Morgunblaðið - 04.11.2016, Side 92

Morgunblaðið - 04.11.2016, Side 92
FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 309. DAGUR ÁRSINS 2016 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 517 KR. ÁSKRIFT 5613 KR. HELGARÁSKRIFT 3505 KR. PDF Á MBL.IS 4978 KR. I-PAD ÁSKRIFT 4978 KR. 1. Kom fótgangandi á fund Bjarna 2. Nennir ekki að tala um … 3. „Er þetta Björt Viðreisn?“ 4. Logi beðinn að koma seinna »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Sýningin verður opnuð í dag, föstu- dag, kl. 13 í Kringlunni á 1. hæð gegnt ÁTVR og samanstendur af myndum sem sendar voru inn af atvinnu- ljósmyndurum þessa lands og valdar af sérstakri valnefnd í fimm flokkum. Myndin hér að ofan nefnist „Maður á grænum gangi“, framúrskarandi mynd í flokki auglýsingamynda. Ljósmynd/Gunnar Svanberg Ljósmyndasýning í tilefni 90 ára afmælis  Herdís Anna Jónsdóttir og Steef van Oos- terhout í Dúó Stemma leika ís- lensk þjóðlög og fleira fyrir gesti á hádegistónleikum Tónlistarfélags Ak- ureyrar í dag, föstudag, kl. 12. Dúóið leikur á víólu, marimbu, íslenskt steinaspil og ýmis önnur hefðbundin og heimatilbúin hljóðfæri. Miðaverð er 2.000 kr. og fer miðasala fram á www.mak.is. Íslensk þjóðlög, þulur og vísur  Tónlistarkonur úr öllum áttum halda glæsilega „Airwaves off venue“-veislu í Hannesarholti í dag og á morgun. Í dag hefjast fyrstu tónleikar kl. 12 á hádegi og stendur yfir þétt dag- skrá til kl. 20. Á morgun standa þeir yfir frá 16.30-20.00. Una Stef, Védís Hervör, Myrra Rós, Ragga Gröndal, Alda Dís, Rökkva og fleiri taka lagið. KÍTÓN konur blása til tónlistarveislu Á laugardag Hæg breytileg átt, víða léttskýjað og vægt frost, en frostlaust með suðurströndinni. Á sunnudag Vaxandi suðlæg átt, hlýnar og fer að rigna síðdegis. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðlæg átt, 3-10 m/s og stöku él með norður- og austurströndinni en bjartviðri sunnan- og vestantil. Hiti 0 til 7 stig. VEÐUR „Þetta var annað hlutverk en ég er vanur, og svolítið svekkjandi fyrir mig,“ segir Arnór Sveinn Aðalsteins- son, sem þrátt fyrir að hafa verið fyrirliði Breiðabliks missti sæti sitt í byrj- unarliðinu á síðustu leiktíð. Hann ákvað að yfirgefa upp- eldisfélagið sitt og samdi í gær við KR til þriggja ára, en mætir mikilli samkeppni um sína uppáhaldsstöðu sem hægri bakvörður. »4 Fyrirliði Blika gekk í raðir KR Sigurinn og stigin tvö í fyrsta leik í undankeppni EM karla 2018 í hand- knattleik er það sem mestu máli skiptir eftir viðureignina gegn Tékkum í Laugardals- höllinni í fyrrakvöld. Um það eru fjórir viðmælendur okkar sammála. En hvað fannst þeim að öðru leyti um frammi- stöðuna hjá mikið breyttu landsliði undir stjórn Geirs Sveinssonar? »2-3 Hvernig var frammi- staðan gegn Tékkum? Hafnaboltinn er þjóðaríþrótt Banda- ríkjanna og bið Cubs eftir meist- aratitlinum – sú lengsta í sögu at- vinnuíþrótta hér í landi – skapaði mikla spennu í kringum þennan leik. Enginn gat hinsvegar spáð þvílíkri skemmtun og spennu sem þessi leik- ur hafði upp á að bjóða, skrifar Gunn- ar Valgeirsson um úrslitaleik Chicago Cubs og Cleveland Indians. »4 Enginn gat spáð þvílíkri skemmtun og spennu ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á hundar geta verið hræddir við blásarann. Það var einn hérna í vikunni sem var ekki alveg viss með þennan blásara en þá klöppuðum við honum bara meðan verið var að þurrka hann og þá var þetta ekkert mál.