Morgunblaðið - 23.11.2016, Blaðsíða 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. NÓVEMBER 2016
Jean-Rémi Chareyre
kennari og pistlahöf-
undur hefur þýtt smásög-
una A Christmas Carol
eða Jólaævintýri eftir
Charles Dickens yfir á ís-
lensku og hyggst bjóða
upp á tvímála útgáfu af
verkinu. „Slík útgáfa felst
í því, að á vinstri blaðsíð-
um bókarinnar er textinn
á frummálinu, í þessu til-
viki ensku, en á hægri
blaðsíðum hefur sami
texti verið þýddur á ís-
lensku. Með slíku fyr-
irkomulagi er orðabókin
nánast óþörf,“ segir í til-
kynningu frá þýðanda.
Til þess að fjármagna
prentun á bókinni hefur
Jean-Rémi Chareyre haf-
ið söfnun á vefsíðunni
karolinafund.com. Söfn-
unin er jafnframt forsala
á bókinni.
„Smáskáldsagan A Christmas
Carol eftir Charles Dickens (1812-
1870) var fyrst gefin út 19. desem-
ber 1843. Hún naut frá upphafi
gríðarlegra vinsælda og er nú
löngu orðin sígilt verk í breskum
bókmenntum. Sagan sem þar er
rakin er svo sannarlega tímalaus.
Sú saga hefur verið endurvakin við
mýmörg tækifæri, þar á meðal af
Walt Disney sem byggði ógleym-
anlega persónu sína Jóakim frænda
á aðalpersónunni úr sögu Dickens,
Ebenezer Scrooge. Sem nýlegt
dæmi má svo nefna vel heppnaða
kvikmynd frá árinu 2009 byggða á
sömu sögu með stórleikaranum Jim
Carrey í aðalhlutverki.“
Vinsæll Rithöfundurinn Charles Dickens
skrifaði Jólaævintýri á fyrri hluta 19. aldar.
AFP
Jólaævintýri í
tvímála útgáfu
Gabriel Iglesias
verður með uppi-
stand í Valshöll
sunnudaginn 11.
júní 2017. Al-
menn miðasala
hefst í fyrramálið
kl. 10 á vefnum
tix.is, en póst-
listaforsala Senu
Live hefst í dag
kl. 10. Sýningin er hlut af heims-
túrnum Fluffy Mania Tour sem sam-
anstendur af 57 sýningum víða um
heim. „Með hlutverkum í Family
Guy, Magic Mike, The Nut Job og
hinni væntanlegu grínmynd Blazing
Samurai, hefur [Iglesias] sannað sig
sem sannkallaður þungavigt-
armaður í skemmtanabransanum.“
Uppistand Iglesias
Gabriel Iglesias
Tónlistarmaðurinn Elton John hefur
ekki bara safnað dægurlaga-
smellum, sem hafa fært honum gríð-
arleg auðævi, heldur hefur hann á
undanförnum aldarfjórðungi komið
sér upp einstæðu safni af mik-
ilvægum ljósmyndaverkum, og hef-
ur ekkert til sparað við kaupin. Alls
munu John og eiginmaður hans,
David Furnish, eiga um 8.000 verð-
mæt verk, þar á meðal fjölda lyk-
ilverka ljósmyndasögunnar, og
þekja þau veggi heimila þeirra í
Bandaríkjunum og Evrópu.
Í Tate Modern-safninu í Lund-
únum hefur verið opnuð sýning með
úrvali safneignarinnar með áherslu
á móderníska ljósmyndun tímabils-
ins 1920 til 50. The Radical Eye:
Modernist Photography from the
Sir Elton John Collection er heiti
sýningarinnar og á henni 191 verk.
Módernisminn hátindur
Sérfræðingar segja ljósmynda-
safnið sem John og Furnish hafa
komið sér upp eitt hið mikilvægasta
sem til er í einkaeigu í dag. Elstu
verkin í safneigninni eru frá um
1910, John hefur því látið ljós-
myndalist 19. aldar eiga sig en ein-
beitt sér að tímabilinu eftir að ljós-
myndarar tóku að stækka
ljósmyndir upp en ekki gera bara
snertiprent eins og áður tíðkaðist.
