Morgunblaðið - 23.11.2016, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. NÓVEMBER 2016
Hvernig er best að yf-irvinna ótta sinn? Þettaer lykilspurning í leik-ritinu Lofthræddi örn-
inn Örvar eftir Stalle Ahrreman og
Peter Engkvist sem byggist á sam-
nefndri sögu eftir Lars Klinting.
Leikritið fjallar, líkt og titill verks-
ins gefur til kynna, um lofthrædda
örninn Örvar. Honum finnst dásam-
legt að fljúga, en er of lofthræddur
til að fljúga tignarlega um uppi í
blámanum líkt og bróðir hans. Í
staðinn flýgur hann rétt fyrir ofan
yfirborð jarðar svo krækiberja-
lyngið kitlar magann.
Dag einn kynnist hann músar-
rindlinum Eðvarði. Þegar Eðvarð
kemst að því hversu leiður Örvar er
yfir lofthræðslu sinni fær hann hug-
mynd að því hvernig hann geti
hjálpað erninum, en Örvar efast um
gagnsemina, því hvernig á minnsti
fugl skógarins að geta hjálpað þeim
stærsta? Líkt og músin í dæmisögu
Esóps um músina og ljónið sannar
músarrindillinn hins vegar að hug-
vitið ræðst hvorki af líkamlegum
styrk né stærð.
Oddur Júlíusson leikur einleikinn
og bregður sér í hlutverk fuglanna
tveggja sem og sögumanns. Hann
hefur mikinn sviðssjarma og tókst
strax að fá salinn á sitt band. Í upp-
hafi sýningar bauð hann leikhús-
gesti velkomna og kynnti þá fyrir
ýmsum græjum úr dótakassa leik-
hússins. Eftir stutta kynningu brá
hann sér bak við fleka þar sem
áhorfendur máttu heyra hann ræða
við Eðvarð og Örvar áður en hann
birtist aftur á sviðið leiðandi ósýni-
legu vinina tvo.
Í framhaldinu stökk Oddur
áreynslulaust milli persóna og var
ávallt afskaplega skýr í öllum hreyf-
ingum og afstöðu. Undir stjórn
Björns Inga Hilmarssonar leik-
stjóra sýnir Oddur einstakt vald á
líkamsmálinu sem notað er til að
túlka persónur verksins. Þó að sýn-
ingin láti þannig ekki mikið yfir sér
er hún leiktæknilega afar krefjandi,
en Oddur leysir það listavel. Sem
dæmi er óborganlegt að fylgjast
með útfærslu hans á því þegar Örv-
ar flýgur á stein og hvernig hann
dúar á trjágrein. Mestu kátínu
áhorfenda vakti það þegar Oddur
sýndi ótrúlegar kúnstir við að láta
Örvar príla upp á trjástubb.
Oddur rappaði eigin tónsmíðar í
verkinu og gerði vel. Á köflum varð
undirleikurinn hins vegar of hávær
þannig að prýðisgóðir textar Odds
heyrðust illa. Rám röddin sem hann
notaði til að túlka óöryggi Örvars
hjálpaði honum heldur ekki að láta
textann berast aftur á aftasta bekk.
Umgjörð sýningarinnar er einföld
og þjónar efniviðnum ágætlega auk
þess að gera sýninguna ferðavæna,
en Þjóðleikhúsið er rúmlega hálfnað
í hringferð sinni um landið.
Lofthræddi örninn Örvar er fal-
leg saga sem á jafnmikið erindi við
leikhúsgesti núna og fyrir rúmum
tuttugu árum þegar Björn Ingi lék
einleikinn undir leikstjórn Peters
Engkvist. Þetta er sagan um mik-
ilvægi þess að hafa kjark til að orða
ótta sinn, þora að þiggja aðstoð úr
óvæntri átt og gefast ekki upp fyrir
hindrunum lífsins. Síðast en ekki
síst minnir leikritið leikhúsgesti á
að æfingin skapar meistarann.
Æfingin skapar meistarann
Leikni „Undir stjórn Björns Inga leikstjóra sýnir Oddur einstakt vald á lík-
amsmálinu sem notað er til að túlka persónur verksins,“ segir í rýni.
