100
Smárabíó 15.30
Sjöundi dvergurinn
Hin illa norn Dellamorta
lagði bölvun á Rose prins-
essu þegar hún var barn að
aldri.
Sambíóin Álfabakka 15.20,
16.00, 18.00
Sambíóin Egilshöll 17.30
Sambíóin Kringlunni 18.00
Sambíóin Akureyri 18.00
Sambíóin Keflavík 18.00
Storkar
Storkar komu. Núna afhenda
þeir pakka fyrir alþjóðlega
netfirsann Corner-
stone.com.
Metacritic 55/100
IMDb 7,2/10
Sambíóin Álfabakka 16.00,
18.00
Tröll
Metacritic 45/100
IMDb 6,8/10
Laugarásbíó 16.00, 18.00
Smárabíó 15.30, 17.45
Heimili fröken
Peregrine 12
Metacritic 53/100
IMDb 7,2/10
Háskólabíó 18.00
Captain Fantastic
Metacritic 72/100
IMDb 8,1/10
Bíó Paradís 22.00
Innsæi
InnSæi býður áhorfendum í
ferðalag inn í hulinn heim.
Bíó Paradís 20.00
Child Eater
Helen grunar ekki hversu
hryllilegt kvöld hún á í vænd-
um
Bíó Paradís 22.30
The sleeping beauty
ballet
Bíó Paradís 20.00
The girl with all the
gifts
Bíó Paradís 20.00
Can’t walk away
Bíó Paradís 18.00
Autumn Lights
Bíó Paradís 18.00
Kvikmyndir
bíóhúsannambl.is/bio