Elton John féll fyrir ljósmynda-
miðlinum eftir að hann hafði lokið
áfengismeðferð árið 1991; þá keypti
hann fyrstu verkin, hann segist að-
eins kaupa það sem hann dáist að, og
síðan hafi hann ekki hrifist jafn mik-
ið af neinu og ljósmyndun.
John hefur safnað allrahanda lyk-
ilverkum frá liðinni öld, hefur oft
greitt fyrir þau metfé, og í samtali
við The Guardian segir hann að í
raun væri hægt að setja saman
margar ólíkar safnasýningar úr
safneigninni. En um tímabil mód-
ernismans, sem nú varð fyrir valinu,
segist hann telja það sköpunarlegan
hátind ljósmyndalistarinnar. „Þá
voru listamenn eins og Man Ray og
Moholy-Nagy sífellt að víkka formið
út,“ segir hann. „Og nýverið valdi ég
eina ljósmynda [André] Kertész,
Underwater Swimmer, sem mik-
ilvægustu ljósmynd tuttugustu aldar
því hún hafði svo gríðarlega áhrif á
aðra listsköpun, frá Hockney til Max
Dupain til [Roberts] Mapplethorpe.
Eins og svo mörg önnur frumprent
sem ég á er hún mjög lítil, 32 x
45mm, og gríðarlega falleg.“
Auk verka eftir þá ljósmyndara
sem hann nefnir gefur á sýningunni
einnig að líta myndir eftir meistara
tímabilsins á borð við Edward Steic-
hen, Paul Strand, Werner Mantz,
Josef Breitenbach, Irving Penn og
Dorothea Lange.
Ólíkt því sem gestir á listasöfn
með eldri ljósmyndaverkum eiga að
venjast, þar sem verkunum er
venjulega stillt fram í einföldum við-
arrömmum, oftast dökkum eða hvít-
um, þá láta John og Furnish inn-
rammara þeirra í Atlanta í Banda-
ríkjunum ganga frá verkunum í
áberandi ramma, oftast silfraða eða
gyllta og gefur það safneigninni per-
sónulegan svip. Sérfræðingar segja
smekk Eltons John fágaðan en hann
leggur mikið upp úr því að eignast
allra fallegasta prentið sem til er á
markaðinum af þeim myndum sem
hann ásælist, og greiðir oft tugi
milljóna króna fyrir rétta prentið.
Innsýn í einstakt ljós-
myndasafn Eltons John
AFP
Gæði Í Tate Modern geta gestir skoðað 191 verk úr hinu víðfeðma ljósmyndasafni Eltons John, með áherslu á
módernismann á árabilinu 1920 til 1950. Tónlistarmaðurinn mun eiga um 8.000 mikilvæg ljósmyndaverk.
Meistaraverk Hin fræga mynd Do-
rothea Lange, Migrant Mother, séð
á skjá kvikmyndatökumanns.
Perlur Gestur virðir fyrir sér tvö af frægustu ljósmyndaverkum Mans Ray,
Noire et Blanche og Glass Tears á sýningunni í Tate Modern. Þegar Elton
John keypti það síðarnefnda varð það dýrasta ljósmynd sögunnar.
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
FANTASTIC BEASTS 3D 6, 9
FLÖSKUSKEYTI FRÁ P 8, 10.25
HACKSAW RIDGE 8, 10.45
TRÖLL 2D ÍSL.TAL 6
BRIDGET JONES’S BABY 5.30
Miðasala og nánari upplýsingar
Suðurhrauni 4210 Garðabæ | Furuvellir 3 600 Akureyri | Sími 575 800 | samhentir.is
Heildarlausnir
í umbúðum og öðrum rekstrarvörum
fyrir sjó- og landvinnslu
◆ KASSAR
◆ ÖSKJUR
◆ ARKIR
◆ POKAR
◆ FILMUR
◆ VETLINGAR
◆ HANSKAR
◆ SKÓR
◆ STÍGVÉL
◆ HNÍFAR
◆ BRÝNI
◆ BAKKAR
◆ EINNOTA VÖRUR
◆ HREINGERNINGAVÖRUR
Allt á
einum
stað