Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2015, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2015, Qupperneq 2
2 Fréttir Helgarblað 27. febrúar–2. mars 2015 Pókermeistarinn fékk 2,6 milljónir Heildarverðmæti vinninga á Íslandsmótinu í Stórbokka nam sjö milljónum S igurvegarinn í Íslands­ mótinu í Stórbokka, eða High Roller, sem var haldið á Grand Hótel fyrr í mánuðinum hlaut í verð­ laun tvær milljónir og 650 þúsund krónur. Næstu tvö sæti gáfu í kring­ um eina milljón króna í vasann. Heildarverðmæti vinninga nam sjö milljónum króna. 100 manns á næsta ári „Þetta gekk frábærlega,“ segir Davíð Þór Rúnarsson, formaður Pókersambands Íslands sem hélt mótið. „Þetta endaði með því að 59 spiluðu. Við bættum við aukaborði en samt komust færri að en vildu á biðlistann. Við hefðum getað verið miklu fleiri. Við stefnum á 100 manna mót á næsta ári. Við erum rétt að byrja.“ Alls kostaði 115 þúsund krónur að taka þátt og máttu þeir spilarar sem duttu út kaupa sig aftur inn fyrir 100 þúsund. Pókersambandið hefur aldrei áður haldið mót með svo háum fjárhæðum. Alþingismaðurinn Willum Þór Þórsson setti pókermótið. Hann var einn þeirra sem lögðu fram frumvarp um að heimila starfsemi spilahalla á Íslandi og er hann því mikilsmetinn á meðal íslenskra pókerspilara. Hátt í 40 íslenskir atvinnumenn Að sögn Davíðs Þórs eru íslenskir atvinnumenn í póker orðnir í kring­ um 30 til 40 talsins og hafa þeir í sig og á með því að spila á netinu og fara á mót bæði hér heima og erlendis. Á Íslandsmótinu í Stór­ bokka voru 25 til 30 atvinnumenn á meðal þátttakenda og þeir röðuðu sér einmitt í efstu sætin. „Þeir áttu það sameiginlegt að vera atvinnu­ menn og þekktir fyrir að vera góð­ ir spilarar. Þetta sýnir og sannar að það er getan sem stjórnar árangrin­ um í þessu,“ segir Davíð Þór sem bætir við að atvinnumennirnir séu í öllum aldurshópum og að konum fari fjölgandi í hópnum. Alþjóðlega pókersambandið er nýjasti meðlimur Sport's Accord, sem heldur utan um sambönd eins og FIFA og Alþjóðahandboltasam­ bandið og alþjóðleg sambönd allra löglegra íþróttagreina á Íslandi. Sam­ kvæmt Sport's Accord er mótapóker hugaríþrótt og því var Íslandsmótið í Stórbokka með öllu löglegt. Rúmur milljarður í veltu Davíð Þór gat ekkert tjáð sig um veltu pókeríþróttarinnar á Íslandi en DV hefur heimildir fyrir því að peningarnir sem rúlli hér í gegn séu um 1,2 til 1,3 milljarðar króna á ári. Þar spilar inn í hversu góð­ ir íslenskir pókerspilarar eru orðn­ ir á heimsmælikvarða og koma þeir með aukna veltu inn í greinina. n Freyr Bjarnason freyr@dv.is Í miðjum leik Einn þeirra sem tóku þátt í Íslandsmótinu í Stórbokka. Davíð Þór og Willum Þór Davíð Þór Rúnarsson og Willum Þór Þórsson á Íslandsmótinu í Stórbokka fyrr í mánuðinum. Einbeittur Þessi einbeitti pókerspilari lítur ekki út fyrir að vera að "blöffa". Pókerspilari Vonandi truflaði ljósmyndar- inn ekki einbeitinguna hjá þessum spilara. Nudd Menn geta stífnað upp í pókernum og þessi spilari fékk axlanudd er hann íhugaði næsta leik. Við matarborðið Pókerspilararnir snæddu þrigga rétta máltíð á meðan á mótinu stóð. „Þetta sýnir og sannar að það er getan sem stjórnar árangrin- um í þessu Viðskipta- ráð styður gjaldtöku Viðskiptaráð Íslands hefur skilað inn umsögn til atvinnu­ veganefndar Alþingis vegna frumvarps til laga um náttúru­ passa. Meðal þess sem kemur fram í umsögninni er að ráðið styður hugmyndir um gjaldtöku á ferðamannastöðum. „Gjaldtaka er besta leiðin til tekjuöflunar vegna uppbyggingar ferðamannastaða, en veigamikl­ ir gallar eru við aðra valkosti sem nefndir hafa verið, það er framlög úr ríkissjóði, komugjald á flugferðir og gistináttagjald,“ segir viðskiptaráð. Þó telur ráðið að æskilegra sé að gjaldtakan fari fram í gegnum sjálfseignarstofn­ un fremur en í gegnum ríkissjóð. Þá segir viðskiptaráð að fyrir­ liggjandi frumvarp sé betra en óbreytt ástand. „Brýnt er að gera breytingar á núverandi fyrirkomulagi sem fyrst til að náttúruperlur landsins liggi ekki áfram undir skemmdum. Við­ skiptaráð leggur því til að frum­ varpið nái fram að ganga að teknu tilliti til athugasemda ráðsins.“ Lýsa eftir bíl Lögreglan á höfuðborgar­ svæðinu lýsir eftir bifreiðinni VG706, sem er Toyota Rav, ljósbrún að lit, lögregla þarf að ná tali af ökumanni hennar. Þeir sem geta gefið upplýs­ ingar um ferðir bifreiðarinnar eru beðnir um að hafa sam­ band við lögregluna í síma 444­1000. Fæst í apótekum, heilsubúðum, Krónunni og Celsus, Ægisíðu 121 Algjört orku- og næringarskot „ Með því að taka Lifestream Spirulina og AstaZan eykst krafturinn yfir daginn í vinnunni og æfingar seinni part dags eru ekkert mál. Vöðvarnir eru fljótari að ná sér eftir æfingar. Það að taka auka Spirulina sem er lífrænt fjölvítamín, fyrir leik er algjört orku- og næringarskot. Spirulina er líka frábær vörn gegn kvefi og flensum.“ Steinunn Erla Sigurgeirsdóttir leikskólakennari og landsliðskona í íshokkí. lífræn bætiefni fyrir alla - heilsa til framtíðar TREYSTI Á LIFESTREAM BÆTIEFNIN! Apótek, heilsubúðir, Krónan, Hagkaup, Viðir, N ttó og Fríhöfnin.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.