Þjóðleikhúsið
Lofthræddi örninn Örvar bbbbn
Eftir Stalle Ahrreman og Peter Eng-
kvist, byggt á sögu eftir Lars Klinting.
Íslensk þýðing: Anton Helgi Jónsson.
Leikstjórn: Björn Ingi Hilmarsson. Tón-
list: Oddur Júlíusson. Leikmynd: Björn
Ingi Hilmarsson. Búningar: Berglind
Einarsdóttir. Lýsing: Hermann Karl
Björnsson Leikari: Oddur Júlíusson.
Frumsýnt í Vestmannaeyjum 6. október
2016, en rýnt í fyrstu sýninguna sem
sýnd var í Kúlunni í Þjóðleikhúsinu laug-
ardaginn 19. nóvember.
SILJA BJÖRK
HULDUDÓTTIR
LEIKLIST
Gunnþórunn Jónsdóttir
gunnthorunn@mbl.is
Þýska rokkhljómsveitin Rammstein
heldur tónleika hér á landi hinn 20.
maí nk. Tónleikarnir fara fram í
Kórnum í Kópavogi og um 13.000
miðar verða í boði fyrir íslenska aðdá-
endur. Einnig er búist við miklum
fjölda tónleikagesta frá Þýskalandi.
Rammstein hélt tvenna eft-
irminnilega tónleika hér á landi í
Laugardalshöll fyrir 15 árum, eða
2001. Á tónleikunum tilkynnti hljóm-
sveitin að hún elskaði Ísland og myndi
koma aftur í bráð. Nú er sá tími runn-
inn upp. Síðan þá hefur hljómsveitin
haslað sér völl sem ein stærsta rokk-
hljómsveit heims. Tónleikarnir sem
hér fóru fram á sínum tíma falla í
skugga þess sem Till Lindemann og
félagar í Rammstein bjóða upp á í
dag. Þeir eru þekktir fyrir magnað
sjónarspil á tónleikum sínum og til að
mynda munu þeir flytja inn fimmtán
gáma af búnaði, þrefalt hljóðkerfi,
eldvörpur og viðamikinn ljósabúnað
með sér í Kórinn er útskýrt í tilkynn-
ingu.
„Hljómsveitin mun mæta með
stærstu útgáfu sýningar sinnar og
næsta víst að annað eins mun aldrei
hafa sést hérlendis,“ segir ennfremur.
Nánar verður tilkynnt á næstu dög-
um um fyrirkomulag miðasölu en hún
mun þó fara fram á tix.is og hefst 1.
desember.
Rammstein með
tónleika á vordögum
Ein stærsta rokkhljómsveit heims mætir aftur til Íslands
Eldfimir Félagarnir eru þekktir fyrir að leika sér með eldvörpur og ýmsan
búnað á sviði. Það verður spennandi að sjá hverju þeir taka upp á hér.
Ljósmyndir/Bryan Adams
Rammstein Paul Landers, Oliver „Ollie“ Riedel, Christian „Flake“ Lorenz,
Till Lindemann, Christoph „Doom“ Schneider og Richard Z. Kruspe.
MAMMA MIA! (Stóra sviðið)
Fim 24/11 kl. 20:00 121.s Lau 3/12 kl. 20:00 127.s Fim 15/12 kl. 20:00 133. s
Fös 25/11 kl. 20:00 122.s Sun 4/12 kl. 20:00 128. s Fös 16/12 kl. 20:00 134. s
Lau 26/11 kl. 20:00 123.s Fim 8/12 kl. 20:00 129. s Lau 17/12 kl. 20:00 135. s
Sun 27/11 kl. 20:00 124.s Fös 9/12 kl. 20:00 130. s Sun 18/12 kl. 20:00 136. s
Fim 1/12 kl. 20:00 125.s Lau 10/12 kl. 20:00 131. s Mán 26/12 kl. 20:00 137. s
Fös 2/12 kl. 20:00 126.s Sun 11/12 kl. 20:00 132. s Fös 6/1 kl. 20:00 138. s
Gleðisprengjan heldur áfram!