“ Eins og okkur mannfólkinu líður hundunum vel þegar þeir koma úr baðinu og segir Anna að sinn eigin hundur eigi það til að fá sér væn- an blund eftir gott bað. Hundurinn ekki skilinn eftir Anna segir að margir haldi að þau sjái um þvottinn og hundurinn sé því skilinn eftir í versluninni. Sú er hins vegar ekki raunin. „Hér er aðstaða fyrir fólk til að þvo hundinn eða hundana sína. Við hjálpum að sjálfsögðu fólki ef svo ber undir en hugmyndin er að fólk sjái sjálft um að þvo hundana sína. Það mynd- ast líka miklu betri tengsl milli hunds og eig- anda þegar fólk þvær hundinn sjálft og hund- arnir verða rólegri.“ Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Systkinin Anna Ólafsdóttir og Kjartan Ólafs- son reka saman Litlu gæludýrabúðina í Hafn- arfirði þar sem hundaeigendur geta komið sér- staklega til að baða hundana sína. „Okkur fannst vanta aðstöðu sem þessa fyrir hundaeigendur en hugmyndin að versluninni og hundabaðinu höfum við verið með í mag- anum í að verða tvö ár,“ segir Anna en hún og Kjartan hafa rekið saman netverslunina snati- .is og kisa.is í 11 ár og þekkja því vel til í þess- um geira. „Það er hálfskammarlegt að segja frá því en ég átti ekki gæludýr sjálf þegar við stofnuðum netverslunina árið 2005. Hún kom til þannig að bróðir minn átti hund og fannst lítið um gott fóður fyrir hunda á markaðnum. Við ákváðum þá að flytja sjálf inn fóður og selja og í dag er fóður frá okkur selt bæði í netversluninni og almennum verslunum. Við erum því ekki alveg ný á þessu sviði og nú get ég státað af því að vera komin með minn eigin hund.“ Allar nýjungar taka smá tíma Hundabað er ný þjónusta á Íslandi og segir Anna reksturinn fara rólega en örugglega af stað. „Allar nýjungar taka smá tíma og þegar fólk er búið að koma einu sinni með hundinn sinn þá vill það koma aftur og kemur aftur. Þetta er mjög þægilegt og sáraeinfalt í notkun. Það tek- ur ekki nema 15 mínútúr að baða og þurrka meðalstóran hund.“ Hægt er að velja milli tveggja sjampóteg- unda og einnig er hægt að fá næringu ef þess er óskað en Anna segir það vera val hvers og eins. „Sjampóið og næringin kemur úr sturtu- stútnum og hver og einn velur hvort það kem- ur eða ekki,“ segir Anna og bætir við að baðið taki allar stærðir hunda. „Í vikunni voru þrír stórir hundar í hundabaðinu svo það tekur allt frá þeim allra minnstu upp í þá allra stærstu.“ Ánægðir eftir gott bað í boði eigandans Á endanum snýst þetta um að halda hund- inum hreinum, fallegum og hamingjusömum. Anna segir hundana almennt hafa ánægju af því að fara í baðið en sumir hræðist blásarann. „Þeir eru voðalega rólegir í baðinu en sumir Sumir hræðast blásarann  Litla gæludýrabúðin býður hundaeigendum aðstöðu til að baða hundinn  Sjampó og næring í boði fyrir þá sem vilja og auðvelt er að þurrka Morgunblaðið/Árni Sæberg Hundabað Anna Ólafsdóttir segir hundana almennt hafa ánægju af því að fara í baðið. Í Litlu gæludýrabúðinni í Hafnarfirði er að finna K9000 hundabaðið sem er sáraeinfalt í notkun að sögn Önnu Ólafsdóttur, eiganda búðarinnar. „Það tekur ekki nema um 15 mínútur að baða og þurrka meðalstóran hund. Hægt er að velja milli tveggja sjampótegunda og einnig er hægt að velja næringu. Til að þurrka feldinn er kraftmikill blásari með tveim hraðastillingum, sem blæs volgum blæstri.“ K9000 hundabað fyrir alla hunda DÝRALÍF Í HAFNARFIRÐI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.