Morgunblaðið - 23.11.2016, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. NÓVEMBER 2016
Jón Sigurðsson
Blönduósi
Grágæsin Blanda sem merkt var
með gervihnattasendi á Blönduósi
18. júlí er loksins komin í síma-
samband og skilaði upplýsingum
um að hún væri komin til Skot-
lands en hún hafði ekki gefið frá
sér merki síðan 10. nóvember.
Á mánudagsmorgun var Blanda
á Halladay River sem rennur í
Melvich Bay ekki langt frá þeim
stað sem vegur A-897 tengist þjóð-
vegi A-836.
Um hádegisbil á sunnudag frétt-
ist af Blöndu en þá var hún komin
til Færeyja og hvíldi sig á Suð-
uroyarfirði milli Suðureyjar og
Stóra-Dimun. Klukkan 18 var hún
komin til Lednagullin í Skotlandi.
Vegalengdin þarna á milli er 376
km þannig að meðalflughraði
Blöndu frá Færeyjum hefur verið
um 63 km á klukkustund. En það
merkilega er að engar upplýsingar
(gps-merki) er að finna um hana
frá því hinn 12. nóvember en þá
var hún í Skagafirði í nágrenni
Vindheimamela. Menn gera sér
vonir um að hún muni rekja ferða-
sögu sína með skýrari hætti næst
þegar hún sendir sms-merki frá
sér.
Gæsin Linda var skotin
Blanda er síðasta gæsin af sjö
sem merkt var með gervi-
hnattasendi í sumar til að skila sér
yfir hafið til Orkneyja og Skot-
lands. Ein gæsin sem bar nafnið
Linda féll fyrir byssu veiðimanns á
svipuðum slóðum og síðast fréttist
af Blöndu hinn 10. nóvember.
Hinn 18. júlí í sumar voru 113
gæsir merktar á Einarsnesi við
Blöndu á Blönduósi. Ein grágæsin
fékk gervihnattasendi og var út-
nefnd höfuðgæs Blönduósinga. Það
var Arnór Þórir Sigfússon gæsa-
sérfræðingur sem merkti gæsirnar.
Til gamans má geta þess að síð-
ast voru merktar 118 grágæsir á
Blönduósi árið 2000 og er ein úr
þeim hópi búin að skila sér heim á
Blönduós síðan þá.
Gæsin Blanda til Skotlands
Hafði verið
týnd í 10 daga
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Blönduós Dr. Arnór Þórir Sigfússon fuglafræðingur með Blöndu daginn sem hún var merkt í bak og fyrir.
Blanda Gæsin Blanda með staðsetningar- og senditækið um hálsinn
skömmu áður en hún yfirgaf Blönduós. Hún er einnig með fótmerki.
10. nóvember
Vindheimamelar
í Skagafirði
20. nóvember
Suðureyjarfjörður
í Færeyjum
21. nóvember
Melvich-flói
í Skotlandi
Veðurfarsrannsóknir við Hvassa-
hraun munu hefjast á næstunni,
þegar skilyrði henta. Icelandair
Group hefur ákveðið að láta fram-
kvæma rannsóknirnar og er það
gert í framhaldi af starfi Rögnu-
nefndarinnar svokölluðu. Nefndin
lagði til í lokaskýrslu sinni að
„Flugvallarskilyrði í Hvassahrauni
verði fullkönnuð með nauðsyn-
legum rannsóknum…“. Við þessar
rannsóknir á svæðinu mun Ice-
landair nýta tækjakost félagsins.
Flugprófanirnar fara þannig fram
að flugvélum frá Icelandair, sem
ekki eru í áætlunarflugi, verður
flogið eftir þeim aðflugsferlum sem
eru fyrirséðir á nýju mögulegu
flugvallarstæði. Tækjabúnaður um
borð í vélunum mun nema og skrá
mismunandi veðuraðstæður á
svæðinu.
Icelandair rannsakar Hvassahraun
Í skoðun er hjá Samkeppniseftirlit-
inu hvort úrskurði áfrýjunarnefnd-
ar samkeppnismála í máli Mjólkur-
samsölunnar verði áfrýjað til
dómstóla. Nefndin felldi, sem kunn-
ugt er, úr gildi ákvörðun Sam-
keppniseftirlitsins um að sekta
fyrirtækið um 480 milljónir króna.
Niðurstaða nefndarinnar var að bú-
vörulög væru framar samkeppnis-
lögum, en þeim er mjólkuriðnaður-
inn undanþegin. Ákvörðun um
áfrýjun verður tekin fljótlega, segir
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Sam-
keppniseftirlitsins, og bendir á að
áfrýjunarnefndin hafi klofnað í af-
stöðu sinni.
Það var mat Samkeppniseftirlits-
ins að MS hefði misbeitt markaðs-
ráðandi stöðu sinni með því að selja
keppinautum hrámjólk til fram-
leiðslu á óeðlilega háu verði á sama
tíma og MS sjálft og tengdir aðilar
fengu sömu vörur undir kostnaðar-
verði. Slíkt hefði veitt samkeppnis-
forskot.
Ólafur M. Magnússon, fram-
kvæmdastjóri mjólkurbúsins Kú,
segir úrskurð áfrýjunarnefndar-
innar vera mikil vonbrigði. Ef
niðurstöðunni verði ekki snúið af
dómstólum verði keppinautar MS
berskjaldaðir. MS sé með 98% hlut-
deild á mjólkurvörumarkaði en sé
undanþegin samkeppnislögum.
Minni mjólkurbúin þurfi hins vegar
að lúta þeim og slíkt geri stöðuna
mjög ójafna.
Áfrýjun
MS-máls
í skoðun
Vonbrigði því
staðan er ójöfn
Páll Gunnar
Pálsson
Ólafur M.
Magnússon
Vöruhús veitingamannsins
allt á einum stað
Höfðabakka 9 | 110 Reykjavík | Sími 595 6200 | bakoisberg.is
Opið virka daga kl. 8.30-16.30
...Margur er knár
þótt hann sé smár
Nýji SX Rational 2/3 GN ofninn
gerir allt það sama og
stærri gerðirnar.
Rolls-Royce
Marine
Gjáhella 4 • 221 Hafnarfjörður
Sími 569 2100 • hedinn.is
Service Provider