Morgunblaðið - 23.11.2016, Blaðsíða 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. NÓVEMBER 2016
Mér finnst svo stutt síðan maður var pjakkur í Breiðholti,“ seg-ir Árni Þór Ómarsson, kerfisstjóri Fjölbrautaskólans við Ár-múla, þegar blaðamaður spyr hvort hann sé ekki til í létt
spjall í tilefni af 40 ára afmæli hans í dag.
„Við erum tvö sem vinnum þetta í sameiningu í skólanum. Ég sé um
daglegan tækjarekstur en hún sér um kerfishlutann.“ Árni hefur unn-
ið við skólann í tíu ár og er trúnaðarmaður þeirra starfsmanna skól-
ans sem eru ekki kennarar. „Við erum nokkur, samt ekki mjög mörg,
og erum í SFR.“
Fjölskyldan er stóra áhugamálið hjá Árna. „Svo er ég jeppamaður
og hef verið í félagsstarfi 4X4 klúbbsins og er í fastanefnd sem vinnur
að fjarskiptamálum. Hitt stóra áhugamálið er hjólreiðar. Ég hjóla úr
og í vinnu næstum daglega, það eru sirka 10 km fram og til baka, og
svo er að sjálfsögðu skotist í hjólatúra um helgar með reiðhjóla-
félögum. Ég er líka farinn að hjóla úti á landi og maður fær aðra sýn á
náttúruna þegar maður fer hægar yfir en á bíl. Síðasta sumar fór ég í
þriggja daga hálendisferð sem opnaði augu mín fyrir því að það er
hægt að ferðast um landið án mikils tilkostnaðar. Svo hef ég almennt
mikinn áhuga á tækjum og tólum, tek þau í skömmtum og núna eiga
reiðhjólin hug minn allan.
Það stendur ekkert sérstakt til í dag. Við hjónin eigum afmæli með
sex daga millibili og hún er að fara í utanlandsferð með vinkonu sinni.
Kannski verður afmælispartí fljótlega hjá okkur hjónum. Annars er
markmiðið að komast í gegnum næstu 40 árin og reyna að þroskast
og dafna sem persóna.“ Eiginkona Árna er Hildur Arnar, en hún er
leikskólakennari að mennt. Dætur þeirra eru Gabríella Kamí, 16 ára
nemi í Fjölbraut í Breiðholti, og Anika Rós, 14 ára.
Við Jaðarinn Hjólreiðakappinn Árni Þór Ómarsson.
Er bæði reiðhjóla-
og jeppamaður
Árni Þór Ómarsson er fertugur í dag
Á
sdís Eyþórsdóttir
fæddist 23. nóvember
1966 í Reykjavík.
Fyrstu átta árin bjó
hún í Kópavogi en eftir
það voru æskuslóðirnar í Laugar-
nesinu. „Ég var eina viku í sveit,
hafði suðað lengi í foreldrum mín-
um um að fá að fara í sveit en svo
entist ég í eina viku, bað um að fá
að fara heim þegar ég átti að borða
selkjöt enda bara sjö ára gömul.“
Ásdís gekk í Laugarnesskóla og
svo Laugalækjarskóla, varð stúd-
ent frá MH og lauk BA-gráðu í sál-
fræði frá Háskóla Íslands.
„Mig langaði alltaf að læra sál-
fræði enda alin upp á Kleppi þar
sem móðir mín vann. Ég ætlaði
samt fyrst að verða flugmaður en
foreldrar mínir stoppuðu mig af,
þau vildu að stelpan færi í háskóla,
ég held að þau hafi óttast að það
væru ekki miklir atvinnumögu-
leikar fyrir stelpur sem flugmenn.
Fyrsta starf mitt á Landspít-
alanum var í garðinum á Kleppi, ég
vann svo á símanum á Kleppi og
seinna við skrifstofustörf þegar ég
var unglingur. Þegar ég varð eldri
vann ég á næturvöktum á deild 32c
með skólanum.“ Ásdís lauk síðan
diplómanámi í starfstengdri sið-
fræði frá HÍ. „Ég hafði mikinn
áhuga á heimspeki, var búin að
taka áfanga í henni svo það var til-
valið að taka þetta nám.“ Ásdís
lauk síðan cand psych-námi frá Há-
skólanum í Árósum og sérnámi í
hugrænni atferlismeðferð frá End-
urmenntun Háskóla Íslands í sam-
vinnu við Oxford Center.
Starfsferillinn
Ásdís starfar sem sálfræðingur á
barna- og unglingageðdeild Lands-
spítala (BUGL) og starfaði áður á
geðdeild LSH Hringbraut. Hún
rekur einnig eigin sálfræðistofu á
Klapparstíg 25-27. „Streitan í þjóð-
félaginu er mikil og þótt krakk-
arnir séu seigir þá hefur þetta samt
áhrif á þá. Við þurfum kannski að
vanda okkur meira þegar við tölum
um stöðu heimsmála fyrir framan
börn, sérstaklega eftir kosning-
arnar í Bandaríkjunum. Litlir pott-
ar hafa líka eyru var sagt þegar ég
var lítil. Það er mjög gefandi og
skemmtilegt að vinna með krökk-
unum og ég held að ég læri jafn-
mikið af þeim og krakkarnir af
mér. Á minni stofu sinni ég líka
fullorðnum en ég vann með full-
orðna á geðdeildinni á Hring-
braut.“
Ásdís er formaður siðanefndar
Sálfræðingafélags Íslands. „Við
vinnum úr kvörtunum vegna starfa
sálfræðinga og svo erum við með
námskeið fyrir nýútskrifaða sál-
fræðinga um siðareglur og hvernig
haga skuli sér í starfi sem sálfræð-
ingur.“ Ásdís er einnig skriflegur
(corresponding) fulltrúi Sálfræð-
Ásdís Eyþórsdóttir sálfræðingur – 50 ára
Fjölskyldan Ásdís ásamt dóttur sinni Önnu Kolbrúnu og syni sínum Óskari Erni.
Fyrsta vinnan sem
krakki var á Kleppi
Hafnarfjörður Elín
Kara Arnórsdóttir
fæddist 8. október 2015
kl. 11.00. Hún vó 3.760
g og var 52 cm löng.
Foreldrar hennar eru
Tinna Freysdóttir og
Arnór Schmidt.
Nýir borgarar
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af
brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
Á opnunni „Íslendingar“ í
Morgunblaðinu er sagt frá
merkum viðburðum í lífi
fólks, svo sem stórafmælum,
hjónavígslum, barnsfæðingum
og öðrum tímamótum.
www.gilbert.is
KLASSÍSK ÍSLENSK ÚR
LÍKA FYRIR DÖMURNAR