Blái hnötturinn (Stóra sviðið)
Lau 26/11 kl. 13:00 16.sýn Sun 4/12 kl. 13:00 19.sýn Lau 17/12 kl. 13:00 22.sýn
Sun 27/11 kl. 13:00 17.sýn Lau 10/12 kl. 13:00 20.sýn Sun 18/12 kl. 13:00 23.sýn
Lau 3/12 kl. 13:00 18.sýn Sun 11/12 kl. 13:00 21.sýn Mán 26/12 kl. 13:00 24.sýn
Nýr fjölskyldusöngleikur byggður á verðlaunasögu Andra Snæs Magnasonar
Njála (Stóra sviðið)
Mið 23/11 kl. 20:00 Mið 7/12 kl. 20:00
Njáluhátíð í forsal frá kl. 18:45. Kjötsúpa og fyrirlestur. Síðustu sýningar.
Jólaflækja (Litla svið)
Lau 26/11 kl. 13:00 Frums Lau 3/12 kl. 13:00 3. sýn Sun 11/12 kl. 13:00 6. sýn
Sun 27/11 kl. 13:00 2. sýn Sun 4/12 kl. 13:00 4. sýn
Sun 27/11 kl. 15:00 aukas. Lau 10/12 kl. 13:00 5. sýn
Bráðfyndin jólasýning fyrir börn
Brot úr hjónabandi (Litla sviðið)
Fim 24/11 kl. 20:00 aukas. Sun 27/11 kl. 20:00 13.sýn Sun 4/12 kl. 20:00 aukas.
Fös 25/11 kl. 20:00 11.sýn Mið 30/11 kl. 20:00 aukas. Þri 6/12 kl. 20:00 15.sýn
Lau 26/11 kl. 20:00 12.sýn Lau 3/12 kl. 20:00 14.sýn Mið 7/12 kl. 20:00 16. sýn
Aðeins þessar sýningar. Ósóttir miðar seldir samdægurs.
Jesús litli (Litli svið )
Fim 1/12 kl. 20:00 2. sýn Fös 9/12 kl. 20:00 5. sýn Fim 15/12 kl. 20:00 7. sýn
Fös 2/12 kl. 20:00 3. sýn Lau 10/12 kl. 20:00 aukas. Lau 17/12 kl. 20:00 8. sýn
Fim 8/12 kl. 20:00 4. sýn Sun 11/12 kl. 20:00 6. sýn Sun 18/12 kl. 20:00 9. sýn
Margverðlaunuð jólasýning
Salka Valka (Stóra svið)
Fös 30/12 kl. 20:00 Frums. Fim 19/1 kl. 20:00 6. sýn Mið 1/2 kl. 20:00 11. sýn
Fim 5/1 kl. 20:00 2. sýn Fös 20/1 kl. 20:00 7. sýn Fim 2/2 kl. 20:00 12. sýn
Fös 13/1 kl. 20:00 3. sýn Þri 24/1 kl. 20:00 8. sýn Sun 5/2 kl. 20:00 13. sýn
Þri 17/1 kl. 20:00 4. sýn Mið 25/1 kl. 20:00 9. sýn
Mið 18/1 kl. 20:00 5. sýn Fös 27/1 kl. 20:00 10.sýn
Ein ástsælasta saga þjóðarinnar í leikstjórn verðlaunaleikstjórans Yönu Ross
Da Da Dans (Nýja svið )
Fim 24/11 kl. 20:00 4.sýn Sun 27/11 kl. 20:00 5.sýn
Íslenski dansflokkurinn
Óður og Flexa halda afmæli (Nýja sviðið)
Sun 27/11 kl. 13:00 Sun 4/12 kl. 13:00 Sun 11/12 kl. 13:00
5 stjörnu barnaverk frá Íslenska dansflokknum
Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til
að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
Djöflaeyjan (Stóra sviðið)
Lau 26/11 kl. 19:30 26.sýn Fös 2/12 kl. 19:30 28.sýn Lau 10/12 kl. 19:30 30.sýn
Sun 27/11 kl. 19:30 27.sýn Lau 3/12 kl. 19:30 29.sýn Fös 30/12 kl. 19:30 32.sýn
Kraftmikill söngleikur um skrautlegt mannlíf í braggahverfum Reykjavíkur!
Maður sem heitir Ove (Kassinn)
Fös 25/11 kl. 19:30 27.sýn Lau 3/12 kl. 19:30 30.sýn Sun 11/12 kl. 19:30 33.sýn
Lau 26/11 kl. 19:30 28.sýn Sun 4/12 kl. 19:30 31.sýn
Sun 27/11 kl. 19:30 29.sýn Lau 10/12 kl. 19:30 32.sýn
Siggi Sigurjóns og Bjarni Haukur sameina krafta sína í bráðfyndnum einleik!
Horft frá brúnni (Stóra sviðið)
Fös 25/11 kl. 19:30 13.sýn Sun 4/12 kl. 19:30 Lokasýn Sun 11/12 kl. 19:30 aukasýn
Sýningum lýkur í desember
Óþelló (Stóra sviðið)
Fim 22/12 kl. 19:30 Frums Fös 13/1 kl. 19:30 4.sýn Fim 2/2 kl. 19:30 8.sýn
Mán 26/12 kl. 19:30
Hátíðarsýning
Lau 14/1 kl. 19:30 5.sýn Fös 3/2 kl. 19:30 9.sýn
Fim 29/12 kl. 19:30 2.sýn Fös 27/1 kl. 19:30 6.sýn
Lau 7/1 kl. 19:30 3.sýn Lau 28/1 kl. 19:30 7.sýn
Vesturport tekst á nýjan leik á við Shakespeare!
Leitin að jólunum (Þjóðleikhúsið)
Lau 26/11 kl. 11:00 Sun 4/12 kl. 13:00 Lau 17/12 kl. 11:00
Lau 26/11 kl. 13:00 Sun 4/12 kl. 14:30 Lau 17/12 kl. 13:00
Sun 27/11 kl. 11:00 Lau 10/12 kl. 11:00 Lau 17/12 kl. 14:30
Sun 27/11 kl. 13:00 Lau 10/12 kl. 13:00 Sun 18/12 kl. 11:00
Lau 3/12 kl. 11:00 Lau 10/12 kl. 14:30 Sun 18/12 kl. 13:00
Lau 3/12 kl. 13:00 Sun 11/12 kl. 11:00 Sun 18/12 kl. 14:30
Lau 3/12 kl. 14:30 Sun 11/12 kl. 13:00
Sun 4/12 kl. 11:00 Sun 11/12 kl. 14:30
Sívinsælt aðventuævintýri Þjóðleikhússins komið í sölu 11 leikárið í röð.
Fjarskaland (Stóra sviðið)
Sun 22/1 kl. 13:00 Frums Sun 5/2 kl. 13:00 3.sýn
Sun 29/1 kl. 13:00 2.sýn Sun 12/2 kl. 13:00 4.sýn
Nýtt íslenskt barnaleikrit eftir Góa!
Lofthræddi örninn Örvar (Kúlan)
Mið 23/11 kl. 9:00
Grindavík
Lau 26/11 kl. 13:00 Mán 28/11 kl. 14:30
Akranes
Mið 23/11 kl. 10:30
Grindavík
Lau 26/11 kl. 15:00
Fim 24/11 kl. 10:00
Sandgerði
Mán 28/11 kl. 13:00
Akranes
Hrífandi einleikur fyrir börn um hugrekki.
Yfir til þín - Spaugstofan (Stóra sviðið)
Fim 24/11 kl. 19:30 34.sýn Fim 1/12 kl. 19:30 35.sýn
Sprellfjörug gleðisýning fyrir alla fjölskylduna!
Íslenski fíllinn (Brúðuloftið)
Lau 4/2 kl. 13:00 Lau 11/2 kl. 13:00 Lau 18/2 kl. 13:00
Lau 4/2 kl. 15:00 Lau 11/2 kl. 15:00 Lau 18/2 kl. 15:00
Sýningum lýkur í nóvember!
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 23/11 kl. 20:00 Fös 25/11 kl. 20:00 Mið 30/11 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!